Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984
3
Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri
VSI um ummæli Alberts Guðmundssonar:
Rangt að verið sé að
niðurgreiða launin
Samningarnir snerust um að
bæta hag þeirra verst settu
„ÞAÐ ER alls ekki réu, þegar fjármálaráðhcrra segir, að með þessum tilfærsl
um sé verið að niðurgreiða laun fyrir fyrirtækin í landinu,** sagði Magnús
Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands fslands, í samtali við
Mbl., er hann var inntur álits á þeim ummælum fjármálaráðherra, að með
framlagi ríkisins í nýgerðum kjarsamningum ASÍ og VSÍ væri verið að niður-
greiða laun, sem fyrirtækjunum bæri í raun að greiða.
„Stór hópur þeirra, sem fær úr-
lausn með þessari millifærslu er
alls ekki á vinnumarkaðnum. Sam-
kvæmt áætlun er gert ráð fyrir að
þriðjungur upphæðarinnar renni
til elli- og örorkulífeyrisþega og
það er furðulegt ef ráðherran kall-
ar það niðurgreiðslu á launum,"
sagði Magnús ennfremur.
„Þá segir ráðherrann að fyrir-
tækin taki ekki á sig eðlilegan
launakostnað við þessa samninga,
sem er auðvitað ekki rétt. Fyrir-
tækin taka á sig tæplega 7% heild-
arlaunakostnaðarhækkun á þessu
ári, að viðbættri 3% launahækkun
í upphafi næsta árs. Samhliða
þessu er verið að hækka lágmarks-
tekjutryggingu um tæplega 16%.
Ég skil því ekki þegar ráðherrann
talar um að fyrirtækin taki ekki á
sig réttmætan launakostnað,"
sagði Magnús.
„Þessir samningar snerust í raun
um hvernig hægt væri að koma til
hjálpar þeim sem lægstu launin
hefðu og verst væru staddir. Það er
gert með beinum launahækkunum
og þessum tilfærslum. Hugmynd-
irnar, sem legið hafa til grundvall-
ar þessum tilfærslum hafa flestar
snúist um að nýta fjármuni, sem
þegar er gert ráð fyrir að séu nýttir
til einhvers konar tekjuöflunar,
betur en gert er í dag. Málið snýst í
raun um að færa frá þeim sem bet-
ur mega sín til þeirra sem búið er
að skilgreina, að eigi erfitt í þjóð-
félaginu. Það kemur mér því veru-
lega á óvart, að fjármálaráðherra
skuli ekki sjá hinar jákvæðu hliðai
þessara samninga og þeirra til-
færslna, sem farið er fram á. Þaf
er alls ekki verið að tala um aukir
útgjöld ríkissjóðs heldur aðeins
verið að færa frá þeim sem betui
mega sín til hinna, sem verr ert
settir," sagði Magnús Gunnarsson
framkvæmdastjóri VSÍ, að end
ingu.
Verðbólgan á undanhaldi:
Hækkun lánskjaravísi-
tölu er liðlega 0,47%
VERÐBÓLGA hefur verið á
miklu undanhaldi undanfarna
mánuði og nýjustu útreikningar
á hækkun vísitölu staðfesta það.
Hækkun lánskjaravísitölu milli
febrúar og marz sl. er um 0,47%,
eða úr 850 stigum í 854 stig.
Hækkun vísitölu byggingar-
kostnaðar milli janúar og febrú-
ar var enn minni, eða 0,23%, úr
155,22 stigum í 155,58 stig.
Ef hækkun lánskjaravísitöl-
unnar er framreiknuð næstu
tólf mánuði, fæst tæplega
5,8% árshraði. Á síðustu
þremur mánuðum hefur
lánskjaravísitala hækkað um
2,15% og er árshraðinn miðað-
ur við þessa þriggja mánaða
hækkun tæplega 8,9%.
Ef hækkun vísitölu bygging-
arkostnaðar milli mánaðanna
janúar og febrúar er fram-
reiknuð næstu tólf mánuði,
fæst út um 2,8% árshækkun.
Á síðustu þremur mánuðum
hefur vísitala byggingarkostn-
aðar síðan hækkað um 1,19%,
sem jafngildir um 4,85%
árshraða framreiknað.
Að mati Seðlabanka íslands
er verðbólguhraðinn nú á bil-
inu 11—14%, en þá er tekið
mið af svokallaðri fjögurra
mánaða reglu. Tekið er mið af
hækkun vísitölu síðustu tvo
mánuði og spá um næstu tvo
mánuði.
Stefán Valgeirsson mætir á þingflokksfundum:
Fékk skriflega yfir-
lýsingu um „lýðræð-
isleg vinnubrögð“
„ÞAÐ ER BÚIÐ art setja starfsreglur í stíl virt þart sem ég var búinn að tala
um og sem fullnægja því sem ég var búinn að fara fram á,“ sagði Stefán
Valgeirsson þingmaður Framsóknarflokksins í virttali virt Mbl. í gær, en
hann hefur á ný tekirt sæti í þingflokki sínum, eftir art hafa fengirt skriflega
yfirlýsingu þingflokksins um art hann muni stunda þart sem Stefán sjálfur
kallaði, er hann hætti að sækja þingflokksfundi: „lýðræðisleg vinnubrögð".
Stefán sagðist hafa fengið komandi málefni.
skriflega sendar nýjar starfsregl-
ur, sem samþykktar hefðu verið af
þingflokknum. Hann sagði þær
fela í sér að ef fundarstjóri, þ.e.
formaður þingflokks, teldi ein-
hvern vafa á því að verða ætti við
beiðni þingmanns um atkvæða-
greiðslu, þá skuli hann skjóta því
til þingflokks, þannig að atkvæða-
greiðsla fari fram um hvort til at-
kvæðagreiðslu skuli koma um við-
„Þetta er alveg eftir þeim regl-
um sem ég tel að eigi að vera í
þessu sambandi," sagði Stefán.
Hann sagðist þegar vera búinn að
mæta á þingfundi. „Mér var tekið
alveg eins og ég hefði farið út í
gær,“ sagði hann aðspurður um
móttökurnar. „Ég er búinn að fá
því fullnægt sem ég fór fram á og
ég lét ekkert troða á mér með
þetta,“ sagði hann að lokum.
Þetta
er fermingarfatnaðurinn
sem slær í gegn
nú er hann loksins
kominn í allar verslanir okkar.
BS) KARNABÆR
Ir LAUGAVEGI 66 - GLÆSIBÆ -
AUSTURSTRÆTI 22