Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBROAR 1984 Ortega, leiðtogi herstjórnarinnar í Nicaragua: Kosningar breyta engu um marx- ískar fyrirætlanir Managúa, 23. febrúar. AP. DANIEL Ortega Saavedra leiðtogi herstjórnarinnar í Nigaragua sagði í dag að ýmsum neyðarákvæðum sem gilda í landinu, þ.á m. ritskoðun, yrði aflétt áður en kosningar fara fram í nóvember n.k. Aftur á móti yrði ekki gefið eftir gagnvart stjórnarandstæðingum sem hunsa kosningarnar, stuðn- Veður víöa um heim Akureyrí 7 akýjað Amsterdam 6 skýjaó Aþana 17 skýjaó Bracetona 8 alskýjaó Bartín 2 akýjaó Brflasat 5 skýjaó Buonoa Airoa 30 skýjaó Chicago 16 heiðakin Dtibitn 7 akýjaó Gonf 6 heióakfrt Itoliinki +4 heióskírt Hong Kong 25 skýjað kiníinkim 16 hetóakírt JóhiinnnifboiQ 27 heióekírl Kaupmannahöfn 1 akýjaó Laa Pafanaa 19 skýjaó Liaaabon 14 akýjaó London 5 akýjað Lo» Angolot 21 heióskírt Mnligw 16 hótfakýjaó Maflorca 11 akýjaó Mexðcóborg 2Sheióskírt Miami 27 heióakírt Montreal 2 skýjaó Moakva +7 heióakirt New York 11 heiðskírl Oaló -3 heióskírt Paría 6 heióakirt Peking 4 skýjaó Perth 22 skýjaó Reykjavik 4 aúld Ríó de Janeiró 37 heióakirt Róm 13 akýjaó San Francisco 15 heióakírt Seoul 4 skýjað Stokkhólmur -1 anjókoma Sydney 27 heióskírt Tókýó 4 anjókoma Vancouver 5 rigning Vmarborg 2 snjókoma Varajá 2 skýjaó Þórshöfn 8 atskýjaó ingsmönnum Somoza fyrrum ein- ræðisherra, og uppreisnar- mönnum, sem bækistöðvar hafa í nágrannalöndum Nicaragua. Tilkynning herstjórnarinnar á þriðjudag um að kosningar skyldu fara fram 4. nóvember kom á óvart, þar sem ekki hafði verið bú- ist við að kosið yrði fyrr en þremur mánuðum síðar. 1 kosningunum verður kjörið löggjafarþing og jafnframt kosinn forseti og vara- forseti. Ortega hefur þó bætt því við að kosningar breyti engu um fyrir- ætlanir sandinista um marxíska stjórnarhætti i landinu. Á útifundi með 130 þúsund stuðningsmönnum sínum sagði hann að sandinistar „samþykktu ekki lýðræði sem Bandaríkjastjórn fyrirskipaði". Margir stjórnarandstæðingar eru enn fullir efasemda um að kosningarnar í nóvember fari fram á lýðræðislegan hátt, en Ortega sagði á biaðamannafundi í gær að skref í frjálsræðisátt yrðu tekin smátt og smátt. í marsmánuði yrðu ný kosningalög afgreidd frá ríkisráðinu og fengju þá stjórnar- andstæðingar aðgang að opinber- um fjölmiðium. Sem stendur er dagblaðið La Prensa eini vettvang- ur stjórnarandstæðinga, en það sætir harðri ritskoðun yfirvalda. Einkaleyfi til framleiöslu á Interferon í Evrópu Cambridge, 22. febrúar. AP. SVISSNESKT lífefnafyrirtæki hefur fengið einkaleyfi til framleiðslu á alpha interferon í Evrópu, samkvæmt upplýsingum höfuðstöðva dótturfyrir- tækis þess í Bandaríkjunum. Búist er við að interferonið, sem framleitt er með litningasplæs- ingu, komi á markað í Evrópu seint á þessu ári eða í byrjun þess næsta. Verður það notað fyrst um sinn gegn ákveðnum krabbameinssjúk- dómum, en talið er að það geti komið að miklum notum gegn kvefi. Nýtt sovéskt flugvélamódurskip Nýjasta flugvélamóðurskip Sovétríkjanna, Novorossiysk, er nú statt á Suður-Kínahafi og var þessi mynd tekin er Sea King-þyrlan brezka frá brezka flugmóðurskipinu Invincible skoðar það. Novorossiysk er 43 þúsund smálestir að stærð, og eru um 35 flugvélar um borð, 20 KA-25-Hormone-þyrlur og 15 Yak-36-forger-orrustuþot- ur, sem hafið geta sig lóðrétt til flugs. Einnig er skipið búið loftvarnaeldflaugum og eldflaugum til að skjóta á skotmörk á landi. NATO-æfingar á norðurslóðum: 150 herskip 300 flugvélar og 25.000 landhermenn Atlantshafsbandalagið efnir til heræflnga í Norður-Noregi og flota- og landgönguæfinga á Atlantshafi og Noregshafi 28. febrúar til 28. mars næstkomandi. 25.000 landhermenn taka þátt í æfingunum f Norður- Noregi og 150 skip og 300 flugvélar í flotaæflngunni. Evrópuherstjórn NATO stjórn- ar landæfingunni en svonefnt hraðlið herstjórnarinnar verður þá sent til Norður-Noregs. í því eru hermenn frá átta NATO- ríkjum: Bandaríkjunum, Bret- landi, Hollandi, ítaliu, Kanada, Luxemborg, Noregi og Vestur- Þýskalandi. Tilgangur þessarar æfingar sem kallast á ensku „Avalanche Express" er að þjálfa hraðliðið við vetrarskilyrði í Norður-Noregi og samhæfa störf þess og liðsafla Norðmanna á þessum slóðum, þ.e. í Troms-fylki. Hraðliði NATO var komið á fót 1960. Það er búið venjulegum vopnum og á að vera unnt að senda það með skömmum fyrir- vara hvert sem er innan varnar- svæðis Evrópuherstjórnarinnar sem nær frá Norður-Noregi til Austur-Tyrklands. í því eru bæði landhers- og flugsveitir. I liðinu eru hermenn frá mörgum NATO- þjóðum og felst fælingarmáttur þess í því að hugsanlegum árásar- aðila er ljóst að hann á ekki í höggi við eina þjóð þegar sækir gegn liðinu, eins og segir í frétta- tilkynningu Evrópuherstjórnar NATO um æfinguna. Á vegum Atlantshafsherstjórn- arinnar, en innan varnarsvæðis hennar er ísland, verður æft hvernig koma má liðsauka sjóleið- is til Norður-Noregs á hættu- stundu. Kallast sá hluti NATO- æfingarinnar „Team Work 84“ á ensku. I flotanum sem þá verður æfður eru landgönguliðssveitir frá Hollandi, Bretlandi og Bandaríkj- unum sem sendar verða á land í Noregi til stuðnings norskum her- sveitum. Fastafloti Atlantshafsbanda- lagsins tekur þátt í æfingunum og AWACS-flugvélar NATO frá heimavöllum í Evrópu. Þar að auki munu Bandaríkjamenn, Belg- ar, Bretar, Danir, Hollendingar, Norðmenn og Vestur-Þjóðverjar leggja til skip, flugvélar og menn til æfingarinnar. Þótt Frakkar séu ekki þátttakendur í hernaðarsam- starfinu innan NATO munu franskar sveitir taka þátt í flota- æfingunum eins og áður. V er kamannaflokk- ur tekur forystuna Fyrirliggjandi í birgðastöð Heildregnar pípur Sverleikar: 1“ - 10“ Din 2448/1629/3 ST35 oOO O o Oooo QOo SINDRA London, 23. Tebrúar. AP. BRESKI Verkamannaflokkurinn nýtur meira fylgis meðal kjósenda en íhaldsflokkurinn, sem fer með stjórn landsins, ef marka má nýja skoðanakönnun sem dagblaðið Guardian greindi frá í dag. Er það í fyrsta sinn síðan á dögum Falk- landseyjastríðsins að Verkamanna- flokkurinn fer fram úr íhaldsflokkn- Samkvæmt skoðanakönnuninni styðja 40% kjósenda Verka- mannaflokkinn, 39% Ihaldsflokk- inn, 20% Bandalag jafnaðar- manna og frjálslyndra og 1% aðra flokka. { könnun sem sömu aðilar gerðu fyrir mánuði reyndust 42% styðja íhaldsflokkinn og 38% Verkamannaflokkinn. Sókn Verkamannaflokksins er af ýmsum rakin til vinsælda hinn- ar nýju forystu flokksins, og þá einkum formannsins Neil Kin- nocks, og tap fhaldsflokksins hef- ur verið rakið til ágreinings um rétt starfsmanna i fjarskiptastöð leyniþjónustunnar í Cheltenham til að vera í verkalýðsfélagi, og einnig er talið að viðskipti Marks, sonar Margrétar Thatchers for- sætisráðherra, í Oman, sem eru nokkurri þoku hulin, hafi átt hlut að máii. STALHF Ðorgartúni 31 sími 27222 Kúrdar í hungur- svelti á sjúkrahús Diyarbakir, Tyrklandi, 23. febrúar. AP. FJÖRUTÍU kúrdar, sem setið hafa í tyrkneskum fangelsum, hafa ver- ið fluttir í sjúkrahús síðustu daga, en þeir voru I hópi eitthundrað kúrda, sem eru í mótmælasvelti. Nú hefur fastan staðið yfir í 42 daga. Hermt er að ýmsir hungur- fanganna hafi verið illa á sig komnir vegna sveltisins og langrar fangelsisvistar þegar þeir voru færðir til meðferðar í sjúkrahúsi. Margir þeirra liggja þar ennþá, en þó eru fæstir illa haldnir. Fangarnir hafa aðeins þegið þurrt brauð og vatn í mótmæla- sveltinu og það í lágmarks- skömmtum. Fréttir eru litlar og óljósar af ástandinu í fangelsun- um, þar sem herstjórnin, sem fer með stjórn fangelsismála i suð- austurhluta Tyrklands, hefur bannað frásagnir og fréttaflutn- ing af mótmælaaðgerðunum. Þó hefur spurst út að sjö fang- ar hafi dáið í byrjun febrúar, en óljóst mun vera hvort það hafi verið vegna hungursveltis eða vegna misþyrminga af hálfu fangavarða. Fregnirnar hafa ekki fengist staðfestar, en af hálfu Amnesty International er því haldið fram að pyntingar og mannréttindabrot hafi verið aukin stórum í tyrkneskum fangelsum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.