Morgunblaðið - 06.03.1984, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 06.03.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984 3 Úrslit í Eðlisfræðikeppni framhaldsskólanema: Finnur Lárusson MH hreppti efsta sætið Moníunblaðið/Kristján. Hinir fimm framhaldsskólanemar er komust í úrslitakeppni Eðlisfrædikeppninnar. F.v. Hallgrímur Einarsson MA, Ragnar Guðmundsson MR, Finnur Lárusson MH, Haraldur Olafsson MH og Vilhjálmur Þorsteinsson MH. ÚRSLIT í Eðlisfræðikeppni fram- haldsskólancma voru kunngerð sl. sunnudag og varð röð hinna fimm keppenda er komust í úrslita- keppnina þannig: Finnur Lárus- son, nemandi við Menntaskólann við Hamrahlíð, hreppti fyrsta sætið og hlaut fyrstu verðlaun, 8.000 kr. í öðru sæti var Vilhjálmur Þor- steinsson, nemandi við Mennta- skólann við Hamrahlíð, og hlaut önnur verðlaun, 4.000 kr. Ragnar Guðmundsson, nemandi við Menntaskólann í Reykjavík, var í þriðja sæti og hlaut þriðju verð- laun, 2.000 kr. Þeir Hallgrímur Kinarsson, nemandi við Mennta- skólann á Akureyri, og Haraldur Ólafsson, nemandi við Mennta- skólann við Hamrahlíð.voru í 4. og 5. sæti, hnífjafnir, og hlutu þeir 1.000 kr. í verðlaun hvor. Þá hlutu allir þessir fimm framhaldsskólanemar er komust í úrslitakeppnina bókagjöf frá Bókaverzlun Snæbjarnar og Bókaforlaginu Vöku. Sem kunnugt er voru það Eðlisfræðifélag Islands og Félag raungreinakennara sem stóðu að Eðlisfræðikeppninni með til- styrk Morgunblaðsins. Hafa fé- lögin fullan hug á að keppnin verði haldin árlega framvegis. Verkefni úr síðari hluta Eðlis- fræðikeppninnar munu birtast í blaðinu á morgun, miðvikudag, og verða þá jafnframt birt viðtöl við sigurvegarana og greint frá verðlaunaafhendingu. Ragnar T. Árnason látinn LÁTINN er í hér í Reykjavík Ragnar Tómas Árnason, fyrr- um þulur í Ríkisútvarpinu. Hann lést að heimili sínu, Rauðalæk 29, 3. mars. Hann var 66 ára, fæddur 13. mars 1917 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Árni Benediktsson, heildsali, sem síðar fluttist til Vesturheims, og kona hans, Kristrún (Tómasdóttir), Hall- grímsson. Ragnar fékkst við verslunarstörf á árunum 1930—1947, og rak um árabil heildverslun á þessum árum. Þulur var hann í Ríkisútvarp- inu í tæplega 20 ár. Hann hafði sem ungur maður stundað nám í söng- og leiklist. Kona Ragnars T. Árnasonar er Jónína V. Kristjánsdóttir Schram. Börn þeirra eru 5 tals- ins, öll uppkomin. Hættulegum naglabyssu- skotum stolið UM HELGINA var um 400 naglabyssuskotum stolið úr verkfærakistu í nýbyggingu í Breiðholti. Þjófarnir fóru upp vinnupalla, spenntu upp glugga og komust þannig inn í húsið. Þar sprengdu þeir upp verkfærakistu og höfðu naglabyssuskotin á brott með sér. Naglabyssuskotin geta verið börnum og unglingum stórhættuleg og biður lög- regla foreldra að vera sér- staklega á verði gagnvart þessum skotum. Þægindi - hagkvæmni — mikið hleðslurými DAIHATSU 850 CAB/CABVAN Hafiö samband viö sölumennina strax í dag. DAIHATSUUMBOÐIÐ ARMULA 23 - S. 85870 - 81733 Cab Van 850 Háþeklusendibfll á kr. 207.000.00 kominn á götuna með öllu Viö vorum aö fá nýja sendingu af þessum frábæru og vinsælu sendibílum. Viö eigum nokkra bíla, sem ekki er búiö aö ráöstafa á ótrúlegu veröi. Þeir sem eiga Cab Van 850 segja aö hann sé ótrúlega knár, en aldeilis ekki smár. Háþekjan gefur þér 1.34.5 m frá gólfi og upp í loft, 1,66 m lengd hleöslurýmis og 1.25 m breidd. Stórar afturdyr opnast upp í þak og rennihuröir á hliöum gera vinnuna viö bílinn ótrúlega auövelda. Þetta er kjörinn bíll fyrir lítil og stór fyrirtæki, sem vilja flytja vörur sínar og þjónustu á ódýran, fallegan, hreinlegan og traustan hátt. DAIHATSUGÆÐI — DAIHATSUÞJÓNUSTA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.