Morgunblaðið - 03.03.1984, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
39
fclk í
fréttum
Katie Rabett meö starfsfélaga sínum, Greg Sheriff. Myndin var tekin Ef nektarmyndin er folsuö er hún vissulega
á tískusýningu í fyrri viku. vel gerð eins og sjá má.
Eru nektarmynd-
irnar falsaðar?
+ Bresku blöðin, sum þeirra
a.m.k., velta sér enn upp úr nýj-
asta ástarævintýrinu hans And-
rews prins og láta sig það engu
skipta þótt bæði hann og stúlkan,
fyrirsætan Katie Rabett, þvertaki
fyrir að nokkuð sé á milli þeirra
nema góður kunningsskapur. Það,
sem þykir svo spennandi, er, að
eitt blaðanna birti nektarmyndir
af Rabett, sem hún segir þó að séu
falsaðar.
Ljósmyndarinn, sem tók mynd-
irnar, segist hafa gert það að
beiðni Rabetts og tekið bæði
myndir af henni naktri og í ein-
hverju hýjalíni. „Katie er stúlka
sem veit hvað hún vill og er ekki
með neinn vandræðagang. Sumar
stúlkur eru mjög stífar og afklæð-
ast á bak við hengi en Katie er
ekki með svoleiðis smámunasemi.
Barbara Reynolds
Hún afklæðist og klæðist fyrir
framan mann og hagar sér í öllu
eins og atvinnumanneskja," segir
hann.
Jackie Kennedy
COSPER
Jackie
og
tvífarinn
+ Jaekie Kennedy hefur farið í
mál við tískufyrirtækið Dior og
eins og títt er vestra er ekki far-
iö fram á neina smápeninga.
Nokkrar milljónir dollara vill
hún fá í skaðabætur fyrir að
fyrirtækið lét tvífara hennar,
bandaríska konu að nafni Bar-
bara Reynolds, koma fram í aug-
lýsingu þar sem gefið var í skyn
að Jackie væri sjálf á ferðinni.
Barbara segist vera ósköp leið
yfir þessu og kveðst eiga þann
draum að fá að hitta Jackie
Kennedy og skýra út fyrir henni
málið.
Ný gerð af
ál-vörubílspöllum
Nú bjóöum viö upphitaöa ál-palla meö þykkari
botnplötu, 10 mm og 5 mm í skjólboröum. Alið í
þessum pöllum er sérstaklega slitsterkt og ætlaö fyrir
22 tonna buröargetu. Þýsk gæöavara.
Pallarnir eru léttir og sterkir. Einnig bjóöum viö sturt-
ur og annaö tilheyrandi, ál-skjólborð, ál-slitplötur á
dráttarvagna úr áli.
Flutningshús úr glassfiber og póliúritan, þýsk gæöa-
vara. Ál-hús og hús úr krossviði.
Upplýsingar í síma 83045 og 83705.
MÁLMTÆKNI
Vagnhöföa 29.