Morgunblaðið - 06.03.1984, Page 18

Morgunblaðið - 06.03.1984, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984 SIEMENS NÝTT! Siemens- FERÐAVIÐTÆKIN: Ódýr og handhæg og henta vel til nota heima og heiman. SIEMENS-einkaumboð: SMITH & NORLAND H/F, Nóatúni 4, sími 28300. tfyiung TRELIMING ITIU STIGA sem auðvelt er að vinna með í allt að 10 stiga frosti og þolir geymslu í allt að 40 stiga frosti. Að líma spónaplötur á grind, kantlíming og hvers kyns önnur líming utandyra verður leikur einn með Evonor 620 - enn einni gæðavörunni frá Evonor. rt=n Viöbjóóumfleiraengottgler! m GLERBORG HF DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRDI - SÍMI53333 ! Forkosningar demókrata í Maine: Gary Hart bar aftur sigurorð af Mondale Skoðanakannanir spá honum sigri í Vermont, Wyoming og Massachusetts l'ortland, Maine, 5. mars. AP. GARY HART, öldungadeildarþingmaður, hrósaði í gær sigri í forkosningum demókrata í ríkinu Maine og lýsti því yfir á eftir, að hann væri búinn að koma pólitískum ofureflismanni sínum „á bæði knén“. Átti hann þá við Walter Mondale, sem nú þykir ekki lengur jafn öruggur um að hljóta útnefningu Demókratafiokksins sem forsetaframbjóðandi og áður var talið. Forkosningar í Bandaríkjunum eru með tvennum hætti, ýmist leynilegar eða í heyranda hljóði. Var síðari hátturinn hafður á í Maine og fékk Hart atkvæði 8.540 manna, rúm 50%, en Mondale 7.364, um 44%. Kosið var í 414 borgum og bæjum og kosninga- þátttaka lítil en í Maine býr nokk- uð á aðra milljón manna. Gary Hart hefur nú unnið í tveimur ríkjum, New Hampshire og Maine, og virðist sigurstrang- legur í Vermont þar sem kosið verður annan þriðjudag og í Wy- oming en þar verður kosið annan laugardag. Auk þess bendir ný skoðanakönnun í Massachusetts til, að hann fari þar einnig með sigur af hólmi. Walter Mondale bar sig vel þrátt fyrir ósigurinn og sagði úr- slitin raunar uppörvandi. Sagði hann, að ef kosið hefði verið nokkrum dögum fyrr hefði hann tapað fyrir Hart með miklum mun en nú væri byrinn að breytast. Kvaðst hann hafa gert þá skyssu að taka Hart ekki nógu föstum tökum strax en nú yrði honum ekki hlíft. Mondale bindur vonir sínar við Suðurríkin fyrst og fremst. Norrænt sjónvarpssamstarf: Tele-X kemur ÞEIM RANNSÓKNUM, sem nú eru í gangi varöandi samstarf Norðurlanda á sviði sjónvarpsmála, lýkur ekki fyrr en seint á þessu ári. Keppt er að því að koma þessu samstarfi í fastan farveg og framtíð og fyrir- komulag þessa samstarfs verður vafalítið eitt megin verkefnið á næsta þingi Norðurlandaráðs, sem haldið verður í Reykjavík 1985. Ekki eru nema þrjú ár þangað til nyrsta sjón- varpshnetti Norðurlanda verður skotið á loft og hefur hann fengið nafnið „Tele-x“. Nú þegar fara fram miklar umræður um, hvers konar efni sjón- varpað skal um þennan hnött. Enn er þó ekki ákveðið hvort sjónvarpsrásirnar verði tvær eða þrjár og hvernig þær eiga að skiptast milli Norður- landa. Á fundi Norðurlandaráðs í Osló í fyrra leit út fyrir að það yrðu Svíar einir, er standa myndu að „Tele-x“. Nú er það hins vegar ljóst, að bæði Norð- menn og Finnar munu eiga hlutdeild í þessum sjónvarpshnetti, sem kosta mun marga milljarða króna að koma upp. Svíar munu standa undir í stað Nordsat mesta hluta þessa kostnaðar eða 82%, Norðmenn 15% og Finnar 3%. Ætlunin er að skjóta sjón- varpshnettinum á loft um áramótin 1986—1987. Hér verður að nokkru leyti um tilraunahnött að ræða. Upphaflega var allt önnur áætlun uppi varð- andi sameiginlegan sjónvarpshnött Norðurlanda, sem var langtímaáætlun og fengið hafði nafnið „Nordsat". Ekkert varð hins vegar úr framkvæmd þessarar áætlunar og varð hugmyndin um „Tele-x“ þá til. Verði rásirnar um þennan hnött þrjár, eiga Svíar að ráða yfir einni rás, Finnar yfir einni og Norðmenn og íslendingar saman yfir einni. Svo kann þó að fara, að rásirnar verði aðeins tvær og yrði skipting þeirra þá með talsvert öðrum hætti. Norðmenn hafa þar að auki fengið tilboð um aðild að evrópska sjónvarpskerfinu ECS. Hefur norska Stórþingið ákveðið að hagnýta sér þennan hnött fyrir sjónvarpsútsendingar til Svalbarða og til olíuborpallanna í Norðursjó. Jafnframt er sú skoðun orðin útbreidd, að Norðurlönd í heild ættu að hagnýta sér þetta kerfi í sameiningu. Bretland: V er kamannaflokkur mests fylgis nýtur London, 5. m»rs AP. í FYRSTA sinn frá því fyrir Falk- landseyjastríð er Verkamanna- flokkurinn breski með meira fylgi en íhaldsflokkurinn að því er fram kemur í skoðanakönnun, sem birt var í The Sunday Times. í skoðanakönnuninni, sem gerð var eftir að Verkamannaflokkur- inn vann sigur í aukakosningum í Cheltenham, reyndist 41% styðja þann flokk en 38% íhaldsflokkinn. Kosningabandalagið fékk atkvæði 18% og aðrir 3%. í síðustu kosn- ingum fékk íhaldsflokkurinn 43,5% atkvæða en Verkamanna- flokkurinn ekki nema 28,5%. Þá var bandalagið með 26%. Nokkurrar gagnrýni er nú farið að gæta á Margaret Thatcher meðal íhaldsmanna, og þykir mörgum sem stefna stjórnarinnar sé ekki nógu markviss og skýr. Hún er einnig sökuð um ofríki, en þrátt fyrir það telur meirihluti flokksmanna hennar, að flokks- forystan sé best komin í hennar höndum. Stultl'réttir... Hundamál á Grænlandi Kaupmannahorn, 5. mars. Frá Nils Jörgen Bruun, Grænland.srréttariUra Mbl. HUNDAMÁLIN eru ofarlega á baugi hjá Grænlendingum. Bæjar- stjórnin í Nuuk, höfuðstaðnum, hef- ur nú gert 150 fjölskyldum tvo kosti, annaðhvort losi þær sig við hundinn eða flytjist úr leiguhúsnæði bæjarins fyrir 23. maí nk. Á Grænlandi eru reglur um, að aðeins fólk í einbýlishúsum megi halda hund og aðeins hund en ekki tík. Þar að auki verður tíkin að vera komin frá Danmörku og hafa hlotið blessun Grænlandsmála- ráðuneytisins. Bæjarstjórnin hef- ur margoft sent hundafangara til höfuðs hundunum en eigendur hundanna hafa mætt þeim með hótunum um limlestingar og bráð- an dauða. ísbirnir staðnir að „fjöldamorðum" Mo.skvu, 5. mars. AP. UM EITT hundrað ísbirnir réðust nýlega á rostungafiokk á Síberíu- strönd og gengu þeir svo hart fram í slátruninni, aö sovéskir þyrluflug- menn urðu að skerast í leikinn og stöðva „fjöldamorðin". Sagði frá þessu í Tass-fréttum sl. laugardag. Atburðurinn átti sér stað á Nov- aya Zemlya en þar kom ísbjarna- hópurinn að rostungum, sem höfðu safnast saman í einu vök- inni á stóru svæði. Birnirnir sett- ust að veislukostinum og voru víst langt komnir með hjörðina þegar þyrluflugmennirnir stökktu þeim á flótta. ísbirnir eru friðaðir í Sovétríkjunum og taldir vera um 10—13.000 talsins. Þeim hefur hins vegar fjölgað mjög að undan- förnu og því talið nauðsynlegt að fækka þeim eitthvað. Vaxandi verðbólga Luxemborff, 5. mars. AP. VERÐLAG hækkaði í öllum Efna hagsbandalagsríkjunum nema Bret- landi í janúarmánuði en meðaltals- verðbólgan minnkaði hins vegar um 0,1%, úr 8,1% í 8%. Að meðaltali hækkaði verðlag í EBE-löndunum um 0,7% í janúar en mest var hækkunin í Grikk- landi, 1,2%, á Ítalíu 1,2% og í Belgíu, 0,9%. í Bretlandi lækkaði verðlag lítillega í janúar og er það rakið til útsalanna eftir áramót. Verðbólgan í aðildarlöndunum er mjög mismikil en langmest í Grikklandi, 20,5%, og á Ítalíu, 12,3%. Búist er við, að Spánverjar og Portúgalir fái aðild að EBE ár- ið 1986 en hjá þeim fyrrnefndu er verðbólgan 30,6% og 12,2% hjá þeim síðarnefndu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.