Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAl 1984 38 icjo^nu- iPÁ HRÚTURINN |1 21. MARZ-19.APRIL l»ifj langar til þess ad ferdast í dag en það er ekki ráðlegt, alla- vega ekki leggja upp í langferð. Fjármálin eni mjög viðkvæm. Þú færð líklega senda reikninga í pÓNtinum. NAUTIÐ 20. APRfL-20. MAl Það kemur upp djúpstæður mLs- skilningur í dag og þú lendir í deilum við vin þinn. Þú neyðist líklega til þess að breyta skoðun þinni á mikilvægu máli. k TVlBURARNIR 21. MAl—20. JÍINl Þú skalt ekki treysta á að þú fáir hjálp frá öðrum. Fólk er gjarnt á að skipta um skoðun á síðustu raínútu. Farðu varlega ef þú ert á ferðalagi og gættu beilsunnar vel. KRABBINN 21. JtNl-22. JÚLl Anægja og skemmtanir mega ekki kosta hvað sem er, mundu að það kemur að því að þú þarft að greiða skuldir þínar. Vinir þínir eru mjög éáreiðanlegir í fjármálum svo þú skalt ekki spyrja þá ráða. ^IlLJÓNIÐ 23. JÚLl-22. ÁGÚST m Fólk í kringum þig er sffellt að skipta um skoðun. Áætlanir þín- ar fyrir daginn í dag fara þvf út um þúfur. Fjölskyldan er ekki sammála tillögum þínum varð- andi breytingar á heimilinu. MÆRIN 23. ÁGÚST-22. SEPT Þú ert ringlaður og eirðarlaus í dag, þetta verðnr til þess að þér verður lítið úr verki. Það er hætta á rifrildi innan fjölskyld- unnar. Trúarlegar deilur eru erfiðar. VOGIN 23.SEPT.-22.OKT. I>ú skalt ekki treysta á sam- vinnu frá öðrum sérstaklega ekki hvað varðar fjármál. Þú skalt fresta þvi að skrifa undir mikilvæg skjöl. DREKINN 23. OKT.-21. NÓV. Samstarfsmenn þínir eru erfíðir og þú átt í erfíðleikum með að standa við áætlanir þínar. Þetta er ekki góður dagur til þess að gera nýjan samning eða stofna til nýrra kynna. ijfl BOGMAÐURINN lJi 22. NÓV.-21. DES. Fólk er alltaf að skipta um skoðun í dag og þetta setur mik- inn vanda á þig. Þér reynist erf- itt að standa við loforð þín. Þú skalt ekki láta tilfínningar þínar í Ijós. STEINGEITIN 22. DES.-19. JAN. Allar áætlanir þínar varðandi skemmtanir og ánægju fara lík- lega út um þúfur. Það þarf lítið til þess að smávegis deilur verði að miklu máli. Astamálin eru ekki í góðu lagi. Htjfl VATNSBERINN 20.JAN.-lg.FEB. Iní getur ekki treyst á neinn í dag. Fólk er sífellt að skipta um skoðun og þú verður mjög þreyttur orðinn og leiður þegar líður á daginn. Þú verður að gæta tungunnar svo þú spillir ekki vináttu. B FISKARNIR 19. FEB.-20. MARZ Þú kndir í vandræðum vegn* þess að fólk í kringum þig er sífellf að skipta um skoðun. Þú skalt ekki treysta á að fá hjálp frá öðrum, sérstaklega ekki fólki sem býr langt í burtu. X-9 DRÁTTHAGI BLÝANTURINM ■ i/Scir a FERDINAND ALL MV UFE I HAVE 5EARCHEP FOR CALMNESS ' © 1963 Uniled Fealure SyrxJtcale Inc Alla ævi hefi ég leitað að ró. IT WAS A pifficult 5TRU66LE, BUT IT WAS UJORTH IT..N0U) I HAVE A BEAUTIFUL INNER PEACE Það var hörð harátta, en þess virði ... nú bý ég dásamleg- an frið innra með mér. THERE I5 NOTHING ANVONE CAN SAV OR PO THAT CAN PISTURB Enginn getur sagt eða gert neitt sem raskar ró minni. SMÁFÓLK Skólinn byrjar í næstu viku. BRIDGE Umsjón: Guöm. Páll Arnarson Fyrsta áfanga landsliðs- keppninnar fyrir Ólympíumót- ið í Seattle í haust lauk á sunnudagskvöldið: Tólf pör tóku þátt í keppninni og var spilaður butler, 14 spil á milli para. Jón Ásbjörnsson og Sím- on Símonarson urðu stiga- hæstir, sem ekki kemur á óvart því þeir hafa sýnt það undanfarið að þeir eru í miklu stuði. í öðru sæti urðu Jónas P. Erlingsson og Hrólfur Hjaltason, í þriðja sæti Guð- mundur Pétursson og Sig- tryggur Sigurðsson, fjórðu urðu Aðalsteinn Jörgensen og Runólfur Pálsson, fimmtu Ásmundur Pálsson og Karl Sigurhjartarson og Guðlaugur R. Jóhannsson og Örn Arn- þórsson lentu í sjötta sæti. Fyrirhugað er að halda fjórar aðrar slíkar keppnir fyrir mót- ið í haust. Guðmundur Pétursson og Sigtryggur Sigurðsson græddu vel á þessari hörðu alslemmu sem þeir tóku á móti Guð- mundi Hermannssyni og Birni Eysteinssyni: Norður ♦ ÁG VÁ42 ♦ ÁG84 + K1032 Vestur Austur ♦ KD1032 4 9854 VD3 VG985 ♦ D97 ♦ 1053 ♦ 7 ♦ D4 Suður ♦ - V K1076 ♦ K62 ♦ ÁG9865 Vestur Norður Austur Suður B.E. S.S. G.H. G.P. — — — 2 lauf 2 spaðar 3 spaðar Pass 4 hjörtu Pass 4 spaðar Pass 4 grönd Pass 5 tíglar Pass 6 hjörtu Pass 7 lauf Pass Pass Pass Slemman þarf að liggja vel til að vinnast. I fyrsta lagi þarf tíguldrottningin að vera í vestur, helst þriðja, en það eru þó ýmsir möguleikar á kast- þröng þótt hún sé önnur eða fjórða. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á heimsmeistaramóti ungl- inga 16 ára og yngri f ár í Champigny sur Marne í ár kom þessi staða upp í skák sig- urvegarans á mótinu, Dreew, Sovétríkjunum, sem hafði hvítt og átti leik, og Rachels, Bandaríkjunum. 34. Bxg7! — Bxf4 (Eða 34. - Kxg7, 35. Rh5+ með óstöðvandi sókn) 35. Hxf4 — Dxe6, 36. Bxh6! - Hc7, 37. Dg3+ — Kh8, 38. Dh4 og svartur gafst upp. Dreew hlaut 8V4 v. af 11 mögu- legum. Næstir komu Piket, Hollandi, Anand, Indlandi, og Ywantschuk, Sovétríkjunum, með 8 v. Jón L. Árnason vann þennan titil árið 1977, en í ár var enginn Islendingur í hópi þátttakenda, sem voru 42 tais- ins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.