Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1984 21 Háttsettur sovézkur íþróttaleiðtogi: Ákvörðunin verður ekki endurskoðuð Mo.skvu, 14. maí. AP. Kússar vinna nú að skipu- lagningu íþróttamóta í fylgi- ríkjum sínum er komi í stað Ólympíuleikanna í Los Ang- eles, aö sögn pólskra íþrótta- leiðtoga. íþ*óttaleiðtogar frá fylgiríkj- um Sovétríkjanna hittust í Moskvu í lok síðustu viku til þess að undirbúa eitt stórmót er kæmi í stað leikanna. Féllu þeir frá þeirri hugmynd en ákváðu að dreifa ólympíugreinunum á hin ýmsu fylgiríki. Um helgina ákváðu Tékkar og Afganir að keppa ekki í Los Angeles, og búist er við svipaðri ákvörðun frá Pólverjum seinna í vikunni. Marat Gramov forseti sov- ézku ólympíunefndarinnar sagði í morgun að ákvörðun Rússa um að taka ekki þátt í ólympíuleikunum yrði ekki haggað. Alþjóðaólympíunefndin Studdi CIA Duarte? 14. maí, Al*. LEIÐTOGI rómver.sk-katólsku kirkj- unnar í Kl Salvador, séra Arturo Rivera Y Damas, hefur Tagnaó þeirri yfirlýs- ingu yfirkjörstjórnar landsins að José Napoleon Duarte sé réttkjörinn forseti landsins. Talsmenn hins hægri sinnaða Arena-flokks, sem bauð Roberto d’Aubuisson fram til forsetakjörs- ins, hafa sakað bandarísku leyni- þjónustuna, CIA, um að fjármagna kosningabaráttu Duartes gegnum auglýsingafyrirtæki i Vestur-Þýska- landi og Venezuela. Bandarískir embættismenn hafa vísað þessu á bug. Moskva: Vörður við hús Irinu Kristi Moskvu, 14. mal. Al‘. LÖGREGLUVÖRÐIIR er nú við hús Irinu Kristi, 46 ára gamals stærðfræð- ings í Moskvu, sem greindi vestrænum fréttamönnum frá því að sovéski kjarn- eðlisfræðingurinn Andrei Sakarov væri í hungurvcrkfalli og rannsókn færi fram á mcintum and-sovéskum áróðri eiginkonu hans, frú Yelenu Bonner. Fréttamenn, sem reyndu að heim- sækja frú Kristi segja að heita megi að hún og eiginmaður hennar séu í stofufangelsi. Einnig er lögregluvörður við tóma íbúð frú Bonner í Moskvu, enda þótt hún sé í Gorky. Afganistan: 215 frelsis- liðar féllu Nýju Delhí, 14. maí. AP. HIN opinbera útvarpsstöð í Kahúl, höf- uðborg Afganistan, greindi frá því sl. sunnudagskvöld, að 215 liðsmenn frelsissvcitanna í landinu hefðu fallið í bardaga við hermenn stjórnarinnar og Sovétmenn í Herat-héraöi, sem er skammt frá landamærum írans. Talið er að þetta sé mesta mann- fall í röðum frelsissveitanna frá þvi Sovétmenn réðust inn í Afganistan í desember 1979. hefur boðað til neyðarfundar nk. föstudag með bandarískum og sovézkum embættismönnum til þess að reyna að fá ákvörð- uninni breytt. Gramov sagði ákvörðunina hafa verið tekna eftir fund í Washington 27. apríl þar sem öllum kvörtunum Rússa um ólympíuundirbúninginn hefði verið vísað á bug. „Þeir lögðu ekki fram neinar kröfur á þessum fundi og því var engu hafnað," sagði hátt- settur embættismaður í banda- ríska utanríkisráðuneytinu í kvöld. ítrekaði hann vilja stjórnvalda til að leysa deiluna og hefja samstarf við Rússa í þeim efnum. Keith Hampson Nýtt kynvillu- mál í Bretlandi liondon, 14. maí. AP. KEITH Hampson, 48 ára gamall þingmaður íhaldsflokksins og sér- legur ritari Michael Heseltines, varnarmálaráðherra Bretlands, sagði af sér embætti sínu í varn- armálaráðuneytinu á laugardag, eftir að bresk blöð greindu frá því að nokkrum dögum áður hefði hann verið handtekinn í fatafellu- klúbbi kynvillinga í Soho-hverfinu í London, þar sem kastast hafði í kekki milli hans og óeinkenn- isklædds lögregluþjóns. Kynvilla varðar ekki við lög í Bretlandi, en yfirvöld þar hafa ekki talið við hæfi að kynvillingar gegndu háum embættum, þar sem miklar líkur eru á því að reynt sé að kúga út úr þeim fé. COROLLA Það þarf hugrekki til að endurhanna bíl sem nýtur jafn mikilla vinsælda og Toyota Corolla, - bíl sem í mörg ár hefur verið mest selda bifreið í hpiini -—■ re/« Nú er komin ný Corolla sem sannar að enn má bæta það sem best hefur verið talið. Viðhönnun hennar hefur þess verið gætt, að hún hafi til að bera alla þá kosti sem öfluðu eldri gerðum vinsælda, en aðaláherslan hefur verið lögð á að auka innanrými,draga úr eldsneytis- eyðslu ogbæta aksturseiginleika. Til þess að ná þessum árangri hefur Corolla verið búin þverstæðri vél og framhjóladrifi, hjólabil hefur verið aukið, gólf ækkað, sætum breytt og dregið hefur verið úr loft- mótstöðu (0.34 Cd á Corolla Liftbackj.Corolla-Breyttur og Betri Bíll. KVMI! Corolla DL 4 dyra 327.000,- Corolla DL 5 dyra 349.000,- Nybylavegi 8 200 Kópavogi S. 91-44144

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.