Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984 17 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavik. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakiö. Alþýðusambandið klofnar f Dagsbrún Fyrir tilstilli flokksbrodda og forystumanna Al- þýðubandalagsins hefur Al- þýðusamband íslands verið klofið með andstöðu Guð- mundar J. Guðmundssonar og félaga við nýgerða kjara- samninga. Er hér um að ræða einhverja herfilegustu misnotkun stjórnmálamanna á verkalýðshreyfingunni á síðari áratugum, misnotkun sem gengur þvert á hags- muni launþega eins og best sést á því að Guðmundur J. Guðmundsson, forseti Verka- mannasambands íslands, er í minnihluta meðal formanna verkalýðsfélaga innan sam- bandsins og sá eini þeirra sem harðlega mótmælir kjarasamningunum. Með því að snúast gegn samningum Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins á flokkspólitískum forsend- um og í því skyni að brjóta viðnám gegn verðbólgu end- anlega á bak aftur hafa for- ystumenn Alþýðubandalags- ins enn einu sinni sýnt að þeir líta á verkalýðshreyfing- una sem tæki í valdatafli fyrir sjálfa sig en ekki sem baráttutæki fyrir bættum kjörum þeirra sem hreyfing- una mynda. Gegn þessari flokkspóli- tísku aðför hljóta forystu- menn Alþýðusambandsins með forseta þess, Ásmund Stefánsson, að snúast af hörku. Aðeins með því að sýna Svavari Gestssyni að sundrungariðja hans verði alls ekki þoluð getur Ás- mundur Stefánsson komið í veg fyrir klofning verka- lýðshreyfingarinnar. Eins og mál hafa þróast er líklegast að Þröstur Ólafs- son, sem í haust var ráðinn forstjóri verkalýðsfélagsins Dagsbrúnar, verði í framboði fyrir Alþýðubandalagið sem forseti Alþýðusambandsins á næsta þingi þess. Skömmu eftir að Þröstur nær kjöri sem formaður verkalýðsráðs Alþýðubandalagsins stendur félagið sem hann stjórnar frá degi til dags fyrir uppreisn innan Alþýðusambandsins, uppreisn sem gengur þvert á allt það sem forystumenn Dagsbrúnar hafa sagt til þessa en þeir dansa með og meirihluti félagsmanna líka eins og fram kom á fundi fé- lagsins síðdegis í gær þar sem kjarasamningarnir voru felldir. Með þeirri atkvæða- greiðslu sem gengur þvert á hagsmuni félagsmanna í Dagsbrún telja andstæðingar I Ásmundar Stefánssonar í Al- þýðubandalaginu sig hafa fengið vopn til að berja á honum með og hverjum þeim sem vill að samið sé á skyn- samlegum grundvelli um kaup og kjör á meðan Al- þýðubandalagið er utan rík- isstjórnar. Fæstir hafa víst átt von á því að Alþýðusamband ís- lands yrði næsta fórnarlamb hinnar nýju stéttar í Alþýðu- bandalaginu sem telur sig réttkjörna til valda og áhrifa og eirir engu fyrr en hún nær sínu fram. Svo er hins vegar komið núna að félagsmenn í Dagbsrún sitja uppi samn- ingslausir fyrir áhrif hinnar nýju stéttar og Alþýðusam- bandið er klofið niður í rót ásamt með Verkamannasam- bandi íslands þar sem forset- inn, Guðmundur J. Guð- mundsson, hefur snúist gegn meirihlutavilja forystu- mannanna. Fyrir þessum hamförum eru engin mál- efnaleg rök hjá mönnum eins og Svavari Gestssyni og Þresti Ólafssyni, sem töldu allt annað mikilvægara en að bæta kjör hinna verst settu á meðan þeir höfðu völdin í ráðuneytunum. Svavar fórn- aði öllu fyrir að sitja sem lengst í ráðherrastólnum og hann misnotar nú Dagsbrún- armenn í von um að þeir verði vogarstöngin sem sveifli sér aftur inn í stjórn- arráðið. Á nú að etja Dagsbrúnar- mönnum út í verkfall til að staðfesta klofninginn í Al- þýðusambandinu? Æskilegt væri að Dagsbrúnarforstjór- inn og formaður Alþýðu- bandalagsins legðu spilin á borðið og skýrðu afdráttar- laust frá því hvaða markmiði þeir ætla að ná með því að beita Guðmundi J. Guð- mundssyni fyrir vagn sinn innan Dagsbrúnar. Miklu skiptir að þessari aðför fámennrar valdaklíku innan Alþýðubandalagsins að Alþýðusambandinu verði mætt með réttum hætti. Ekki er við því að búast að forystumenn í verkalýðs- hreyfingunni geti snúist gegn henni einir og óstuddir. Foringjar annarra stjórn- málaflokka en kommúnista verða að skerast í leikinn til að útiloka flokkspólitíska einokun á samningsrétti launþega í krafti pólitísks ofstopa og hótana um að honum verði beitt víðar en í Dagsbrún ef svo ber undir. Milljóna tjón í snjóflóðinu í Ólafsvík; „Hrópuðum inn í rústirnar en fengum ekkert svaru Steypubfll þeyttist 10—15 metra og ruddi veghefli út í gegnum steinsteyptan vegg Steypustöðvarinnar í Ólafsvík þegar snjóflóð féll á húsið í fyrrakvöld og tveir menn, Krist- ján Lárusson og Valgeir Asmundsson, sem voru við vinnu í húsinu, lentu undir braki tveggja umræddra þungavinnuvéla. Snjóflóðið ruddist í gegnum tvær hliðar hússins, fyllti það upp á aðra hæð og þeytti steypubflnum og vegheflinum út um gafl hússins fjær fjalls- hlíöinni. Talið er að tjónið í snjóflóðinu sé á bilinu 5—10 milljónir króna en ekki eru öll kurl komin til grafar ennþá. Húsið, sem var um 200 fermetrar að stærð, er gjörónýtt og meiri og minni skemmdir urðu á veghefli, þremur steypubflum, tveimur jeppum, einni rútu, 40 manna, og margs konar tækjum og varahlutum sem voru í Steypustöðinni, ýmist í eigu hennar eða Hagvirkis sem vinnur að gerð Ennisvegar hins nýja. Þegar Morgunblaðs- menn komu til Ólafsvíkur í gær var óveðrið að ganga niöur og menn aö hefjast handa um björgun tækja og hreinsun í rústunum. Nokk- ur stórvirku þungavinnutækjanna voru auð- sýnilega gjörónýt. Snjóflóöið féll hátt ofan úr fjallinu, en einnig féllu á sama tíma nokkur snjóflóð á Ennisveginn nýja og var eitt þeirra um 50 metra breitt og 5 metra þykkt á vegin- um. Morgunblaðið ræddi við menn á slysstað. „Krafsaði snjó frá andliti Valgeirs“ „Aðkoman að húsarústunum í brjáluðu veðri þar sem stórvirk tæki lágu eins og hráviði með brak- inu, var eitthvað það hrikalegasta sem hægt var að hugsa sér vegna þess að félagar manns voru í rúst- unum og það var ekki hægt að láta sér detta annað í hug en að þeir hefðu farizt," sagði Bjarni V. ólafsson, starfsmaður Hagvirkis, en hann kom fyrstur að rústum Steypustöðvarinnar ásamt Lárusi Kristjánssyni, föður annars manns- ins sem var í húsinu þegar snjóflóð- ið féll. „Við hrópuðum og kölluðum inn í rústirnar, en fengum ekkert svar og ekki var það til að draga úr hinni hrikalegu stöðu að gul blikkljós á jeppa, sem lá á hliðinni í snjóflóð- inu, blikkuðu sífellt," sagði Bjarni, „en allt í einu kom Kristján skríð- andi út um rifu á gafli hússins með vasaljós sem hann hefði rekist á af tilviljun. Hann sagði okkur að hann væri fótbrotinn, en kvaðst hafa komist til Valgeirs sem væri fastur undir braki af veghefli og steypubíl. Hafði Kristján náð að krafsa snjó frá andliti Valgeirs sem hékk með höfuðið niður úr snjótungu ofan í smurgryfju Steypustöðvarinnar. Lárus, faðir Kristjáns, fór þá þegar inn um rifuna á húsveggnum og komst til Valgeirs til þess að vera hjá honum og aðstoða hann á með- an náð yrði í hjálp, en ég hjálpaði Kristjáni hins vegar frá húsarúst- unum og varð að draga hann meira og minna yfir snjóruðninginn og hluta leiðarinnar gat hann skriðið. Ég kom honum síðan inn í bíl sem stóð þarna rétt við veginn og reyndi að hlúa að honum. Örfáum mínútum áður en snjó- flóðið féll var ég að vinna við stóra gröfu hjá Steypustöðinni, en þá kom Lárus og bað mig að opna ieið í gegnum snjóflóð sem hafði fallið á nýja Ennisveginn, en Lárus var á leið að Rifi. Eg fór strax, en Lárus skrapp þá að Steypustöðinni sem var þá rústir einar. Við kölluðum síðan á hjálpar- sveit, lögreglu og lækna, en allir að- ilar brugðu mjög skjótt við og það leið ekki á löngu þar til búið var að ná Valgeiri undan braki þunga- vinnuvélanna í rústunum, en það var mjög kalt enda algjört úrhelli og stormur." „Ætluðu að vera í örygginu um nóttina“ „Ég var kölluð út stuttri stundu eftir að snjóflóðið féll og þegar ég kom á staðinn leist mér þannig á að enginn gæti hafa lifað þetta af,“ sagði Hjördís Harðardóttir, læknir, í samtali við Morgunblaðið, en hún kom með fyrstu björgunarmönnum á slysstað og sinnti þeim slösuðu ásamt Kristófer Þorleifssyni, lækni. „Björgunarmenn voru búnir að koma öðrum manninum í skjól þeg- ar ég kom en hinn var fastur í rúst- um hússins, klemmdur með höndina á milli steypubílsins og veghefilsins. Það var mjög kalt þarna og erfitt að vinna, en Valgeir, sem var fastur, var með fullri meðvitund og átti ekki í erfiðleikum með að anda eftir að búið var að ryðja frá snjó sem þrengdi að andliti hans. Mennirnir Á myndinni sést vel gaflinn sem veg- hefillinn braut og má sjá í tönn hefils- ins. í forgrunni liggur einn af bílunum sjö sem stórskemmdust í snjóflóðinu. Ut um rifuna neðst á gaflinum t.v. kom Kristján skríðandi, fótbrotinn með vasaljós. báðir voru mikið marðir og skornir víða á líkamanum og sérstaklega var Kristján skorinn á höndum, en það var mikið af glerbrotum 1 snjónum og hann skarst talsvert þegar hann kraflaði snjóinn frá andliti Valgeirs sem stóð á haus í snjótungu við smurgryfju hússins. Það var mikil mildi að ekki fór verr og þeir hafa báðir sloppið ótrúlega vel, en báðir mennirnir höfðu ætlað að Rifi um kvöldið, en hætt við það vegna þess að þeir óttuðust snjó- flóðahættu á Ennisveginum og þess vegna höfðu þeir látið senda sér nesti sitt í Steypustöðina og ætluðu að vera í „örygginu" um nóttina." „Mikil mildi að ekki fórust menn“ „Það var mikil Guðs mildi að ekki fórust menn í þessu slysi," sagði Árni Baldursson, staðarstjóri hjá Hagvirki, sem vinnur við gerð nýja Ennisvegarins, „en ég hafði beðið strákana að hætta vinnu við veginn um kvöldmatarleytið vegna þess hve veðurofsinn var feiknalegur. Bjarni og Lárus kölluðu í mig þegar þeir komust að raun um hvað hafði gerst og ég kallaði í hjálparlið. Jú, þetta tefur okkur auðvitað eitthvað við Ennisveginn, en það verður ekki mikið. Við bregðumst skjótt við með ráðstafanir. Auk ým- issa véla sem hafa skemmst eða eyðilagst fór mikið af varahlutalag- er undið flóðið, rafsuðutæki og sitt- hvað sem við þurfum á að halda og þarf að útvega nú þegar." Svæðið yfirgefið strax eftir björgun Emanúel Ragnarsson, formaður Björgunarsveitarinnar Sæbjargar í Ólafsvík, kvað hluta af liði björgun- arsveitarinnar hafa farið á slys- staðinn, en það hefði ekki tekið langan tíma að ná mönnunum tveimur úr rústunum og þá hefði verið tekin akvörðun um að yfirgefa svæðið þegar í stað vegna illviðris og ástands á staðnum. „Setjum allan kraft í að byggja upp“ Stefán Jóhann Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar og forstjóri Steypu- stöðvarinnar, sagði að tjónið í snjóflóðinu næmi líklega um 5 milljónum króna. „Það var kominn óvenju mikill snjór þarna," sagði Stefán Jóhann, „en við höfum aldrei heyrt um snjó- flóð á þessum stað áður. Einnig er það nýtt hve skriður féllu utarlega í Enninu nú. Við reiknum með að hefjast þegar handa um endurbyggingu Steypu- stöðvarinnar, því við verðum að sinna viðskiptavinum okkar, en nú er að ákveðja nýjan stað fyrir bygg- ingu húss. Við eigum þó að geta haf- ið störf mjög fljótlega með tækja- búnaði sem við eigum. Þetta er tí- unda starfsárið okkar og við setjum allan kraft í að byggja upp á ný. Við eigum þrjá steypubíla sem lentu í flóðinu, húsið og blöndunarstöð með tönkum, en Hagvirki á veghefil, tvo bíla, 40 manna rútu og margskonar tæki og varahluti. Hjá okkur var húsið tryggt og einn bíllinn var kaskotryggður." — á.j. Ljósmyndir Mbl. Ra^nar Axelsson. Snjóflódid féll frá hamrabeltinu, mölbraut 200 m2 stöðvarhús og kaffærði og stórskemmdi fjölda þungavinnuvéla. Velti fyrst fyrir mér hvort ég væri einn og kannski að fara... Rætt við Valgeir Asmundsson, sem slapp ómeiddur úr snjóflóðinu, Og Lárus Kristjánsson verkstjóra, sem vissi af syni sínum í brotnu húsinu „VIÐ VORUM á næturvakt í vélavið- gerðum hjá Hagvirki, sem haföi verk- stæðisaðstöðu í byggingu steypustöðv- arinnar. Veður var vont og því gátum við lítið verið úti, vorum komnir inn upp úr klukkan átta um kvöldið. Ætlun okkar var að fara sem minnst úr hús- inu, þar sem við töldum okkur óhulta, og þess vegna vorum við með kaffi með okkur til að þurfa ekki að fara í kvöld- kaffið á Rifi. Um kvöldmatarleytið höfðu menn séð litlar gusur koma úr Enninu, þess vegna gerðum við þessar varúðarráðstafanir," sagði Valgeir Asmundsson, starfsmaður hjá Hag- virki, sem slapp ómeiddur úr snjóflóð- inu við Ólafsvík í fyrrakvöld. Blaða- maður Mbl. ræddi við hann við kom- una til Reykjavíkur í gær, en þá var Valgeir á leið heim til fjölskyldu sinnar í Hafnarfirði. „Þegar leið á kvöldið kom verk- stjórinn, Lárus Kristjánsson, til okkar og með honum Bjarni Ólafs- son, gröfustjóri. Þeim leist þannig á ástandið, að þeir ákváðu að flytja gröfu, sem stóð þarna utan við, að verkstæðisbyggingunnl. Ætlunin var svo að Bjarni yrði áfram með okkur Kristjáni og við urðum allir sam- Kraftaverk að við sluppum lifandi — segir Kristján Helgi Lárusson, sem ökklabrotnaði í flóðinu „ÞAÐ HEYRÐIST smáhvellur. Svo vissi ég ekki meir fyrr en ég lá undir vegheflinum í gryfjunni —- eða við höldum helst að það hafi verið í gryfj- unni,“ sagði Kristján Helgi Lárusson, sem ökklabrotnaði í snjóflóðinu í Ólafsvík og liggur nú á Borgarspítal- anum í Reykjavík. Þar ræddu Morg- unblaðsmenn stuttlega við hann í gær skömmu áður en hann var lagður und- ir hnífinn. „Það tók mig örstutta stund að átta mig á hvað hefði gerst en svo skildi ég að snjóflóð hafði fallið á húsið. Þá fór ég að brjótast um og losa mig. Það gekk ágætlega, enda var ég eiginlega aldrei á kafi í snjó, en fóturinn var klemmdur fastur. Ég þóttist strax vita að eitthvað væri ekki í lagi með hann en svo tókst mér að slíta mig lausan." Kristján Helgi fann vasaljós, kveikti á því — og sá í ljósgeislan- um fætur félaga síns standa út úr snjóruðningi á gólfinu. „Við fórum að kallast á og svo byrjaði ég að pjakka frá andlitinu á honum," sagði Kristján. „Þegar því var lokið heyrðum við köll úti fyrir. Ég komst út um vegginn og kallaði á móti þeim.“ Hann sagði að björgunar- starfið hefði gengið fljótt og vel fyrir sig, veginn hefði þurft að ryðja en að öðru leyti hefði allt gengið á mjög skömmum tíma. „Við vorum heppnir að sleppa lif- andi,“ sagði hann. „Það var algjört kraftaverk, að þetta fór ekki verr — aðeins nokkrum sekúndum áður en flóðið skall á húsinu stóðum við framan við steypubílinn." Kristján Helgi Lárusson og kona hans, gær. í Morgunblaöiö/Friðþjófur. Hrönn Valtýsdóttir á Borgarspítalanum í mála um að Lárus færði okkur meira nesti, svo við þyrftum örugglega ekk- ert að fara út úr húsinu um nóttina," sagði Valgeir. „Um það bil sem hann var að leggja af stað út á Rif var kallað í okkur um talstöð og við beðnir um smástykki í skurðgröfu, sem verið var að nota í vegaframkvæmdunum. Það hafði í för með sér örlitla töf fyrir Lárus og þegar hann ætlaði aft- ur að leggja af stað hafði fallið flóð á nýja Ennisveginn. Hann sneri því við og sótti Bjarna. Saman ætluðu þeir að skoða aðstæður, koma síðan aftur og reyna að moka sig í gegnum flóð- ið.“ Lárus verkstjóri, og faðir Krist- jáns Helga, kom með syni sínum og vinnufélaga til Reykjavíkur. „Ef ég hefði ekki tafist vegna varahlutarins hefði ég líklega lent í flóðinu, sem féll á veginn," sagði hann. „Við vor- um að byrja að moka í gegnum það þegar ég varð var við að annað flóð féll á bak við okkur. Ég kallaði strax í félaga okkar Ólafsvíkurmegin og bað þá að ná í lögreglu og hjálpar- sveit. Þá hefur klukkan verið um hálf tólf.“ Valgeir sagði að þeir Kristján hefðu verið búnir að ljúka viðgerðum laust eftir klukkan ellefu um kvöldið. „Rafmagnið lét illa og ljósin að blikkuðu, svo við ákváðum að finna vasaljósin okkar. Sjávarmegin í hús- inu var smurgryfja og yfir henni stóð veghefill, sem við vorum að gera við. Fjallmegin var steypubíll og við stóðum nærri honum, búnir að finna ljósin, þegar allt í einu heyrðist lítill smellur. Ég hélt fyrst að plast í glugganum fjallmegin hefði sprungið," sagði Valgeir. „Þegar ég leit upp, og átti von á hríðarmuggu inn um gluggann, sá ég gusuna koma og Kristján með henni. Ég missti fótana og lenti inn undir vegheflinum, sem fór af stað og stöðvaðist við vegg. Það næsta sem ég vissi var að það var svartamyrkur, efri hluti líkam- ans var fastur og ég gat mig hvergi hreyft - nema hvað að ég gat eitt- hvað spriklað. Líklega hef ég verið fastur á brún smurgryfjunnar. Og ég neita því ekki, að ég velti því fyrir mér allra fyrst, hvort ég væri bara einn þarna og kannski að fara ..." Þá heyrði Valgeir hróp og þekkti strax rödd Kristjáns félaga síns. Morgunblaðið/Friöþjófur. Valgeir Ásmundsson: Röð af tilviljun- um og kraftaverkum. „Hann hefur líklega farið yfir mig þegar flóðið kippti undan mér fótun- um,“ sagði Valgeir, „því hann var undir mér í gryfjunni. Og ég held að okkur hafi báðum létt jafn óskaplega mikið, þegar við heyrðum hvor til annars. Kristjáni tókst fljótlega að slíta sig lausan, fann vasaljós og spýtu og gat kraflað frá andlitinu á mér. Þá heyrðum við köll úti fyrir, Kristján komst út um brotinn vegg og hitti þar pabba sinn og Bjarna. Ég beið rólegur á meðan, því ég vissi þá að öllu væri óhætt. Björgun- arsveitarmennirnir komu mjög fljótlega og mokuðu niður á upp- handlegginn á mér, sem var skorðað- ur undir planka. Þegar ég var laus hresstist ég strax og hef það gott núna, er að vísu svolítið marinn og með smáskrámur hér og þar.“ Hann sagðist sannfærður um, að það væri kraftaverk að báðir væru á lífi. „Þetta var röð af tilviljunum og kraftaverkum," sagði hann. „Fyrst í stað var ég dálítið skelfdur, ég velti því fyrir mér eitt augnablik hvaða möguleika ég ætti ef ég heyrði ekkert og enginn kæmi, en þegar ég heyrði í Kristjáni hvarf frá mér allur ótti. Svo fengum við mjög góða aðhlynn- ingu hjá björgunarsveitarmönnun- um og á heilsugæslustöðinni, þar sem við vorum í nótt. Og þú mátt Morgunblaðið/Friðþjófur. Lárus Kristjánsson verkstjóri: Óhugn- anleg tilfinning að geta hvenær sem er átt von á annarri gusu ... vita það,“ sagði \'algeir að lokum, „að það er gaman að lifa.“ Lárus Kristjánsson sagðist eiga erfitt með að lýsa tilfinningum sín- um fyrst eftir að flóðið féll. „Menn geta rétt ímyndað sér hvernig það var,“ sagði hann. „Ég vissi af vinn- ufélaga mínum og syni þarna inni og gat ekki haft samband við þá. Þegar við komum að húsarústunum kom Kristján fljótlega út og þá létti okkur mikið. Við fórum þarna inn og reyndum að losa frá Valgeiri með því að skríða inn undir veghefilinn. Það var óhugnanleg tilfinning, það mátti hvenær sem var búast við annarri gusu, þar sem við vorum undir öllu draslinu. En björgunarmenn brugð- ust fljótt og vel við og allt fór þetta betur en á horfðist." Hann sagði að húsið, sem hann giskaði á að hefði verið um 250 fer- metrar, 4—5 metra hátt, uppsteypt, væri nánast ónýtt. „Það voru tveir smábílar fyrir utan og skemmdust nokkuð, annar sýnu meira. Tveir steypubílar voru fyrir utan húsið og sá þriðji inni — sá er greinilega mest skemmdur. Steypusíló barst niður á veg. Og á bak við húsið, fjallmegin, var rúta. Það er skemmst frá því að segja, að hún var eins og smurð á vegginn, eða það sem eftir var af honum," sagði Lárus Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.