Morgunblaðið - 17.05.1984, Page 3

Morgunblaðið - 17.05.1984, Page 3
Nýlefc) til að mæta óvæntum útgiölduin Hlaupareikningur fyrir launafólk með allt að 10.000 króna yfirdráttarheimild. Öll þekkjum við það vandamál þegar óvænt útgjöld koma upp á t.d. þegar bíllinn bilar og þarf á verkstæði eða einhver í íjölskyldunni á stórafmæli. Eins vitum við að sumir mánuðir eru ein- faldlega erfíðari fjárhagslega en aðrir og oft getur reynst erfitt að ná endum saman í mánaðarlok, þegar engin innstæða er eftir á tékkheftinu. Þá væri gott að eiga varasjóð til að grípa til. Allt að 10.000 króna varasjóður. Slíkur varasjóður stendur þér nú til boða. Eftir að ávísana- og hlaupa- reikningar hjá okkur verða sameinaðir í eitt reikningsform, áttu kost á að sækja um stöðuga yfirdráttarheimild, allt að 10.000 krónum, á hlaupareikning þinn ef þú ert í föstum launareikningsviðskiptum. Með föstum launareikningsviðskiptum er átt við að laun þín eða tryggingabætur séu greidd reglulega inn á innlánsreikning í sparisjóðnum. Nýir viðskiptavinir fá yfirdráttarheimild um leið og þeir geta sýnt fram á föst launareikningsviðskipti. Þinn kostnaður. Ef þú notfærir þér yfirdráttar- heimildina er kostnaðurinn sem af því hlýst 6% heimildargjald á ári auk 12% vaxta sem reiknast á yfirdráttarstöðu hvers dags. Þessi kostnaður er svo skuld- færður á reikning þinn í lok hvers mánaðar. Fyrstu yfirdráttarheimildimar verða veittar frá og með 15. maí. Þú getur sótt um strax. Þú getur fengið nánari upplýsingar um yfirdráttarheimildina ásamt um- sóknareyðublöðum í hlaupareiknings- deildum okkar að Skólavörðustíg 11 og í Sparisjóðnum, Seltjamamesi. SPARIS J OÐUR REYKJAVIKUR OG NÁGRENNIS Skólavörðustíg 11, sími 27766 Austurströnd 3 Seltjamamesi, sími 25966

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.