Morgunblaðið - 15.05.1984, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 15. MAÍ 1984
Samkomulag í
„Búsetamálinu^
SAMKOMULAG náöist í gær milli
stjórnarliöa um svonefnt Búsetamál.
í gærkvöldi kom síðan fram á Al-
þingi breytingartillaga við frumvarp
til laga um Húsnæðisstofnun ríkis-
ins. Tillagan gerir ráð fyrir að niður
falli setning, sem deilt hefur verið
um túlkun á vegna aðildar Búseta að
lánveitingum Byggingasjóðs verka-
manna. Þá er stefnt að því að ganga
frá samkomulagi um mjólkur-
drykkjamálið á ríkisstjórnarfundi
árdegis. Mun það byggjast á sam-
komulagi, sem náðst hefur milli ráð-
herra landbúnaðarmála og fjármála.
Samkomulagið um Búsetamáiið
varðar 33. grein frumvarpsins,
sem er svohljóðandi: „Leiguíbúðir,
sem byggðar eru eða keyptar af
sveitarfélögum, stofnunum á
þeirra vegum og eða ríkisins eða
félagssamtökum og ætlaðar eru til
útleigu við hóflegum kjörum
fyrir námsfólk, aldraða, öryrkja
og aðra, sem ekki hafa aöstöðu til
þess að eignast eigið húsnæði við
hæfi.“ Breytingartillaga gerir ráð
fyrir að settur verði punktur á eft-
ir orðinu öryrkja og að niður falli
það, sem á eftir kemur. Formaður
Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn
Pálsson, mælti fyrir breytingar-
tillögunni í upphafi fundar neðri
deildar í gærkvöldi. Stjórnar-
andstæðingar deildu hart á breyt-
ingartillöguna í umræðum, sem á
eftir fóru.
Landbúnaðarráðherra og fjár-
málaráðherra hafa náð samkomu-
lagi vegna mjolkurdrykkjanna
kakómjólkur, mangósopa og jóga.
Landbúnaðarráðherra hefur að
eigin sögn ritað framleiðendum
þessara drykkja bréf og farið fram
á, að þeir lækki verð þeirra um
20% þar til nákvæm úttekt hefur
farið fram á verðmyndun þeirra. í
móti mun fjármálaráðherra hafa
gefið fyrirheit um að fresta álagn-
ingu vörugjalds og söluskatts á
þessar vörur til sama tíma.
Ráðinn framkvæmda-
stjóri á sölusviði SH
6 norskir
rækjutogar-
ar í höfn
á ísafirði
ísafirdi, 14. maí.
Á MIÐNÆTTI síðastliðinn fylltu
norskir sjómenn aflakvóta sinn á
rækjumiðunum viö Austur-
Grænland. Þá mun aðeins vera
eftir á miðunum einn franskur
togari og ef til vill einn Færeying-
ur að sögn Gunnars Jónssonar,
skipamiðlara á ísafiröi.
Miklar annir hafa verið hjá
honum í dag við afgreiðslu
þeirra sex norsku rækjutogara,
sem hættu veiðum í nótt, en þeir
hafa allir verið hér í dag og tek-
ið vistir og olíu. Togararnir
halda héðan í kvöld, ýmist til
Svalbarða eða heim til Noregs.
Að sögn Gunnars Jónssonar
nemur nú rækjuveiðin við
Austur-Grænland um 5.000 lest-
gm, en á síðasta ári voru skipin
allt fram í nóvember að ná sama
aflamagni. Af þessum 5.000 lest-
um fengu Grænlendingar sjálfir
aðeins að veiða 1.700 lestir
vegna samninga við Efnahags-
bandalagið og Norðmenn.
— Úlfar
Á stjórnarfundi Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna 9. maí síðastlið-
inn var samþykkt að ráða Olaf
Gunnarsson, framkvæmdastjóra
Síldarvinnslunnar í Neskaupstað,
sem framkvæmdastjóra á sölu-
sviði SH með sérstöku tilliti til
þróunarverkefna. Olafur Gunnars-
son er tæknifræðingur að mennt,
fæddur á Akranesi 13. marz 1940.
Ólafur Gunnarsson
Foreldrar hans eru Gunnar Olafs-
son; fyrrverandi skólastjóri og
Ingibjörg Magnúsdóttir, eigin-
kona hans.
Ólafur útskrifaðist sem vél-
stjóri frá Vélskóla íslands árið
1960 og stundaði síðan tækni-
nám í Þýzkalandi og lauk hann
námi þaðan árið 1965. Að námi
loknu réðst hann sem tækni-
fræðingur til Síldarvinnslunnar
hf. í Neskaupstað. Árið 1968 var
Ólafur ráðinn framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins og hefur
verið það síðan.
Ólafur Gunnarsson hefur átt
sæti í stjórn SH frá 1969 og
ennfremur verið í stjórn fyrir-
tækis SH í Bretlandi, Icelandic
Freezing Plants Ltd., síðan 1979.
Hann hefur átt sæti í ýmsum
nefndum á vegum SH, er hafa
fjallað um hagsmunamál fyrir-
tækisins, heima og erlendis. Þá
átti Ólafur sæti í stjórn Síldar-
útvegsnefndar tímabilið 1972 til
1980.
Eiginkona Ólafs er Helga
Friðriksdóttir og eiga þau eina
dóttur. Ólafur mun hefja störf
síðar á árinu.
Konan fhitt út úr húsinu um hádegisbilið í gær eftir að eiginmaður hennar
hafði stungið hana og sjálfan sig með hnffl. MorrunbiaAið/júiíus. ______
Stakk konu sína tvisv-
ar og sjálfan sig á eftir
— hvorugt í lífshættu
LIÐLEGA fertug kona í Reykjavík
varð fyrir hættulegri árás hálffimm-
tugs eiginmanns síns um hádegið í
gær. Lagði hann til hennar með
eldhúshníf og særði tveimur sárum, í
hægri upphandlegg og hægra brjósti.
Síðan rak hann hnífinn i kvið sjálf-
um sér. Hvorugt þeirra er í lífs-
hættu, konan fékk að fara af sjúkra-
húsi eftir að gert hafði verið að sár-
um hennar, maðurinn er í vörslu
lögreglunnar.
Hjónin eru um það bil að skilja
og hefur gengið á ýmsu í hjóna-
bandi þeirra á undanförnum ár-
um. Mun maðurinn margsinnis að
undanförnu hafa ógnað konu sinni
og hótað líkamsmeiðingum. Hann
er fluttur af heimili þeirra í mið-
bænum en þegar konan kom heim
úr vinnu í hádeginu í gær, var
hann þar staddur. Samkvæmt
frásögn konunnar réðst hann að
henni um leið og hún kom inn í
íbúðina og stakk hana tvisvar, að
því er Þórir Oddsson, vararann-
sóknalögreglustjóri, sagði í sam-
tali við blaðamann Mbl. í gær-
kvöld.
Konan komst undan og tókst að
læsa sig inni í baðherbergi íbúðar-
innar. íbúi á neðri hæð hússins
varð vitni að átökunum og til-
kynnti til lögreglu kl. 12:15 að
maður með hníf væri að ráðast að
konu þar í húsinu. Þegar lögreglan
kom á vettvang lá eiginmaðurinn
á gólfinu með tvö stungusár á
kviði. Konan kom út úr baðher-
berginu eftir að lögreglan var
komin á staðinn og voru þau bæði
flutt á Slysadeild Borgarspítalans.
Hnífurinn, sem maðurinn beitti,
er af algengri eldhúshnífagerð,
blaðið um 17,5 sm. langt,
oddhvasst og beitt. — Rannsókn
málsins verður haldið áfram í dag.
Eiginmaðurinn verður yfirheyrð-
ur og m.a. tekin afstaða til hvort
krafist verður gæsluvarðhalds-
úrskurðar yfir honum.
Rfkissaksóknari kærir sakadómsúrskurð í nauðgunarmáli:
Hæstiréttur úrskurði árás-
armanninn í gæsluvarðhald
RÍKISSAKSOKNARI hefur kært til Hæstaréttar sakadómsúrskurð í máli 36
ára Keykvíkings, sem játað hefur á sig nauðgun og nauögunartilraun. At-
burðir þessir áttu sér stað á Hverfisgötu milli kl. 3 og 4 aðfaranótt sunnu-
dagsins. Maðurinn var handtekinn skömmu síðar en hann var látinn laus um
kl. 1 í fyrrinótt, eftir að úrskurður Sakadóms hafði gengið. Rannsóknalög-
regla ríkisins hafði gert kröfu um að hann yrði látinn sæta geörannsókn og
gæsluvarðhaldi í 30 daga. Búist er við að Hæstiréttur fái gögn málsins til
meðferðar árdegis í dag og að dómur verði kveðinn upp öðru hvoru megin við
helgina. Aðilar hafa frest fram á föstudag til að skila greinargerðum í
málinu.
„Við erum sama sinnis og Rann-
sóknalögregla ríkisins, við teljum
að heppilegra hefði verið að
hneppa manninn í gæsluvarð-
hald,“ sagði Þórður Björnsson,
ríkissaksóknari, í samtali við
blaðamann Mbl. í gær. Hann sagði
að hann myndi ekki eftir því að
áþekk staða hefði komið upp í
sakamáli hérlendis áður, að
minnsta kosti væri hér um afar
sjaldgæfan atburð að ræða.
Ágúst Jónsson, aðalfulltrúi í
Sakadómi Reykjavíkur, sem kvað
upp hinn kærða úrskurð, sagði í
samtali í gær að synjunarúrskurð-
ur sinn hefði verið byggður á því,
að rannsóknin hefði verið vel á veg
komin og að sakborningurinn
hefði því ekki getað spillt gögnum
eða torveldað rannsókn málsins að
öðru leyti. Þá hefði hann, með
hliðsjón af föllnum dómum í
nauðgunarmálum, ekki talið
óyggjandi að hinn kærði yrði
dæmdur í tveggja ára fangelsi.
Þessi tvö atriði eru m.a. skilyrði
fyrir því, að orðið sé við kröfum
um gæsluvarðhald. Hann hefði þó
fallist á, að maðurinn yrði látinn
sæta geðrannsókn og farbanni.
Þórir Oddsson, vararannsókna-
lögreglustjóri ríkisins, sagði í
samtali við blaðamann Mbl., að
RLR hefði talið vert að hafa
manninn í haldi á meðan rann-
sóknin hefði beinst að högum
hans, ferðum og gerðum undan-
farna daga. Framburður hans
væri óljós á ýmsa lund og ekki öll
kurl í málunum komin til grafar.
Maðurinn réðist að stúlkunum
tveimur, sem fæddar eru 1959 og
1962, með 2—3 stundarfjórðunga
millibili á Hverfisgötu aðfaranótt
sunnudagsins. Á mótum Hverfis-
götu og Snorrabrautar réðst hann
að annarri stúlkunni, dró hana af-
síðis og reyndi að þröngva henni
til samræðis við sig. Þegar hann
hafði rifið föt hennar lagði hann
skyndilega á flótta enda höfðu
hróp stúlkunnar vakið fólk í ná-
grenninu. Skömmu síðar barst
lögreglunni tilkynning um að
eitthvað óvenjulegt væri að gerast
á móts við Þjóðleikhúsið og þegar
komið var á staðinn var maðurinn
að koma fram vilja sínum við
stúlku, er fékk engum vörnum við
komið. Lagði maðurinn á flótta en
náðist skömmu síðar og játaði
verknaðina síðdegis á sunnudag.
Hann er fjölskyldumaður, bú-
settur í nágrenninu, og hefur ekki
áður komið við sögu lögreglunnar.
Hann hafði verið á veitingahúsi
um kvöldið og var áberandi ölvað-
ur þegar hann náðist.
Hnífaárás í
strætisvagni
RÁÐIST var á tvo pilta í strætis-
vagni í Reykjavík á (östudagskvöld-
ið og er annar m.a. nefbrotinn eftir.
Hinn var skorinn á höfði er árásar-
mennirnir, sem voru piltar á svipuðu
reki, drógu upp hnífa þegar hann
reyndi að koma félaga sínum til
hjálpar.
„Rannsóknin er að fara í gang
hérna. Málið var kært í dag og við
höfum tekið skýrslu af piltinum,
sem kærði," sagði Gunnlaugur
Valtýsson, rannsóknalögreglu-
maður í Reykjavíkurlögreglunni, í
samtali við blaðamann Mbl. „Það
er talið víst hverjir þarna voru að
verki en málsatvik eru ekki fylli-
lega ljós að öðru leyti."
Gunnlaugur sagði ástæðu þess
að rannsóknin væri í höndum
Reykjavíkurlögreglu fremur en
Rannsóknalögreglu ríkisins, sem
m.a. skal hafa með höndum rann-
sókn líkamsárása, vera þá að
„kæran barst hingað til okkar og
svo er spurning hversu alvarlegt
málið er. Árásir af þessu tagi eru
ekki óvenjulegar — það gerist um
hverja helgi að ráðist er á fólk og
því misþyrmt," sagði hann.
Fálkaeggjaþjófnaðurinn:
Saksóknari vill
framhaldsrannsókn
„ÞAÐ ER atriði í þessu máli, sem
þarf að kanna nánar. Til þess þarf að
taka frekari skýrslur af Þjóðverjun-
um,“ sagði Þórður Björnsson, ríkis-
saksóknari, er Mbl. leitaði fregna
hjá honum af máli þýsku hjónanna,
sem grunuð eru um að hafa komið
hingað til lands í því skyni að hafa á
brott með sér fálkaegg. Málið var
sent til umsagnar ríkissaksóknara
sl. föstudag.