Morgunblaðið - 03.03.1984, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984 5
Albert Guðmundsson á fundi með stuðningsmönnum síniim:
Geigvænlegt ástand
í efnahagsmálunum
Býður sig ekki fram til forsetakjörs
Á FIMMTÍIJ til sextíu manna
fundi sem Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra sat, ásamt stuðn-
ingsmönnum sínum, í fyrradag,
lýsti hann því yfir, að hann væri
ákveðinn í að bjóða sig ekki fram
til forsetakjörs, á móti Vigdísi
Finnbogadóttur. Albert gerði grein
fyrir ástandinu í efnahagsmálum,
sem hann taldi geigvænlegt. Hann
skýrði forsendur og mat sitt á
samningum við Dagsbrún og svar-
aði spurningum fundarmanna um
atvinnu- og fjármál. Samkvæmt
heimildum blaðsins var ekki ann-
að að heyra en Albert hyggðist
sitja áfram sem fjármálaráðherra.
í umfjöllun Alberts um efna-
hagsmálin ræddi hann um 1,7 til
8 milljarða gat í fjárlögunum.
Gat um nefnd sem hann hefði
skipað undir forystu hagsýslu-
stjóra sem ætti að hafa á hrað-
bergi nákvæmar upplýsingar um
stöðu mála. Hann setti ekki
fram raunhæfar hugmyndir um
viðbrögð við efnahagsvandanum
— aðeins að ríkissjóður yrði að
herða sultarólina og vildi ekki
heyra minnst á frekari skatt-
lagningu.
Ekki gerði Albert mikið úr
þeim ágreiningi sem varð í þing-
flokknum vegna Dagsbrúnar-
samningsins, taldi að þegar
mEnn hefðu kynnt sér samning-
inn vel myndi andstaða hjaðna.
Heimildarmenn Mbl. töldu jafn-
vel að hann gerði of lítið úr þeim
ágreiningi sem upp er kominn.
Hann lagði þvert á móti áherslu
á gott samkomulag innan þing-
flokksins og ríkisstjórnarinnar
og fagnaði því að Sjálfstæðis-
flokkurinn stæði undir þvi að
rúma andstæðar skoðanir.
Fram kom hjá heimildar-
mönnum ótti við að ef í odda
skærist nú, myndi það þýða
djúpstæðan og sársaukafullan
ágreining, sem ekki myndi leys-
ast í náinni framtíð.
Ekki var annað að heyra
samkv. áliti heimildarmanna en
Albert væri þess albúinn að
halda áfram starfi sem fjár-
málaráðherra. Þó bentu menn á
að „Albert væri alltaf Albert",
hann gæti snögglega skipt um
skoðun teldi hann sig ekki leng-
ur gera gagn, eins og einn þeirra
komst að orði. Heimildarmenn-
irnir lögðu áherslu á að Albert
vildi að menn gerðu sér grein
fyrir að við núverandi aðstæður
gæti horft til mikilla vandræða í
efnahagsmálum þjóðarinnar.
Hólmadrangur seldi
fyrir 8,6 milljónir
Kirkjuvika
á Akureyri
Akureyri, 2. mars.
DAGANA 4.—11. mars nk., verður
haldin árleg kirkjuvika í Akureyr-
arkirkju.
Kirkjuvikan hefst meó útvarps-
messu frá Akureyrarkirkju á æsku-
lýðsdaginn, 4. mars, þar sem séra
Þórhallur Höskuldsson prédikar og
séra Birgir Snæbjörnsson þjónar
fyrir altari. Kór Barnaskóla Akur-
eyrar syngur og félagar úr /Gsku-
lýðsfélagi kirkjunnar annast upplest-
ur og söng.
Mánudaginn 5. mars verður
samkoma í kirkjunni, sem hefst
með orgelforleik Gunnars Gunn-
arssonar. Jón Kristinsson flytur
ávarp og síðan verður almennur
söngur. Þá mun Gunnar Ragnars
flytja ræðu og gamlir Geysisfélag-
ar syngja. Myndasýning verður og
samleikur á þverflautur.
Þriðjudaginn 6. mars verður
enn samkoma í kirkjunni sem
hefst með orgelforleik Ásrúnar
Atladóttur. Sumarrós Garðars-
dóttir flytur ávarp og Anna
Snorradóttir ræðu. Þá verður
myndasýning, einsöngur og tví-
söngur auk þess sem kammerblás-
arar Tónlistarskólans leika.
Miðvikudaginn 7. mars verður
föstumessa í kirkjunni. Þar mun
séra Hannes Örn Blandon prédika
og séra Birgir Snæbjörnsson
þjóna fyrir altari. Séra Trausti
Pétursson fv. prófastur les úr písl-
arsögunni og Kirkjukórinn syngur
úr Passíusálmunum.
Fimmtudaginn 8. mars verður
kvöldvaka Æskulýðsfélags Akur-
eyrarkirkju, sem hefst með orgel-
leik Gunnars Gunnarssonar. Sig-
urlaug Skúladóttir kynnir dag-
skrána og Björg Þórhallsdóttir
flytur ávarp. Birgir Örn Sigþórs-
son flytur ritningarorð og bæn og
kór Æskulýðsfélagsins syngur.
Séra Pétur Þórarinsson flytur
hugleiðingu og Jóhanna Guðrún
Aðalsteinsdóttir og Birgir Örn
Sigþórsson sjá um helgistund.
Föstudaginn 9. mars er síðan
samkoma í kirkjunni, þar sem
Björg Baldvinsdóttir og Gunnar
Rafn Jónsson flytja ávarp. Kór
Lundarskóla syngur og mynda-
sýning verður. Samleikur verður á
flautu, píanó og fiðlu og að lokum
helgistund.
Sunnudaginn 11. mars lýkur svo
kirkjuviku með guðsþjónustu í
Akureyrarkirkju, þar sem dr. Sig-
urbjörn Einarsson, biskup, prédik-
ar. Sóknarprestar munu þjóna
fyrir altari og Kirkjukórinn syng-
ur undir stjórn Jakobs Tryggva-
sonar, Gunnlaugur P. Kristinsson,
formaður sóknarnefndar, mun svo
flytja ávarp í messulok og slíta
kirkjuviku.
GBerg.
Frystitogarinn Hólmadrangur frá
Hólmavík seldi 177 lestir af frystum
fiski í Hull um miöjan síðasta mán-
uð. Köluverð farmsins var um
200.000 sterlingspund eða um 8,6
milljónir íslenzkra króna.
100 lestir aflans voru fryst
þorskflök en afgangurinn, 77 lest-
ir, að mestu heilfryst grálúða. Afl-
ann fékk Hólmadrangur á tæplega
einum og hálfum mánuði eða frá
áramótum. Það er sölufyrirtæki
Sambandsins, Iceland Seafood
Limited, sem selur fiskinn fyrir
Hólmadrang, en það selur einnig
afurðir frystitogarans Akureyjar-
innar. Hólmadrangur hefur nú
haldið til rækjuveiða og fékk skip-
ið 7 lestir fyrsta sólarhringinn
djúpt út af Húnaflóa.
virðulegur
ítalskir listamenn fiafa í gegnum
aldirnar skapað fjölda ódauðlegra verka.
ítalskir bílahönnuðir fiafa
erft listfengi forfeðranna \ ríku mæli
og eru í fararbroddi \ sinni
grein í heiminum \ dag.
UNO er afburða vel fiannaður ítalskur
bíll. Glöggt dæmi um næmi ítala
fyrir formfegurð, þar sem
notagildi er haganlega ofið inní
listræna heildarmynd.
Uno er fallegur og virðulegur, enda
byggður á listaarfi liðinna meistara
með háþróaðri tækni nutímans.
IEGILL
/ VILHJÁLMSSON HR
Smiðjuvegi 4. Kópavogi. Símar 77200 - 77202