Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984 Fjárhagsáætlun til fyrri umræðu á Akureyri: Álagningarprósenta útsvaranna 10,6% Akureyri, 22. febrúar. „VIÐ sáum ekki ástæðu til þess að skapa ágreining um þessa fjár- hagsáætlun, sem hér liggur fyrir, svo nálægt er hún okkar hugmynd- um um álagningar og framkvæmd- ir,“ sagði Sigurður J. Sigurðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna, við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyrar, sem fram fór í gær. „Þó er því ekki að leyna að við hefðum kosið að álagn- ingarprósenta útsvara yrði ekki hærri en 10,5% í stað 10,6% eins og frumvarpið gerir ráð fyrir, og eins er Ijóst að standist ekki spár stjórn- valda um verðlagsmál, þá er ekkert svigrúm í þessari áætlun til að Skólastjórar í kynnis- ferð til Kína UM ÁTJÁN skólastjórar og yfirkennarar úr Reykjavík og nágrenni halda þann 16. mars nk. í kynnisferð til Kína. Er ferðin farin í boði Kínversk-íslenska menning- arfélagsins og dvelja ís- lensku skólaaðilarnir þar í tvær vikur, kynna sér skóla- mál, kennsluhætti og æsku- lýðsstarf. mæta breytingum þar á,“ sagði Sig- urður ennfremur. Niðurstöðutölur fjárhagsáætl- unarinnar á rekstraráætlun eru kr. 325.290.000.- Á eignabreyt- ingar eru færðar kr. 62.583.000.-. Helstu tekjuliðir eru: Útsvör kr. 169,9 millj., aðstöðugjöld kr. 49 millj., skattar af fasteignum kr. 55,2 millj., jöfnunarsjóðsframlag er áætlað kr. 35 millj. Þá er gert ráð fyrir nýjum lántökum að upphæð kr. 25.152.000.-. Helstu rekstrarliðir á áætlun- inni eru: Yfirstjórn bæjarins kr. 13.087.000, félagsmál og al- mannatryggingar kr. 59.785.000, heilbrigðismál kr. 10.967.000, fræðslumál kr. 44.783.000, menn- ingarmál kr. 9.430.000, fegrun og skrúðgarðar kr. 11.535.000, íþrótta- og æskulýðsmál kr. 10.084.000, eldvarnir og örygg- ismál kr. 8.989.000, hreinlætis- mál kr. 14.640.000, skipulags- og byggingarmál kr. 7.249.000, götur og holræsi kr. 16.844.000, fast- eignir kr. 2.430.000. Gjaldfærður stofnkostnaður er samtals áætlaður kr. 36.196.000. Þá er gert ráð fyrir að til ný- bygginga fari kr. 58,7 millj. og til vélakaupa kr. 6,6 millj. Afborganir lána eru áætlaðar kr. 25,2 millj. Síðari umræða um fjárhags- áætlunina verður væntanlega að hálfum mánuði liðnum. GBerg Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekið viö hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö notfæra sér viðtals- tíma þessa. Laugardaginn 25. febrúar verða til viðtals Magnús L. Sveinsson og Vilhjálmur G. Vil- hjálmsson. Bladburóarfólk óskast! Austurbær Hvassaleiti C K W KB K Á miðvikudag hafði prinsinn Michael af Kent stutta viðdvöl á Keflavíkurflugvelli. til Kanada í opinbera heimsókn. Ljósm. Gunnar Sigtryggsson. Hann var á leið frá Englandi Meðal 45 mála fyrir Búnaðarþingi: Tillögur að nýjum lög- um um útflutning hrossa 45 mál hafa nú verið lögð fyrir Bún- aðarþing. Meðal mála sem lögð voru fram á miðvikudag var tillaga Gunn- ars Bjarnasonar, hrossaútflutnings- ráðunautar Búnaðarfélags íslands að nýjum lögum um útflutning hrossa. Tillagan er f 15 greinum og fylgir henni ítarleg greinargerð. Um ástæður þess að þessar tillög- ur eru lagðar fyrir Búnaðarþing segir Gunnar í greinargerðinni: „Ástæður j)ess, að ég hef nú tekið mér fyrir hendur að semja upp að nokkru leyti lög um útflutning hrossa, eru helst tvær. Annars veg- ar eru það hinar langvarandi deilur í landinu um hrossaútflutning og hvernig að honum skuli staðið, og hins vegar tel ég rétt, áður en ég hætti afskiptum af þessum máium sem útflutningsráðunautur, að ég setji fram ákveðnar tillögur mínar um, hvernig ég tel réttast að standa að þessum málum, og hef ég þar að byggja á 44 ára starfi, en það hófst í árslok 1939 eftir að ég hafði að óskum Búnaðarfélagsins kynnt mér hrossarækt og hestaverslun á Norð- urlöndum og í Þýskalandi á fimm mánaða námsferðalagi að loknu há- skólaprófi frá dýralækna- og land- búnaðarháskólanum i Kaupmanna- höfn.“ Mbl. hefur sagt frá fyrstu 36 málum Búnaðarþings en hér á eftir fer listi yfir þau sem síðan hafa komið fram: Mál nr. 37. Tillaga frá formanna- fundi búnaðarsambanda vegna skerðingar á framlagi til grænfóð- urræktar. Mál nr. 38. Tillaga frá formanna- fundi búnaðarsambanda um mál- efni ræktunarsambanda. Mál nr. 39. Erindi Búnaðarsam- bands Austurlands um aukið frjáls- ræði veiðifélaga við hvert vatna- svæði um stjórn á veiði vatnafiska. Mál nr. 40. Erindi Guttorms V. Þormars um breytingu á reglugerð nr. 62/1964 um skiptingu framlags ríkissjóðs til sýsluvega. Flutt að ósk sýsluráðs Norður-Múlasýslu. Mál nr. 41. Erindi Jóns V. Jón- mundssonar og Halldórs Árnasonar um tölvuþjónustu búnaðarsam- banda. Mál nr. 42. Erindi Búnaðarsam- bands Austur-Húnavatnssýslu um heildarstefnumörkun í landbúnaði. Mál nr. 43. Erindi Búnaðarsam- bands Austur-Húnavatnssýslu um greiðslur til Framleiðnisjóðs skv. lögum nr. 43/1979 á framlagi vegna jarðræktarlaga. Mál nr. 44. Erindi Gunnars Bjarnasonar um útflutning hrossa. Mál nr. 45. Erindi Árna G. Pét- urssonar, Júlíusar J. Daníelssonar og Ólafs R. Dýrmundssonar um gerð og gæði vegagirðinga. 26933 íbúð er öryggi 26933 Raðhús Seltjarnarnesi Þessi glæsilegu hús á einum besta stað á Sel- tjarnarnesi eru til sölu. Húsin eru afhent fokheld með jární á þakí. Tilb. til afh. strax. Vel kemur til greína að taka íbúðir upp í kaupin. Verð 2,3 millj. Teikningar á skrifstofunni. niiiijif II Wll Veðdeíldarián 2—4 m. fjölsk. 639.000 5—6 m. fjölsk. 748.000 7 m. o.fl. 864.000 Flatarmál 2. h. 70 m Flatarmál 1. h. 95 m Flatarm. bílak. 47,98 m Alls 212,98 m Ath.: Aðeins 2 hús eftir. frs markaðurinn Hafnarstræti 20, simi 26933 (Nyja husmu viö Lækjartorq) <í<$<í<S<í<£<í<2<£t£eí<£<5G;<í<£<í Jón Maqnússon hdl. Borðapantanir í síma 30400 í Húsi verslunarinnar viö Kringlumýrarbraut

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.