Morgunblaðið - 03.03.1984, Qupperneq 23
Bandaríkin:
Sovéskur
ólympíu-
fulltrúi
fær ekki
vegabréfs-
áritun
Los Angeles, 2. mars. AP.
BANDAKÍSKA utanríkisráðuneytið
hefur synjað Oleg Yermishkin, sem
átti að vera fulltrúi sovéska ólympíu-
liðsins á leikunum í Los Angeles í
sumar, um vegabréfsáritun til
Bandaríkjanna. Tilkynning þessa
efnis barst á fimmtudag, sama dag
og hann var væntanlegur til borgar-
innar til að vinna að undirbúningi
fyrir komu liðsins.
Forráðamenn ólympíuleikanna
segjast ekki skilja hvers vegna
ákvörðun þessa efnis var tilkynnt
svo seint sem raun ber vitni og
telja hana ósanngjarna.
Fulltrúi ráðuneytisins hefur
enga skýringu viljað gefa á synj-
uninni, en AP-fréttastofan hefur
eftir ónafngreindum sendifulltrúa
Bandaríkjanna í Moskvu að Sov-
étmenn hafi verið varaðir við því
með löngum fyrirvara, að Yerm-
ishkin fengi ekki vegabréfsáritun
vegna „fortíðar sinnar", og er talið
að átt sé við að hann hafi starfað
eða starfi í þágu sovésku leyni-
þjónustunnar.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
23
Jackie Coogan látinn
Háttsettur Sovét-
ráðherra til Kína
Peking, 2. mars. AP.
WAN LI, varaforsætisráðherra Kína, staðfesti í dag aö kínversk stjórnvöld
hefðu boðið Ivan Arkhipov, varaforsætisráðherra Sovétríkjanna, til viðræðna
í Peking. Hann er háttsettasti sendimaður Sovétríkjanna sem komið hefur til
Kína síðan 1969.
Kínverski ráðherrann gaf í skyn
að Kínverjar vonuðust til að við-
ræðurnar leiddu til aukinna við-
skipta þjóðanna, fremur en að
mikil breyting yrði á stjórnmála-
samskiptum þeirra, sem verið
hafa mjög stirð um árabil.
„Við munum halda áfram að
gagnrýna heimsvaldastefnu Sov-
étríkjanna í nafni friðarins og
hagsmuna alþýðunnar," sagði
Wan Li við fréttamenn.
Vísa fregnum um
fjöldamorð á bug
Nairóbí, 2. mars. AP.
Málgagn stjórnarflokksins í
Kenýa sagði í dag að ekkert væri
hæft í stadhæfingum þess efnis að
stjórnarhermenn hefðu myrt rúm-
lega 300 menn af Degodia-ætt-
flokknum.
Þingmenn og embættismenn af
þessum ættflokki hafa sakað lög-
reglu og her um að hafa handtekið
5.000 Degodia-menn nærri landa-
mærunum við Sómalíu, myrt
suma og pyntað aðra.
Hersveitir voru sendar til norð-
austurhluta Kenýa vegna deilna
þar milli Degodia-manna og Aj-
uran-ættflokksins um vatnsból og
beitarsvæði. Hinir fyrrnefndu eru
í nánu sambandi við Sómalíu-
menn.
Sagði stjórnarblaðið að her-
sveitunum hefði tekist að koma á
röð og reglu að nýju. Stundum
hefði kastast í kekki, en ofbeldi og
dauðsföll verið í lágmarki.
Santa Monica, Kaliforníu, 2. mars. AP.
Kvikmyndaleikarinn Jackie Coogan, sem frægur varð fyrir leik
sinni með Charlie Chaplin í myndinni The Kid lést á sjúkrahúsi í
Santa Monica í Kaliforníu á fimmtudag, 69 ára að aldri. Banamein
hans var hjartabilun.
Coogan var aðeins fjögurra ára gamall þegar hann lék í mynd-
inni með Chaplin. Hann var fæddur 26. október 1914.
Hann fór með barnahlutverk í fleiri myndum sem frægar urðu,
s.s. Oliver Twist, Daddy, Old Clothes og My Boy, og táningahlut-
verk í mynd um Stilkisberja-Finn eftir sögu Mark Twain.
Á efri árum var hann kunnastur fyrir leik sinn í sjónvarpsþátt-
unum The Adams Family
Filippseyjar:
Felldu 15
Manila, 2. mars. AP.
Stjórnarhermenn gerðu áhlaup á
felustað kommúnista á eynni Mind-
anao, sem er sunnarlega í Filipps-
eyjaklasanum, og felldu 15 skæru-
liða í tveggja stunda bardaga.
Nokkrir stjórnarhermenn og
skæruliðar særðust í átökunum.
skæruliða
Þetta er í annað skiptið á einni
viku að til harðra átaka kemur
milli stjórnarhermanna og skæru-
liða. Á laugardag féllu 30 aðskiln-
aðarsinnar múhameðstrúarmanna
og 14 hermenn í fjögurra stunda
bardaga.
í sýningarsal okkar að Ármúla 7 sýnum við teikningar af 20 nýjum MÁT einingahúsum
eftir arkitektana: Albínu og Guðfinnu Thordarson, Arna Friðriksson og Pál Gunnlaugsson.
Komið og kynnið ykkur nýjar leiðir í íslenskum byggingariðnaði og lægri
byggingarkostnað.
Lítil hús — stór hús
Vferóáuppsettum húsumírákr.600x)00-lj000j000
Mírp
Ármúla 7, símar: 31600 og 31700