Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984 25 lægstur. Hver stórarían rak aðra, sem við heyrum gjarnan á öldum ljósvakans í flutningi heimssöngv- aranna. Slíkur samanburður er ekki sanngjarn, en er þó til staðar á tímum stereós og fjölmiðla. Það er ekki heiglum hent að hafa á efnisskrá sinni hvers-manns-lög eins og t.d. „La donna é mobile" úr Rigoletto eða þá „E lucevan le stelle" úr Tosca. En Már lagði óhikað á brattann knúinn áfram af ríkri tjáningarþörf. Annars hófust tónleikarnir á nokkrum fáheyrðum lagaperlum úr safni ítalskra kompónista fyrri alda og má þar nefna t.d. „se l’aura spira" eftir Frescobaldi og þá ekki síður „o, cessate di piag- arrni" eftir A. Scarlatti, og fannst mér það áhugaverðasti hluti efn- isskrárinnar. Már Magnússon er ekki stór- söngvari og sennilega gerir sér það enginn betur ljóst en hann sjálfur. En hann hafði unnið vel fyrir þennan konsert og var ein- lægur í túlkun sinni. Píanóleikar- inn, Ólafur Vignir, studdi dyggi- lega við bakið á félaga sínum, og var þeim vel fagnað af áheyrend- um. Slæmir strákar Kvikmyndir .Sæbjörn Valdimarsson Regnboginn: Götudrengir („Bad Boys“) Leikstjóri: Rick Rosenthal. Handrit: Richard Dilello. Kvikmyndataka: Bruce Surtees. Tónlist: Bill Conti. AAalhlut- verk: Sean Penn, Reni Santoni, Jim Moody, Gric Curry, Gsai Morales, Ally Dheedy. Gnsk-amerísk, gerð af Thorn- GMI 1983. Til allrar guðslukku þekkjum við eyjarskeggjar lítið til lifnað- arhátta íbúa slummhverfa stórborga veraldar. Það er þá helst af ballöðum, bókalestri og blaða og svo bregður fyrir kvikmyndum á borð við Götu- drengi (Blackboard Jungle, Wesí Side Story). Sem annars staðar er það und- irmálsfólkið sem byggir fá- tækrahverfi Chicago-borgar, negrar, Puerto Rikanar, sem eru mun verr settir en þeir fyrr- nefndu, og sú manngerð sem á ensku er gjarnan kölluð „white trash“. Upp ur þessum jarðvegi þroskast þær persónur sem myndin fjallar um. Þetta er sannkallaður frumskógur, og þangað hættir sér enginn óvið- komandi sökum óargadýra hans; harðsoðins glæpalýðs sem gjarn- an fer í gengjum og sumir með- limanna eru tæpast af barns- aldri, eiturætur, rónar, mellu- dólgar, og þar fram eftir götun- um. Að sjálfsögðu eru ekki allir jafn slæmir, né jafn bölvaðir að eðlisfari þó þeir búi í sama hverfinu, en Götudrengirnir fjallar einmitt um týnda sauðinn Mick O’Brian, sem í myndarlok er farinn að sjá að sér. Mick er eins og aðrir ungl- ingar hverfisins í sínu glæpa- gengi. Þeir hyggjast ræna eitur- lyfjasendingu af hópi Puerto Rikana, en þeir hafa hinsvegar boðið negragengi dópið til sölu. Situr hver á svikráðum við ann- an. Áætlanir allra gengjanna renna út í sandinn þegar á hólm- inn er komið og enda með blóð- baði. Mick er gripinn af lögregl- unni eftir að hann hefur ekið niður á flóttanum yngri bróður forsprakka PR-gengisins, Paco, og er síðan fluttur á ömurlegt betrunarheimili fyrir afbrota- unglinga. Þar er lífið engu skárra en utan veggja, hvers- kyns spilling og óréttlæti blómstrar. Smám saman gerir Mick sér ljóst í hvert óefni er komið fyrir honum og fer að taka sönsum. En þá kemur Paco á ný til sög- unnar, ákveðinn í að hefna bróð- ur síns og drepa Mick, hefur orð- ið sér úti um aðgöngumiða að hælinu með því að nauðga unn- ustu Micks. Það dregur því óhjákvæmilega að dramatísku uppgjöri ... Götudrengir fjallar um hegð- unarmynstrið á botninum, hvernig menn komast þar af og spyr þeirrar spurningar hvað í ósköpunum er til ráða? Hversu trú er hún sannleikanum? Á köflum er myndin líkast til ná- lægt sanni. Einkanlega kemur sá hluti myndarinnar sem gerist á betrunarhælinu, og sá sem sýnir heimilisaðstæður drengjanna, heim við það sem maður hefur áður heyrt og séð. Gallinn er bara sá að þessir kaflar eru flausturslegir. Persónurnar eru grunnar og einhliða og drama- tískustu atriðin skrambi ósenni- leg. Spennan er mikil í Götu- drengjum, þetta er grimm og miskunnarlaus veröld sem okkur er sýnd og það verður sagt myndinni til hróss að umhverfið, bæði utan og innan hælisins og manngerðirnar eru trúverðugar. Leikararnir eru flestir hverjir góðir, einkum þó Sean Penn í hlutverki Micks. Harðneskjulegt og lífsreynt andlit hans gefur þessum smá-skratta og þar með myndinni raunsæislegt yfir- bragð, og fas hans allt er af sama sauðahúsi. Skemmtilegasti karakter myndarinnar er klefafélagi Micks, gyðingurinn Horowits, fjöldamorðingi, vart af barns- aldri. Hann fær einu fyndnu lín- urnar í Götudrengjum, og gerir það að eftirminnilegasta hlut- verkinu. Hrottaleg afþreying sem hefði þurft mun betri með- ferð til að vera tekin alvarlega. Slade — The Amazing Kamikaze Syndrome: Slade hafa svo sannarlega komiö á óvart meö fyrstu plötu sinni í langan tíma. Lagiö „My Oh My“ sló hressi- lega í gegn rétt fyrir jólin og núna hafa Slade gefiö út nýtt lag af þessari plötu, „Run Runaway", þrumurokkara sem geysist upp breska vinsældalistann um þessar mundir. Eurythmics — Touch: Þetta er platan sem gagnrýnendur lofa í hástert og eiga ekki nógu mörg orö til aö lýsa gæöum hennar. Vinsæld- irnar láta heldur ekki á sér standa og þýtur platan nú upp vinsældalista um allan heim. Eigum einnig 2 fyrri plötur Eurythmics, In the Garden og Sweet Dreams. Lionel Richie - Can’t Slow Down: Kenny Rogers - Eyes That See In The Dark: Hall & Oates - Rock'n Soul Part 1: Aörar nýjar plötur: Lou Reed — Live In Italy Elvis Presley — Legendary Performer Vol. 4. Dazz Band — Joystick Pointer Sisters — Break Out Evelyn King — Face To Face Paul Kantner — The Planet Earth David Knopfler — Release Litlar og 12“ plötur: Gary Low — I Want You Eurythmics — Here Come The Rain Again J.B.’s All Stars — Backfield In Motion Freeze Frame — Foxhole The Fraggles — Fraggle Rock Tomas Ledin — Don’t Touch That Dial White and Torch — Bury My Heart Slade — Run Runaway Hazel O’Connor — Don’t Touch Me Ath! Kántrí-kynningunni lýkur um mánaðamótin. Þá tekur viö jazz-kynning meö 20% afsl. Sendum í póstkröfu. S. 11508. LAUGAVEGI 33 11508-REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.