Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984
7
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim er glöddu mig á 85
ára afmœli mínu þann 11. febrúar sl.
Alberta Albertsdóttir,
ísafírði.
Bíll til sölu:
Range Rover ’80
Litur hvítur, ekinn aöeins 30 þús. km, lituð gler,
útvarp og segulband, teppalagður, góð Michelin-
dekk, listar á hliðum. Mjög fallegur og vel með
farinn bíll.
Tilboð merkt: „R — 1836“ leggist inn á augld. Mbl.
Tónleikar
Hinir heimsfrægu listamenn
Los Paraguayos
ásamt lceland Seafunk
Corporation í Háskólabíói
í kvöld, föstudaginn 24. febrúar, kl. 23.30.
Miöasla í Háskólabíói frá kl. 4 í dag.
Fyrstu félögin hafa samþykkt samningana
..............
Karl Steinar —■ —-------- i
„Hvet alla eindregio til a<V
sambykkja samningana f
_ segir CuðrmmdJ. Guömundsson fara meö rangfersiur varöand, eftirvinnu.aunj
ri.An.ain varaformaður Verkamannagambandsing:
Meiri hækkun til láglauna-
fólks en annarra
„Við fáum með þessum samningi 151/2% hækkun á lág-
markstekjur, fyrir þá sem eru á lægstu tekjum og vinna
aðeins dagvinnu. Þá höfum við lagt fyrir ríkisstjórnina til-
lögur um tilfærslur til þeirra sem hafa lágar tekjur og
framfærslubyrði, sem styrkir töluvert aöstöðu þeirra.“
(Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, í blaðaviðtali í fyrra-
dag.)
Skynsamlegt
mat í stöðunni
Asmundur Stefinsson,
forseti ASÍ, lét svo um
mælt, er samningar lágu
fyrir milli ASf og VSf:
„Ég tel að þeir samning-
ar sem við höfum gert séu
skynsamlegt mat i þeirri
stöðu sem við erum í í dag.
Ég lít ekki i þá sem mat i
réttmætum hlut okkar í
þjóðartekjum, eða að við
fium sanngjarnt skipta-
hlutfall á milli launafólks
og atvinnurekenda, en ég
tel hinsvegar að miðað við
þi samningsstöðu sem við
höfum í dag sé skynsam-
legra að gera þennan
samning en stefna í átök
sem hlýtur að verða hinn
kosturinn."
Þi lagði forseti ASf
iherzlu á að þessi samn-
ingur fæli f sér, gagnstætt
öðrum samningum, all-
nokkra hækkun til lág-
launahópa, umfram þá sem
betur eru settir.
Varaformaður-
VMSÍ leiðrétt-
ir formanninn
Karl Steinar Guðnason,
varaformaður VMSÍ, segir
í blaðaviðtali í gær:
„Ég tel að meginþorri fé-
laga VMSf muni sam-
þykkja samningana og ég
hvet alla félaga sambands-
ins eindregið til að greiöa
þeim atkvæði."
Karl vék síðan aö þeirri
staðhænngu Guðmundar J.
Guðmundssonar að laun
fyrir eftirvinnu muni
lækka og sagði orðrétt:
„Það sem skeður er að
tekjutrygging hækkar en
eftirvinna lækkar ekki.
Það er í reynd hlutfallið
sem raskast og það er ekk-
ert nýtt I*etta hefur verið
að raskast undanfarin ár
einfaldlega vegna þess að
sú leið var valin að lita
sem mest koma til þeirra
sem verst eru settir.“
Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir, fortnaður Sóknar,
segist „ekki koma auga i
aðra betri leið í stöðunni",
þegar hún ræðir um samn-
inginn, og Kagna Berg-
mann, formaður Fram-
sóknar, tekur í sama
streng. Hún minnir i að
könnun Kjararannsókna-
nefndar hafi leitt í Ijós að
50% félagsmanna í Fram-
sókn hafi verið undir 13
þúsund krónum, en nú sé
samið fyrir alla upp fyrir
þau mörk.
„Það detta niður hjá
okkur þessir lágu taxtar
sem verkakvennafélagið er
með. Við byrjum í rauninni
i 15. flokki með þessari
dagvinnutryggingu. Það er
þetta fólk sem við höfum
verið að reyna að berjast
fyrir og ég sé ekki að ann-
að sé fært en að skrifa
undir þennan samning."
Sérstaða
Ólafs Ragnars
Grímssonar
Ólafur Ragnar Gríms-
son, fyrrverandi formaöur
þingflokks Alþýðubanda-
lagsins, kom i óvart i
fundi í Sameinuðu þingi í
fyrradag. 1 fyrsta lagi
krafðizt hann nafnakalls
um tillögu (samstarf við
Grænlendinga um fisk-
veiðimál), sem vitað var
fyrir fram aö allir vóru
sammála um). í annan stað
gerði hann grein fyrir at-
kvæði sínu, eða nýtti tíma
sem hann fékk til þess, til
irása á tvo ráðherra á kol-
röngum forsendum. í
þriðja lagi fékk hann orðið
um þingsköp og nýtti þá
heimild til efnislegra um-
ræðna um annaö efni,
áframhaldandi árása á for-
sætis- og utanríkisráð-
herra. Forseti deildarinnar
sló í bjöllu og áminnti
varaþingmanninn, sem er
afar fátíður atburður á Al-
þingi.
Um þetta efni sagöi Geir
Hallgrímsson, utanrfkLs-
ráðherra, í þingræðu:
„Ég skal fara eftir til-
mælum forseta og ræða
um greinargerð Ólafs
Ragnars Grímssonar, sem
brot á þingsköpum. Hon-
um gafst tækifæri í um-
ræðu hér í gær, að taka
efnisatriði málsins til með-
feröar, en þá svaf þessi
þingmaöur og sá ekki
ástæðu til að taka þátt í
umræðu um málið. Kemur
síðan og krefst hér nafna-
kalls um tillögu, sem ein-
hugur er um á Alþingi, í því
skyni, að rjúfa þá sam-
stöðu, sem er á meðal þing-
manna í þessu mikilvæga
máli. Ih ss vegna eru ásak-
anir hans út í hött og til
þess fallnar að spilla fyrir
málstað okkar íslendinga.
Að lokum hlýt ég að
vekja athygli á því, að
ásökun hans í garö okkar
forsætisráðherra felst í því
að við höfum ekki hafist
handa eftir að þessi tillaga
kom fram á þingi. Það er
algjörlega ósatt. Á þeim
tíma og raunar fyrr reynd-
um við að stofna til við-
ræðna við Grænlendinga,
en efnislega voru þeir ekki
reiðubúnir til þeirra fyrr en
málið væri útkljáö af þeirra
hálfu gagnvart Efnahags-
bandalaginu.
I«etta eru staðreyndir
málsins."
Bflasýning í Hafnarfirði
Sýnum í dag og á morgun ’84 árgeröirnar af Ford og Suzuki
FORD ESCGRTLX
FORD FIESTA
suzuki snawa
Opiö:
Föstudag og laugardag
frá 10—18
Bifreiðaverkstæði
Guðvarðar Elíassonar,
Drangahrauni 2, sími 52310.
$
SUZUKI