Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1984 Úr lífi Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir Leikfélai; Sólheima: Lífmyndir Höfundar: Halldór Kr. Júlíusson, Magnús J. Magnússon. Leikstjóri: Magnús J. Magnússon. Tónlist: Mist Þorkelsdóttir o.fl. Búningar: Elsa Jónsdóttir. Hér er á ferðinni látbragðs- leikur í fjórtán myndum. Sögu- þráðurinn er í stuttu máli á þá leíð að karl og kona hittast og fella hugi saman. Giftast, konan eignast barn og það reynist van- gefið. Fögnuðurinn breytist í kvíða, vinirnir hverfa eins og dögg fyrir sólu, ungu hjónin hrökklast milli sérfræðinga með son sinn og loks verður að koma honum fyrir á stofnun. Drengur- inn kemur því til leiðar að á stofnuninni verða ýmsar breyt- ingar til bóta fyrir vistmennina. Þar hittir hann unga vangefna stúlku sem honum hugnast vel. En þá er ekki hagstætt að tveir vangefnir aðilar séu að krúnka saman og drengurinn er fluttur á aðra stofnun. En hann gleymir ekki vinkonu sinni og í lokin fell- ur allt í Ijúfa löð. Ósköp einföld saga, þekkileg og mörgum kunn sem eignast vangefin eða fötluð börn. Þessi sýning hefur sérstöðu vegna þess að öll hlutverkin eru leikin af vangefnu fólki. Hér hefur verið unnið frábært verk og sýningin er raunar talandi tákn um það, hversu margt fallegt og vel gert er mögulegt að vinna með fólki, sem er kallað vangefið — reynd- ar er orðið víst þroskaheftur — eins og hitt orðið er í raun og veru miklu fallegra og einfald- ara. Okkur hættir til að afgreiða vangefna með vorkunnsemi og umburðarlyndi í bezta falli, blandað dálitlu vinsamlegu yfir- læti. Þeir sem vinna með van- gefnu fólki eignast oft hlutdeild í merkilegum heimi, sem okkur hinum er lokaður og þessi heim- ur er mannbætandi — þrátt fyrir þá ýmsu erfiðleika sem glímt er þar við. Magnús J. Magnússon og aðrir þeir sem hafa þjálfað leikend- urna fyrir sýninguna hafa gert það af alúð og dugnaði. Leikend- ur sýna allir mikla einlægni í túlkun og þar sem hér er um hópvinnu að ræða, eins og hún gerist ánægulegust, er varla ástæða til að nefna einn umfram aðra. Samt freistast ég til að nefna Jón Líndal sem fór með hlutverk vangefna sonarins. All- ir hinir eiga einnig hrós skilið og fóru vel með sín mörgu hlutverk. Slík starfsemi er virðingarverð og lætur mann ekki ósnortinn. Ámorgunkoma: Úrvals kartöflur frá Italíu og Grikklandi NÝ UPPSKERA EGGERT KRISTJÁNSSOM Sundagörðum 4, sími 85300 Fjallað um skrifstofu framtíðarinnar í Tölvublaðinu TÖLVUBLAÐIÐ, 1. tbl. 1984, er komið út. Efnisheiti ritsins að þessu sinni er „Skrifstofa framtíðarinnar“, en í samnefndri grein er fjallað um það allra nýjasta sem er að gerast á tölvusviðinu, s.s. gervigreind, fjar- skiptakerfi, Ijóstæknileg viðtæki, fimmta kynslóð tölva o.fl. Þá er einnig fjallað um mann- lega þáttinn í fyrirsjáanlega stórbreyttu upplýsingaþjóðfélagi framtíðarinnar. Aðrar greinar ritsins fjalla m.a. um hugbúnað framtíðarinnar, upplýsingaöld án takmarkana, hvernig velja á smá- tölvur fyrir lítil fyrirtæki, al- mennt tölvunetkerfi á íslandi, IBM S/36, nýjan staðal fyrir ódýr- ar einkatölvur og margt fleira. Þá eru fastir fræðsluþættir á sínum stað, t.d. bréfaskóli Tölvublaðsins, sem fjallar að þessu sinni um tölvuminni og Algoriþma- þátturinn, sem að þessu sinni . fjallar um mótun gagna í tvennd- artré. Útgefandi Tölvublaðsins er Tölvuútgáfan hf., en ritstjóri er Helgi Örn Viggósson. Tölvublaðið fæst í áskrift og í lausasölu í öll- um bókaverslunum. V^terkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.