Morgunblaðið - 06.03.1984, Síða 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984
Alþjóðaskákmótið Bláa lónið — Festi:
Jón L. og Helgi á toppnum
Skák
Margeir Pétursson
ÞKIR Helgi Olafsson og Jón L.
Arnason létu síður en svo bugast
af mótlætinu í fyrstu umferð, en þá
tapaði Helgi jafnteflislegu hróks-
endatafli og Jón fórnaði manni í
vitleysu í betri stöðu. Þeir koma
vafalaust til með að veita útlend-
ingunum harða keppni í topp-
baráttunni, en eftir fimm umferðir
var Jón efstur ásamt Banda-
ríkjamönnunum Christiansen og
McCambridge og Helgi í 4.-6.
sæti ásamt Knezevic og Gutman.
Hinir íslendingarnir hafa aft-
ur á móti valdið vonbrigðum
nema Elvar Guðmundsson.
Hann hefur byrjað vel, teflt við
sterka menn, en tapaði í fimmtu
umferð fyrir McCambridge. Elv-
ar stefnir að því að ná sex vinn-
ingum á mótinu og sínum fyrsta
áfanga að alþjóðlegum meistara-
titli. Það gæti hæglega tekist því
Elvar á eftir að tefla við þá
Hauk, Ingvar og Björgvin, sem
virðast ekki vera í sérlega góðu
formi af upphafinu að dæma.
Langmestum vonbrigðum hef-
ur Jóhann Hjartarson þó valdið
eftir frábæra frammistöðu sína
að undanförnu.
Taflmennska hans í fyrstu
umferðum mótsins var ekki svip-
ur hjá sjón miðað við það þegar
honum tókst sem bezt upp á
tveimur síðustu mótum. í báðum
fyrstu skákunum missti hann lið
á mjög klaufalegan hátt fljót-
lega eftir byrjunina. Gegn Ingv-
ari Ásmundssyni fór skiptamun-
ur fyrir borð, og gegn Jóni L.
Árnasyni gerðist einn riddari
Jóhanns fulldjarfur. Hann hætti
sér alla leið inn í herbúðir and-
stæðingsins og átti ekki aftur-
kvæmt.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Jón L. Árnason
Enski leikurinn
1. c4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Rc3 —
g6, 4. g3 — Bg7, 5. Bg2 — e6, 0-0
— Rge7, 7. d3 - 0-0-
Jón fetar í fórspor Bobby
Fishers sem tefldi þetta afbrigði
með góðum árangri fyrir hálfum
öðrum áratug. Framhaldið í
skák þeirra Sævars og Jóns á
Búnaðarbankamótinu varð nú: 8.
Hbl - b6, 9. Bf4 - d5, 10. Dcl
- Bb7,11. Bh6 - d4,12. Bxg7 -
Kxg7, 13. Ra4 - Hb8, 14. a3 -
a5! með betri stöðu á svart.
8. a3 — b6, 9. Bf4 — d5, 10. hcl —
Bb7, 11. Da4?
Hér eða í leiknum á undan átti
hvítur að leika 11. cxd5. d4, 12.
Rb5? - Dd7, 13. Rd6
• b
13. - g5!
Jóhanni virðist hafa yfirsézt
þessi öflugi leikur sem slítur
tengslin milli hvítu mannanna.
14. Rxg5 — e5, 15. Rxb7 — exf4,
16. b4 - Hab8, 17. bxc5
Eða 17. b5 - re5, 18. gxf4 (18.
Dxa7 - f3!) - Rg6, 19. Dxa7 -
Rxf4, 20. Bf3 — h6 og vinnur.
17. — Hxb7, 18. cxb6 — Hxb6, 19.
gxf4 — Hb2, 20. Hbl — Hfb8 og
hvítur gafst upp í þessari von-
lausu stöðu. Peðin þrjú sem
hann hefur fyrir manninn eru
gagnslaus.
Framan af skák þeirra Ingv-
ars og Jóns L. virtist sem upp-
skiptataktík Ingvars myndi
ganga eins vel og gegn Jóhanni í
fyrstu umferð. En þá var Ingvar
gripinn hrikalegri skákblindu,
lék tveimur herfilegum afleikj-
um í röð og varð að gefast upp
eftir þann seinni þegar gífurlegt
liðstap blasti við. Jón vann
þarna sinn þriðja sigur í röð og
komst í efsta sætið:
Hvítt: Ingvar Ásmundsson
Svart: Jón L. Árnason
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. b3
Þannig hefur Spassky oft teflt.
Aðalkostur leiksins er að hann
er lítt rannsakaður.
3. — b6!?, 4. Bb2 — Bb7, 5. Rc3 —
Rc6, 6. d4 — cxd4, 7. Rxd4 —
Db8, 8. Rxc6 — Bxc6, 9. Bb5
Rétt eins og í skákinni við Jó-
1 2 3 4 — 5 6 7 8 9 — 10 11
‘1. Haukur Angantýsson, AM 2395 '4 O 0
2. Ingvar Ásmundsson 2405 ;4 *' O 0 1
3. Jón L. Árnason, AM 2500 í 0 /
4. Björgvin Jónsson 2200 0 0 OO
5. Helgi Ólafsson, AM 2445 i 0 /z i &
6. Milorad Knezevic, JUG, SM 2450 '4 /2 'A i
7. Elvar Guðmundsson 2330 '4 % O
8. L. Gutman, ISR, AM 2480 i /z 0
9. William Lombardy, USA, SM 2505 4 '4 'k Vz 0
10. Vincent McCambridge, USA, AM 2465 1 / O'A 4
11. Jóhann Hjartarson, AM 2415 Q 9 / !í\o
12. Larry Christiansen, USA, SM 2550 L 1 % /z '/z
S.B. Röð
12 Vinn
o
hann sækist Ingvar eftir upp-
skiptum. Hér er þetta í anda
stöðunnar því biskup svarts á :6
stóð ágætlega.
9. — Bxb5, 10. Rxb5 — a6, 11. Rc3
— Rf6, 12. De2 — Bd6, 13. 0-0-0
— Be5, 14. g3 — g5?
Eftir þetta er svarti kóngur-
inn hvergi óhultur. Betra var þv'
14. — Db7, 15. Hhel — Hc8 með
u.þ.b. jafnri stöðu.
15. Kbl — Hg8, 16. f4!
Hvítur opnar leiðir að svarta
kóngnum með peðsfórn.
16. — gxf4, 17. gxf4 — Bxc3, 18.
Bxc3 — Dxf4, 19. Dd3! — Rxe4,
20. Dxd7+ — Kf8
Framhaldið 21. Bb4+ — Kg7,
22. Hhfl með vinningsstöðu
blasir nú við augum en Ingvar
reynir að stytta sér leið með af-
drifaríkum afleiðingum:
21. Hhfl?? - Rxc3+, 22. Kal —
Hgl!
Þetta yfirsást Ingvari. Nú
verður hvítur peði undir eftir 23.
Hxgl — Rxdl, 24. Hxdl, en hann
á þó góða möguleika á a.m.k.
jafntefli því 24. — Dxh2? gengur
ekki vegna 25. Dd4! f stað þess
kemur annar enn verri afleikur:
23. Db7?? — Hb8 og hvítur gafst
upp.
Mótið tafðist um l’/2 klukkustund vegna þess að Svíarnir voru ekki mættir.
Hér heilsa Sigmundur Stefánsson og Björn Theodórsson þeim í móttöku
Hótels Loftleiða. Talið frá vinstri: Pettersson, Göthe (á bak við Björn)
Svenzon, Sígmundur og Gullberg.
Gífurlegur fjöldi fólks fylgdist með tvímenningskeppninni. Var oft erfitt að
komast að „pyttinum“ til að sjá hvað um væri að vera. Hér eigast við
Gullberg og Göthe annars vegar og Aðalsteinn Jörgensen og Runólfur
Pálsson hins vegar. Morgunblaftið/Arnór.
Landinn skaut „meist-
urunum“ ref fyrir rass
Brldqo
Arnór Ragnarsson
Guðlaugur R. Jóhannsson og
Örn Arnþórsson sigruðu í Bridge-
hátíðartvímenningnum sem lauk
sl. laugardag. Hlutu þeir 289 stig
yfir meðalskor eða tæplega 7 úr
hverri setu. Hörkukeppni var milli
Guðlaugs og Arnar. Guðmundur og
Þórarinn urðu að láta sér lynda
annað sætið annað árið í röð. Þeir
hlutu 287 stig nú eða tveimur stig-
um minna en Guðlaugur og Örn og
ef undirritaður man rétt þá voru
þeir einnig tveimur stigum frá úr-
slitasætinu í fyrra.
Það bar lítið á Guðlaugi og
Erni í fyrri hluta mótsins og
sáust þeir ekki á töflu yfir efstu
pörin fyrr en keppnin var hálfn-
uð. Aftur á móti voru Svíarnir
Tommy Gullberg og Hans Göthe
langefstir í fyrri hlutanum. Var
ekki annað að sjá um tíma en að
þeir ætluðu að einoka efsta sætið
strax.
Staðan eftir 20 umferðir:
Göthe — Gullberg 239
Guðmundur Pétursson
— Sigtryggur Sigurðsson 135
Aðalsteinn Jörgensen
— Runólfur Pálsson 127
Hörður Arnþórsson
— Jón Hjaltason 110
Pettersson — Sveinzon 104
Jón Baldursson
— Hörður Blöndal 100
Guðmundur Páll
— Þórarinn Sigþórsson 97
Eftir þetta fór að draga af Sví-
unum á meðan íslenzku pörin
tvíefldust. Guðlaugur og Örn
skoruðu mikið svo og Guðmund-
ur Páll og Þórarinn. Þá komust
Guðmundur Sveinsson og Þor-
geir Eyjólfsson í röð efstu para.
Hitt sænska parið, Pettersson og
Sveinzon, spilaði mjög jafnt og
hélt sig meðal efstu para út alla
keppnina. Það bar lítið á heims-
ineistaranum sem virtist ekki ná
sér á strik og virtist sem það
færi eitthvað í skapið á spilafé-
laga hans, Steve Sion.
Staðan eftir 33 umferðir:
Gullberg — Göthe 267
Guðlaugur — Örn 245
Guðmundur Páll — Þórarinn 195
Guðmundur — Þorgeir 185
Pettersson — Sveinzon 179
Jón B. — Hörður B. 167
Molson — Cokin 161
Þegar hér var komið var kom-
in spenna í mótið sem virtist
dautt eftir 20 umferðir. Gullberg
og Göthe stóðu í stað eða fóru
niður á við á meðan okkar menn
klifu upp stigann og þegar þrem-
ur umferðum var ólokið höfðu
Guðlaugur og Örn gott forskot á
Þórarin og Guðmund Pál eins og
sjá má á eftirfarandi töflu:
Staðan eftir 40 umferðir:
Guðlaugur — Örn 329
Guðmundur — Þórarinn 289
Gullberg — Göthe 238
Pettersson — Sveinzon 200
Sontag — Sion 195
Aðalsteinn — Runólfur 177
Jón B. — Hörður B. 175
Þetta forskot dugði þeim fé-
lögum og langþráður sigur var í
höfft. Ég held að þeir hafi ekki
unnið stórt tvímenningsmót í
nokkur ár og hefir eflaust verið
þeim kærkomið. Guðlaugur og
Örn hafa spilað saman í árarað-
ir, oft verið í íslenzka landsliðinu
og ætíð verið meðal efstu para í
stærri tvímenningskeppnum hér
á landi. Þeir eru margfaldir ís-
landsmeistarar í tvímenningi og
sveitakeppni. Þeir spila Bláa
laufið.
Lokastaðan:
Guðlaugur R. Jóhannsson
— Örn Arnþórsson 289
Guðmundur Páll Arnarson
— Þórarinn Sigþórsson 287
Tommy Gullberg
— Hans Göthe 238
Alan Sontag — Steve Sion 222
Aðalsteinn Jörgensen
— Runólfur Pálsson 199
Göran Pettersson
— Leif Sveinzon 187
Tony Forrester
— Guss Calderwood 184
Jón Baldursson
— Hörður Blöndal 140
Hermann Lárusson
— Ólafur Lárusson 110
Gunnar Þórðarson
— Kristján Gunnarsson 92
Keppnisstjóri var Agnar Jörg-
ensson og reiknimeistarar Vig-
fús Pálsson og Hallgrímur Hall-
grímsson. Nokkuð var að gera
hjá keppnisstjóranum.
Einna mest bar á því að spil-
ararnir sviku lit í hita leiksins
svo ótrúlegt sem það nú er.
Guðlaugur og Örn fengu 1200
dali í verðlaun, Guðmundur Páll
og Þórarinn 900 dali og Göthe og
Gullberg 600 dali.
Sveitakeppnin
Fjórar umferðir voru spilaðar
í sveitakeppninni á sunnudag en
þrjár umferðir í gær. Sveit Al-
ans Sontag hafði örugga forystu
eftir 4 umferðir, 77 stig. í öðru
sæti var sveit Hans Göthe með
65 stig en þessar sveitir spiluðu
saman í 5. umferð.