Morgunblaðið - 15.05.1984, Qupperneq 24
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAl 1984
Allt við
það sama
Ríkissáttasemjari hefur enn
ekki boðað til nýs sáttafundar í
flugmannadeilunni, og er því allt
við það sama í því máli, en flug-
menn Flugleiða hafa eins og
kunnugt er boðað þriggja daga
verkfall um næstu helgi, frá föstu-
degi til sunnudags.
Fundað var í virkjanadeilunni
hjá ríkissáttasemjara í gær, og
lauk fundinum síðdegis. Aðilar í
virkjanadeilunni koma á ný til
fundar kl. 10 í fyrramálið. Þá
komu rafvirkjar hjá Reykjavík-
urborg til fundar við viðsemj-
endur sína hjá sáttasemjara í
gær. Stóð þeirra fundur til kl.
15.30 í gær og þeir hafa verið
boðaðir á annan fund nú á
fimmtudagsmorgun. Leiðsögu-
menn felldu sína samninga fyrir
liðlega einni viku, og koma þeir
á fund á nýjan leik hjá ríkis-
sáttasemjara kl. 14 í dag.
Fyrirlestur um
uppeldi og sér-
þarfir nemenda
KENNETH R. Jones sálfræðingur
og sérfræðingur um sérkennslu-
mál á Englandi flytur fyrirlestur í
Kennaraháskóla íslands við
Stakkahlíð miðvikudaginn 16.
maí, kl. 17.00 í stofu 301, á vegum
Félags íslenskra sérkennara.
Fyrirlesturinn fjallar um
samviskukröfur okkar tíma:
Uppeldi nemenda með sérþarfir
og hið margþætta fræðasvið
sérkennslunnar.
Tveir seldu
erlendis
TVÖ ÍSLENSK fiskiskip seldu
afla sinn í Þýzkalandi í gær. Afli
þeirra var að mestu karfi og grá-
lúða og meöalverð fremur lágt.
Karlsefni RE seldi 282,1 lest í
Bremerhaven. Heildarverð var
5.414.100 krónur, meðalverð
19,19. Ýmir HF seldi 131,9 lestir
í Cuxhaven. Heildarverð var
2.324,500 krónur, meðalverð
17,63.
Býr á Hellu
í FRÉTT MBL. á sunnudaginn um
„fimm ættliði" var ranglega sagt
að Jörundur Gestsson byggi í
Reykjavík. Hann býr á Hellu við
Steingrímsfjörð, en Magnús sonur
hans býr að Efstasundi 4 í Reykja-
vík. Mbl. biðst velvirðingar á þess-
um mistökum.
Nú ertu velkominn
til kl.6 á föstudögum
Hversu oft hefuröu ekki óskað þér aö bankarnir
væru opnir aðeins lengur þegar þú ert á hlaupum
síödegis á föstudögum?
Nú ríður Sparisjóður vélstjóra á vaðið og opnar af-
greiðslu sína fyrir öll almenn bankaviðskipti til
klukkan sex á föstudögum, í stað hins venjulega
fimmtudagstíma bankanna. Með hinum nýja sam-
fellda opnunartíma, kl. 9.15-18.00 alla föstudaga,
veitist þér langþráð tækifæri til að gera klárt fyrir
helgina og njóta frídaganna áhyggjulaust.
Þessi nýjung er okkar leið til að sinna því grundvall-
armarkmiði að veita viðskiptavinum okkar eins
góða bankaþjónustu og frekast er unnt. Vertu
velkominn í Sparisjóð vélstjóra - nú bíðum við þín
til klukkan sex á hverjum föstudegi.
SPARISJÓÐUR
VÉLSHÓRA
Borgartúni 18 Sími
28577
Austurbæj-
arbíó sýnir
Breakdance
AUSTURBÆJARBÍÓ hefur hafið
sýningar á kvikmyndinni „Break-
dance“ sem er ný bandari.sk
kvikmynd um þetta nýja fyrir-
brigði í bandarískri dansmennt,
sem farið hefur eins og eldur í
sinu um allan hinn vestræna
heim. Tónninn í myndinni er í
Dolby stereo.
Söguþráður myndarinnar
tengist danskeppni og í mynd-
inni eru íslenzkir textar. Mynd-
in er gerð af Cannon Films Og
dansa samdi Jaime Rogers.
Úr myndinni Breakdance.
Alþingi:
Sjö lög afgreidd
í síðustu viku
Sjö frumvörp urðu að lögum á
Alþingi í síðustu viku, fimm frá
neðri deild en tvö frá efri deild.
Frá efri deild voru samþykkt
eftirtalin lög: Um breytingu á
lögum frá 1970 um skipamæl-
ingar, samþykkt 7. maí, og um
breytingu á lögum nr. 50/1981
um hollustuhætti og heilbrigðis-
eftirlit, samþykkt 9. maí.
Frá neðri deild: Um heimild
fyrir ríkisstjórnina til að selja
Viö kynnum aukna Þjónustu
lagmetisiðju ríkisins í Siglu-
firði, samþykkt 9. maí; um
heimild fyrir ríkisstjórnina til
að selja jörðina Þjóðólfshaga I í
Holtahreppi, Rangárvallasýslu,
samþykkt 9. maí; um heimild
fyrir ríkisstjórnina til að selja
jörðina Bæjarstæði í Seyðis-
fjarðarhreppi, N-Múl., sam-
þykkt 9. maí; um heimild fyrir
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs
til að ábyrgjast lán fyrir Arnar-
flug hf., samþykkt 11. maí, og að
lokum lög um breytingu á lögum
nr. 120 31. desember 1976 um
tollskár o.fl., með síðari breyt-
ingum, samþykkt 11. maí.
Flugmannadeilan: