Morgunblaðið - 06.03.1984, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984
45
Prófað
flýti —
Til Velvakanda.
12 ára telpa skrifar:
„Hér á dögunum átti ég að
mæta í enskupróf. Hélt ég að þetta
væri bara ósköp venjulegt próf en
ekki sá skrípaleikur sem raun bar
vitni. Ég hafði búið mig eins vel
undir prófið eins og tími og geta
leyfðu. Hafði kennarinn sagt að
meðal annars yrði örugglega spurt
út í beygingu sagnarinnar „to be“.
Ég var frekar slöpp í þessari beyg-
ingu og lærði þess vegna reglur
um hana utan að. Daginn eftir
mætti ég upp í skóla, glöð og hress
— fullviss um að ég gæti heilmik-
ið. En þegar ég byrjaði að skoða
prófið, þá lá nú við að ég fengi
taugaáfall.
Duran Duran
á Listahátíð
„Kæri Velvakandi.
Við erum hér nokkrir krakk-
ar og viljum koma okkar æðstu
ósk á framfæri, en hún er að
Duran Duran verði fengin á
Listahátíð. Þegar nefnt var að
Culture Club ætti kannski að
koma í staðinn urðum við alveg
orðlaus því Duran Duran er
miklu betri hljómsveit. Því
vildum við benda Guðbrandi
Gíslasyni á að hugsa sig um
tvisvar áður en hann velur
hljómsveit. Að lokum viljum
við senda öllum Duran Duran-
aðdáendum frábærar Duran
Duran-kveðjur.
Nokkrir krakkar.
Kolaport
BOafiAKRÁÐ Wehr
UIIM* iinfttrvwfví*1 ■■
yyg-Lu. wkofMve*
Þi wmþykkt- *>r«*5*#
•innia aö gjaldtaka fynr bila-
hefiast 19- m»ra °« ko9tar
hilfor dagur 20 krónur og
heill 40 krónur.
í viðbragðs-
ekki í ensku
Prófinu var skipt niður í þrjá
hluta og var fyrsti hlutinn þannig:
Á blaðið voru teiknaðar 20 klukk-
ur, hver með sínu sniði. Þarna
ægði saman tölvuklukkum og
venjulegum. Einnig voru arm-
bandsúr og sumar voru jafnvel
með rómverskum tölum. Voru nú
lesnir upp tólf mismunandi tímar
á tæplega hálfrar mínútu fresti,
auðvitað á ensku, og áttum við að
númera undir klukkunum í réttri
röð. En ég spyr: Hvernig eigum við
að fara að því að finna eina
ákveðna klukku á svona stuttum
tíma? Og auk þess var þetta ekki
endurtekið heldur bara lesið upp
einu sinni.
Ég skildi alveg hvað kennarinn
sagði. Ég vissi alveg hvað klukk-
urnar voru mikið á íslensku. Hefði
verið lesið upp tvisvar, hefði ég
geta skilað þessu með sóma.
Kannski fengið 9,5 eða 10. Mér
finnst þetta vera óréttlátt. Við er-
um prófuð í viðbragðsflýti í ís-
lenskum skólum þegar við erum
að læra ensku. Seinna, þegar við
tölum við enskumælandi menn,
getum við sagt: Ég gat klárað
enskuprófið á afar stuttum tíma,
en því miður — ég kann ekki
ensku!
Ég er ekki að gagnrýna skólayf-
irvöld, enda voru hinir tveir hlut-
ar prófsins réttlátir, en mér finnst
skrítið að kerfið prófi ekki í því
sem sett er fyrir og við erum að
læra.“
„Þessi blessuð börn“
— gott sjónvarpsleikrit
Til Velvakanda.
Sigríður P. Blöndal skrifar:
„Mig langar að þakka Andrési
Indriðasyni fyrir þáttinn „Þessi
blessuð börn“, sem fluttur var í
sjónvarpinu sl. sunnudagskvöld.
Þessi þáttur lýsir svo vel hugsun-
um og tilfinningum barnsins, sem
sumt fullorðið fólk á svo erfitt
með að skilja og sem getur haft
varanleg áhrif á líf barnsins. Þátt-
urinn var mjög vel leikinn og sér-
staklega fannst mér Hrannar Már
Sigurðsson skilja sitt hlutverk vel
og koma því ágætlega til skila.
Mér er minnisstætt hvað kona,
sem fædd var fyrir tæpum 100 ár-
um og nú er látin, sagði mér
skömmu áður en hún dó. Þegar
hún var barn drukknaði faðir
hennar frá mörgum börnum og
skömmu fyrir jól sama ár gaf
kennslukonan hennar henni lítinn
dúk til að sauma út og gleðja
mömmu hennar með á jólunum.
Slík áhrif hafði þetta haft á hana
sem barn, að henni var það ennþá
minnisstætt skömmu fyrir andlát
sitt, en hún dó rúmlega áttræð að
aldri."
Kolaport — fáránleg nafngift
— nefnum bflageymsluna Arnarskjól
Þorsteinn Jónsson kom að máli
við Velvakanda og lýsti hneykslun
sinni og félaga sinna á nafngift
bílageymslunnar við Kalkofnsveg,
Kolaport. „Hvað hefur eiginlega
komið yfir þá þarna í borgarráði?"
sagði hann, „eru þeir orðnir snar-
vitlausir eða hvað? Þetta nafn,
Kolaport, er svo mikil fjarstæða
sem hugsast getur, og hreint til
stórskammar. Arnarhóll er sögu-
frægur staður, við verðum að gæta
að því. Sjálfur hafði ég hugsað
mér nafnið Arnarskjól á bíla-
geymsluna, en hvort sem mönnum
líst á það eða ekki, þá er nafnið
Kolaport gersamlega ótækt.“
MILLIVEGGJA
PLOTUR
Stærðir:
bOxbOx 5
bOxbOx 7
50x50x10
VANDAÐAR PLOTUR
VIÐRÁÐANLEGT VERÐ
B |y| y^H Fáanlegar úr gjalli eða vikri
PANTANIR:
Bíldshöfða 3, sími: 91-85833 og hjá
Iðnverk h/f Nóatúni 17, 105 Rvk.
Símar: 91-25930 og 91-25945
É> Aðalfundur
Félags hesthúseigenda í Víðidal
verður haldinn í félagsheimili Fáks mánudaginn
12. mars 1984 kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aöalfundarstörf.
1. Kosning fundarstjóra og embættismanna fund-
arins.
2. Skýrsla stjórnar (umræöur).
3. Skýrsla gjaldkera (umræður).
4. Kosning.
5. Önnur mál.
Ath.: Borin verður fram veigamikil tillaga
þess efnis að stjórn félagsins skuli nýta sér
framkvæmdavald sbr. 15. grein laga félags-
ins til að Ijúka við og snyrta hesthús, tað-
þrær og lóðir á kostnað eigenda.
Stjórnin.