Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1984 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1984 27 22 JMtogtmltffifeifr Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, simi 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuði innanlands. f lausasölu 20 kr. eintakið. Minni verðbólga til frambúðar? Arangur núverandi ríkis- stjórnar í baráttu við verðbólguna er óumdeilan- legur og gengur raunar kraftaverki næst. Stöðugt verðlag mánuðum saman hefur opnað augu fólks fyrir þýðingu þess að halda verð- bólgunni í skefjum. Þetta er mesti árangur, sem nokkur ríkisstjórn hefur náð í verð- bólgubaráttunni frá því að óðaverðbólgan hófst með valdatöku vinstri stjórnar- innar sumarið 1971. A miðju ári 1977 var þáverandi ríkis- stjórn undir forsæti Geirs Hallgrímssonar komin vel á veg að kveða verðbólguna niður, en kjarasamningar snemma sumars það ár gerðu þann árangur að engu. Jafnan síðan hefur mönnum verið ljóst, að varanlegur ár- angur mundi ekki nást í verðbólgumálum, nema að taka til hendi á mörgum sviðum í senn. Það fer ekkert á milli mála, að verkalýðshreyfing- in hefur að þessu sinni tekið mið af stöðu þjóðarbúsins í samningsgerð við vinnuveit- endur og Ser að meta það að verðleikum. Á hinn bóginn gætir vaxandi óróa á þeim vígstöðvum, sem vekur upp vondar minningar frá sumr- inu 1977, þegar verkalýðs- hreyfingin knúði fram óraunhæfa kjarasamninga. Sex árum síðar var verðbólg- an komin upp í 130%. Á und- anförnum árum hefur Sjálf- stæðisflokkurinn í stjórnar- andstöðu lagt ríka áherzlu á það í málflutningi sínum að draga bæri úr umsvifum ríkisins og skera niður ríkis- útgjöld. Framkvæmd þeirrar stefnu hefði verið veigamik- ill þáttur í því að sætta fólk viö þá tímabundnu kjara- skerðingu, sem leitt hefur af verðbólgubaráttunni. Því miður hefur Sjálfstæðis- flokknum ekki tekizt að koma þessari boðuðu stefnu í framkvæmd að því marki, sem nauðsynlegt hefði verið. í þeim efnum er ekki við samstarfsflokkinn í ríkis- stjórn að sakast, þar sem öll veigamestu ráðuneytin eru í höndum Sjálfstæðismanna. Vanmáttur Sjálfstæðis- flokksins við að koma fram umtalsverðum niðurskurði í ríkisgeiranum stofnar verð- bólgubaráttu ríkisstjórnar- innar í hættu. Fólkið í land- inu segir við stjórnmála- mennina: Við erum búin að taka á okkur það, sem okkur ber. Hvar er árangurinn á því sviði sem þið eru ábyrgir fyrir. Enn annar þáttur verð- bólgubaráttunnar, sem lítil hreyfing hefur komizt á er veruleg umsköpun í atvinnu- lífinu. Það er alveg ljóst, að ein undirrót óðaverðbólg- unnar í landinu er óhag- kvæmni í rekstri undirstöðu- atvinnuveganna. Margir töldu, að kvótakerfið mundi knýja fram aukna hag- kvæmni í sjávarútvegi. Svo undarlega bregður við, að Bæjarútgerð Reykjavíkur, sem nú lýtur nýrri forystu, virðist vera eina sjávarút- vegsfyrirtækið í landinu, sem hefur dregið réttar ályktanir af kvótakerfinu og dregið stórlega úr útgerðar- kostnaði með fækkun skipa, sem send eru á veiðar. Auð- vitað er það miklum tak- mórkunum háð, hvað ríkis- stjórnin getur gert í þessum efnum. Raunar á hún ekki að gera annað en skapa þau skilyrði, sem gera útgerðar- mönnum kleift að auka hag- kvæmni í rekstri. Fyrst og fremst verður að gera þá kröfu til þeirra, sem sjá um rekstur fiskiskipanna, að þeir við nýjar aðstæður í út- vegi leiti allra hugsanlegra leiða til þess að efla hag- kvæmni í rekstri þannig að aukinn hagnaður verði á fiskveiðunum, sem skilar sér fljótt í þjóðarbúinu. Á öðrum sviðum atvinnu- lífsins hefur orðið veruleg hreyfing. Þannig er ánægju- legt að fylgjast méð þeirri hröðu og jákvæðu þróun, sem nú ríkir í verzlun lands- manna. Verzlunarstéttin hefur tekið til höndum enda býr hún nú við meira frelsi en áður. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Stór- aukin samkeppni hefur leitt til lægra vöruverðs. Þannig hefur margt já- kvætt gerzt á síðustu 12 mánuðum, eftir að núver- andi ríkisstjórn tók við völd- um. Það er hins vegar á mis- skilningi byggt, ef menn ætla að svo miklum árangri hafi verið náð í verðbólgu- baráttunni að hægt sé að taka lífinu rólegar. Nú er það stóra verkefni eftir að sýna að þessi árangur geti staðið til frambúðar. 57 ára gamall maður fórst með Ásrúnu GK U * 57 ÁRA gamall maður, Eiríkur Gísla- son, fórst þegar Ásrún GK, 22 feta flug- fiskbátur sökk austur af Hrollaugseyj- um, um fjórar sjómílur frá landi, laust fyrir hádegi á sunnudag. Eiríkur var ásamt Agnari Daðasyni að sigla Ásúnu GK frá Reykjavík til Hornafjarðar. Þeir lögðu upp klukkan sjö á laugardags- morguninn. Klukkan liðlega átta að morgni sunnudags tilkynntu þeir sig til tilkynningaskyldunnar og höfðu skömmu síðar samband við Hornafjörð og bjuggust við að verða í Höfn um hádegisbilið. Síðan spurðist ekkert til þeirra og hófst eftirgrennslan upp úr hádegi. Þá flaug þyrla Landhelgisgæzlunnar með ströndinni frá Hornafirði vestur til Ingólfshöfða en flugmaður hennar varð einskis var. Flugvél Flugmála- stjórnar flaug síðar yfir svæðið en án árangurs. Um klukkan sex hófst leit af sjó og björgunarbátur með Agnar innanborðs fannst laust eftir klukkan 19.30 um sex sjómílur austur af Höfn. Agnar var þá mjög þrekaður og kald- ur. Leit að Eiríki hefur engan árangur borið. Fjörur hafa verið gengnar. Ym- islegt brak úr Ásrúnu hefur fundist, árar og brúsar. Eiríkur Gíslason var fæddur 23. nóvember 1926. Hann læt- ur eftir sig konu og þrjú börn. Ómar Fransson, stýrimaður á Æskunni, með árarnar úr Ásrúnu, sem fundust austur 22 feta flugflskbátur — samskonar og sökk austur af Hrollaugseyjum. af Hrollaugseyjum. „Var á nærbuxum og bol einum kiæða í álpoka“ Rætt við Ólaf Björn Þorbjörnsson, skipstjóra á Sigurði Ólafssyni Ólafur Björn Þorbjörnsson, skipstjóri á Sigurði Ólafssyni, við gúmmíbjörgunarbát- inn, sem Agnar Daðason hafðist við f. Hann heldur á álpoka, sem Agnar notaði til þess að halda á sér hita. „Skipbrotsmaðurinn var mjög kaldur þegar við komum að honum. Hann var á nærbuxum og bol einum klæða í álpoka. Mun hafa farið úr blautum lotunum til þess að freista þess að ná á sig hita. Hann skalf mjög, en var fljótur að jafna sig Jiegar hlúð var að honum,“ sagði Olafur Björn Þorbjörnsson, skipstjóri á Sig- urði Ólafssyni frá Höfn í Hornafirði, sem fann gúmmíbjörgunarbátinn um sex sjómflur vestur af Höfn. „Við vorum kallaðir út um klukk- an sex. Héðan fóru sjö bátar og sigldum við austur með landi með tæplega mílu millibili. Við fundum björgunarbátinn um klukkan 19.30. Gott var í sjó og gekk greiðlega að ná skipbrotsmanninum um borð og bátnum og að því loknu héldum við til Hafnar. Aðrir bátar héldu áfram leit langt fram á kvöldið," sagði Ólafur Björn. Leit haldið áfram næstu daga „REIKNAÐ VAR MEÐ Ásrúnu hingað um hádegisbilið. Báturinn hafði tilkynnt sig klukkan 8.05 um morguninn og var í talstöðvar- sambandi við Hornafjörð um klukkan hálfníu. Þá var báturinn undan Ingólfshöfða. Þegar báturinn kom ekki um hádegisbilið var farið að svipast um eftir honum. Þyrla Landhelgisgæzlunnar var hér á Höfn og var henni flogiö vestur með ströndinni allt vestur að Ingólfshöfða, en sú leit bar engan árangur. Flugvél Flugmála- stjórnar leitaði skömmu síðar, en einnig án árangurs. Það var svo laust fyrir klukkan 17 að víðtæk leit hófst,“ sagði Guðbrandur Jóhannsson, formaður Björgunarsveitarinnar á Höfn, í samtali við blm. Mbl. „Ég hafði samband við skipstjóra á flotanum hér og þeir brugðust fljótt og vel við og lögðu sex úr höfn upp úr klukkan sex. Fjörur voru gengnar, bæði á svæði sveitarinnar hér í Höfn og einnig gengu félagar í björgunarsveitinni Kára í Öræf- um. Það var svo um klukkan 19.30 að gúmmíbáturinn fannst með skip- brotsmanninum. Hann var þá um sex sjómílur vest-suðvestur af Höfn. Skipbrotsmaðurinn var kald- ur og hrakinn þegar skipverjar á Sigurði Ólafssyni fundu hann. Þeir sneru til lands, en aðrir bátar héldu áfram leit, en án árangurs. Tvær árar úr bátnum fundust og hringur, en annað ekki. Leit að skipverjan- um, sem saknað er, hefur engan árangur borið, en verður haldið áfram, og verða fjörur gengnar. Ég vil þakka öllum sem þátt hafa tekið í þessari leit," sagði Guð- brandur Jóhannsson. Guðbrandur Jóhannsson, formaður björgunarsveitarinnar í Höfn. MorgunblaðiJ/RAX. Trilla Óskars, sem Sólveig ÞH dró til hafnar á Þórshöfn á lostudaginn. Morfpinblaðid/Porkell. Þórshöfn: Leit árangurslaus bórshöfn, 14. nui. LEIT AÐ Óskari Jónssyni, sem saknað er síðan trilla hans fannst mannlaus á Fóstudag, hefur ekki borið árangur. Félagar í björgunarsveitinni Haf- liða á Þórshöfn gengu um helgina fjörur beggja megin Þistilfjarðar og frekari leit er fyrirhuguð á morgun. Óskar Jónsson er 66 ára, til heim- ilis að Eyrarvegi 6. Hann er kvæntur maður og eiga þau hjón uppkomin börn. Fréttaritari. Bjórmálið á Alþingi: „Óskum eftir afgreiðslu á málinu frá nefnd í dag“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, varafor- maður allsherjarnefndar Sameinaðs þings „ÞAÐ hefur komið til umræðu hjá okkur, að við leitum afbrigða til þess að fá þessa þingsályktunartillögu af- greidda frá nefndinni, ef formaðurinn fæst ekki til þess að afgreiða málið,“ sagði Stefán Benediktsson alþingis- maður í samtali við blm. Mbl. í gær, er hann var spurður hvort meirihluti alls- herjarnefndar Sameinaðs þings hefði einhverjar sérstakar ráðstafanir í huga, ef Ólafur Þ. Þórðarson, formaður alls- herjarnefndarinnar, ncitaöi að taka þingsályktunartillöguna um þjóðar- atkvæðagreiðslu um bjór á dagskrá fundar nefndarinnar nú fyrir hádegi. Stefán sagði jafnframt að það væri enn ekki sannað mál að for- maðurinn fengist ekki til þess að af- greiða málið frá nefndinni, en á það yrði látið reyna á þessum fundi nefndarinnar nú fyrir hádegi. Jó- hanna Sigurðardóttir, alþingismað- ur, er varaformaður nefndarinnar og tók hún undir orð Stefáns í samtáli við blm. Mbl. Jóhanna sagöi: „Við munum óska eftir afgreiðslu á mál- inu, og ef þeirri ósk verður synjað, þá skilar meirihlutinn einfaldlega áliti.“ Aðalfund- ur VSÍ hald- inn í dag - Þórarinn Sigurjónsson formaður Þingvallanefndar: byggt varanlegt á þessum stað Tæplega húsnæði „ÞAÐ ER búið að samþykkja að reisa þetta hús, en það er ekki búið aö gera heildarskipulag að Þingvallarsvæðinu. Þess vegna er ekki hægt að taka loka- ákvörðun um þetta, enda er hér um að ræða bráðabirgðahúsnæði til að leysa þann vanda sem við eigum við að fást núna,“ sagði Þórarinn Sigurjónsson formaður Þingvallanefndar, er hann var spurður hvort Þingvallanefnd hefði samþykkt að láta reisa timburhús á lóð Þingvallabæjar. Þórarinn sagði að hið nýja hús ætti að hýsa starfsmenn þjóðgarðs- ins, en hingað til hefðu verið teknir á leigu húsvagnar yfir sumartimann til afnota fyrir þá. Aðspurður um af hverju þessi staður hefði verið val- inn, en ekki einhver annar, sagði Þórarinn: „Þessi staður var nú val- inn sérstaklega vegna þess að hann er ekki langt frá Þingvallabæ. Þetta er gamla bæjarstæðið þar sem úti- húsin voru, en það er ekkert á þess- um stað núna.“ Þórarinn tók sérstaklega fram að hér væri einvörðungu um bráða- birgðahúsnæði að ræða, sem færa mætti síðar á annan stað, ef nýtt skipulag krefðist þess. Hann var þá spurður hvað liði hinu nýja skipu- lagi. Hann sagði það hafa verið í vinnslu í nokkur ár og engan veginn ijóst, hvenær niðurstaðna væri að vænta. Hann sagði: „Við höfum ekki mikið fjármagn og fáum sjálfsagt ekki fjármagn til að vinna það af neinum krafti, en það er verið að skoða möguleika á því. Ég held þó að við gætum þurft að bíða eitthvað eft- ir þeim niðurstöðum." Þórarinn var spurður í 'lokin, hvort hann byggist við að nýtt skipulag heimilaði hús á þessum stað. Hann svaraði: „Það yrði tæp- lega byggt hús á þessum stað sem yrði varanlegt húsnæði. Ég býst við að þetta hús yrði þá fært á þann stað sem ákveðinn yrði fyrir húsnæði starfsmanna þjóðgarðsins og Þing- vallanefndar, en það er engin leið að sjá fyrir núna, hvar það staðarval yrði.“ AÐALFUNDUR Vinnuveitendasam- bands íslands, sá fimmtugasti í röð- inni, verður haidinn í dag í Kristalsai Hótel Loftleiða. Fundurinn hefst kl. 9.30 með ræðu formanns VSÍ, Páls Sigurjónssonar, og að ræðu hans lok- inni flytur Jón Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri íslenska járnblendifé- lagsins, ræðu þar sem hann hugleiðir brýn verkefni í atvinnurekstri á ís- landi. Ragnhildur Helgadóttir, mennta- málaráðherra, mun að loknu hádeg- isverðarhléi flytja ræðu um atvinnu- lífið og menntamálin og að henni lokinni taka við hefðbundin aðal- fundarstörf fram eftir degi. Vinnuveitendasambandið verður 50 ára 23. júlí nk. og mun sambandið minnast afmælisins síðar á árinu undir kjörorðinu „Öflugt atvinnulíf — betri lífskjör". Félagsmenn VSÍ eru nú um 3.000 talsins og spannar atvinnurekstur þeirra allar atvinnu- greinar landsmanna. Formaður samtakanna er eins og áður segir Páll Sigurjónsson og framkvæmda- stjóri þeirra er Magnús Gunnarsson. Bolungarvík: Meimingarvikan Bolungarvík, 14. maí. VORDAGAR, menningarvika okkar Bolvíkinga, hófst í gær. Meðal þeirra listamanna, sem heimsækja okkur á Vordögum, er hinn stórbrotni myndlistarmaður Baltasar. Mun hann sýna verk sín í ráðhúsi Bolungarvíkur alla daga vikunnar og er sýningin opin frá 16.00 til 22.00. Fréttaritari Morgunblaðsins ræddi við Baltasar í þessu til- efni. Hann kvaðst sýna hér 50 verk, aðallega olíumálverk, en auk þess nokkurar tússmyndir. Verk þessi eru aöallega unnin á árunum 1983 til 1984. Meðal verka á sýningunni eru nokkrar myndir, sem hann sagðist hafa verið með á sýningu á Kjar- valsstöðum nú fyrir stuttu. Balt- asar sagði, að það kæmi sér verulega á óvart hvað aðstaða til myndlistarsýninga er góð hér í Vordagar hafin ráðhússalnum og kvaðst hann þátt í þessum Vordögum. Baltas- óhikað geta mælt með þessum ar hefur ákveðið að efna til list- stað til listsýninga. Til að mynda kynningar í grunnskólanum sagðist hann geta sýnt hér allra næstkomandi sunnudag fyrir stærstu myndirnar, sem hann áhugafólk um myndlist, þar sem hefði verið með á Kjarvalsstöð- hann mun fjalla um listsköpun um. og útskýra tæknileg og listræn atriði myndlistar. Það verður án Baltasar sagðist vera mjög efa fróðlegt að hlýða á og ræða hrifinn af þessari menningar- við listamanninn Baltasar um viku Bolvíkinga, og ánægður yfir þessi efni. því, að hafa átt þess kost að taka Gunnar. Get óhikað mælt með Ráðhússaln- um til listsýninga — segir myndlistarmaðurinn Baltasar Bolungarvík, 14. maí. DAGSKRÁ Vordaga, menningar- viku okkar Bolvíkinga, hófst í gær með hátíðaguðsþjónustu í Hóls- kirkju. Þar prédikaði séra Gunnar Björnsson, sem var sóknarprestur okkar Bolvíkinga um 10 ára skeið. Séra Jón Ragnarsson þjónaði fyrir altari. Kirkjukór Bolungarvíkur söng, en einnig söng samkór Karlakórs ísafjarðar og karlakórs- ins Ægis í Bolungarvfk. Klukkan 16.00 voru opnaðar sýningar á myndlist heima- manna og heimilisiðnaðarsýning að ógleymdri málverkasýningu Balthasars. Aðsókn aö þessum sýningum var mjög góð. Um kvöldið var síðan dagskrá í Fé- lagsheimili Bolungarvíkur, sem byggð var á tónleikum í tilefni vígslu nýs flygils. Flygill þessi, sem er mjög vandaður, er af gerðinni Stanley og sons, var af- hentur Félagsheimilinu að gjöf frá fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum hér í Bolungar- vík. Að afhendingu lokinni lék síðan Halldór Haraldsson, píanóleikari, nokkur verk á hljóðfærið af sinni alkunnu snilld og við mikinn fögnuð áheyrenda. Á síðari hluta dagskrárinnar söng Ágústa Ágústsdóttir, söngkona, við undirleik séra Gunnars Björnssonar, og að lok- um léku þeir saman Halldór Haraldsson, píanóleikari, og séra Gunnar Björnsson, selló- leikari. Listafólkið var marg- kallaö fram og kunnu áheyrend- ur vel að meta framlag þess til listavikunnar. Þetta kvöld í Fé- lagsheimilinu verður þeim er nutu án efa minnisstætt. Gunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.