Morgunblaðið - 06.03.1984, Page 41

Morgunblaðið - 06.03.1984, Page 41
 Enska knattspyrnan I íttrðwir l ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984 Charlie Nicholas til Liverpool? Sjá nánar/27 Frakkinn Thierry Vigeron setti glæsilegt heimsmet í stangarstökki innanhúss um helgina á Evrópu- meistaramótinu innanhúss sem fram fór í Stokkhólmi. Thierry stökk 5,85 metra og reyndi síðan við 6 m. Hér má sjá Frakkann fagna meti sínu við Ijósatöfluna sem sýnir methæðina. Sjá frétt af mótinu á blaðsíóu 25. Símamynd frá Stokkhólmi. AP. Larus Guómundsson: „Aldrei tapað leik viljandi“ „ÉG Á AÐ mæta til yfirheyrslu í j dag eins og reyndar allir leik- menn Waterschei. En ég hef ekki neina trú á því aö ég lendi í leiö- indum út af þessu máli. Það veröa fundnir einhverjir tveir, þrír aöalsökudólgar og þeir fá dóm en hinir sleppa frá þessu. Þaö er mitt mat. Yfirheyrslan verður fyrst og fremst um þá peninga sem viö fengum frá Standard. Þeir hafa ekki komið fram og því tengjast þeir skattsvikum," sagöi Lárus Guðmundsson í spjalli viö Mbl. í gær. En í dag veröur yfir- heyrslum í mútumálinu haldiö áfram í Belgíu. Mál þetta er orðið mjög um- fangsmikið og dragast margir inn í þaö. Lárus sagöi aö meö öllu væri útilokaö aö 30 leikmenn myndu fá stranga dóma. „Þaö er alveg Ijóst aö ieikmenn Standard liggja illa í því. Þeir hafa viöurkennt skattsvik og þurfa núna aö greiöa til baka. Hafi þeir fengið 1 milljón franka undir borðið þá verða þeir aö greiöa 1,6 milljónir til baka. Og ef þaö nær langt aftur i tímann þá veröur það mikil upphæð,“ sagöi Lárus. „Þaö er mikið um greiðslur und- ir boröið og margir hér höndla með svarta peninga. Þá eru margir hér sem svíkja undan skatti eins og hægt er. Þaö er ekkert laun- ungarmál. Viö leikmenn Watersch- ei erum haröir á því aö viö seldum ekki leikinn gegn Standard. Viö geröum eins og viö gátum. En eftir leikinn og tapiö þá tóku allir viö peningum sem boönir voru. Nú hefur þaö komiö í Ijós aö það voru sjálfir leikmenn Standard, Taham- ata og félagar, sem lögðu fram peningana. Fyrirliöinn Gerets kom þeim svo til okkar. Ég hef aldrei tapaö leik viljandi og mun aldrei gera þaö. En ég gat ekki neitað peningunum þegar allir aörir í liöinu tóku viö þeim," sagöi Lárus. — ÞR Oddur á 47,62 ODDUR Sigurðsson spretthlaup- ari úr KR tók þátt í sinni fyrstu utanhússkeppni á þessu ári á móti í Laredo í Texas um helgina og hljóp 400 metra á 47,62 sek- úndum. Oddur varö í fimmta sæti í hlaupinu, sem vannst á um sek- úndu betri tíma. En þetta var fyrsta keppni, og spurning hvort íslandsmetiö stenst átökin þegar líöur á keppnistímabilið. Oddur á metiö, 46,49, frá í maí í fyrra. — Þaö vantar í mann snerp- una, hef veriö í erfiöum æfingum og hvíldi ekkert fyrir þetta mót. Er þreyttur vegna álagsins á æfingum upp á síökastiö og þaö er líka mik- iö aö gera í skólanum, sagöi Oddur í samtali viö Mbl. Oddur kvaö æfingar hafa geng- iö vel hjá frjálsíþróttamönnunum íslenzku í Austin í Texas, og aö þeir stefndu til stórafreka í sumar. Nýveriö hlotnaöist Oddi og Einari Vilhjálmssyni UMSB sá heiður aö vera kjörnir fyrirliöar skólaliösins af félögum sínum, en Óskari Jak- obssyni |R hlotnaöist sá heiöur í fyrra. — ágás. 13 raðir með 11 rétta í 26. leikviku Getrauna komu fram 13 raðir með 11 réttum og var vinningur fyrir hverja röð kr. 32.475,- en meö 10 rétta var 151 röö og vinn- ingur fyrir hverja röð kr. 1.198. 27 ÁRA ÍSLANDSMET í LANGSTÚKKI FALLIÐ: Morgunblaöiö/ Skapti Hallgrímsson. Kristján stökk 7,80 m • Kristján Haröarson úr Ármanni bætti 27 ára gamalt íslandsmet Vilhjálms Einarssonar um helgina er hann stökk 7,80 metra á móti á Long Beach í Kaliforníu. Þessi mynd var tekin af honum í Kalott-keppninni í Noregi í sumar þar sem hann sigraði. Sjá nánar/24. Klempel kærður Fré Jóhanni Inga Gunnaraayni, V-Þýakalandi. ÞAÐ ERU víðar kærumál á ferðinni í íþróttum en í Belgíu. Hér í V-Þýskalandi hefur stjórnvöldum borist kæra á hend- ur hinum fræga handknattleiksmanni Jerzy Klempel sem er íslendingum góðkunnur. Klempel er sakaður um að vera atvinnumaður í íþrótt sinni og um leiö tit hann kæröur fyrir að hafa þegið umtalsveröar upphæöir undir borðið sem hvergi hafa komið fram í bókhaldi. Félag hans, Göppingen, gæti hæglega lent illa í því vegna þess að vitað er að Klempel hefur fengið alls kyns fríðindi hjá félaginu fram yffir aðra leikmenn. Þaö er fyrrum kunningi Klempel, þekktur hand- knattleiksljósmyndari, Klaus Weigartner, sem kærir hann. Þaö slettist skyndilega uppá vinskap- inn hjá þeim félögum meö þessum afleiöingum. Máliö er nú í rannsókn og verður fariö ofan í bókhaldið hjá Göppingen og Klempel hefur verið yfirheyröur. Hann lék ekki meö Göppingen um helgina út af máli þessu. Margt bendir til þess að Klempel fari til Spánar eftir aö keppnistímabilinu lýkur hér í V-Þýskalandi og leiki þar meö A-Ma- drid. Klempel hefur leikiö vel í vetur og er meöal markahæstu leikmanna í 1. deild. Magnús Bergs skoraði eitt mark MAGNÚS Bergs skoraöí eitt mark meó skalia fyrir Santander Racing í spænsku 2. deildinni um helgína — hann jafnaöi 3:3 á síðustu mínútu leiksins gegn Rayo Vallecano á útivelli. Magnús kom inná sem varamaöur í hálfleik. Rayo, sem er í neösta sæti deildarinnar, var komið í 3:1, en leikmenn Santander böröust af miklum krafti og neituðu aö gefast upp. Náöu aó jafna fyrir leíkslok sem fyrr segir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.