Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1984 Flugmenn um lagasetningunæ Löggjöfín hef- ur aldrei leyst neinn vanda „AUÐVITAÐ finnst okkur hart að við skulum sjaldnast fá að vera í friði fyrir ríkisvaldinu, þegar við er- um að reyna að semja við atvinnu- veitendur okkar,“ sagð Björn Guð- mundsson, flugmaður, formaður samninganefndar Flugleiðaflug- Flugleiðir um lagasetninguna: Farsælast að leysa samn- ingamál með samningum manna, er blm. Mbl. spurði hann í gær hvert álit flugmenn hefðu á frumvarpi því sem Matthías Bjarna- son, samgönguráðherra, lagði fram á Alþingi í gær til að koma í veg fyrir verkfall flugmanna, en Björn tók það jafnframt fram að hann hefði ekki enn haft tækifæri til þess að kynna sér einstök efnisatriði frum- varpsins. Björn sagði jafnframt: „Þau lög sem ríkisvaldið hefur hingað til sett á okkur í kjaradeilum okkar, en það hefur gerst fimm eða sex sinnum frá því 1960, hafa aldrei leyst nokkurn vanda, heldur hafa þau aukið vanda atvinnurekenda og ég á fastlega von á að því verði einnig þannig varið þessu sinni. Ég held að það verði verr farið en heima setið fyrir Flugleiðir að biðja um þessi iög og fá þau.“ Morgunbladid/ Bering Cecilsson. Lömbin ganga undir tíkinni Það er ekki á hverjum degi, sem tík tekur að sér tvö lömb í fóstur og gangi þau undir henni ásamt tveggja mánaða gömlum hvolpi. Þetta gerðist þó á bænum Kverná í Eyrarsveit fyrir nokkru. Þar drapst ær um 14 dögum fyrir burð, en lömb- unum tveimur tókst að bjarga og voru þau tekin heim á bæinn. Um nóttina svengdi lömbin og voru þau komin á spena hjá tíkinni um morguninn. Lömbunum og tíkinni semur vel og hvolpurinn un- ir þessum félagsskap hið besta, svo varla er hægt að segja, að blessuð lömbin hafi fengið tíkarlegar móttökur, eða hvað. Könnun á möguleikum tengdum nýtingu gufuafls: Gufuframleiðsla hér mik- ið ódýrari en í Skotlandi „Samkeppnisaðstaða okkar við aðrar þjóðir mjög góð,“ segir formaður stóriðjunefndar „ÞAÐ ER okkar skoðun, að farsæl- ast sé að leysa samningamál með samningum,“ sagði Erling Aspelund framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Flugleiða er blm. Mbl. spurði hann í gær hvert álit forráðamenn Flug- leiða hefðu á lagasetningunni sem nú kemur í veg fyrir verkfall flug- manna Flugleiða á morgun. „Við gerum okkur hins vegar grein fyrir því,“ sagði Erling, „að það getur skapast slíkt neyðar- ástand að löggjafinn sé tilneyddur að grípa inn í með lagasetningu. Flugleiðir hafa ekki óskað eftir lagasetningu í þessu máli, en það er engu að síður staðreynd, að verulega ber á milli og að aðgerðir flugmanna nú, hafa skapað veru- leg óþægindi fyrir farþega félags- ins. Þetta hörmum við og vonumst til að sættir takist sem allra fyrst í þessu máli.“ Erling var spurður álits á því hvort hann teldi að svona löggjöf leysti vandann: „Nei, það teljum við ekki. Það er nú m.a. ástæðan fyrir því að við höfum ekki óskað eftir lagasetningunni. Við teljum að lög leysi ekki málið, þó þau forði verkföllum. En hingað til hafa flugmenn ekki verið reiðu- búnir til þess að slaka neitt á sín- um kröfum, en vonandi kemur sá tími að það verði." Myndasögur Moggans MYNDASÖGUR Moggans, sem að jafnaði fylgja Morgunblað- inu á fimmtudögum munu að þessu sinni koma út næstkom- andi laugardag. GUFUAFL okkar íslendinga og möguleikar sem nýting þess gefa okkur íslendingum er nokkuð sem menn velta nú fyrir sér af meiri alvöru, en oft áður. Til að mynda hefur bandarískt sérfræðifyrirtæki verið fengið til ráðgjafar íslenskum aðilum á þessu sviði, og verður var- ið í þá athugun um 1,2 milljónum króna, samkvæmt því sem Birgir ísleifur Gunnarsson, formaður stór- iðjunefndar, upplýsti blaðamann Morgunblaðsins. „Eg er þeirrar skoðunar, að það hafi allt of lítið verið gert af því að kanna með skipulegum hætti hvernig við íslendingar getum nýtt gufu til iðnaðarframleiðslu," sagði Birgir ísleifur í samtali við blm. Mbl. Hann sagðist ekki eiga þar við raforkuframleiðslu með gufu, heldur val á iðnaðarkostum sem notuðu gufu beint við sína framleiðslu. Hann nefndi sem dæmi súrálsframleiðslu og fram- leiðslu vítamína. „Tölur sýna,“ sagði Birgir ís- leifur, „að við getum framleitt gufu fyrir 1,5 dollara á tonnið hér, þegar verið er að framleiða samskonar gufu til iðnaðar í Skotlandi með kolum fyrir 5 doll- ara. Við höfum því upp á mikið að hlaupa, hvað varðar samkeppn- isstöðu við aðrar þjóðir um gufu- frekan iðnað." Birgir ísleifur sagði að Iðn- tæknistofnun hefði unnið að at- hugun þessara mála um alllang- an tíma og nú hefði verið ákveðið í samvinnu við stóriðjunefnd og iðnaðarráðuneytið að fá banda- rískt fyrirtæki, Batelle, til þess að gera tillögur um hvaða iðnað- arkostir sem nota gufu, hentuðu hér á landi. Sagði Birgir ísleifur að í þetta verkefni, sem unnið yrði í náinni samvinnu við Iðn- tæknistofnun íslands, yrði varið 1,2 milljónum króna. Birgir ísleifur sagði að tækni- lega séð væri erfiðasta vandamál- ið varðandi nýtingu gufunnar, það hversu erfitt það væri að flytja hana á milli staða, og því yrðu þau fyrirtæki sem færu út í iðnaðarframleiðslu með gufunýt- ingu, að vera nálægt höfn, en vandinn væri hins vegar sá að flest okkar gufusvæði væru fjarri höfn, og jafnvel fjarri manna- byggðum. Sagði hann að menn litu því einkum til Reykjaness, þegar þeir hugleiddu staðsetn- ingu á slíkum fyrirtækjum, en það uppfyllti bæði þau skilyrði að vera með gufusvæði nærri höfn og nærri mannabyggðum. | MorjfunblaAMy/JúlfuR. Stal jeppa af bílasölu og velti í Hvalfirði Fundur f stjórn verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins: Framkvæmdastjórnin harðlega gagnrýnd Á FUNDI stjórnar verkalýðsmála- ráðs Alþýðubandalagsins í fyrra- kvöld kom fram hörð gagnrýni á framkvæmdastjórn verkalýðsmála- ráðsins vegna þeirrar samþykktar sem framkvæmdastjórnin gerði nú í aprflmánuði sl. þar sem ritstjóm- arstefna Þjóðviljans i verkalýðs- málum var gagnrýnd harðlega, og árásir blaðsins á forystu ASI. Fólst gagnrýnin einkum í því, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins, að menn töldu að fram- kvæmdastjórnin hefði með þess- ari samþykkt beitt gjörræðisleg- um vinnubrögðum og farið út fyrir sitt verksvið. Töldu þeir sem gagnrýndu framkvæmda- stjórnina að hún hefði átt að kalla saman allt verkalýðsmála- ráð Alþýðubandalagsins, áður en samþykkt eins og gerð var, var samþykkt. Blaðamaður Morgunblaðsins snéri sér til Þrastar Ólafssonar formanns verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins í gærkveldi og spurði hann fregna af þessum fundi. Þröstur sagði: „Þetta eru nú ekki fundir sem við segjum frá í fjölmiðlum, en það gerðist ekkert markvert á þessum fundi. Menn skiptust á skoðunum um stöðuna í kjaramálum og það sem framundan er.“ TVÍTUGUR piltur stal Wagoneer-jeppa á bílasölunni Bílakaup í Reykja- vík síðdegis í gær og endaði ökuför hans með því, að hann velti bifreið- inni við Eyri í Kjós í Hvalfirði. Pilturinn kvaðst hafa fengið lykla að jeppanum á bílasölunni og skipti engum togum að hann ók á brott. Á Kleppsvegi ók hann utan í bifreið. Lögreglan í Hafnarfirði frétti af ferðum pilts í Mosfellssveit laust eftir klukkan fjögur og lagði lögreglubifreið þegar af stað á eftir honum. Við Eyri komu lögreglumenn að pilti við bifreiðina, þar sem hún lá á hliðinni stórskemmd. Pilturinn kvaðst hafa sofnað undir stýri og misst bifreiðina út af veginum. Hann var ómeiddur. Rainbow sigldi í gær FYRIRHUGAÐ var að Rainbow Hope, skip bandaríska skipafélags- ins Rainbow Navigation, legði upp frá Norfolk í Bandaríkjunum í gær áleiðis til Keflavíkur. Skipið er væntanlegt hingað til lands 26. maí. Skipið flytur eingöngu varning fyrir Varnarliðið. Mbl. spurði Magnús Ármann, framkvæmdastjóra skipamiðlunar Gunnars Guðjónssonar, hvort fyrirhugað væri að annað skip yrði leigt eins og til stóð. „Banda- ríska skipafélagið hefur ekki á prjónum að leigja annað skip að svo stöddu. Menn vilja bíða og sjá hvernig mál þróast," sagði Magn- ús. Hann sagði, að enn væri óljóst um flutninga héðan. „Það er fyrst nú að skipið er að leggja upp og mál eru komin á hreint. Nú getum við kannað áhuga hér á flutningi með skipum Rainbow Navigation," sagði Magnús.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.