Morgunblaðið - 03.03.1984, Qupperneq 1
48 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
52. tbl. 71. árg._____________________________________LAUGARDAGUR 3. MARS 1984_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Búist yið samnings-
rofi á næstu dögum
Gemayel undirbýr nýjan þjóðarsáttarfund
Beirút, 2. mars. AP.
FAOTLEGA er við því búist, að Am-
in Gemayel, forseti Lfbanon, til-
kvnni innan fárra daga rof samn-
ingsins, sem gerður var við ísraela í
maí í fyrra um brottflutning er-
lendra herja frá landinu.
Háttsettur embættismaður í
Beirút taldi síðdegis allar líkur
benda til þess að forsetinn tæki af
skarið í byrjun næstu viku. Þ6
ekki fyrr en hann hefði ráðfært
sig við hina ýmsu leiðtoga þjóðar-
innar. Um leið mun hann þá tiÞ
kynna vopnahlé, sem binda á endi
á skærur stríðandi aðila í landinu.
Sýrlendingar munu sjá um að
framfylgja vopnahléinu.
Þá er jafnframt búist við því að
Gemayel boði leiðtoga kristinna
og múhammeðstrúarmanna til
nýs þjóðarsáttarfundar í Montre-
aux í Sviss dagana 8.—10. þessa
mánaðar. Þar mun forsetinn hafa
í hyggju að leggja fram róttækar
tillögur um breytingar á stjórn-
arskrá landsins. Fela þær m.a. í
Danskt leitarskip snýr
heim eftir 5 vikna leit:
Eitrið í
Norðursjó
er enn á
hafsbotni
Kaupmannahöfn, 2. mars. AP.
DANSKT rannsóknarskip sneri í
dag til hafnar eftir fimm vikna
árangurslausa leit að eiturefnum,
sem fóru í Norðursjó þegar flutn-
ingaskip fékk á sig brotsjó í
janúarmánuði.
Umhverfismálaráðuneytið í
Kaupmannahöfn sagði í dag,
að leitinni hefði verið hætt að
sinni, en útilokaði ekki að
henni kynni að verða haldið
áfram síðar.
Alls fóru um 16 tonn af eitr-
inu Dinoseb í sjóinn. Eitur
þetta er banvænt, enda notað í
framleiðslu á skordýra- og ill-
gresiseitri.
Þessi fimm vikna leit hefur
verið mög yfirgripsmikil og
kostnaðarsöm þótt ekki hafi
hún skilað þeim árangri, sem
vænst var. Eitt þúsund ferkíló-
metra svæði á hafsbotninum
var kannað, en allt kom fyrir
ekki.
Alls fóru 39 vörugámar fyrir
borð í slysinu. Tólf þeirra tókst
að finna með neðansjávar-
myndavélum, en enginn þeirra
reyndist innihalda eiturefnin.
Þá fundust 17 til viðbótar með
ratsjártækjum, en reyndust
heldur ekki innihalda eitrið.
sér jafna valdskiptingu á milli
beggja trúarfylkinga.
Litlar fregnir hafa enn farið af
viðræðum þeirra Assads, Sýr-
landsforseta, og Gemayels í Dam-
askus. Þó hefur frést, að þeir hafi
ákveðið að suðurhluti Líbanon
verði ekki vettvangur hernaðarað-
gerða gegn ísraelum þótt samn-
ingnum við þá verði rift.
Elie Salem, utanríkisráðherra
landsins, hélt i dag áleiðis til
Saudi-Arabíu til þess að skýra rík-
isstjórn Fahds konungs frá niður-
stöðum viðræðufundar Gemayels
og Assads.
Stokkhólmi, 2. mars. AP.
Leitin við Karlskrona enn árangurslaus
ÞRÁTT fyrir að enn sé leitað að óþekktum kafbáti og
ókunnum kafara í sænska skerjagarðinum utan við
Karlskrona, þar sem sænski sjóherinn hefur mikil-
væga flotastöð, er engan árangur að sjá af leitinni.
Sænskir kafarar köfuðu í dag í nágrenni við
flotastöðina en urðu einskis varir. Svo virðist sem
hinn ókunni kafari, sem vart varð við í gær, hafi
gengið á land á eynni Almo. Eyjan er ein þriggja
skammt fyrir utan Karlskrona.
Á meðafylgjandi mynd eru kafarar frá sænska
sjóhernum að búa sig undir að taka þátt í leitinni í
gær. Aðgerðir hersins hafa nú staðið yfir á 4. viku.
Assad, Sýrlandsforseti
Tilræði
við Assad
afstýrt
Tel A»iv, 2. mars. AP.
DAGBLAÐ Haáretz í ísrael skýrði frá
því í dag, að banatilræði við Hafez
Assad Sýrlandsforseta hefði verið af-
stýrt af bróður hans á elleftu stundu.
Það voru háttsettir menn innan hers-
ins, sem hugðust ráða forsetann af
dögum.
Blaðið byggði frétt sína á upplýs-
ingum frá Washington og var í
henni vitnað í ummæli háttsettra
vestrænna leyniþjónustumanna,
sem ekki létu nafns getið. Þeir
byggðu upplýsingar sínar á „áreið-
anlegum heimildum" í Beirút.
Þá skýrði Haáretz frá því í frétt
sinni, að Assad hefði eflt öryggis-
gæslu í Damskus í vikunni á meðan
á viðræðum hans og Gemayel, Líb-
anonsforseta, stóð. Jafnframt var
frá því sagt, að nýlegar tilfærslur
herliðs Sýrlendinga í Bekaa-dal í
Líbanon ættu rætur sínar að rekja
til ágreinings bróður forsetans,
Rifaat, og Ali Dubas, yfirmanns
leyniþjónustunnar.
Loks skýrði blaðið frá því, að
Assad forseti hefði boðað til neyð-
arfundar í flokki sínum í gær og
stóð sá fundur i „marga klukku-
tíma“. Seinkaði viðræðunum við
Gemayel m.a. af þeim sökum.
Chernenko breytti út
af opinberum texta
— minntist ekki á eitt helsta skilyrði Sovétmanna
fyrir áframhaldi viðræðna við Bandaríkin
Moskvu, 2. mars. AP.
MIKLA athygli hefur vakið, að Konstantin Chernenko, leiðtogi sovéska
kommúnistaflokksins, breytti á einum stað út af skrifuðum texta í 45 mín-
útna langri sjónvarpsræðu, sem hann flutti.í dag.
Minntist hann ekki á eitt helsta
skilyrðið, sem Sovétmenn hafa til
þessa sett fyrir frekari viðræðum
við Bandaríkjamenn um gagn-
kvæma fækkun kjarnorkuvopna.
Umrætt skilyrði Sovétmanna,
sem þeir hafa hamrað á við öll
tækifæri, er á þá leið, að þeir séu
reiðubúnir að hefja samningavið-
ræður á ný að því gefnu að Banda-
ríkjamenn og bandamenn þeirra í
NATO leggi sitt af mörkum til að
„breyta ástandinu til þess sem það
var áður“, eins og segir orðrétt.
Þetta er túlkað á þann veg, að Sov-
étmenn vilji hinar nýju meðal-
drægu flaugar NATO í V-Evrópu
burt áður en þeir snúa að samn-
ingaborðinu.
I ræðu sinni sagði Chernenko
ennfremur, að hann væri hlynntur
slökunarstefnu og að hann gerði
sér góðar vonir um að bæta mætti
samskipti stórveldanna. Hann
nefndi þó engin dæmi máli sínu til
stuðnings.
Á meðan á flutningi ræðunnar
stóð virtist Chernenko eiga í erfið-
leikum á stundum og gerði þá
stutt hlé á máli sínu. Enn hefur
Konstantin Chernenko
ekki fengist staðfest hvort leiðtog-
inn breytti út af textanum af
ásettu ráði eða hvort honum fip-
aðist í flutningi sínum á ræðunni.
„Hvað Evrópu varðar erum við
hlynntir því að bæði meðal- og
skammdrægar kjarnorkuflaugar
verði fjarlægðar," sagði Chern-
enko. „Við viljum að báðir hlutað-
eigandi aðiiar stígi fyrsta skrefið
samtímis."
í ræðu leiðtogans kom í fyrsta
sinn fram, að hveitiuppskera á
síðasta ári hefði verið 17% undir
því marki, sem sett hefði verið.
Sovétmenn hafa ekki skýrt fá ár-
legri hveitiuppskeru sinni frá
1980. í ræðunni kom einnig fram,
að áfram yrði barist gegn spill-
ingu. Þá yrðu smávægilegar efna-
hagsbreytingar reyndar áfram.