Morgunblaðið - 17.05.1984, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAl 1984
19
John Anderson frá Austin/Rover-yerksmiðjunum:
Dýrt að auglýsa - en
dýrara að auglýsa ekki
„ÉG HELD ég fari rétt með er ég
segi að fyrsti Land-Roverinn hafi
farið frá verksmiðjunum hingað tii
lands árið 1948. Og ég held líka, að
einhver fyrsti umboðsaðili fyrir
Land-Rover utan Bretlands, ef
ekki bara sá allra fyrsti, hafi verið
á íslandi," sagði John Anderson,
fulltrúi Austin/Rover-verksmiðj-
anna í stuttu spjalli við blm. Mbl.
Hekla hefur verið umboðsaðili
verksmiðjunnar hérlendis frá því
1978 er fyrirtækið yfirtók P. Stef-
ánsson.
„Sú var tíðin að breskur bíla-
iðnaður stóð í blóma og á þeim
árum seldum við iðulega um 500
Land-Rover bíla hingað til lands
og allt upp í 600. Mjög styrk
staða sterlingspundsins á síðari
árum hefur hins vegar gert það
að verkum, að samkeppnisStaða
okkar hefur orðið æ verri. Nú er
líka svo komið, að við seljum
sennilega ekki nema um 50 jeppa
til íslands árlega. Svo má ekki
gleyma aukinni samkeppni Jap-
ana á þessu sviði.
Þú spyrð hvort við gerum
okkur ekki of erfitt fyrir í sam-
keppninni með því að tefla fram
tveimur tegundum af jeppum,
þ.e. Land-Rover og Range Rover.
Ég held ekki. Kaupendahópur
þessara jeppa er gerólíkur. í öðr-
um hópnum eru kaupendur, sem
vilja jeppa búinn öllum þægind-
um til þess að aka um á þjóðveg-
um og þeir kaupa Range Rover.
Hinir, sem vilja jeppa til notkun-
ar t.d. við landbúnaðarstörf,
velja þá Land-Roverinn. Við höf-
um selt um 15 til 20 Range Rov-
er-bíla hér á ári undanfarin ár.“
— Er breskur bílaiðnaður að
rétta úr kútnum?
„Já, það held ég sé óhætt að
segja, en þróunin er hæg. Þegar
talað er um breskan bílaiðnað er
rétt að hafa það í huga að varla
er lengur um nema eitt breskt
fyrirtæki að ræða, Austin/Rover.
Fyrirtækið hefur um 11.000
manns í vinnu. Miklar endurbæt-
ur hafa verið gerðar á rekstri
fyrirtækisins og hagræðing öll
aukin til muna. Þetta hefur gert
það að verkum, að reksturinn
hefur orðið mun arðbærari og
eftirspurnin er nú meiri en verk-
smiðjurnar anna. Austin Metro
er nú í fyrsta sæti yfir mest
seldu bílana í Bretlandi, en slíkur
árangur næst ekki nema með
feikilegri auglýsingaherferð. Það
er dýrt að auglýsa, en enn dýrara
að gera það ekki,“ sagði John
Anderson.
MorjfunhlaAiA/KEE.
John Anderson (t.v.) og Sigfús Sigfússon hjá Heklu sitja framan á Land
Rover árg. 1948, sem sérstaklega var dreginn fram í tilefni sýningarinnar.
Morgunbladid/KEE
Caterpillar-mennirnir Knise og Phipps fyrir framan eina af stóni jarðýtun-
um, sem sýndar voru hjá Heklu.
Viðskiptin við Heklu
hafa verið ánægjuleg
- segja John H. Phipps og Ron P. Kruse
HEKLA hefur haft einkaumboð á fs-
landi fyrir Caterpillar síðan í október
1947 og eru því 37 ár síðan samstarf
fyrirtækjanna hófst.
í tilefni afmælisins voru staddir
hér á landi þeir John H. Phipps að-
stoðarframkvæmdastjóri skrifstofu
Caterpillar í Genf og Ron P. Kruse
yfirmaður söludeildar Caterpillar f
Skandinavíu. Sögðu þeir að samstarf
Heklu um Caterpillar í Skandinavíu.
Sögðu þeir að samstarf Heklu og Cat-
erpillar stæði á gömlum merg og
viðskiptin við þá hefðu verið mjög
ánægjuleg í gegnum árin.
„Hekla hefur reyndar selt mikið
af vörum, t.d. ljósavélar og annað
sem að skipum lýtur, sem ekki er
mikið keypt af umboðsaðilum
okkar í öðrum löndum,“ sagði Ron
P. Kruse. Þetta er náttúrlega vegna
þess að undirstöðuatvinnuvegur
ykkar er fiskveiðar."
„Auðvitað er Heklá líka með
þungavinnuvélar og önnur tæki
sem er aðalvarningurinn sem við
seljum til annarra þjóða.“
John H. Phipps sagði að síðustu
25 árin hefði Caterpillar verið með
umboðsaðila nánast um allan heim.
„Við seljum meira að segja vöru
okkar til Kína og Sovétríkjanna í
gegnum umboðsaðila okkar þar.“
Þeir sögðu að það væri einungis í
þeim löndum þar sem pólitísk
vandamál væru að þeir hefðu ekki
umboðsaðila svo sem í ýmsum ríkj-
um Afríku en í flestum löndum
hefðu þeir haft sömu umboðsaðil-
ana eins og t.d. hér á landi og það
væri fyrir mestu því nauðsynlegt
væri að þekkja vel til þeirra sem
verslað væri við.
T. Kyoda frá Mitsubishi-verksmiðjunum:
Góð framleiðsla á
viðráðanlegu verði
„SAMSTARE Mitsubishi og Heklu
hófst árið 1979 og hefur verið mjög
blómlegt æ síðan,“ sagði T. Kyoda, full-
trúi Mitsubishi-verksmiðjanna, í sam-
tali við blm. Mbl. „Áður en Hekla tók
við umboðinu seldum við ekki nema
um 50 bíla á ári, en fyrsta árið seldust
um 500 bílar frá Mitsubishi á íslandi.
Það er ekki hægt annað en að vera
ánægður með slíkt stökk.“
Að sögn Kyoda er Mitsubishi mjög
stór bílaframleiðandi og hefur um
10% markaðshlutdeild í Japan. Þar
er samkeppnin enda geysilega hörð
að sögn Kyoda. Hérlendis hefur
markaðshlutdeild Mitsubishi verið
um 8%. Sterkasta markaðssvæði
fyrirtækisins er hins vegar Sri
Lanka. Þar hefur Mitsubishi 60%
hlutdeild.
„Ætli við seljum ekki um
160—170.000 bíla á ári og stór hluti
framleiðslunnar fer til ríkja 1 SA-
Asíu. Thailand, Mauritanía, Ástralia
og Indónesía eru t.d. mikilvægir
markaðir fyrir okkur,“ sagði Kyoda.
Mitsubishi hefur um 24.000 manns
í vinnu hjá sér þrátt fyrir geysilega
mikla tækni við framleiðsluna. Meira
en helmingur framleiðslunnar er
seldur úr landi. „Colt-inn var sá bíll,
sem olli byltingu hjá okkur og beindi
augum alheimsins að Mitsubishi.
Núna framleiðum við margar gerðir
bifreiða, sem allar standast sam-
keppni og gott betur,“ sagði Kyoda.
Hann bætti því við, að Pajero-jepp-
inn hefði slegið í gegn og sendibif-
reiðirnar L-200 og L-300 hefði náð
mikilli hylli. „Það tók okkur fjögur ár
að hanna Pajero-jeppann."
Auk þess að framleiða bifreiðir
selur Mitsubishi t.d. vélar til Chrysl-
er og Ford. Sala véla nam t.d. 270.000
eintökum í fyrra. Auk þess selur
verksmiðjan ýmsa aðra hluti í bif-
reiðir um allan heim. „Okkur hefur
tekist að halda verði í lágmarki með
aukinni hagkvæmni og það verður
alltaf keppikefli okkar að bjóða góða
framleiðslu á viðráðanlegu verði,“
sagði Kyoda.
Sigfús Sigfússon, framkvæmdastóri Heklu, þakkar T. Kyoda fyrir gjöfina
fallegu, sem sjá má á milli þeirra. Morpmbitów/KEE.
„FRÁ því samskipti Heklu og
Volkswagen-verksmiðjanna hófust
1952 hefur Hekla selt 16.300 bíla
frá okkur að því er næst verður
komist,“ sagði Robert Earley, yfir-
maður Norðurlandadeildar út-
flutningssviðs Volkswagen-verk-
smiðjanna, í spjalli við blm. Mbl.
„Þótt þetta sé e.t.v. ekki svo ýkja
há tala á alþjóðlegan mælikvarða
er þetta góð markaðshlutdeild hér
á landi og það er auðvitað eina
eðiilega viðmiðunin," bætti Earley
við.
„Salan í ár hefur blómstrað
hjá þeim Heklu-mönnum að því
er þeir segja mér. Þeir hafa selt
132 bíla það sem af er árinu og
það er meira en allt árið í fyrra.
Sú viðmiðun er kannski ekki
eðlileg því síðasta ár var óvenju
erfitt fyrir bílainnflytjendur hér
á landi er mér sagt.“
Morganbla*M/KEE
Robert Earley (t.v.) ásamt Finnboga Eyjólfssyni, blaðafulltrúa Heklu, við
Volkswagen „bjöllu" árg. 1948.
Robert Earley frá Wolkswagen-verksmiðjimum:
Aldrei fyllilega ánægðir
— Nú hlýtur helsta markaðs-
svæði Volkswagen að vera
Þýskaland. Hverjir eru skæð-
ustu keppinautar ykkar heima
fyrir?
„Það er vafalítið Opel. Þrátt
fyrir mjög öflugar kynningar-
herferðir hefur okkur alltaf tek-
ist að halda þeim fyrir aftan
okkur og svo er enn í dag. Hitt er
svo annað mál hvort sú stað-
reynd nægir okkur til þess að
vera ánægðir. Við hjá Volkswag-
en erum nefnilega aldrei fylli-
lega ánægðir, setjum markið
alltaf hærra og hærra. Undan-
farin ár hefur samkeppni Jap-
ana gert okkur erfitt fyrir eins
og svo mörgum öðrum bílafram-
leiðendum, en það er dálítið at-
hyglisverð staðreynd að stærstu
markaðir okkar í Evrópu eru
lönd, sem öll framleiða bíla í
stórum stíl sjálf, þ.e. Bretland,
Ítalía og Frakkland."
Að sögn Earley starfa um
235.000 manns hjá verksmiðjun-
um víða um heim. Stærsti hlut-
inn starfar í Wolfsburg, aðal-
bækistöðvum fyrirtækisins,
118.000 manns. Sagði hann
rekstur verksmiðjanna ganga
vel en hann hefði verið erfiður
fyrir nokkrum árum. „Það var á
þeim tíma er allir áttu erfitt
uppdráttar í heiminum," sagði
Earley. „Volkswagen er annars
ekki fyrirtæki, sem safnar auði.
Nær allur hagnaður er látinn
renna í fjárfestingu jafnóðum —
samkeppnin hreinlega krefst
þess.“
Volkswagen-verksmiðjurnar
framleiða fleira en bíla. Þær
framleiða diesel-vélar og selja
þær m.a. til Volvo og British
Leyland, Chrysler o.fl. kaupa
skiptingar af fyrirtækinu. „Við
höfum góð samskipti við aðra
bílaframleiðendur víða í heimin-
um og um þessar mundir standa
yfir samningaviðræður við
Nissan-verksmiðjurnar í Japan
um að þeir setji saman fyrir
okkur Santana-bíiinn fyrir
markaö í Japan og nærliggjandi
Asíulönd. Þá eru Kínverjar að
setja saman fyrir okkur bíla,
þannig að þræðir Volkswagen
liggja víða.“
Earley sagðist hafa veitt því
sérstaka athygli þá daga, sem
hann hefði dvalið á landinu,
hversu annt starfsmönnum
Heklu virtist um fyrirtækið.
„Það er gaman að verða vitni að
slíkum anda því ég þekki hann
vel af eigin reynslu hjá Volks-
wagen. Það máttu enda vita, að
ánægt starfsfólk er einhver mik-
ilvægasti þátturinn í rekstri
góðs fyrirtækis."