Morgunblaðið - 03.03.1984, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
21
Tillaga á Búnaðarþingi:
Hvatt verði til sumar-
dvalar barna í sveit
Fyrir Búnaðarþingi liggur til-
laga þar sem hvatt er til að börn
og unglingar fái notið sumardval-
ar í sveit. Lagt er til að þingið
hvetji bændur til að leggja því
máli lið vegna þess uppeldisgildis
sem slík sumarvist hefur fyrir
börn.
Valgarður Egilsson og Sigurð-
ur Sigurðarson sendu Búnaðar-
þingi tillögu þessa efnis og var
hún lögð fyrir þingið af stjórn
Búnaðarfélagsins. I greinargerð
með tillögunni segir að sumar-
dvöl í sveit sé borgarbörnum
uppeldislega mjög verðmæt og
því sé æskilegt að sem flest börn
og unglingar fái notið sveita-
dvalar. í greinargerðinni segir
ennfremur um ávinning sumar-
dvalar barna í sveit: „Aðskilnað-
ur er að verða milli mannlífs
(kúltúrs) borgarinnar og hinna
dreifðu byggða. Gegn því má
vinna. Með meiri samskiptum
milli borgar og sveita kynni að
réna sú tortryggni, sem alið er á
gegn landbúnaði sem atvinnu-
vegi. Og fleira gæti fylgt já-
kvætt: gagnkvæm kynni þýða
gagnkvæman skilning og verða
aldrei nema til góðs.“
I lokaorðum greinargerðar-
innar sem Sigurður og Valgarð-
ur nefna kjarna málsins segir:
„Sveitadvöl, með umgengni við
dýr og náttúruna eins og hún er
af skaparanum gerð; þar fær til-
finningalíf barns oft hina bestu
rækt. Það er kjarni málsins."
Höföar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
2tter£unIiInTuT>
Brecht-tíð
Leiklist
Jóhann Hjálmarsson
Stúdentalcikhúsið:
„BREYTTU HEIMINUM ...! “
Söngvar og Ijóð eftir Brecht.
Dagskrá tekin saman af Hafliða
Arngrímssyni og Margréti Pálma-
dóttur.
Flytjendur: Ástríður H. Ingólfs-
dóttir, Bára Lyngdal Magnúsdótt-
ir, Guðlaugur Viktorsson, Kristján
Viggósson, Margrét Pálmadóttir
og Sigríður Eyþórsdóttir.
Hljómsveit: Bjarni Jónatansson,
Jón Björgvinsson, Joseph Fung,
Knútur Birgisson, Richard Korn,
Rúnar Vilbergsson og Sigríður Ey-
þórsdóttir.
Nú má segja að Brecht-tíð sé í
Reykjavík. Þjóðleikhúsið sýnir
Sveyk í síðari heimsstyrjöldinni,
Stúdentaleikhúsið býður að-
dáendum skáldsins dagskrá með
söngvum þess og ljóðum.
Brecht-dagskráin er hin lífleg-
asta, ágæt blanda söngva og
ljóða. Við fáum að heyra alvöru-
gefin ljóð skáldsins á borð við
Barnamorðingjann Maríu Farr-
ar í þýðingu Halldórs Laxness og
til hinna óbornu í þýðingu Sig-
fúsar Daðasonar. í Til hinna
óbornu yrkir Brecht:
Ég vildi einnig feginn vera vitur.
í gömlum bókum stendur hvað sé vizka:
halda sér utan við þras heimsins og lifa
hina stuttu stund án ótta.
Að komast af án ofbeldis,
að gjalda illt með góðu,
að uppfylla ekki óskir sinar heldur
gleyma þeim
er einnig álitið vizka.
Allt þetta er mér ókleift:
Sannarlega lifi ég á myrkum tímum.
Svo eru hinir léttu og oft
mergjuðu söngvar fullir af háði
og hlýju í senn. Þannig er til
dæmis Vöggubóð Mutter Cour-
age í þýðingu Olafs Stefánssonar
og Hvað var það sem hermanns-
frúin fékk? í þýðingu Þórarins
Eldjárns:
Hvað var það sem hermannsfrúin fékk
frá því risavaxna Rússlandi?
Frá Rússlandi aðeins ekkjuslör,
eina jarðarför og ekkjuslör.
Þetta fékk hún frá Rússlandi.
Val þeirra Hafliða Arngríms-
sonar og Margrétar Pálmadóttur
var að sjálfsögðu ekki tæmandi.
Fjöldi þýðenda hefur glímt við
Brecht með misjöfnum árangri.
En hér fékkst alla vega innsýn í
það, sem menn hafa verið að
reyna að túlka eftir meistarann.
Það er engin launung að Brecht
var bestur í ljóðum sínum.
Ýmist var sungið á íslensku
eða þýsku og var það áberandi
eins og löngum áður hve vel
samvinna þeirra tónskáldsins
Kurt Weill og Brecht tókst. En
auðvitað voru þeir líka fyrirferð-
armiklir Hanns Eisler og Paul
Dessau.
Sú kráarstemmning, sem er
oft í Stúdentaleikhúsinu átti vel
við að þessu sinni. Leikararnir
túlkuðu skáldið af innlifun. Ekki
held ég að á neinn sé hallað þótt
lýst sé þeirri skoðun að einna
mest hafi kveðið að Báru Lyng-
dal Magnúsdóttur og Kristjáni
Viggóssyni hvað framsögn og
leik varðar. En hinir leikararnir
og söngvararnir áttu lika sinn
ríka þátt í að þessi dagskrá
heppnaðist.
Öryggi í stað áhættu!
Hafið þið áttað ykkur á því að í mörgum tilfellum er hagkvæmara
að kaupa góðan notaðan MAZDA bíl hjá okkur heldur en
nýjan bíl af ódýrari gerðum?
Nú höfum við til sölu sérlega gott úrval af notuðum
MAZDA bílum í sýningarsal okkar, sem allir seljast með
6 mánaða ábyrgð.
£
S
«0
f
1
o
tt
3
2
o
t£>
MAZDA eigendur athugið: Okkur bráðvantar
allar árgerðir af velmeðförnum
MAZDA 323 á sölulista.
BILABORG HF
Smiðshöfða 23 sími 812 99
Sýnishorn úr söluskra:
Gerö Km. Árgerð
626 Sedan 1600 51.000 '80
929 Hardtop 2000 23.000 ’83
929 Sedan 2000 SDX 11.000 ’82
323-S 1300 38.000 ’81
626 Sedan 2000 SDX 13.000 '82
626 Sedan 2000 60.000 '80
626 Sedan 1600 69.000 ’80
929 Sedan 2000 LTD 11.000 '82
929 Sedan 2000 LTD 62.000 '82
929 Station 2000 30.000 ’82
Góðir greiðsluskilmálar.
Opiö í dag kl: 10—16
Vörumarkaöurinnhf7{
Vörumarkaðurinn hf.
Eiðistorgi 11