Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1984 23 Iris með met ÍRIS GRÖNFELDT UMSB setti nýtt íslandsmet í spjótkasti á frjálsíþróttamóti í Baton Rouge á laugardag. meö því aö kasta 55,90 metra. Nýja metiö er 94 sentimetrum lengra en eldra metiö, sem íris setti sjálf fyrr í vor. íris sigraöi á mótinu, en fyrir síö- ustu umferöina var hún þó í ööru sæti og lengsta kast hennar hafði mælst rétt rúmir 52 metrar. Met- kastið kom síöan í sjöttu og síö- ustu umferðinni íris varö fyrst íslenzkra kvenna til að kasta spjótinu yfir 50 metra, og reyndar sú eina sem þaö hefur gert. Metiö nýja er aöeins 10 senti- metrum lakara en lágmark Alþjóöafrjálsíþróttasambandsins fyrir Ólympíuleikana, en lágmark Ólympíunefndar íslands er 58 metrar. Þórdís Gísladóttir ÍR sigraöi í hástökki á mótinu í Baton Rouge, stökk 1,83 metra. Þórdís er ekki orðin nógu góö af meiöslum, sem hún hlaut í bílslysi fyrir skömmu. — ágás. Helmut Benthaus: „Leikmenn mínir slökuðu á“ Geir til Stjörnunnar UM HELGINA gekk hand- knattleiksdeild Stjörnunnar í Garöabæ frá ráðningu á Geir Hallsteinssyni sem þjálfara fyrir næsta keppnistímabil. Geir hefur þjálfað lið FH undanfarin fimm ár meö góöum árangri og varð FH-liðið íslandsmeistari undir hans stjórn á síðasta keppnistímabili. KR-ingar munu standa i viöræöum viö Pál Björgvins- son, en hann þjálfaöi liö Þróttar. Þá hafa FH-ingar hug á þvi aö ná í Gunnar Einars- son, áöur þjálfara Stjörnunn- ar. Víkingar eru í viöræöum viö Bogdan. — ÞR Tveir með 12 rétta í 35. leikviku Getrauna komu fram 2 seðlar meö 12 réttum og var vinningur fyrir hvora röð kr. 215.000. Meö 11 rétta voru 23 raðir og vinn- ingur fyrir hverja röö kr. 8.000. Meö þessari leikviku er þessu starfstímabili Getrauna lokiö en tekiö verður til að nýju síöasta laugardag í ág- úst, er enska deildakeppnin • Oddur Sigurðsson er í toppæfingu um þessar mundir og er hefst aö nýju. Norðurlandamet hans glæsilegur árangur. ————— Norðurlandamet hjá Oddi í 400 m Frá fréttarilara Mbl. í V.-Þýakalandi. Jóhanni Inga Gunnaraayni. „ÞAÐ VAR sannkallaður meist- arabragur í leik okkar í fyrri hálf- leík. Við skoruöum tvö falleg mörk og áttum að geta skoraö fleiri. Ég kann enga skýringu á því af hverju leikurinn endaði með jafntefli aöra en þá að leik- menn mínir slökuðu á. Þeir héldu að sigurinn væri í höfn,“ sagöi þjálfari Stuttgart, Benthaus, í sjónvarpsviðtali 10 mínútum eftir aö leik Frankfurt og Stuttgart lauk á laugardag. En Stuttgart- liðið fékk á sig mikið slysamark á síðustu mínútu leiksins. „Viö eigum enn mjög góöa möguleika á titlinum, og þá vil ég minna á aö viö höfum staðiö okkur mjög vel þar í leikjum okkar í vet- ur. En þó svo aö viö töpum þar og Hamborg vinni getum viö gert út um þetta í Stuttgart 26. maí. Viö erum jú meö sex marka forskot á Hamborg. Og veröi liöin jöfn aö stigum í lokin ræöur markahlutfall- iö,“ sagöi Benthaus. En hreint ótrúlega mikil spenna er núna í deildakeppninni í V-Þýskalandi. „ÉG ÁTTI EKKI von á Norður- landameti, en taldi mig geta bætt íslandsmetið eftir átakalaust hlaup í undanrásum á 46,18 sek- úndum, sem var næstbesti árangur minn fram að þeim tíma,“ sagði Oddur Sigurðsson spretthlaupari úr KR, sem á laug- ardag setti glæsilegt nýtt ís- landsmet í 400 metra hlaupi á móti í Austin í Texas, hljóp á 45,36 sekúndum. Afrek Odds er jafnframt nýtt Noröurlandamet, eldra metiö átti finnski hlauparinn Markku Kukko- ako, sem hljóp á 45,49 sekúndum i úrslitahlaupi 400 m á ólympíuleik- unum í Múnchen 7. september 1972. Eiga íslendingar þá aö nýju Norðurlandamet í frjálsiþróttum. Vilhjálmur Einarsson ÍR átti síöast- ur Noröurlandamet, en finnskur stökkvari, Pertti Pousi sló þrí- stökksmeti hans viö fyrir tveimur áratugum tæpum. Pous> stökk 17 metra slétta í júní 1968. Oddur setti glæsilegt islands- met í Des Moines um fyrri helgi er hann hljóp á 45,69 sek. Sló þá met sitt frá í fyrravor, sem var 46,49 sekúndur. Tími hans nú um helgina heföi nægt til fjóröa sætis í úrslita- hlaupi heimsmeistaramótsins í frjálsiþróttum í fyrra. „Þaö var geysilegur hraöi i hlaupinu frá byrjun. Á næstu braut utan viö mig var hlaupari, sem haföi náö sama tíma og ég, 45,69, og reyndi ég aö halda í hann. Þjálf- arinn tók millitima eftir 200 metra og fékk 21,2-21,3, sem sýnir hve hraöinn var mikill. Mér tókst aö halda góöum hraöa í beygjunni og kom fyrstur inn á beinu brautina. En úr því var á brattan aö sækja og hin mikla keyrsla aö koma mér í koll, því á síöustu metrunum tókst tveimur aö smeygja sér fram úr. En þeir voru bara rétt á undan, þaö var ótrúlega stutt í sigurvegar- ann,“ sagði Oddur. í hlaupinu sigruöi þeldökkur Bandaríkjamaöur aö nafni Rod Jones á 44,94 sekúndum. Annar varö landi hans Allan Ingram á 45,26. Eftir því sem næst veröur komist er árangur Jones besti árangur í heimi þaö sem af er ári. „Þetta var geysilega erfitt hlaup, þreytan sagöi til sín eftir á og ég var útkeyrður daginn eftir. Nú tek ég stefnuna á háskólameistara- mótiö um mánaöamótin, en keppi tíklega í 200 metrum um næstu helgi. Á dagskrá er siöan aö æfa stíft í júni og keppa örlítið í júlí til aö vera kominn á annan topp á ólympíuleikunum." Hvernig skýrir þú þessar miklu framfarir frá i fyrra? „Þaö er margt sem kemur til. Ég hef æft hlaupin miklu betur en áö- ur, en aöalástæöuna tel ég vera að ég hef æft miklu meiri lyftingar en fyrr. Ég hef styrkt mig verulega meö lyftingum og unniö mikiö meö Óskari Jakobssyni í þeim efnum. Hann hefur hjálpaö mér mikið, geröi fyrir mig prógram og hefur reyndar stjórnaö þessum þætti al- veg. Það hefur verið mjög hvetj- andi og ég vil eiginlega þakka Óskari þessar framfarir. Einnig hef ég keppt mun minna en undanfarin ár og sloppiö alveg viö meiösl og veikindi, en næstsíð- astliöinn vetur lék vírus mig illa og blóöleysi háöi mér lengi. En skýr- inguna er fyrst og fremst aö finna í hinum miklu lyftingaæfingum,“ sagöi Oddur. Á mótinu kastaöi Einar Vil- hjálmsson spjóti 81,52 metra og varö annar á eftir Bretanum Keith Bradstock, sem kastaöi rúma 83 metra. „Einar kom beint úr stífu prófi og var þreyttur og illa fyrir kallaöur. Hann getur líklega ekki gert verr, og veröur því væntan- lega sprækur á næstu mótum, því prófum er lokiö," sagöi Oddur aö lokum. — ágés. Ljótm./ Frióþjófur Huigason. ÍBV sigraði í meistarakeppni KSÍ • Fyrsti stórleikur sumarsins í knattspyrnu fór fram á Melavellinum síðastlióinn laugardag. Þá léku ÍA og ÍBV í meistarakeppni KSÍ. ÍBV sigraði í bráðskemmtilegum og all vel leiknum leik, 2—1. Hér sjást Eyjamenn meö sigurlaunin. Lið ÍBV hefur leikiö vel nú í upphafi keppnistímabils og verður án efa sterkt í 2. deildarkeppninni í sumar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.