Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984 23 tala tungu, sem fáir þekkja," sagði Antti Tuuri, finnski rithöfundur- inn, m.a. en bætti því við, að vissu- lega væru Finnar stórir í saman- burði við jaðarþjóðirnar í vestri og Sama. Tuuri fjallaði síðan nokkuð um finnskar bókmenntir og þau miklu áhrif, sem þær hefðu orðið fyrir af grönnunum í austri, Rússum. Bente Clod er dönsk skáldkona og fulltrúi minnihlutahóps að því leyti, að hún er kona og í menning- arlegum efnum hafa konur iengi verið afskiptar. Á því hefði þó orð- ið mikil breyting á síðustu árum og sagði hún nokkuð frá stöðu kvennabókmennta í Danmörku nú. Clod sagði að margar list- greinar þyrftu ekki þýðingar við, t.d. málaralist, höggmyndalist og tónlist, en því væri öfugt farið með bókmenntirnar. Þýðingar kostuðu hins vegar peninga og af þeim hefði ekki verið nóg til þess- ara hluta. Bo Carpelan, sem er sænsku- mælandi Finni, ræddi um stöðu bókmenntanna meðal þessa minnihlutahóps og kvað menning- arleg samskipti á Norðurlöndum vera allt of lítil. Staða grænlensk- unnar styrkist Inoraq Olsen, grænlenskum rit- höfundi, dvaldist mest við stöðu grænlenskrar tungu, sem hann sagði lengi hafa átt í vök að verj- ast. í þeim efnum hefði þó orðið mikil breyting á síðustu árum og yxi nú grænlenskum bókmenntum stöðugt fiskur um hrygg. Græn- lendingar væru hins vegar fáir og auk þess væri nokkur munur á vestur-grænlensku, sem væri að- almálið, og þeim mállýskum, sem talaðar væru á Austur- og Norð- ur-Grænlandi. Grænlendingar hefðu hins vegar áhuga á að efla samskiptin við frændur sína í vestri, eskimóa í Kanada og jafn- vel Alaska, sem töluðu skyldar tungur og taldi hann slíkt sam- starf geta orðið þjóðlegri og menningarlegri meðvitund þess- ara þjóða mikils virði. Paal-Helge Haugen, sem skrifar á nýnorsku, tók síðastur til máls og kvaðst kominn frá landi, sem flyti í olíu ef ekki hunangi og mjólk. Þrátt fyrir það væri nú sparað í Noregi sem aldrei fyrr og ætti það einnig við um hin Norð- urlöndin. Sparnaðurinn bitnaði ekki síst á menningarmálunum, framlögum til menningarlegra samskipta og þýðinga. Helge rakti síðan nokkuð sögu nýnorskunnar og stöðu hennar nú. Norrænu rithöfundarnir munu halda aftur utan á föstudag en gera nokkuð víðreist um landið þangað til. Hafa þeir með sér verkaskipti og fara tveir og tveir til ýmissa staða á landinu auk þess sem þeir munu koma fram í flestum menntaskólunum i Reykjavík. Kirkjur á landsbyggðinni Messur á sunnudaginn Biblíudagurínn BÍLDUDALSKIRKJA: Á morgun laugardag, verður æfing hjá barnakórnum kl. 11. Fjölskyld- umessa á sunnudag kl. 14. Skírn. Barnakórinn syngur. Ferming- arbörn kynna Biblíuna og kenna grískan sálm. Almennur söngur. Gítaristi Gísli Bjarnason. Sólar- kaffi í félagsheimilinu kl. 15. Sr. Dalla Þórðardóttir. BLÖNDUÓSKIRKJA: Messa kl. 14 á sunnudag. Sunnudagaskóli er kl. 11. Sóknarprestur. EGILSST ADAKIRK JA: Sunnu- dagaskóli kl. 11 og messa kl. 14 á sunnudaginn. Kirkjukaffi eftir messu. Sóknarprestur. HELLUSKÓLI: Barnaguösþjón- usta kl. 11. Sr. Stefán Lárusson. KIRK JUH VOLSPREST AK ALL: I Hábæjarkirkju veröur fundur í Æskulýösfélaginu í dag, föstudag kl. 17. Sunnudagaskóli á sunnu- dagsmorguninn kl. 10.30 og guö- sþjónusta kl. 14. Kór Mennta- skólans í Kópavogi sungur undir stjórn Martial Nandeau. Kirkju- kór og organisti, Sigurbjartur Guöjónsson, leiöa safnaöarsöng. Biblíulestrarhópur safnaöarins undirbýr guösþjónustuna og býöur upp á kaffi og kökur eftir Guðspjall dagsins: Lúk. 8.: Ferns konar sáðjörð. BIBLÍUDAGUR1984 sunnudagur 26. febrúar Sæöld er Cuös Orö messu. Auöur Eir Vilhjálmsdóttir sóknarprestur. ODDAKIRKJA: Guösþjónusta á sunnudag kl. 14. Minnst 400 ára afmælis ísl. Biblíunnar. Sr. Stef- án Lárusson. SEYÐISFJARÐARKIRKJA: Kirkjuskóli á morgun, laugardag, kl. 11 og guösþjónusta kl. 14. Organisti Sigurbjörg Helgadóttir. Sr. Magnús Björnsson. VÍKURPREST AK ALL: Kirkju- skólinn í Vík á morgun, laugar- dag, kl. 11. Guösþjónusta í Skeiöflatarkirkju á sunnudaginn kl. 14. Tekiö á móti gjöfum til Biblíufélagsins. VW GOLF og VWJETTA á sérstöku helgartilboði: Tveir sólarhringar (föstudagskvöld til sunnudagskvölds) gegn einu daggjaldi auk venjulegs km. gjalds. livað ertu að gera um helgina ? FLUGLEIDIR BÍLALEIGA Sími: 21188-21190 VORÐUR BOÐAR TIL RADSTEFNU UM SJAVARUTVEGSMAL Gujlkista þjóðarinnar á krossgötum Landsmálafélagiö Vörð- ur boðar til ráðstefnu um sjávarútvegsmál á morg- un, laugardaginn 25. febrúar. Ráðstefnan verður haldin í Valhöll, Háaleitisbraut 1, og stendur frá kl. 14—18. Landsmálafélagið Vörður Dagskrá: Ávarp. — Matthías Bjarnason, fyrrv. sjávarútvegsráöherra. Er mat á afrakstursgetu fiski- stofna rétt? — Þorkell Helga- son, dósent. Stjórnunarleiðir fiskveiða, kostir og gallar. — Björn Dagbjartsson, forstjóri. Nýjar leiðir og ný viöhorf í sjávarútvegi. — Guömundur H. Garöarsson, viöskiptafræöingur. Sjávarútvegur og einkafram- tak. — Einar K. Guöfinnsson, útgeröarstjóri. Framtíðarsýn sjávarútvegs. — Skúli Jónsson, viöskiptafr.. Á eftir hverju erindi veröa leyföar stuttar fyrirspurnir en aö erindum loknum veröa almennar umræöur. Fundarstjóri: Brynjólfur Bjarnason, forstjóri. Allir þeir sem áhuga hafa á að kynna sér málefni þessa mikilvæga málaflokks eru velkomnir. HS Matthías Þorkell Björn Guömundur H. Einar Skúli Brynjólfur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.