Morgunblaðið - 15.05.1984, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1984
47
Ein myndanna á sýningunni í Kaup-
mannahöfn.
Tónlistarskólinn
Stykkishólmi:
40 nemend-
ur komu fram
á tónleikum
Tónlistarskóla Stykkishólms
var nýlega slitió með tónleika-
haldi í Félagsheimili Stykkis-
hólms. Kennarar við skólann
voru tveir fastráðnir og svo þrír
stundakennarar. Starfsemi
skólans var á tveim stöðum í
baenum. Kennt var á píanó,
orgel, blásturshljóðfæri, gítar
og harmonikku.
Skólastjórinn, Daði Þór
Einarsson, kvaðst vera
ánægður með þann árangur
sem unnist hefði í vetur.
Á tónleikunum komu 40
nemendur skólans fram, en
alls voru skráðir nemendur í
skólanum 84.
Margir voru viðstaddir
skólaslitin og létu vel af.
í lokin komu fram eldri
nemendur skólans og komu
með skemmtileg efni sem lífg-
uðu mjög upp á kvöldið.
Tónlistarskólinn hefur nú
starfað í rúm 20 ár hér í
Stykkishólmi.
Árni
ahgyáMhtfii'
Ólafur Ketilsson — þær eru margar
ferðirnar, sem hann hefur farið yfir
gömlu brúna.
hafa lent í ánni í vetur. Hann fór
þó ekki í hylinn.
ólafur Ketilsson, hinn gamal-
reyndi bílstjóri, telur að þakka
megi því að ekki varð slys við
brúna, hversu ógnarleg hún hafi
verið og jafnvel ökufantur hafi
sefast við aðkomu að brúnni og
skipt niður í hæggengari gír. Nýja
brúin er tvíbreið og hin fallegasta
á að líta. í frétt frá fréttaritara
Mbl. segir að íbúar Grímsness,
Laugardals og Biskupstungna séu
fegnir tilkomu brúarinnar, sem
hafi verið orðin tímabær vegna
aukins fjölda ferðamanna, sem
leið á um þessar slóðir á hverju
sumri.
Islenzkar ljósmyndir á sýningu í Kaupmannahöfn
Jón.shúsi, 3. maí.
í dag var opnuð sýning Nönnu Biich-
ert og Vibeke Bengtsson f Galleríinu
hjá Strenge í Pílustræti. Nanna er upp-
aiin á íslandi og mörgum að góðu kunn
heima, ekki sízt eftir sýningu hennar í
Reykjavík 1978, sem fjölmargir sáu.
Auk ljósmynda Nönnu og mál-
verka Vibeke sýna þær stöllur sam-
an svokallaða seriografi. Hafa þær
áður sýnt saman m.a. á Tækniskól-
anum í Haslev nú í vor. Sérstaka
athygli vekur ljósmyndasyrpa
Nönnu, sem hún kallar „Esso Blues“,
en þær myndir eru teknar í Hafnar-
firði 1982 við stóru olíutankana.
Mynda fáeinar birkihríslur, sem
berjast fyrir lífi sínu við tankana
sérkennilegt mótvægi við hvíta vegg-
ina. Þá gefur að líta nýjar myndir
Nönnu af suðlægari slóðum og leika
þar m.a. litir og hreyfingar sands og
vatns.
Nanna hefur lengi lagt stund á
ljósmyndatækni, en kveikjan að
þeim áhuga eru störf hennar við
blaðið Samvirke, þar sem eiginmað-
ur hennar er ritstjóri. Nanna var
valin af Dönum til að sýna ljós-
myndir á sýningunni „Scandinavia
Today" í Bandaríkjunum og einnig
hefur hún iðulega sýnt á vor- og
haustsýningum á Charlottenborg. Á
næstunni munu nokkrar mynda
hennar birtar í tímaritinú Storð.
G.L. Ásg.
bjóöum aðeins
gæðagrípi
Fullkomin varahluta- og viðgeröaþ]ónusta
Pekking - öryggi - reynsla
Mesta úrval landsins af þekktum viðurkenndum merkjum
10 ára ábyrgð.
Sérverslun i meira en hálfa öld
.. Reióhjólaverslunin
ORNINN
Spítalastíg 8
Símar: Verzl.: 14661 S. 26888
PEICEOT
A KALKHOFF
✓v
n. tí v u i ma j
wm.
■T -1
■ ;y
FRABÆRT
UNDRAEFNI
Firmaloss
Firmaloss-kúrar fyrir þá .
sem vilja grenna sig.
Stöðin er opin fyrir frjálsar
mætingar þriöjudaga,
fimmtudaga og laugar-
daga 14—22.
Innritun frá kl. 13—18 í
síma 35000.
Námskeið fyrir
konur — kennsla
í líkamsrækt með tækjum í 2 sölum, tækjasal
og upphitunarsal. Kennsla og ráögjöf í mat-
aræöi o.fl. Meginahersla lögö á brjóst, lendar
og mitti.
Leiðbeinendur: Hrafnhildur Valbjörnsdóttir, sem haldið
hefur bikarnum sem islandsmeistari í vaxtarrækt í tvö
ár, og Ómar Sigurðsson sem er núverandi íslandsmeist-
ari í júdó í 78 kg þyngdarflokki, ásamt Daöa Daöasyni.
Kennt er á mánudögum, miövikudögum og föstudög-
um frá 14—22.
Konur
Nú bætum við við þriöjudögum og fimmtudögum frá
kl. 14—22 og laugardögum frá kl. 11—17.
Viö notum eingöngu hin frábæru Weider-líkamsrækt-
artæki. Weider er einn fremsti og virtasti frömuöur í
líkamsrækt sl. 40 ár.
1
. L< ht A - —
Í/A a//
^Of
ll $
u i 6 3 ’r
8<IVI(llil<l‘Kllll
K
DUGGUVOGI 7 - REYKJAVÍKISími 35000.
J L