Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984 29 ir í kindalifur. Varðveitt í formalíni á Keldum. valdið alvarlegum sjúkdómi og jafn- vel dregið hýsilinn til dauða. Sulla- veikisullir geta orðið tugir senti- metra í þvermál. Þegar hundur étur sullinn geta allir bandormshausarn- ir orðið að nýjum bandormum. Fjöldi hunda er talinn skipta miklu fyrir viðgang sullaveiki. Árið 1869 var gefin út tilskipun um hundahald á íslandi. Er það fyrsta opinbera ráðstöfunin til að hefta út- breiðslu sullaveiki. Árið 1890 voru sett lög um hundaskatt o.fl. fyrir forgöngu þriggja lækna sem þá áttu sæti á Álþingi. Var þar hert á skattlagningu vegna hunda og heimilað að fyrirskipa lækningar á hundum af bandormum. Baráttan gegn sullaveiki bar skjótari árangur en menn höfðu í upphafi þorað að vona. Ýmsar ástæður voru færðar fram til skýr- ingar á því, almenn alþýðufræðsla um eðli sjúkdómsins, betri afkoma, bætt húsakynni og meiri þrifnaður. En ekki var talið áhrifaminnst i baráttunni að til landsins barst hundafár sem varð til þess að hund- um fækkaði mjög og svo hitt að um svipað leyti voru seldir sullaveikir sauðir í stórum stíl. Eins og í öðrum sauðfjárræktar- löndum er talsverð hætta á að sulla- veikin væri fljót að ná hér fótfestu á ný ef slakað yrði á varnaraðgerðum. Almennt mun fólk nú telja að sulla- veikin sé að mestu úr sögunni hér á landi. Sjúkdómstilfellið á Akureyri sýnir svo að ekki verður um villst að fullrar varúðar er þörf. Menn ættu að fara að gildandi lögum um að sýna árvekni í að eyða sullum og girða með öllum ráðum fyrir að hundar komist í sulli eða hráæti á blóðvelli eða í sláturhúsum. Einnig að hundar séu hreinsaðir reglulega eins og heilbrigðisyfirvöld hafa ítrekað minnt á. ) vinna að rsviðiw fram úr ýmisskonar skipulagsmál- um, en auk þess er gert ráð fyir því í fjárhagsáætlun, að um töluverða aðkeypta vinnu verði að ræða í ár, vegna skipulags gömlu hverf- anna,“ sagði Vilhjálmur. Guðrún Jónsdóttir var spurð að því, hvers vegna hún hefði ekki sótt um stöðu forstöðumanns Borgarskipulags. Hún svaraði: „Mér þótti gaman af að vinna að uppbyggingu Borgarskipulags, en mikið af mínum vinnutíma þar fór í stjórnsýslu og afgreiðslu. Þegar til greina kom að ég fengi tækifæri til að taka að mér endurskipulagn- ingu eldri hverfa Reykjavíkur og deiliskipulagningu, þótti mér það fýsilegra, þar sem það gefur mér miklu fleiri tækifæri til áð vinna að áhugamálum mínum á minu sérsviði." Varðandi spurningu um það, hvernig samstarfið við yfirstjórn borgarinnar hefði gengið, sagði Guðrún, að starf forstöðumanns Borgarskipulags væri sérfræð- ingsstarf. Skylda sérfræðings, hér sem annars staðar, væri að segja um kosti og galla á málum þeim sem til úrlausnar væru, út frá þekkingu sinni. „Á þessum grund- velli hef ég starfað," sagði Guðrún. „Það þarf ekki að vera að sjónar- mið sérfræðings og hinna kjörnu fulltrúa, hvar sem er í þjóðfélag- inu, fari alltaf saman, en ég verð að líta á það sem fullkomna traustsyfirlýsingu, að mér er falið þetta verk, því hér er bæði um mikið og vandasamt verkefni að ræða,“ sagði Guðrún Jónsdóttir. - ój. VERCBÓLGA ÁRIÐ 1983 án aÓgerða Þriggja mána&a hækkun framfærsluvísi- tölu reiknuð til árshækkunar (Útreikn. Þjóðhagsstof.) VERÐBOLGA 1983 OG í JANÚAR 1984 EFTIR EFNAHAGSAÐGERÐIR Hækkun framfærslu- vísitölu þriggja mán. hækkun umreiknuð til árshækkunar v> RH ® Æ 8 297% Hækkun framf. vísitölu í jan. reiknuð til árshækkunar 9% V erðbólguhrapið síðan í maí 1983 CTRAX eftir aö rfkisstjórnin tók við völdum í maí 1983 setti hún bráöa- birgöalög sem miöuöu að því að stemma stigu við verðbóigunni. Kjarni þeirrar lagasetningar var að afnema vísitölubætur á laun. Árang- urinn lét ekki á sér standa eins og sést af súiuritinu hér aö ofan, verö- bólgan hefur hrapaö. Myndin skýrir sig best sjálf. Súlurnar þjár til vinstri á mynd- inni sýna verðbólguna eins og spáð var að hún yrði á árinu 1983 ef ekki hefði verið gripið til aðgerð- anna eftir stjórnarskiptin. Lægri súlurnar til vinstri sýna þróunina eins og hún hefur verið. Með hliðsjón af nýgerðum kjarasamn- ingum hefur af opinberri hálfu verið sagt að verðbólgan verði nokkru hærri en 9% sem mæl- ingar í janúar gáfu til kynna. Samkomulag í deilu bóka- verslana og forlaganna SAMKOMULAG hefur náöst í deilu bóksala og þeirra fjögurra bókaforlaga sem aöild eiga aö bókaklúbbnum Veröld. Felur sam-- komulagið m.a. í sér aö forlögin taka til baka viðskiptabann viö búóirnar og bóksalar taka bækur forlaganna, þær sem eru á tilboös- verði hjá bókalúbbnum, til sölu frá og með 1. apríl. Þessar upplýs- ingar fékk Mbl. hjá Oliver Steini Jóhannssyni, formanni Félags ís- lenskra bókaútgefenda. Sagði Oliver Steinn að stjórn félagsins hefði lagt fyrir aðila umrædda sáttatillögu, sem aðii- ar samþykktu. Þá er það einnig hluti samkomulagsins að nefnd- ir bóksala og útgefenda vinna að gerð samnings um bóksölumál almennt. Þá er það ennfremur hluti samkomulags aðila, að ef komi til ágreiningur um túlkun samningsins um samskiptaregl- ur við bókaklúbba, þá skuli visa ágreiningi til lögmanna Félags ísl. bókaútgefenda og Félags ísl. bókaverslana til úrskurðar og aðilar skuldbindi sig til þess að hlíta þeim úrskurði. Þá var það og hluti samkomulagsins að bókaklúbburinn Veröld sendi kynningarirt sín öllum meðlim- um Félags ísl. bókaverslana hverju sinni. Stýrimanns- efni um borð í Tý UM þessar mundir eru nemendur fyrsta stigs í Stýrimannaskóla ís- lands í starfskynningu um borð í varðskipinu Tý. Nemendur. fyrsta stigsins eru alls 33 og eru um borö í tveimur hópum. Eru nemendurnir um borð í um það bil einn sólarhring, 16 voru um borð frá laugardegi til sunnudags og komu þá til hafn- ar í Hafnarfirði. 17 fóru svo um borð í gær og koma aftur til hafnar í dag, annaðhvort í Hafnarfirði eða Keflavík. Bræla hamlar loðnuveiðum BRÆLA hefur hamlað loönuveiö- um frá því á fóstudag og hafa skip- in verið aö tilkynna um smáslatta um helgina. Tvö skip, Beitir NK og Svanur RE, fengu þó fullfermi við Skarösfjöru á sunnudags- kvöldiö. Fleiri skip hafa veriö þar, en ekki náö afla. Á laugardag tilkynntu þrjú skip Loðnunefnd um afla, sam- tals 1.470 lestir: Albert GK 500, Guilberg VE 590 og Fífill GK 380 lestir. Á sunnudag tilkynntu eftirtalin skip um afla, samtals 3.710 lestir: Guðmundur Ólafur ÓF 250, Jöfur KE 200, Sjávar- borg GK 250, Helga II RE 230, Rauðsey AK 400, Svanur RE 670, Ljósfari RE 280, Beitir NK 1.230 og Hilmir II SU 200 lestir. Nú eru þrjú skip búin með viðbótaraflamark sitt, Hilmir SU, Hákon ÞH og Jón Kjart- ansson SU og 4 til 5 skip eru að ná því marki. Þegar viðbótarafl- inn, 265.000 lestir, var ákveðinn, var aðeins skipt 205.000 lestum milli skipanna, en 60.000 lestir ákveðnar til veiða utan afla- marks. Því mega þau skip, sem fyllt hafa mark srtt, halda áfram veiðum unz sá skammtur verður upp urinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.