Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1984 Réttur dagsins Margrét Þorvaldsdóttir Lifur er mjög auðug af steinefn- um og vítamínum og mætti því vera á borðum okkar oftar. Mat- reiðsla á lifur hefur verið nokkuð hefðbundin, þó má meðhöndla hana á marga vegu. Til að auka fjölbreytni fylgja hér uppskriftir af rétti ór lifur sem lyft hefur brúnum margra vandlátra, en það er: Lifrar- Stroganoff 500 gr. lifur 3 sneiðar bacon 'k laukur 2 matsk. matarolía 1 Va bolli vatn 1 ten. kjötkraftur lk box sýrður rjómi hveiti, salt og pipar 1. Lifrin er skorin í þunnar sneiðar. Himnur eru fjarlægðar og hver sneið skorin á ská í 3—4 strimla. Skolið þá síðan ór volgu vatni til að fjarlægja blóð og þerr- ið síðan vel með bréfaþurrku. 2. Bacon er skorið í 1 sm stóra i bita, raðið þétt á heita pönnu og brónið ljósbrónt. Baconið er tekið af pönnunni um stund og 1 matsk. af matarolíu sett þar í staðinn og hituð. 3. Hveiti (‘/á bolli) er sett í plastpoka ásamt salti og pipar. Lifrarbitarnir eru blandaðir i hveitinu í pokanum þar til þeir hafa fengið jafnan hveitihjóp. Þeir eru síðan steiktir í feitinni á pönnunni á venjulegan hátt í nokkrar mínótur. Lifrarbitarnir eru teknir af pönnunni, hreinsið hana ekki en setjið í staðinn 1 matsk. matarolíu og hitið. Niður- rifinn laukur er síðan látinn krauma í feitinni smá stund. Hann má ekki brónast. 4. Síðan er allt sett á pönnuna á ný með lauknum; lifur, bacon, kjötkraftur og vatn, og látið sjóða í 1—2 mín. Að síðustu er sýrðum rjóma bætt ót í og blandað vel og soðið í 1 mínótu til viðbótar. Með þessum rétti eru borin fram soðin grjón og gjarnan hrá- salat. Það er mjög æskilegt að bera fram hrásalat með aðal máls- verði. Með því að hafa það sem einskonar forrétt, tryggir það öll- um fjölskyldumeðlimum ákveðinn skammt af vítamínauðugu grænmeti. Hrásalat á ekki að geyma, því fullyrt er að hrásalat sem ótbóið er að morgni, hafi aðeins helming vítamín-innihalds að kveldi. Út- bóið því salat aðeins fyrir eina máltíð í senn. Verð á hráefni Lifur kr. 48.50 Bacon kr. 12.00 Laukur kr. 1.50 Sýrður rjómi kr. 28.65 Grjón kr. 10.00 Kr. 100.65 Flestar hósmæður skipuleggja matarinnkaup sín seinni hluta viku. Það væri mjög æskilegt að hafa aðgang að auglýsingum um söluverð á matvælum — í dagblöð- um ákveðinn dag vikunnar t.d. fimmtudag. Það yrði hagur kaup- manna ekki síður en hósmæðra. Bændur og landsbyggðarfólk bera uppi stórverslanir SÍS: - eftir Þorleif Kr. Guðlaugsson í Morgunblaðinu þann 8. marz, Reykjavíkurbréfi nánar tiltekið, var tekin fyrir og gerð athugasemd við þau sérréttindi sem SÍS og sam- vinnufélögin hafa umfram einka- framtakið. Þetta eru orð í tíma töluð og ætti að gera betri skil og skýra það út fyrir almenningi hvað er að gerast. SÍS er verzlunarbákn, sem á drjógan þátt í óarðbærum at- vinnurekstri. Atvinnurekstur SÍS og félaga ásamt þjónustugreinum er varla hægt að greina frá ríkis- rekstri, þjónustugreinar eru langt umfram það sem þyrfti að vera og litlir skattar greiddir til ríkis og sveitarfélaga. Allt þetta verzlun- arbákn hafa bændur borið þyngst- ar byrðar að byggja upp, þar til nó í seinni tíð, að almenningur ber talsverðan bagga, eftir því sem verzlunarbáknið vex í þéttbýlinu. Það gefur auga leið, að eftir því sem samvinnuverzlun eykst, eykst líka tilkostnaður þar sem starfs- mannahald er ótrólega fjölmennt í þessum fyrirtækjum og kostnað- urinn eykst að sama skapi, en al- menningur borgar. Hefur þetta verzlunarform svo lægra vöruverð? Nei, síður en svo. Sem eðlilegt er, þegar mikill hluti ágóðans fer í launagreiðslur en af- gangurinn í ótþenslu, sem Mikli- garður er nýjasta dæmið um hér sunnanlands. Mikligarður er nó sigurhólpinn, að geta nó boðið lágt vöruverð og auglýsir mikið, en það vöruverð er fengið með því að hækka vöruverð annars staðar og færa fé til meðan verið er að ná nýjum viðskiptavinum. Gömlu kaupfélögin eins og KRON, eiga ekki svo mikið í hættu, þar sem fólk fer ógjarnan að yfirgefa verzlun sem er við bæjardyrnar ótaf verðhækkun að einhverju marki. Allra sízt þegar það er orðið að vana á liðnum ár- um að vöruverð hafi hækkað nær daglega. Bændur og fólkið á landsbyggð- inni bera að talsverðu leyti uppi stórverzlanir SÍS. Vöruverð er miklu hærra óti á landi, meira en sem nemur flutningskostnaði og ætti SÍS að hafa það að markmiði að jafna vöruverð, ef samvinnu- hreyfingin á ekki að bíða hnekki á samvinnuhugsjón sinni, en því er nó samt ekki að heilsa. Nó kemur það fram í verðkönn- un að í KRON í Kópavogi er mun hærra vöruverð en í KRON í Reykjavík. Væri ekki þörf á verð- jöfnun þarna? Eins og krafist er á rafmagns- og símagjöldum. KRON er í hærri flokki hvað verð- lag snertir og hafa vörur þar hækkað stöðugt margar hverjar. Þetta eru bara tilfærslur innan sambandsfélaganna meðan ný verzlunarfyrirtæki SÍS eru að ná viðskiptum. Þegar nó þessi fyrirtæki greiða litla skatta, ætti að vera hægt um vik að lækka aðeins vöruverð. Ein- staklingar og hlutafélög verða fyrir misrétti í skattamálum eins og kemur fram í Reykjavíkurbréf- inu. Um þetta hefur verið komið fram lögum og er það mjög áþekkt því, þegar konur voru að bera fram tillögur um lög sér til handa að hafa forgang á ýmsum sviðum. Það væri heillavænlegri stefna hjá SÍS, að koma á fót fleiri atvinnu- fyrirtækjum til framleiðslu og verðmætasköpunar heldur en auka á stórmarkaðafarganið hér í borg. Só var tíðin að framsókn- armenn fordæmdu stórverzlanir hér í borg, en það er greinilega ekki sama hver þar á hlut að máli. Veit ég vel að kaupfélögin sum og SÍS hafa framleiðslufyrirtæki á sínum vegum, en þegar nó er fyrirsjáanlegt að um stórfelldan samdrátt í framleiðslu og ótflutn- ingi meðal þjóðarinnar er að ræða, þá skuli SÍS stofnsetja eitt stærsta þjónustufyrirtæki á land- inu, sem engin þörf er á. Auðvitað skapar þetta vinnu að vissu marki, en litlar tekjur í þjóð- arbóið og er þetta því nánast að kasta peningum. Aftur á móti hafa einkafyrirtæki verið skatt- pínd svo að þau sum hver að minnsta kosti hafa ekki greitt til- skilda skatta, en nó bryddar á ein- hverri lagfæringu þar á. Þarna er um misrétti að ræða og hafa vinstrimenn og Framsóknarflokk- urinn staðið að því. Framsóknar- flokkurinn og SÍS, með samvinnu- hreyfinguna að leiðarljósi, hafa ótrólegt vald á bændastéttinni og ráða ráðum þeirra að vild með arðráni og ýmsum hömlum á at- hafnir þeirra. Hér eru dæmi þar Þorleifur Kr. Gudlaugsson „Bændur og fólkid á landsbyggðinni bera að talsverðu leyti uppi stór- verzlanir SIS. Vöruverð er miklu hærra úti á landi, meira en sem nemur flutningskostn- aði og ætti SÍS að hafa það að markmiði, að jafna vöruverð, ef sam- vinnuhreyfingin á ekki að bíða hnekki á sam- vinnuhugsjón sinni, en því er nú samt ekki að heilsa.“ um. Bændur fá ekki nema lítinn hluta af þeim verðmætum sem ull- ar- og skinnaiðnaðurinn gefur SÍS og fyrirtækjum þeirra í gróða, svo bændur gætu fengið tvöfalt verð fyrir ull og gærur, ef þeir fengju notið þeirra verðmæta sem afurð- ir þeirra skapa. Bændur fá ekki greitt að fullu innlegg sitt fyrr en að ári liðnu, og síðar og svona væri hægt að tína ýmislegt til. Svona eru fjármunir bænda frystir og mætti því ætla að kaupfélögin stæðu sig, með alla svona varasjóði undir höndum. Ekki hafa kaupmenn slíkt fjár- magn að spila með. Þetta fjár- magn getur stutt SÍS í því að lækka vöruverð í stórmörkuðum Reykjavíkur og nágrennis til að einoka verzlunina að nokkru á kostnað bændanna. Samvinnu- hreyfingin hefur orðið sér til skammar og stefnir í einokunar- samsteypu. Þeir þykjast greiða arð af við- skiptum en þessi arður er svo skammarlega lítill að engu tali tekur og mætti segja mér, að fé- lagsmenn séu látnir greiða hann sjálfir fyrirfram í háu vöruverði. Aftur á móti hér á Reykjavíkur- svæðinu, þar sem afsláttarkort eru notuð, gæti verið um einhvern hagnað að ræða, en mér býður í grun að einnig sé látið greiða fyrir þann afslátt fyrirfram í vöruverð- inu. Þetta er nefnilega keimlíkt því, þegar fólkið var látið greiða sjálfu sér uppbætur á laun í aukn- um sköttum og hækkuðu vöru- verði, í tíð fyrrverandi ríkisstjórn- ar, sem frægt varð að endemum og smánarlegu athæfi gagnvart laun- þegum. Samvinnureksturinn hefur löngum greitt litla skatta til ríkis- sjóðs, samt hefur fjöldi kaupfé- laga farið hverja kollsteypuna á fætur annarri og svipaða sögu er að segja af ótgerð og öðru. Svona fer oft þegar menn valsa með ann- arra manna fé. Eitt fyrirtækja samvinnurekstrarins er þó ekki annað hægt að segja um, en staðið hafi sig sæmilega, þó hnökrar hafi fundist nokkrir, en það er KEA á Akureyri. Eitt tel ég virðingarvert við samvinnufélagsskapinn, en það er hve félagsgjöld eru lág. Það mættu stéttarfélög hafa að eftir- breytni. Þetta hef ég skrifað 8. marz og hefur ýmislegt komið fram þessu til stuðnings sem hér hefur verið sagt og meðal annars í gær, í sjón- varpinu 30. marz, þættinum Kastljós, og fannst mér maður einkaframtaksins standa sig mjög vel. Hjá honum kom það fram sem ég hef svo oft orðið áskynja. Þorleifur Kr. Gudlaugsson er af- greiðslumadur í Húsasmiðjunni. Uppsalaborg — brautryðjandi í tölvuskráningu fasteigna í Svíþjóð Frá Magnúm Brynjólftwyni, frétUriUra Morgunbbteins í llppoölum „Áður var tölvuvæðingin hótun, en nú er hún eina vonin.“ Svo mælist Bengt Lambe, dómsforseta við þingdómstólinn (tingsratten = embætti héraðsdómara) í IJppsölum. Fyrir tíu árum eða 1974 var tölvuskráning fasteigna tekin upp við dómstólinn, sú fyrsta í landinu. Veðmálabækurnar og fasteignaregistrin voru lögð niður og í staðinn komu tölvur, sem voru tengdar við tölvubanka í Gávle. í þennan tölvubanka voru mataðar upplýsingar, sem áður höfðu verið færðar inn í fasteignaregistur. í Uppsölum er nó hægt að kalla fram á myndskerma allar þær upplýs- ingar, sem þarf við þinglýsingar og veðskuldir. Veðbókarvottorð, skuldabréf og hvers kyns kvaðir eru skrifaðar ót beint frá um- ræddum tölvubanka. Brautryðjandi í Uppsölum Þingrétturinn i Uppsölum var brautryðjandi hér í Svíþjóð á þessu sviði og reynslan hefur gefið góða raun hingað til. Nó er verið að tölvuvæða öll embætti landsins og er bóið að tölvuskrá 25 prósent af ca. 3,2 millj. fast- eignum landsmanna. Það er fyrst á lokaáratug þessarar ald- ar, sem reiknað er með að ailri tölvuskráningu fasteigna verði lokið. Þróunin mun m.ö.o. halda áfram næstu 20 árin, þar sem bóist er við að stjórnmálamenn séu of skilningssljóir og efa- gjarnir á notagildi tölvutækn- innar. Áður var jafnvel rætt um að skattleggja tölvur til að hægja þróunina, en það viðhorf ríkir ekki lengur. Vinnuaðstaðan batnaði mikið t.d. hjá þinglýsingadeildinni í Uppsölum við tölvuvæðinguna. Starfsmennirnir sleppa nó við að lyfta þungum doðröntum og mörg rútineruð handtök og skriffinnska hverfur. Engar uppsagnir í þinglýsingadeildinni Engum hefur verið sagt upp vegna tölvuvæðingarinnar. Starfsfólkið hefur verið virkjað í önnur verkefni. Stóru „kúnnarn- ir“, bankar og greiðslukortafyr- irtækin, hafa fengið mun betri þjónustu en áður, þar sem þau fá á örskömmum tíma umbeðnar upplýsingar t.d. um veðskuldir og önnur veðbönd á fasteignum. Nýlega var einnig opnaður sá möguleiki fyrir banka og aðrar stofnanir að leigja sjálfir línu beint til fasteignatölvumiðstöðv- arinnar í Gávle. Með þessum hætti er óþarfi að leita til þing- lýsingadeildarinnar í hverju um- dæmi. Upplýsingarnar eru kall- aðar beínt fram á eigin tölvu- skerm í banka, þegar t.d. skoða þarf umsókn um lánveitingu. Tímasparnaðurinn og vinnu- hagræðingin er augljós, fyrir starfsmenn þinglýsingadeildar- innar, þar sem t.d. tafsamt er oft að svara símafyrirspurnum. Tölvuvæðing á öðrum réttarsviðum Tölvuvæðing i sambandi við önnur störf dómstólsins er í gangi og mun halda áfram segir dómforseti þingréttarins. Næst á dagskránni er tölvuskráning dóma, lagaákvæða og lagabreyt- inga, sem nú er í gangi hjá hæstarétti og nokkrum hofrétt- um (áfrýjunardómstig). Þessi áætlun gerir m.a. ráð fyrir því að fá dómaútdrætti frá tölvu- banka sem er staðsettur í Stokkhólmi. í tölvunni verður komið fyrir löggjöfinni í heild. Auk þess er boðið upp á útdrætti úr dómum frá hæstarétti, ríkis- réttinum, vinnudómstólnum og húsnæðisdómstólnum. í gegnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.