Morgunblaðið - 17.05.1984, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1984
Laugavegur — Til leigu
Á besta staö viö Laugaveginn er nú til leigu 130 fm
verslunarhúsnæði. Húsnæöiö er laust nú þegar.
Upplýsingar veittar í síma 17088 kl. 18—20 í dag og
næstu daga.
Einn sá besti í sínum flokki
Bjóöum nú þessa frábæru kappsiglara á íslandi á veröi
sem er hreint ótrúlegt.
Verö meö seglum aöeins 298.800.-
Til afgreiöslu af lager eða meö stuttum fyrirvara.
Benco
Bolholti 4, Reykjavík
sími 91-21945/84077.
SAMVINNUSKÓLINN BIFRÖST
UMSÓKNARFRESTUR
10. mars — 10. júní
Umsókn sendist tli Skólastjóra Samvinnuskólans Bifröst,
311 Borgarnes.
AF ERLENDUM VETTVANGI
Eftir BETH KARLIN OG A.E. PEDERSEN
Norskt fyrirtæki í tölvuiðnaði
velgir risunum undir uggum
Norsk Data A/S jók sölu sína um 45% á síðasta ári, hagn-
aðurinn tvöfaldaðist og starfsmannafjöldinn einnig
í ENGRI iðngrein er samkeppnin jafn hörð og óvægin og í tölvuiðnaðin-
um og það eru bandari.sk og japönsk stórfyrirtæki, sem þar bera höfuð og
herðar yfir aðra. Þess vegna hefur það vakið nokkra athygli, að norsku
fyrirtski, Norsk Data A/S, hefur tekist að hasla sér völl við hliðina á
risunum. „Við reynum að haga okkur eins og um væri að ræða bandarískt
fyrirtæki með aðsetur í Ósló, sölusvæðið, Evrópa og stjórnunaraðferðirn-
ar japanskar," segir Rolf Skaar, forseti fyrirtækisins og einn af stofnend-
um þess. Á síðasta ári var fjórðungur af sölu Norsk Data utan Norður-
landanna og aðeins í New York nam salan 49 milljónum dollara. Hagnað-
ur fyrirtækisins þá nam 14% af veltu.
Keppinautarnir eru ekki af
lakara taginu, International
Business Machines Corp., Digital
Equipment Corp. og Wang Lab-
oratories Inc. svo einhverjir séu
nefndir, en þrátt fyrir það ber
Norsk Data stundum sigur úr
býtum. Stóru fyrirtækin bjóða
upp á allt frá risatölvum og
niður úr en Norsk Data einbeitir
sér að framleiðslu 16 og 32 bita
tölva, sem hægt er að nota við
hin margvísiegustu störf.
Byrjaði með bunka af
vísindatímaritum
Þegar Norsk Data hóf starf-
semi sína fyrir 17 árum áttu
stofnendurnir innan við eina
milljón ísl. kr. samanlagt, eina
sveiflusjá og bunka af vísinda-
tímaritum, sem þeir lásu til að
láta sér detta eitthvað skemmti-
legt í hug. Síðan hefur því heldur
betur vaxið fiskur um hrygg.
Samt sem áður hefur verið sagt
um fyrirtækið, að það sé ekki
tæknileg geta þess, sem geri það
sérstakt og á það er bent, að það
eigi engin einkaleyfi. Keppinaut-
arnir geta því hvenær sem er
líkt eftir framleiðslu þess. Ulric
Weil, sem er sérfræðingur í
þjónustu fjármálafyrirtækisins
Morgan Stanley & Co., er sam-
mála því og segir, að út af fyrir
sig sé ekki lfklegt, að nýjar upp-
finningar í tölvutækninni verði f
Evrópu, en „þeir hjá Norsk Data
eru mjög góðir f að byggja kerfin
þannig upp, að hægt sé að nota
þau við mjög ólíkar og fjöl-
breytilegar aðstæður".
Norsk Data framleiðir algeng-
asta tölvubúnað og mikið af
hugbúnaði, sem nota má við ail-
ar tölvugerðir fyrirtækisins.
Auk þess framleiðir það hugbún-
að til sérstakra nota þannig að
unnt er að nota tölvurnar f
margvíslegum tilgangi, allt frá
tölvuteiknun til ritvinnslu.
Ótrúleg söluaukning
Fjármálafyrirtækið Morgan
Stanley greiddi götu Norsk Data
inn á New York-markaðinn en
það fer mjög vaxandi, að evrópsk
fyrirtæki reyni að fá til liðs við
sig bandaríska fjárfestingarað-
ila. Auk fjármagnsins, sem
þannig fæst, verða hlutabréf
fyrirtækjanna miklu útgengi-
legri á heimamarkaði en áður
var. „Aðeins f New York skilja
menn til hlítar hvað við erum að
gera,“ segir Rolf Skaar. 1983
jókst sala Norsk Data um 45%,
nam 115,9 milljónum dollara og
hagnaðurinn tvöfaldaðist á ár-
inu, var 128,4 milljónir norskra
króna. Sjálfir spá þeir því, að
árleg söluaukning á næstunni
muni nema a.m.k. 40% og hagn-
aðurinn verði eftir því.
Þótt Norsk Data hafi vegnað
næstum með ólfkindum vel eru
margar hættur því samfara að
vera lítill á vígvelli risanna.
Litlu fyrirtækin hafa engin efni
á mistökum. Þeir hjá Morgan
Stanley hafa velt því fyrir sér
hvort Norsk Data sé farið að
dreifa kröftunum um of og f
skýrslu frá þeim í fyrra segja
þeir, að fyrirtækið verði að taka
ákvarðanir um það mál heldur
fyrr en seinna.
Yfirbyggingin lítil
í fyrra varði fyrirtækið 16
millj. n.kr. f rannsóknir og þróun
og þar af fóru 75% í þróun hug-
búnaðar. Yfirbyggingin er hins
vegar mjög lftil því að Norsk
Data lætur öðrum fyrirtækjum
næstum algerlega eftir fram-
leiðsluna og samsetninguna.
Það er ekki nóg að framleiða
góða vöru, það þarf líka að selja
hana og þá skiptir miklu, að
nafn fyrirtækisins sé þekkt.
Fyrir skömmu þekktu fáir til
Norsk Data utan Norðurlanda
en nú hefur orðið á því breyting.
Þeir, sem keppa við það á tölvu-
markaðnum, segjast gera ráð
fyrir, að þetta „harðsnúna",
norska fyrirtæki eigi eftir að
láta æ meira að sér kveða. Norð-
mennirnir eru á sama máli og
það er þess vegna sem þeir hafa
nú tvöfaldað starfsmannafjölda
sinn f Bretlandi, úr 100 í 200, og
keypt 80% hlutafjár í þýska
fyrirtækinu Dietz Computer
System G.m.b.H., sem hefur
sterk tengsl við markaðinn þar í
landi. Þar að auki er Norsk Data
að svipast um eftir samstarfsað-
ilum í Frakklandi og Bandaríkj-
unum.
Býður betur en
stórfyrirtækin
Sala Norsk Data á Banda-
ríkjamarkaði er nú 8% af allri
sölu þess en fyrsti samningurinn
vestan hafs var um tölvustýrðan
flughermi í sambandi við smíði á
F-16-orrustuþotum. Innreiðin á
Evrópumarkaðinn var fyrir 10
árum þegar Norsk Data fékk
samning við CERN, evrópsku
kjarnorkurannsóknamiðstöðina,
og nú nýlega skaut það öllum
keppinautum sínum þ.á m. stór-
fyrirtækinu Digital Equipment,
ref fyrir rass og hreppti tölvu-
samning við Efnahagsbandalag-
ið.
Unnið í litlum hópum
Um 2.000 manns starfa hjá
Norsk Data og hefur fjölgað um
helming á einu ári. Meðalaldur-
inn er 33 ár og helmingur starfs-
fólksins hefur háskólagráðu.
Fólkið vinnur saman í 10—12
manna hópum og ráða hóparnir
því sjálfir nokkurn veginn á
hvaða tíma sólarhringsins þeir
vinna.
„Hér áður fyrr voru það bara
hugrakkir menn, sem keyptu af
okkur tölvu,“ segir Rolf Skaar,
forseti fyrirtækisins. „Nú hlær
enginn lengur, nú vita menn
hvað Norsk Data er.“
- SS
Höfuadarnir eru frétlamenn rið
handaríska dagbladið The Wall
Street Journal.