Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1984 37 Fri fyrsta fundi hreppsmilanefndar eftir sreitarstjórnarkosningar 1982. Þar hefur síðan verið gróska f starfi. Ljóon. Mbi./óiafur. Egilsstaðir: ÞÝSK VANDVIRKNI H BIFREIDADEILD SAMBANDSIHS M\\&; HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM Hreppsmálanefnd Sjálf- stæðisflokksins ályktar um orku- og KgilsstöOum, 9. maí. ÞAÐ HEFUR verið mikil gróska í starfi svonefndrar hreppsmálanefnd- ar Sjálfstsðisflokksins hér á Egils- stöðum allt frá sveitarstjórnarkosn- ingunum 1982. Á þessum vettvangi eru fyrst og fremst rædd sveitarstjórnarmál og einkanlega meðferð mála í hreppsnefnd Egilsstaðahrepps. Þó eru þar oft rædd stjórnmál al- mennt og á fundi sínum 7. þ.m. ályktaði hreppsmálanefnd ein- róma, annars vegar um orku- og iðnaðarmál og hins vegar um mennta- og skólamál, og fara ályktanirnar hér á eftir. „Fundur hreppsmálanefndar Egilsstaðadeildar Sjálfstæðisfé- lags Fljótsdalshéraðs haldinn í Valaskjálf 7. maí 1984 lýsir yfir sérstakri ánægju sinni með störf hæstvirts iðnaðarráðherra og fagnar einkum þeim áfanga er nú hefur náðst varðandi byggingu kísilmálmverksmiðju á Reyðar- firði. Fundurinn væntir þess að hæstvirtur iðnaðarráðherra hviki hvergi af markaðri braut sinni í orku- og iðnaðarmálum, og hraði svo sem unnt er virkjunarfram- kvæmdum í Fljótsdal." „Fundur hreppsmálanefndar Egilsstaðadeildar Sjálfstæðisfé- lags Fljótsdalshéraðs haldinn í Valaskjálf 7. maí 1984 lýsir ein- róma ánægju sinni yfir því að Sjálfstæðisflokkurinn skuli nú hafa tekið við forræði í mennta- málum þjóðarinnar eftir nær 30 ára hlé og lýsir fyllstum stuðningi við vinnubrögð hæstvirts mennta- menntamál málaráðherra, frú Ragnhildar Helgadóttur. Fundurinn væntir þess að hæstvirtur ráðherra fylgi fram höfnum kerfisbreytingum innan ráðuneytis og væntir ennfremur að skólakerfið verði tekið til grandskoðunar, einkum hvað tek- ur til hugsanlegs áfangakerfis innan grunnskólans með tilliti til hagkvæmni og nýtingar fjár- magns, jafnframt því sem komið verði á fót sérstakri skólaeftirlits- nefnd, er verði rannsóknar-, eftir- lits- og umsagnaraðili varðandi öll þau hugsanlegu ásteytingarmál er upp kunna að koma innan grunnskólans. Slík nefnd ætti að geta varpað skýru ljósi á vanda- mál grunnskólans hverju sinni og veita skólanum nauðsynlegt að- hald og þar af leiðandi vera hæstvirtum ráðherra ómetanleg stoð í ábyrgðarstarfi." Formaður hreppsmálanefndar Sjálfstæðisflokksins er Páll Pét- ursson. — Ólafur Kjörgripir Vasar- Skálar -Plattar og Kertaslaufur í Komakúnst Höfðabakka 9, Reykjavík. S.85411 Ræflatesta- mentið Ný ljóðabók eftir ísak Harðarson IJT ER komin hjá Máli og nn nningu Ijóóabókin Ræflatestamentið eftir Is- ak llarðarson. Hann hefur áður gefið út bókina Þriggja orða nafn sem hlaut viðurkenningu Almenna bókafélags- ins 1982. Ræflatestamentið er lýsing á mannlífi á atómöld. Ljóðin eru mörg lögð í munn „ræflum" af einhverju tagi: ábyrgðarlausum utangarðs- mönnum, einangruðum, geril- sneyddum mannhöturum eða til- finningasljóum karlmönnum, en uppreisn gegn vana og sljóleika er sjaldan langt undan. Bókin er 63 bls., unnin að öllu leyti í prentsmiðjunni Hólum hf., Hilmar Þ. Helgason gerði kápuna. PrétUtilkynning ^^^skriftar- síminn er 830 33

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.