Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984 Forsætisráðherra um afgreiðslu ríkisstjórnar varðandi fjárlög: Sjálfur verið fjarstaddur afgreiðslu mála á mínu sviði „VITANLEGA er alltaf lögd áhersla á þad að sá hinn sami ráðherra sam- þykki slíkt, en ég vil leggja áherslu á það, að þegar ráðherra fer til útlanda þá gegnir annar ráðherra störfum hans. Og ég gerði mjög ítrekaðar tilraunir til að ná í fjármálaráðherra í London strax eftir rfkisstjórnarfundinn, en tókst ekki,“ sagði forsætisráðherra, er hann var spurður í gær, hvort ekki væri óvanalegt að ríkisstjórn tæki ákvarðanir gegn vitneskju og vilja þess ráð- herra sem tilheyrandi málaflokkur fellur undir. í máli Alberts Guðmundssonar fjármálaráðherra á Alþingi í gær kom m.a. fram, að hann er andvíg- ur þeirri ákvörðun sem ríkis- stjórnin tók í fjarveru hans um tilfærslur innan fjárlagaramm- ans, en eins og komið hefur fram í fréttum er yfirlýst loforð ríkis- stjórnar að allt að 340 millj. kr. verði varið til að rétta hag þeirra verst settu. Albert sagði þetta ákveðið án sinnar vitneskju, en hann myndi þó reyna að fram- fylgja ákvörðuninni. Steingrímur sagði ennfremur: „Málin stóðu hins vegar þannig, að formannafundur ASÍ beið og það var bókstaflega ekki um annað að ræða. Þess vegna tók ríkisstjórnin einróma þá ákvörðun að afgreiða málið, enda með samþykki stað- gengils Alberts, Matthíasar Bjarnasonar. En þess var m.a. vandlega gætt og undirstrikað, ekki sízt vegna fjarveru fjármála- ráðherra, að ríkisstjórnin gæti ekki skuldbundið sig á nokkurn máta til þess að fara út fyrir fjár- lagarammann. Sömuleiðis var undirstrikað að það yrði að vera eftir nánara samkomulagi, hvaðan þetta væri flutt, því að sjálfsögðu verður fjármálaráðherra að hafa forustu um þær tilfærslur." — En er ekki einsdæmi, að rík- isstjórn taki ákvarðanir á þennan hátt, gegn vilja viðkomandi ráð- herra? „Ég skal ekki segja um það. Það hefur komið fyrir að ráðherrar hafa verið fjarverandi og hiutir hafi orðið að afgreiðast. Það er þá Albert Guðmundsson fjármálaráðherra: Framsókn hlýt- ur að vera búin að semja við bændur „ÞAÐ VERÐUR AÐ gerast í fullu samráði við bændur. Og ég trúi því úr því Framsóknarflokkurinn hefur gengist inn á þetta í ríkis- stjórninni, að þeir hafi þá tekið ákvörðun í samstarfi eða í sam- ráði við bændasamtökin. Eg reikna þá með að þau séu búin að samþykkja það og ég get þá sam- þykkt það einnig, svo framarlega sem ég fæ ekki bakreikning vegna útflutningsbóta eða eitt- hvað slíkt,“ sagði Albert Guð- mundsson fjármálaráðherra, er hann var spurður, hvort hann gæti fallist á þá leið, sem nefnd hefur verið, m.a. af forsætisráðherra, að til fjármögnunar bóta til hinna verst settu verði notaðir peningar, sem nú er varið til niðurgreiðslna landbúnaöarvara. Albert var einnig spurður, hvort hann hygðist segja af sér ráðherradómi, þar sem hann hefði lýst sig andvígan ákvörð- un ríkisstjórnarinnar um þessa millifærslu, en Albert telur hana beina niðurgreiðslu á launagreiðslum atvinnurekenda í landinu. Hann sagði: „Það get- ur vel verið, ég hef ekki tekið neina ákvörðun um það. Ég vil ekki hlaupa frá dæminu meðan Fjármálaráðherra: Reiðubúinn til samninga LAUST fyrir miðnætti lauk sátta- fundi BSRB og samninganefndar ríkisins, sem hófst klukkan 20.00. Á fundinum var lögð fram eftirfarandi bókun Alberts Guðmundssonar fjár- málaráðherra: Fjármálaráðherra hefur kjara- samninga BSRB nú til skoðunar og endurmats. Hann hefur fullan hug á því að semja við samtökin á næstu dögum og er nú að láta kanna með hvaða hætti unnt er að skapa svigrúm innan ramma fjár- laga til þess að unnt sé að semja við ríkisstarfsmenn á sama grundvelli og samningar hafa nú tekist um milli ASÍ og VSÍ. það er í lausn. Það er ætlast til þess að ég vinni að lausn, en ef mér mistekst þessi lausn, þá hef ég ekkert með það gera að halda áfram að vera ráðherra." kannski spurningin hversu stórir eða litlir. Eg hef sjálfur verið fjar- verandi og menn starfað fyrir mig og mikilvægir hlutir verið afgreiddir á mínu sviði." — Gegn þínum vilja? „Kannski ekki, en ég hef treyst þeim mönnum sem hafa farið með þetta fyrir mig, og ég get ekki sagt að það hafi verið gegn vilja mín- um, en stundum get ég sagt að ég hafi kosið einhvern annan veg, hefði ég sjálfur verið viðstaddur." — Telur þú að hægt sé að bjóða opinberum starfsmönnum upp á minni kauphækkanir en samið hefur verið um milli VSÍ og ASf? „Það er alveg augljóst að þessir samningar á opinberum vettvangi hafa áhrif á þá, en ríkisstjórnin hefur ekki tekið afstöðu til máls- ins, en hún hlýtur að gera það mjög fljótlega." — Fjármálaráðherra hefur lýst því yfir, að samningamálin séu á hans sérsviði. Mun ríkisstjórnin samþykkja launahækkanir til opinberra starfsmanna á sama hátt og fyrirgreiðsluna tengda samningum ASÍ og VSÍ, þ.e. að samþykktar verði hærri launa- hækkanir en 4%, sem fjármála- ráðherra hefur lýst sig andvígan þar sem þar séu mörk fjárlag- anna? „Vitanlega er þetta í hans verkahring, en meðan ég hef verið í ríkisstjórn hafa þessi mál ætíð verið rædd þar. Vitanlega hefur hann forustu og hefur gert þetta með prýði, en þetta viðkemur auð- vitað allri ríkisstjórninni. Fjár- málaráðherra hefur auðvitað gert ríkisstjórninni grein fyrir þeim tilboðum sem hann hefur gert og ég er ekki í nokkrum vafa um að það næst samstaða um þetta í rík- isstjórninni." Mbl./Kristján Einarsson. Ræninginn ók fram hjá leigubifreiðinni gegnt Laugavegi 138 og beygði síðan á mikilli ferð upp Mjölnisholt. „Ég helt að hann myndi velta bifreiðinni,“ sagði leigubílstjórinn í samtali við blm. Mbl. „Hársbreidd munaði að ræninginn æki á mig“ — segir bflstjóri sem síðastur sá til ræningjans „HÁRSBREIDD munaði að ræninginn æki á mig. Hann keyrði Ijóslaus eins og vitfirringur austur Laugaveg og beygði upp Mjölnisholt hjá Timburverslun Árna Jónssonar. Ég hélt að hann myndi velta bifreið- inni, slíkur var aksturinn," sagði leigubflstjóri á Bæjarleiðum í samtali við MbL, en hann sá síöastur til ræningjans, sem hirti 1840 þúsund krónur af tveimur starfsmönnum ÁTVR fyrir viku. „Ég sá ekki hvort maðurinn ég mig hvers kyns var. Ég til- var einn í bifreiðinni, eða hvort fleiri voru með honum. Hann ók ljóslaus og myrkrið grúfði yfir. Þetta var rétt fyrir klukkan átta og ég var með tvo farþega í bif- reiðinni á leið austur Laugaveg. Til móts við Laugaveg 138 ók leigubifreiðin R-320 framúr mér á miklum hraða. Bifreiðin var ljóslaus og ég sá ekki til öku- mannsins vegna myrkurs. Ég var síst að skilja, að leigubifreið- arstjóri skyldi aka svona eins og vitfirringur. Það var svo ekki fyrr en um klukkan níu að tilkynning barst í talstöðinni um ránið og þá áttaði kynnti þegar um atburðinn og eftir það fóru þeir að leita í Holtunum. Höfðu áður leitað í austurbæ Reykjavíkur. Bifreiðin fannst skömmu síðar yfirgefin í Brautarholti eftir ábendingu minni. Ég hefði elt ræningjann, hefði hann ekið utan í mig, og látið vita um ferðir hans. Eins ef ég hefði vitað að leigubifreiðin hefði verið tekin traustataki til ráns skömmu áður. Nú óska ég þess helst, að hann hefði ekið utan í mig. Þá væntanlega væri ræninginn bak við lás og slá,“ sagði leigubílstjórinn að lokum. „Verum harðir — en yfirvegaðir og rólegir“ — sagði Guðmundur J. Guðmundsson á fjölmennum Dagsbrúnarfundi í gær MIKILL einhugur ríkti á almennum félagsfundi Dagsbrúnar sem hald- inn var í gær, gegn þeim samningi sem ASÍ og VSI hafa gert með sér til næstu 15 mánaða og var hann felldur með 17 mótatkvæðum, en á áttunda hundrað manns sátu fund- inn samkvæmt upplýsingum stjórn- ar félagsins, enda flest sæti í Aust- urbæjarbíói setin. Tillaga um leynilega atkvæða- greiðslu um samningana var bor- in undir fundinn og felld með yf- irgnæfandi meirihíuta atkvæða, svo atkvæði voru greidd með handauppréttingum. Ekki reynd- ist hljómgrunnur á fundinum fyrir þeirri tillögu stjórnar um að bíða með atkvæðagreiðslu um samningana, þar til niðurstaða viðræðna lægi fyrir og greiða þá um þá atkvæði. Heldur var sam- þykkt tillaga Péturs Tyrfingsson- ar og Brynjars Jónssonar að greiða atkvæði um samningana, sem varð með fyrrgreindri niður- stöðu. Ályktun stjórnar var síðan samþykkt einróma, með þeirri breytingu að í stað samninga ASÍ og VSI kæmu samningar sem Dagsbrún færi nú í viðræður við viðsemjendur sína um. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, setti fund- inn og fór i samninginn lið fyrir lið. Fann honum flest til foráttu og sagði Dagsbrún marg hafa lýst því yfir að hún gerðist ekki aðili að slíkum samningi. Sagði hann mikla deyfð hafa ríkt innan ASÍ í samningamálum og félögin hefðu nánast verið áhorfendur að þeim, en meirihlutinn þar hefði því mið- ur viljað þessi vinnubrögð. Af einstökum atriðum samn- ingsins nefndi hann ákvæðið um að fólk innan 18 ára aldurs nyti ekki sömu lágmarkslauna og eldra fólk, sem hann sagði að Dagsbrún hefði tekist að koma inn í samninga 1937 í miðri kreppu, þ.e. að fólk 16—18 ára nyti sömu launa fyrir sömu vinnu og aðrir þjóðfélagsþegnar. Sagði hann illa hafa reynst að versla með slík prinsipmál og nefndi sem dæmi að 1969, þegar 800 Dags- brúnarmenn hefðu gengið atvinnulausir, hefði verið fallist á í nauðvörn, að eftirvinna skyldi aldrei vera minni en 40% ofan á dagvinnu og 80% á næturvinnu, en áður hefðu samsvarandi tölur verið 60% og 100%. Síðan þá hefði aldrei tekist að ná fram leiðrétt- ingu á þessu. Nú væri talað um að eftirvinna yrði allt ofan í 10% ofan á dagvinnu eftir við hvaða launaflokk væri miðað. Til að mynda sagði hann að eftirvinna í 9. flokk A, sem bónus er reiknaður út frá í fiskvinnu, yrði ekki nema 17% ofan á dagvinnu. Yfirvinnu- álag væri skorið niður um helm- ing, en yfirvinna væri þriðjungur af tekjum Dagsbrúnarmanna. Hann dró einnig mjög í efa að verðbólgan yrði ekki meiri en 10—11% á árinu og yrði því um áframhaldandi kjararýrnun að ræða, sem þegar væri orðin 25—30% á síðasta ári. Sagði hann kröfur Dagsbrún- armanna að strika út lægstu taxta. Þá hefði einnig fram- kvæmdastjóri Eimskips sagt að engir Dagsbrúnarmenn ynnu á þeim töxtum sem tekjutryggingin næði til. Sagði Guðmundur ástæð- una vera þá að þeir hefðu 20% álag á kaup sem þeir hefðu fengið meðal annars vegna þess að fækk- að hefði verið í lestum, þeir hefðu breytt kaffitímum og fleira. Væri þetta nú skorið niður um helming miðað við dagvinnutekjutrygg- ingu. Sagði hann kröfur Dagsbrúnar vera um samræmingu og nefndi dæmi máli sínu til stuðnings, þar sem félagar annarra félaga njóta betri kjara en Dagsbrúnarmenn þó þeir vinni sömu vinnu. Sagði hann að ef samningarnir væru samþykktir væri einnig verið að pakka öllum þessum kröfum niður. Minnti Guðmundur fundar- menn á sögu Dagsbrúnar, fyrir hennar tilverknað hefði átta stunda vinnudagurinn náðst í gegn, atvinnuleysistryggingasjóð- ur, sjúkrasjóður og önnur rétt- indamál. Dagsbrún hefði fórnað sérhagsmunum til að halda uppi almennum réttindamálum: „Ver- um harðir — en yfirvegaðir og ró- legir. Gleymið ekki merki félags- ins, sem er merki rísandi sólar, ekki merki hnígandi sólar. Ég legg þetta óhræddur í ykkar dóm,“ sagði Guðmundur að lok- Pétur Tyrfingsson tók einnig til máls. Sagði hann það að bæði at- vinnurekendur og ríkisvald væru ánægðir með þessa samninga benda til að full ástæða væri til þess að fella þá. Sagðist hann myndu koma því á framfæri við stjórnarandstöðu að flutt yrði frumvarp um að taka fjármagn vegna félagslegra aðgerða fyrir hina verst settu af hátekju- mönnum. Sagði hann að kjara- skerðingin jafngilti því að menn ynnu kauplaust í 3 mánuði á ári og hefði hann ekki efni á því. Sagði hann að verið væri að gera landið að gósenlandi fyrir inn- lendan og erlendan atvinnurekst- ur og verkalýðurinn yrði að vera sameinaður og sterkur til að verja sig. Aðgerða- og úrræðaleysi ein- kenndi verkalýðshreyfinguna, hún hefði haft 9 mánuði, eða heil- an meðgöngutíma til að undirbúa aðgerðir og þetta væri niðurstað- an. Sagði hann það nauðsynlegt að fella þessa samninga hér og nú og að menn yrðu að vera því við- búnir að fara í verkföll ef þeir felldu þá. Sagði hann að Dags- brún gæri orðið leiðandi afl og fordæmi öðrum að fella samn- ingana. Verkafólk krefðist þess að halda reisn sinni og fá að búa í þessu landi. Af þeim sem til máls tóku mælti aðeins einn með samþykkt samningana og var á hann púað. Fundurinn samþykkti að senda starfsmönnum í álverinu í Straumsvík baráttukveðjur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.