Morgunblaðið - 19.02.1984, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 19.02.1984, Qupperneq 36
84 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 framseldan. Þjóðverjar vilja það hins vegar ekki nema þeir geti verið vissir um að aðstæður hafi breytzt svo mjög að líklegt megi telja að beiðnin verði samþykkt. DÆMIGERÐUR SS-MAÐUR Walter Hermann Julius Rauff þjónaði í þýzka sjóhernum áður en hann gekk í SS þar sem hann náði ofurstatign. Hann þjónaði einnig í Norður-Afríku og á Ítalíu, þar sem hann var yfirmaður þýzku ör- yggislögreglunnar í Mílanó. Rauff var sagður góðvinur Reinhard Heydrichs, valdhafa nazista í Bæheimi og Mæri, sem var ráðinn af dögum, og var um skeið yfirmaður Reichsicherheits- hauptamt (Aðalríkisöryggisskrif- stofunnar). Hermenn Banda- manna tóku hann til fanga í Míl- anó 30. apríl 1945. Leyniþjónustuskýrsla, sem ný- lega var birt í Washington, sýnir að bandarískir liðsforingjar yfir- heyrðu hann og niðurstaða þeirra var þessi: „Hann er dæmigerður fulltrúi yfirmanna SS, sem hafa fullkomn- að pólitísk glæpamannasamtök hans ... Hann dregur litla dul á fyrirlitningu sína og takmarka- lausa óvild í garð Bandamanna. Hann er álitinn stórhættulegur ef hann verður einhvern tíma látinn laus og ef honum verður ekki út- rýmt með öllu er lagt til að hann verði hafður í haldi ævilangt." Rauff tókst hins vegar að flýja úr fangabúðum í Rimini í desem- ber 1946 og fór til Napoli. „Þar,“ sagði hann í yfirlýsingunni 1962, „hjálpaði kaþólskur prestur mér að komast til Rómar, þar sem ég dvaldist meira eða minna í 18 mánuði, alltaf í klaustrum Páfa- garðs." „Nazistaveiðarinn" Simon Wies- skipulagði brottflutning Gyðinga frá Þrakíu. Brunner virðist enn búsettur í Damaskus og Klarsfeld-hjónin hafa krafizt þess að hann verði framseldur. Brunner fyrirskipaði handtöku föður Serge Klarsfeld, sem er Gyðingur, í stríðinu. Serge fór til Damaskus sumarið 1982 til að vekja athygli á nærveru Brunn- ers. í Damaskus hittu Rauff og Eichmann einnig marga gamla vini, sem hjálpuðu Sýrlendingum að berjast gegn fsraelsmönnum, þeirra á meðal von Hiegel, majór úr þýzka flughernum, skriðdreka- hershöfðingjann von Strachwitz og Franz Rademacher, sérfræðing í Gyðingavandamálinu, sem var eftirlýstur fyrir stríðsglæpi. Árið 1949 fluttust Rauff og fjöl- skylda hans til Ecuador og níu ár- um síðar, 1958, til Chiie. Hann settist að í Punta Arenas, syðstu borg Chile, þar sem hann starfaði sem sölumaður unz hann var handtekinn í desemberbyrjun 1962 að ósk vestur-þýzka sendiráðsins í Santiago og leiddur fyrir rétt vegna tilmæla Vestur-Þjóðverja um framsal hans. Kona hans var þá látin. Þau eignuðust tvo syni. Nafn hans hafði birzt á skrá um stríðsglæpamenn, sem ísraels- stjórn dreifði þegar réttarhöldin gegn Eichmann fóru fram, og yfir- völd í Chile sögðu að hann væri eftirlýstur þar sem hann væri tal- inn bera ábyrgð á útrýmingu a.m.k. 90.000 Gyðinga í stríðinu. Rauff hafði hvorki þá né nú borg- ararétt í Chile og ferðast með þýzku vegabréfi. Fram kom þegar framsals Rauffs var krafizt að tveir fyrr- verandi undirmenn hans höfðu setið í haldi í Þýzkalandi í rúmt ár. Tveir menn aðrir, sem ekki höfðu verið handteknir, voru einn- ig grunaðir um að hafa verið við- ÍSRAELSKA stjórnin hefur farið fram á að stjórnin í Chile framselji 77 ára gamlan fyrrverandi SS-ofursta, Walter Rauff, svo að hægt verði að leiða hann fyrir rétt í ísrael og dæma hann fyrir fjölda- morð á Gyðingum í síðari heimsstyrjöldinni. ísraelsmenn halda því fram að Rauff beri ábyrgð á dauða 250.000 manna, þar af margra Gyðinga, í Póllandi, Litháen, Lett- landi, Hvíta Rússlandi, Úkraínu og Júgóslavíu. Hann er sagður hafa átt hugmyndina að smíði gasflutningabfla, sem naz- istar notuðu til að útrýma Gyðingum og öðrum. Bfl- arnir, sem voru kallaðir „Svörtu hrafnarnir“, voru innsiglaðir og fórnarlömb- in létust af völdum kolsýr- ingseitrunar þegar út- blástursloft var leitt inn í þá. SS-foringinn Kauff eftir handtökuna 1945. Klarsfeld sagði að Ra<>f? hefði verið yfirmaður þeirra manna, sem höfðu það verkefni að undir- búa gasbílasveitirnar og sjá þeim fyrir tækjum, auk þess sem hann hefði séð um smíði gasbílanna, sem voru notaðir tii að útrýma Gyðingum áður en dauðabúðirnar voru teknar í notkun. Eiginkona Serge, Beate Klars- feld, sem er af þýzkum ættum, hefur staðið fyrir mótmælum í Chile gegn búsetu Rauffs þar. Hún var handtekin utan við forseta- höllina 31. janúar, en seinna látin laus. Síðan var hún handtekin fyrir framan heimili Rauffs í yfir- stéttarhverfinu Las Condes í Santiago 8. febrúar, en látin laus að lokinni yfirheyrslu. Frá Chile fór hún til Paraguay til að krefjast þess að annar stríðsglæpamaður nazista, Josef Mengele, „engill dauðans" frá Auschwitz, verði rekinn úr landi. Yfirvöld í Paraguay segja að hann verði rekinn úr landi ef hann finn- ist, en segja engar sannanir fyrir- liggjandi um að hann leynist þar. Beiðni Vestur-Þjóðverja um framsal Rauffs var hafnað 1963 á þeirri forsendu að stríðsglæpir hans væru fyrndir. En Serge Klarsfeld segir að samkvæmt stjórnarskrá Chile sé hægt að reka tafarlaust úr landi hvern þann mann, sem teljist „skaðlegur landinu". Klarsfeld var áður í ísrael, þar sem hann var fullvissaður um að fsraelsstjórn væri reiðubúin að dæma Rauff. Hann hefur einnig reynt að fá Vestur-Þjóðverja og Rússa til að láta málið til sín taka. Hann hefur skorað á Rússa að fara fram á framsal Rauffs á þeirri forsendu að mörg fórnar- lambanna í gasbílunum hafi verið rússneskir Gyðingar. Hann hefur einnig beðið Þjóðverja að gera nýja tilraun til þess að fá Rauff Ungverskir gyðingar á leið til útrýmingarbúðanna í Auschwitz. Gasbfla- Franz Stangl: leikur enn lausum hala. enthal í Vín segir að sögn New York Times að þýzk nunna hafi hjálpað Rauff að flýja úr fanga- búðunum í Rimini og falið hann í klaustri Franzsiskanareglunnar. „Mér var útvegað starf kennara í frönsku og stærðfræði á munað- arleysingjahæli, sem heitir Via Pia í Róm,“ segir Rauff í yfirlýs- ingunni. „Með hjálp kaþólsku kirkjunnar tókst fjölskyldu minni að flýja frá rússneska hernáms- svæðinu í Þýzkalandi og komast til Rómar.“ Síðan fluttist Rauff til Damask- us og því næst til Suður-Ameríku og virðist hafa notað ferðaskilríki undirrituð af prestum Vatíkans- ins. I Damaskus starfaði Rauff fyrir sýrlenzku ríkisstjórnina. Þar hitti hann fyrir gamla samstarfsmenn Rauffs, þeirra á meðal Adolf Eichmann, sem bar ábyrgð á morðum sex milljóna Gyðinga, og Alois Brunnér majór, sem m.a. Hluta sannananna gegn Rauff er að finna í bréfi frá SS-lækni, dagsettu í maí 1942, þar sem bent er á ýmsa vankanta á gasbílunum. Læknirinn minntist einnig á and- legt álag þeirra manna, sem höfðu það hlutverk að koma fórnarlömb- unum fyrir í fjöldagröfum, „venju- lega um 15 kílómetra eða svo frá aðalþjóðveginum". Á það var bent að þegar of mik- ið gas var leitt inn í gasbílana með því að auka benzíngjöfina liðu fórnarlömbin ægilegar þjáningar. Þau urðu afskræmd í framan og þvag og saur gekk niður af þeim. Þegar vélin var ekki látin ganga of hratt fengu fórnarlömbin aftur á móti hægt andiát. Sjálfur er Rauff sagður hafa undirritað leyniskýrslu 5. júlí 1942, þar sem hann bendir á að frá því í desember árið áður „hafi 97.000 verið unnir". „GASBÍLAÞJÓNUSTAN" I desember 1962 viðurkenndi Rauff í yfirlýsingu til hæstaréttar Chile að hann hefði átt þátt í að skipuleggja „þessa flutningabíla- þjónustu". Hann undirritaði yfir- lýsinguna þegar Vestur-Þjóðverj- ar reyndu að fá hann framseldan frá Chile fyrir 20 árum. Hann sagði einnig: „Ég var yfirmaður tæknihópanna í aðalstöðvum ör- yggislögreglunnar." „Þessir svokölluðu sérstöku flutningabílar," sagði hann, „voru ekki sérstaklega til þess ætlaðir að útrýma Gyðingum, heldur einnig þeim sem höfðu verið dæmdir til dauða.“ „Ég verð að leggja á það áherzlu," sagði Rauff, „að þótt tækniskrifstofan undir minni stjórn væri viðriðin hina sérstöku flutningabíla, sem voru notaðir til að framkalla dauða með köfnun, stóð hlutverk þessarar skrifstofu aðeins í sambandi við tæknilegu hliðarnar og í engu sambandi við aftökur fólks. Svo að ég veit ekki hvort þessir flutningabílar voru notaðir til að drepa Gyðinga." Um efni yfirlýsingar Rauffs var ekki vitað fyrr en franski „naz- istaveiðarinn" og Iögfræðingurinn Serge Klarsfeld birti texta hennar í París fyrir skömmu. morðinginn Páfagarður sakaður um að hjálpa stríðsglæpamönnum nazista og krafizt er framsals eins þeirra frá Chile

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.