Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984
19
Frú Indira Gandhi, forsætisrádherra Indlands, sést hér ræda við Dmitri
Ustinov, varnarmálaráðherra Sovétríkjanna, við komu hans til Indlands
í gær.
Ustinov í Indlandi
Nýju Delhi, 5. marz. AP.
DIMITRI Ustinov, varnarmálaráðherra Sovétríkjanna, ræddi í dag við
Indiru Gandhi, forsætisráðherra Indlands, í Nýju Delhi. Eftir fundinn
sagði Ustinov, að Sovétríkin vildu halda áfram góðum samskiptum við
Indverja. Jafnframt væri það „gagnlegt og nauðsynlegt“, að Sovétríkin,
scm sæju Indverjum fyrir mestum hluta af vopnabúnaði þeirra, tækju
upp meira hernaðarsamstarf við Indverja.
Auk Ustinovs eru níu manns í
sovézku sendinefndinni og eru á
meðal þeirra háttsettir menn á
sviði hernaðar- og utanríkis-
mála. Síðdegis i dag ræddi Usti-
nov við Ramaswamy Venkatar-
aman, varnarmálaráðherra Ind-
lands, og er talið, að beiðni ind-
versku stjórnarinnar um enn
meiri hernaðaraðstoð frá Sovét-
ríkjunum hafi verið þar til með-
ferðar.
Um 75 manns frá Afganistan,
þeirra á meðal ung börn, gripu
til hávaðasamra mótmælaað-
gerða fyrir utan sovézka sendi-
ráðið í Nýju Delhi vegna heim-
sóknar Ustinovs. Héldu mót-
mælamennirnir á skiltum þar
sem á stóð m.a.: „Rússar, farið
frá Afganistan."
Barizt í Afganistan:
Rússneskir skrið-
drekar eyðilagðir
Njju Delhí, 5. marz. AP.
AFGANSKIR skæruliðar, sem sátu
fyrir sovézkum herflokki í síðustu
viku í grennd við Kandahar, næst-
stærstu borg Afganistan, eyðilögðu
fimm skriðdreka í árás. Skýrði afg-
anskur útlagi frá þessu í Nýju Delhí
í dag. Ekki var greint frá mannfalli á
meðal Sovétmanna, en skæruliðum
tókst að ná frá þeim talsverðu af
hcrgögnum og skotfærum.
Bardagar hafa haldið áfram í
Kandahar síðustu daga, en borgin
er um 450 km suðvestur af Kabúl,
höfuðborg Afganistan. Hafa
margir stuðningsmenn stjórnar-
innar verið felldir í skyndiárásum
skæruliða, sem haft hefur í för
með sér, að fjöldi félaga í komm-
únistaflokki landsins hefðu flúið
inn í búðir sovézka setuliðsins í
borginni. Hluti borgarinnar er
enn í höndum skæruliða og aðal-
þjóðvegurinn, sem tengir borgina
við vesturhluta landsins, er lokað-
ur eftir mikla bardaga á þessu
svæði.
Orrustan um
Bretland
Ixmdon, 5. mars AP.
„ORRUSTAN um Bretland“ á þotu
öld var sett á svið í dag þegar hundr-
uð orrustuþotna frá herjum Atlants-
hafsbandalagsríkjanna gerðu sýnd-
arárásir á loftvarnastöðvar breska
hcrsins. Eiga æfingarnar að standa í
þrjá daga.
Níu aðildarþjóðir NATO taka
þátt í æfingunum og breski flug-
herinn mun beita í þeim rúmlega
200 flugvélum, fleiri en nokkru
sinni frá stríðslokum. „Skotmörk"
árásarflugvélanna verða allt frá
Hjaltlandi í norðri til Englands í
suðri og eru „óvinirnir" þýskar,
kanadískar, franskar, belgískar,
hollenskar og norskar orrustu-
flugvélar. Til varnar Bretlandi
verða auk bresku vélanna banda-
rískar og danskar orrustuvélar.
Þessar heræfingar áttu að fara
fram fyrir tveimur árum en var þá
frestað vegna Falklandseyja-
stríðsins.
50 farast
í árekstri
Dacca, Bangladesh, 5. mars. AP.
TALIÐ er, að a.m.k. 50 manns hafi
drukknað þegar árekstur varð á
milli flutningapramma og farþega-
skips á fljóti um 200 km fyrir austan
Dacca.
300 manns voru um borð í far-
þegaskipinu þegar áreksturinn
varð og eru 50 taldir látnir og
álíka margra er saknað. Flestir
farþeganna komust af eigin
rammleik til lands en óttast er, að
margar konur og börn séu innilok-
uð í skipinu. Embættismenn segja,
að flutningapramminn hafi verið
ljóslaus með öllu þegar slysið átti
sér stað.
Frakkland:
Hálf milljón mótmælti
atlögu að einkaskólum
Versölum, 5. mars. AP.
RÚMLEGA HÁLF milljón manna gekk í gær um götur í Versölum til að
mótmæla fyrirhuguðum breytingum stjórnar Mitterrands, forseta, á einka-
skólum í landinu. Þetta eru fjölmennustu mótmæli í Frakklandi í 16 ár.
Mótmælin fóru mjög friðsam-
lega fram en aðalkrafa göngu-
manna var, að menntamálaráð-
herrann, Alain Savary, segði af
sér. Sams konar mótmæli hafa
farið fram fimm helgar í röð í
ýmsum borgum. í síðustu kosning-
um var það eitt af stefnumálum
Sósíalistaflokksins að auka af-
skipti ríkisins af einkaskólum í
landinu, sem eru 10.000 talsins,
flestir í höndum kaþólsku kirkj-
unnar, og eru sóttir af 17%
franskra skólanema. Ef stjórnin
fengi sínu framgengt yrðu kennar-
ar við þessa skóla opinberir
ARIANE-eldflaug frá Evrópsku
geimferðastofnuninni var í dag skot-
ið á loft frá Kourou í Frönsku Guy-
ana og gekk allt eftir áætlun. Með
eldflauginni var fjarskiptahnöttur,
sem kominn var á sinn stað 15 mín-
útum eftir flugtak.
„Geimskotið tókst eins og til var
ætlast," sagði í tilkynningu ESA,
Evrópsku geimferðastofnunarinn-
ar, en þetta var áttunda og síðasta
geimskotið áður en tekin verður
starfsmenn, rekstur þeirra yrði
háður eftirliti sveitarstjórna á
hverjum stað og kennslan og
starfshættirnir að öðru leyti háðir
samþykki opinberra nefnda.
í gær, sunnudag, benti ýmislegt
til, að stjórnin vildi komast að
samkomulagi um þetta mál, og
sagði Pierre Mauroy, forsætisráð-
herra, að hann væri maður „sátta
og samninga". Andstaðan við
breytingar á einkaskólunum hefur
stöðugt vaxið síðan Mitterrand,
sem sjálfur gekk í kaþólskan
einkaskóla, boðaði „einn sam-
upp bein samkeppni við Banda-
ríkjamenn í því að koma á braut
gervihnöttum. ESA áætlar, að á
næsta áratug muni verða skotið á
loft 200 gervihnöttum á Vestur-
löndum og gerir sér vonir um, að
i þriðjungurinn falli henni I skaut.
Frakkar bera hitann og þungann
af framkvæmdum ESA og greiða
60% kostnaðarins. Vestur-Þjóð-
verjar bera 20% en önnur ríki 5%
eða minna.
ræmdan skóla“ í kosningabarátt-
unni árið 1981. Síðustu skoðana-
kannanir benda nú til, að meiri-
hluti landsmanna sé andvígur öll-
um breytingum á stöðu skólanna.
Reknir
frá Tékkó-
slóvakíu
— eftir aö hafa rætt við
meðlimi „Charter 77“
Haag, 5. marz. AP.
LEIÐTOGI þekktustu friðarhreyf-
ingar Hollands var rekinn frá
Tékkóslóvakíu á sunnudag eftir
fund hans og meðlima mannrétt-
indahreyfíngarinnar „Charter 77“.
Jan Faber, aðalritari IKU, sem
er friðarhreyfing innan hol-
lenzku kirkjunnar, hefur skýrt
svo frá, að honum hafi verið vís-
að úr landi í Tékkóslóvakíu
ásamt öðrum manni, sem er
franskur og meðlimur í frönsku
friðarhreyfingunni CODENE.
Segir Faber, að sér hafi verið
fylgt eftir af tékknesku leynilög-
reglunni, allt frá því hann kom
til Prag á föstudag.
„Okkur var tjáð, að við hefðum
framið lögbrot með því að ræða
við meðlimi í Charter 77,“ sagði
Faber í dag. „Jafnframt var
okkur sagt, að þessir menn væru
hættulegir landi okkar," sagði
hann ennfremur.
Ariane eld-
flaug á loft
Kourou, Fronsku Guyana, 5. mars. AP.