Morgunblaðið - 06.03.1984, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984
29555
2ja herb.
Hraunbær, mjög göð 65 fm
íbiiö á 3. haeö.
Snæland, góö 35 fm ein-
staklingsíbúö. Verö 850 þús.
Laugarnesvegur, 60 fm
íbúö á jaröhæö i tvíb. Snyrtil.
íbúð. Stór lóð. Verö 1100 þús.
Ásbraut, 2ja herb. 55 fm á 3.
hæð. Verð 1200 þús.
3ja herb.
Gaukshólar, 3ja herb. 90 fm
íbúö á 2. hæð. Æskileg maka-
skipti á 2ja herb. íbúö.
Fossvogur, stórglæsileg 3ja
herb. íbúö á 2. hæö í Fossvogi í
skiptum fyrir 4ra herb. íbúð í
Fossvogi.
Ásgaröur, góð 3ja herb.
íbúö. Verð 1400 þús.
Leirubakki, 3ja herb. 85 fm
íbúö á 3. hæð. Stórt aukaherb.
í kjallara. Verö 1600 þús.
Hagar, tæplega 100 fm íbúö á
3. hæö í blokk, aukaherb. í risi.
25 fm bílskúr. Skipti möguleg á
sérhæð í vesturbæ.
4ra herb. og stærri
Smáíbúðahverfi, 4ra herb.
100 fm neðri hæð í tvíbýli. Fæst
í skiptum fyrir minni eign,
70—80 fm.
Ásbraut, góö 110 fm íbúö.
Bílskúrsplata.
Engíhjalli, mjög góð 4ra
herb. íbúð, 110 fm, í lyftublokk.
Hverfisgata, 4ra herb. íbúö í
þríbýlis-steinhúsi. Verö aöeins
1250—1300 þús.
Fossvogur, vorum aö fá í
sölu mjög fallega 110 fm íbúö.
fæst í skiptum fyrir 2ja herb.
ibúö á svipuöum slóðum.
Austurberg, 4ra herb. 110
fm íbúö á 2. hæð. Suöursvalir.
25 fm bílskúr. Laus fljótlega.
Verð 1750 þús.
Gnoðarvogur, mjög falleg
145 fm 6 herb. hæð fæst í
skiptum fyrir 3ja herb. íbúö á
svipuöum slóöum.
Jörfabakki, 4ra herb. íbúö á
1. hæö meö aukaherb. í kjall-
ara. Þvottahús innaf eldhúsi.
Verð 1,8—1.850 þús.
Álftahólar, 4ra—5 herb.,
120 fm, ibúö á 6. hæð. Bílskur.
Verö 2 millj.
Þinghólsbraut, 145 fm
sérhæö í þríbýli. Verö 2,2 millj.
Njarðargata, stórglæsileg
135 fm íbúö á 2 hæöum. Öll
nýstandsett. Verð 2.250 þús.
Einbýlishús
Mosfellssveit, 130 fm raö-
hús á 2 hæöum. Skipti möguleg
á einbýlishúsi í Mosfellssveit.
Krókamýri Garðabæ, 300
fm einbýlishús, afhendist fok-
helt nú þegar.
Lindargata, 115 fm timbur-
hús, kjallari hæð og ris. Verð
1800 þús.
Þorlákshöfn — óskast.
Óskum eftir 3ja—4ra herb. íbúð
í Þorlákshöfn. Góöar greiðslur í
boði.
EIGNANAUST
Skiphofti S - 105 Reykiavik - Simar mS5 ?»SS«
Hrólfur Hjaltason viösk.fr.
Bústoðir
Helgi H. Jónsson viöskfr.
2ja herb.
Ásbraut 55 fm. V 1200 þús.
Framnesv. 55 fm. v 950 þ.
Físufel 35 fm. V 850 þ.
Hlíðavegur 70 fm. v 1250 þ.
Lindargata 40 fm. v 850 þ.
Rauðarárst. 50 fm. v 1150 þ.
Frakkastígur 50 fm. Biiskýii.
3ja herb.
Engihjalli 96 fm. V 1600 þ.
Grettisgata 85 fm. v 1450 þ.
Hverfisgata steinh. v 1250 þ.
Laugarnesv. 85 fm. v 1600 þ.
Maríubakki 90 fm. v 1550 þ.
Nönnug. ca. 75 fm. v 1450 þ.
Spítalast. 80-90 fm. V 1500 þ.
Tjarnarbr. 97 fm. v 1450 þ.
4ra herb.
Álftahólar 128 fm. v 1900 þ.
Fífusel 105 fm. V 1850 þ.
Gaukshólar 135 fm. Biiskúr.
Leifsgata 92 fm nýleg íbúö.
Suðurhólar 115 fm. v 1800 þ.
Vesturberg 110 fm. v 1700 þ.
Vesturberg 115 fm. v 1800 þ.
Kaldak. neöri sérh. V 1800 þ.
Raðhús
Við Ásgarö
Við Tunguveg
Við Engjasel
Við Háagerði
Við Hryggjarsel
Viö Stórateig Mos.
Við Stekkjahvamm í
smíðum
Viö Smáratún Álftanesi
Viö Grjótasel
Einbýlishús
Við Arnartanga
Við Krókamýri í smíöum
Iðnaðarhúsnæði víö Tang-
arhöföa á 2. hæö fullbúiö 300
fm. Verð 2,8 millj.
IS UiAVtfaU
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
Bújörð
Til sölu góö bújörð á fögrum
staö í uppsveitum Arnessýslu.
Engihjalli
3ja herb. vönduð ibúö á 6. hæð.
Svalir. Gott útsýni. Sér þvotta-
hús á hæöinni.
Egilsgata
4ra herb. íbúö meö bílskúr.
Háaleitishverfi
6 herb. endaíbúð á 2. hæö. 4
svefnherb. Tvennar svalir.
Víðimelur
2ja herb. samþykkt kjallara-
íbúö.
Einbýlishús
viö Keilufell á 2 hæðum. 6 herb.
148 fm. Bílskúr 27 fm.
Helgi Ólafsson
löggiltur fasteignasali
Kvöldsimi 21155.
EINBYLISHUS
Stórglæsilegt einbýlishús á tveim hæöum um 150 fm
aö grunnfl. Innbyggöur bílskúr. Húsiö selst fokhelt til
afh. strax. Fallegt útsýni. Teikn. á skrifstofunni. Verö
3,1 millj.
Fasteignaþjónustan
Austurstrætí 17, s. 26600
Kári F. Guðbrandsson
Þorsteinn Steingrímsson
lögg. fasteignasali.
ATÓMSTÖÐIN
Kvikmyndir
Ólafur M. Jóhannesson
ATÓMSTTÖÐIN
Leikstjóri: Þorsteinn Jónsson.
Kvikmyndataka: Karl Óskarsson.
Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson.
Tónlist: Karl J. SighvaLsson.
Hljóðupptaka: Louis Kramer.
Klipping: Nancy Baker.
Búningar: Una ('ollins, Dóra Einars-
dóttir.
Förðun: Ragna Fossberg.
Hárgreiðsla: Guðrún Þorvarðardóttir.
Upptökustjóri: Þórhallur Sigurðsson.
Framleiðandi: Örnólfur Árnason.
Myndin er hljóðsett í Dolby.
Ég man vel þá daga er ég kynntist
fyrst Atómstöð Halldórs Kiljans
Laxness, nýkominn í bæinn eins og
Ugla og svo heppinn að eiga þess
kost að lesa verkið í samfylgd gáf-
aðrar bókmenntakonu. Þá var oft
hlegið dátt, enda sá maður heiminn í
svart/hvítu, í samhljómi við það
kalda stríö er ríkti og í fullri sátt við
þá lífssýn er blasti við í Atómstöð-
inni. Síðar varð manni ljóst að að-
eins eru hættulegir þeir menn er
ekki greina litróf heimsins — hvort
sem þeir standa á hægri eða vinstri
væng stjórnmálanna. Þegar svo var
komið lífsskilningi sveitamannsins,
fór hann að greina persónur Atóm-
stöðvarinnar í nýju ljósi. Honum varð
ljóst hversu verk þetta er innblásið
af stundinni — örlagastund íslensku
þjóðarinnar myndu sumir segja —
og jafnframt hversu hin svart/hvíta
lífssýn hefir litað þær persónur er
þá lifðu og spretta ljóslifandi fram í
verki Kiljans. Þegar sveitamaðurinn
skoðaði nú verkið í þessu nýja skiln-
ingsljósi hætti honum að finnast það
jafn fyndið og áður. Buster Keaton-
áhrifin fjöruðu út. Hann gat ómögu-
lega sætt sig við að andstæðingar
Atómstöðvarinnar væru englaljós
með flekklaust hjarta, en fylgjend-
úrnir að sama skapi hjartalaus
sluddamenni. Þeir ágætu menn
sem nú hafa ráðist í það stórvirki að
filma Atómstöð Kiljans, virðast ekki
hafa glatað þeirri hjartans einlægu
lífssýn er fyrst gat um í grein. Þann-
ig hafa þeir með ærnum tilkostnaði
reynt til hins ýtrasta að endurskapa
það andrúmsloft er skóp Atómstöðina
á sínum tíma. Þeir hafa sum sé horf-
ið svo til alfarið til þeirra örlaga-
tíma er sópuðu mönnum í fylkingar
og þrengdu sjónsvið þeirra uns lit-
rófið hvarf. Þannig eru þeir Þor-
steinn Jónsson og félagar trúir texta
Halldórs en freista þess ekki að
skoða hann i ljósi breyttra að-
stæðna. Kannski er ekki mögulegt að
nálgast þennan tíma frá öðru sjón-
arhorni? O þó, á einum stað víkja
kvikmyndagerðarmennirnir frá
fyrrgreindum vinnuhætti. Lykilper-
sóna verksins, sjálf Ugla, er hér ekki
klædd í þann búning sem henni er
fenginn í texta Laxness. í stað þess
að velja í þetta hlutverk bláeyga
sveitastúlku með roðann í austri í
vöngum velur Þorsteinn Tinnu
Gunnlaugsdóttur sem hefur yfir sér
dimmu asfaltfrumskógarins. Snjöll
lausn hjá Þorsteini, því með vali
Tinnu í hlutverk Uglu, kemur hann í
veg fyrir að myndin fái yfirbragð
austrænna fimmáraáætlunarmynda
slíkra sem gerðar voru kringum ’50.
Tinna tengir sum sé þann heim er
birtist í Atómstöð Þorsteins við þann
áttlausa, marglita heim er við nú lif-
um. Ugla er hér meira að segja með
slöngulokka og gæti þess vegna verið
nýsloppin út úr Þjóðleikhúskjallar-
anum. Máski sjáum við í Uglu,
Þorsteins Jónssonar - kvendýr allra
tíma. Veru sem lætur eðlisávísun og
heilbrigða skynsemi ráða hvað sem
tautar og raular í henni veröld.
Þannig verður Ugla Þorsteins/Lax-
ness einskonar prófsteinn á heiðar-
leika og heillyndi þeirra sem byggja
þennan heim hverju sinni. Það skipt-
ir ekki máli hvort hún er nýstigin út
úr Þjóðleikhúskjallaranum eða útúr
langferðabifreið frá Norðurleið, hún
sér umhverfið ætíð í heilbrigðu
raunsönnu ljósi. Þannig má vera að
Tinna Gunnlaugsdóttir færi þá At-
ómstöð er Halldór Laxness skóp fyrir
35 árum til þess tíma er við nú lifum.
Að við greinum í viðbrögðum hennar
viðbrögð unglingsstúlkunnar við At-
ómstöð þeirri er gín yfir okkur á því
herrans ári 1984.
Frá þessu sjónarhorni má líta svo
á að Búi Arland, Kleópatra og
Organistinn séu sígildari táknmynd-
ir auðvaktar til lífs á öllum tímum
af tilfinningum og kommonsens
Uglu. í það minnsta virðist mér
Þorsteinn Jónsson og félagar ganga
út frá slíku er þeir láta Tinnu halda
slöngulokkunum. Ég tel persónulega
að þessi skoðunarháttur eigi rót að
rekja til þess, að þeir Þorsteinn séu
enn haldnir hinni svart/hvítu lífs-
sýn, sem gerir ráð fyrir, að séu hlut-
irnir skoðaðir með augum Uglu, —
hinu „ ... lifandi tákni alþýðunnar",
„allrar alþýðu“ eins og stóð í Þjóðv.
23. júní 1948 ,— þá séu þeir alltaf
eins. Búi Árland sé jafn andskoti
sleipur og háll og hann var fyrir 35
árum, Organistann megi finna í ný-
uppgerðum stofukommahúsum og
hún Kleópatra sé enn að veltast um
stræti borgarinnar óskandi þess að
„ástandið" vari að eilífu.
Þegar ég las fyrst Atómstöðina hélt
ég að heimurinn væri svona. Kallar í
stórum húsum væru vondir en hinir
að sama skapi góðir sem húsin væru
minni og feysknari, og það sem
meira var, ég hélt að svona yrði
heimurinn alltaf, nema kannski eftir
byltingu. Nú stendur ekki steinn yfir
HRAUNHAMAR
FASTEIGNASALA 545II
SÉRGREIN:
ÞJÓNUSTA ALLRA SVÆDA
SUNNAN REYKJAVÍKUR.
EINBYLI
Grundartangi — Mosfellssveit
Einbýli á einni hæö. 140 fm. Bílskúr. Verð: 3.600.000.
Suðurgata — Vogar
80 fm. Verð: 850—900.000.
Leynisbraut — Grindavík
144 fm. Bílskúr fylgir. Verð: 1.800.000.
Suöurgata — Hafnarfjörður
90 fm. Kjallari og tvær hæöir. Bílskúr. Séríb. í kjall-
ara.
RAÐHÚS
Stekkjarhvammur — Hafnarfirði
225 fm. Fullfrágengiö að utan. Fokhelt að innan.
Verð: 2.300.000.
4RA-5 HERBERGJA ÍBÚÐIR
Austurberg — Reykjavík
110 fm. Verð. 1.700.000.
Breiðvangur — Hafnarfirði
96 fm. Verð: 1.650.000.
2JA HERBERGJA ÍBÚÐIR
Hrafnhólar — Reykjavík
80 fm. Bílskúr fylgir. Verð. 1.750.000.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar
stærðir og gerðir íbúða á skrá.
Hólmadrangi
breytt
í rækju-
verksmiðju
ÞEGAR togarinn Hóltnadrangur
kom úr söluferð til Hull sl. laugar-
dag var skipið búið til þorskveiöa.
Þegar í stað var hafist handa við að
gera klárt til rækjuveiða og var
nauðsynlegri vinnu og endurbótum í
því skyni lokið eftir tæpa fjóra sól-
arhringa. Síðdegis á þriðjudag hélt
Hólmadrangur norður í haf, búinn
sem rækjuverksmiðja, og fyrsta sól-
arhringinn fékk hann 7 tonn af
rækju djúpt út af Húnaflóa.
„Þetta var allt gert á Hólmavík.
Við settum í skipið flokkunarvélar
og fleira og nú sjóðum við niður
rækju um borð og frystum hana,“
sagði Þorsteinn Ingason, fram-
kvæmdastjóri Hólmadrangs, í
samtali við blm. Morgunblaðsins
þegar fyrstu aflatölur voru að ber-
ast úr rækjutúrnum. Þá var reikn-
að með, að hvert úthaid yrði allt
að þriggja vikna langt.
Hólmadrangur er lítill verk-
smiðjutogari með 22 manna áhöfn
— tveimur færri en á meðan
stundaðar voru þorskveiðar. Ef til
vill gæti fækkað eitthvað meira á
næstunni, hélt Þorsteinn. „Með
þessu teljum við að við getum
haldið fullu úthaldi yfir árið,“
sagði hann. „Markaður fyrir
rækju í skel er stöðugur, bæði í
Bretiandi og Frakklandi og fást
70—85 krónur fyrir kílóið, það fer
nokkuð eftir stærð. Smæsta rækj-
an verður fryst og endurunnin á
Hólmavík."
Skipstjóri á Hólmadrangi er
Hlöðver Haraldsson.