Morgunblaðið - 15.05.1984, Page 20

Morgunblaðið - 15.05.1984, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAl 1984 Úrskurður Hæstaréttar Bandaríkjanna: Leiðtogi Moonista fer í fangelsi Washington, 14. maí. AP. Hæstiréttur Bandaríkj- anna vísaði í dag á bug þeirri ásökun séra Sun My- ung Moon, leiðtoga svo- nefndrar Sameiningar- kirkju, að réttarhöld yf- ir honum, sem leiddu til 18 mánaða fangelsisdóms vegna skattsvika, hafi verið ranglát og hann fórnarlamb trúarofsókna. í framhaldi af þessum úr- skurði hefur Rudolph W. Giuli- ani, saksóknari í Washington, tilkynnt lögfræðingi séra Moons að hann eigi að byrja að afplána dóminn 18. júní nk. Séra Moon heldur því fram að peningar þeir, sem hann er sakaður um að hafa svikið undan skatti, séu eign Sameiningar- kirkjunnar, en yfirleitt eru kirkjur í Bandaríkjunum undan- þegnar skattgreiðslum. Dómstóll féllst ekki á þá skýringu, enda reikningar kirkjunnar á hans nafni, og komst að þeirri niður- stöðu að séra Moon hefði brotið skattalögin. Hann var auk fang- elsisdómsins skikkaður til að greiða sekt að upphæð 25 þúsund dollara. Séra Sun Myung Moon Sprenging í Aþenu Sfmamynd AP. Stórslasaöur vegfarandi er borinn til sjúkrabifreiöar, eftir aó öflug sprenging tætti matsölustað í miðborg Aþenu í sundur í dag. 18 manns særðust, þar af 8 lífshættulega. Ekki lá Ijóst fyrir hvort gasleki hafði valdið sprengingunni, eða hvort um hryðjuverk var að ræða. Daily Mail: Tilbúnir að senda herlið til Líbýu Lundúnum, 14. maí. AF. BRESKA DAGBLAÐIÐ Daily Mail greindi frá því á sunnudaginn, að Margret Thatcher, forsætisráðherra Breta, væri reiðubúin að senda herlið til Líbýu ef á hina 8.000 Breta í landinu yrði ráðist, eða ef lífi þeirra og limum væri ógnað. Blaðið greindi frá því að hernaðar- sérfræðingar hefðu samið áætlun sem miðaði að því að flytja alla Breta frá Líbýu ef til áraáa eða áreitni kæmi og var niðurstaða þeirra að slíkt mætti takast, en þó ekki án mikils mannfalls og her- gagnatjóns. Richard Luce, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bretlands, sem er á ferða- lagi í Túnis, sagði í samtali við fréttamenn í dag, að Líbýumenn yrðu að hætta röngum og ósann- gjörnum ásökunum í garð Breta ef þeir vildu halda áfram viðskiptum. Walter Rauff. St* <tm Bolholt 0 Suðurver Sæluvika í Bolholti 18. maí — 24. maí. Nú brettum viö upp ermar og þær allra höröustu bregöa sér á Sælu- viku. Hörku púl og svita vika. 80 mín. tímar alla daga vikunnar. 20 mín. Ijós — heilsudrykkur á eftir. Tímar kl. 9 nokkur pléss laus. Kl. 13.30 lausir tímar. kl. 20 fullbók- aö. Á laugardögum og sunnudögum eru allir flokkar fyrir hádegi. Verö kr. 1.000. Kennari: Bára Magnúsd. Innritun stendur yfir. 2ja vikna námskeiö þrisvar sinnum í viku. 28. maí—7. júní. 50 mín. tímar. Nýtt Amerískt kerfi mánud. þriöjud. og miövikud. Kl. 6.30 nokkur pláss laus. Kl. 7.30 laus pláss. Kl. 8.30 nokkur pláss laus. Gestakennari: Bjargey Ólafsson frá Elaine Powers Figure Salon, Michican USA. Gjald kr. 600.- Innritun er hafin í síma 36645. Seinni sæiuvika 12. júní—18. júní. Sömu tímar og áöur. Innritun stendur yfir í síma 36645. Seinni 2ja vikna námskeiö 19. júní—29. júní. Gestakennari: Bjargey Ólafsson. Sömu tímar og áöur. Innritun stendur yfir í síma 36645. Sjáumst. w Suðurver — sumarnámskeið Stutt og strangt 3ja vikna námskeið fjórum sinnum í viku 21. maí — 7. júní. Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri. Morgun- dag- og kvöldtímar. Lausir tímar fyrir vaktavinnufólk. Sturtur — Sauna — Ljós. Innritun stendur yfir, sími 83730. Vigtun — Mæling. 50 mín. kerfi J.S.B. Allir finna flokka viö sitt hæfi í Suðurveri. Leitið uppl. um flokka fyrir framhald, byrj- endur eða rólegri æfingar. Kennarar: Margrét — Sigríður — Anna. Námskeiðsgjald kr. 1100,- Líkamsrækt JSB Rauff látinn Santígaó, 14. maí. AP. ÞÝSKI stríðsglæpamaöurinn Walter Rauff, fyrrum ofursti í SS-sveitum nasista, lést í dag í Santíagó í Chile, 77 ára aö aldri. Banamein hans var hjartabilun. Ríkisstjórnir fsraels og Vestur- Þýskalands höfðu margsinnis krafist þess að fá Rauff framseld- an, en stjórnvöld Chile féllust aldrei á það. Rauff er talinn bera ábyrgð á dauða a.m.k. 97 þúsund gyðinga í Austur-Evrópu i síðari heims- styrjöldinni. Húð af sauð- kind grædd á smábarn Kabat, Marokké, 14. maí. AP. HÓPUR KÍNVERSKRA lækna lauk í gær við að græða skinn af sauðkind á 3 mánaða gamalt barn á sjúkra- húsi í Casablanca. Er þetta í fyrsta skipti sem húð af sauðkind er notuð til slíks. Kornabarnið hafði fallið úr höndum móður ofan í pott með sjóðandi vatni og hlotið þriðja stigs bruna víða um líkamann. Áð- ur hefur svínshúð verið notuð á fólk og kom það til álita í þessu tilviki, en þegar rannsóknir bentu til þess að barnslíkaminn myndi ekki hafna sauðkindarhúðinni, þótti hún hentugri. írakar sökkva skipum Hagdad, 14. maí. AP. YFIRVÖLD í ÍRAK sögðu í dag, að herþotur þeirra hefðu hæft „tvö skot- mörk" á Persaflóa skammt frá Kharg- eyju. Stjórnvöld í fran gáfu ekkert út á yfirlýsingu íraka. Talsmaður fraka sagði að frökum hefði orðið svo vel ágengt með loft- árásum sínum að undanförnu, að þeir væru menn til að standa við yfirlýsingar sínar um að halda uppi hafnbanni á fran. Hann gat þess ekki hvort skotmörkin voru olíu- flutningaskip eða varðbátar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.