Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1984
23
„Heil Hitler, heil Rauff“
Þrír menn lyfta hendinni f nazistakveðju við gröf þýzka stríðsglæpa-
mannsins Walter Rauff, er útför hans fór fram í Santiago í Chile á
þriðjudag. „Heil Hitler, heil Rauff,“ sögðu mennirnir. Rauff, sem var
ofursti í SS-sveitum nazista, er talinn bera ábyrgð á dauða nær 100.000
gyðinga í Austur-Evrópu í síðari heimsstyrjöldinni.
Rannsókn á iáti David Kennedy:
Skipun um hand-
töku fjögurra
Palm Beach, Flórída, 16. maí, AP.
GEFIN hefur verið út skipun um
handtöku fjögurra manna í tengsl-
um við rannsókn á dauða Davids
Kennedy, sem fannst látinn á hótel-
herbergi í Palm Beach á Flórída 25.
aprfl sl.
Mennirnir, sem ekki hafa verið
nafngreindir, eru sakaðir um
ólögmæta sölu eiturlyfja.
David Kennedy, sonur Roberts
heitins Kennedy fyrrum dóms-
málaráðherra Bandaríkjanna, var
28 ára að aldri þegar hann lést.
Líkskoðun leiddi í ljós að hann
hafði neytt kókaíns og deyfilyfsins
Demereol í óhófi. í hótelherberg-
inu fundust einnig 1,3 grömm af
kókaini.
Lögregla verst frétta af rann-
sókn málsins þar til fjórmenn-
ingarnir hafa verið handteknir.
Lögðu hald á
kókainbirgðir
Stokkhólmi, 16. maí. AP.
SÆNSKA lögreglan kom hönd-
um í dag yfir verðmætasta eitur-
lyfjafarm sem sögur fara af þar í
landi. Þá fundust 50 kflógrömm
af kókaíni í vélarrúmi flutn-
ingaskips frá Honduras. Fimm
skipverjar eru í varðhaldi.
Lögreglumenn fengu aðvörun
um að eiturlyf væru falin í skip-
inu og fóru ásamt tollvörðum um
leið og skipið kom til hafnar í
Gautaborg. Fundust eiturlyfin
eftir litla leit og voru fimm
skipverjar þegar handteknir,
þeirra á meðal skipstjórinn. Aðr-
ir skipverjar voru yfirheyrðir.
Ekkert var látið uppi um þjóð-
erni hinna handteknu, utan að
allir væru þeir suður-amerískir.
Fundist hefur meira magn eitur-
lyfja á einu bretti í Svíþjóð, en þá
var um kannabis að ræða. Þetta
er verðmætasti farmurinn til
þessa, metinn á 100 milljónir
sænskra króna, eða 12,5 milljón
dollara.
Fundur yarnarmálaráðherra NATO-ríkja:
„Sovétmenn munu aldrei
semja við sundrað NATO“
Hollenska stjórnin harðlega gagnrýnd fyrir afstöðuna í eldflaugamálinu
Briissel, 16. maí. AP.
HOLLENSKA stjórnin var í dag harð-
lega gagnrýnd á fundi varnarmálaráð-
herra Atlantshafsbandalagsins í Briiss-
el fyrir að rjúfa samstöðu NATO-ríkj-
anna og var hollenska varnarmála-
ráðherranum sagt, að afstaða stjórnar
hans kæmi sérstaklega vel Sovét-
mönnum, sem reyndu hvað þeir gætu
til að reka fleyg í raðir vestrænna ríkja.
Formaður hemaðarnefndar NATO seg-
ir, að yfirlýsingum Sovétmanna um i
nýjar eldflaugar í Austur-Þýskalandi
sé fyrst og fremst ætlað að hafa áhrif á
fólk á Vesturlöndum.
Á fundi varnarmálaráðherra
NATO í dag voru flestir ráðherr-
anna ómyrkir i máli og deildu hart á
hoileusku stjórnina, sem enn hefur
ekki getað gert það upp við sig hvort
hún samþykkir að koma upp nýjum
varnarflaugum í landinu. Wtu
margir i ljós þann ótta, að ef Hol-
Kallaöur heim
Túnisborg, 16. maí. AP.
SENDIHERRA Túnis í Líbýu hefur
verið kvaddur heim í mótmælaskyni
við ítrekaðar staðhæflngar ráða-
manna þar, að í Túnis sé griðastaður
afla sem vilja upplausn í Líbýu.
Grunnt hefur verið á því góða
milli Túnisbúa og Líbýumanna
upp á síðkastið og greindi útvarpið
í Túnisborg frá því í morgun að
verið væri að þröngva stórum hóp-
um farandverkafólks frá Túnis til
að yfirgefa Líbýu. Túnisbúar sem
eru við tímabundin störf í Líbýu
eru allt að 75 þúsund að tölu.
Líbýumenn hafa enn ekki látið
lausa úr haldi þrjá þjóðvarðliða
frá Túnis sem þeir handtóku á
landamærum ríkjanna 8. maí sl.
Vinna lögð niður
hjá Mercedes Benz
Sluttgart, 16. m«{. AP.
VERKFALL málmiðnaðarmanna í bfla-
verksmiðjum í Vestur-Þýskalandi held-
ur áfram og breiðist til æ fleiri fyrir-
tækja. í dag var tilkynnt að 32 þúsund
verkamenn við Mercedes Benz-bfla-
verksmiðjurnar myndu leggja niður
vinnu á miðnætti. Vinnustöðvanir þess-
ar, sem eru skipulögð skæruverkföll,
eru boðaðar í því skyni að knýja á um
35 stunda vinnuviku.
Daimler-Benz greindi frá því í dag
að ákveðið hefði verið að draga sam-
an framleiðslu fyrirtækisins vegna
verkfallanna. Audi og BMW hyggj-
ast loka verksmiðjum sínum á föstu-
dag og Volkswagen, Ford og Opel
hyggjast loka í byrjun næstu viku ef
verkfallsaðgerðirnar halda áfram.
lendingar brygðust kynnu aðrir að
fara að dæmi þeirra, t.d. Belgíu-
menn. Var Job de Ruiter, varn-
armáiaráðherra Hollands, sagt, að
afstöðu eða afstöðuleysi stjórnar
hans væri hvergi fagnað nema í
Moskvu þar sem einskis væri látið
ófreistað til að rjúfa einingu vest-
rænna ríkja.
„Sovétmenn munu aldrei semja
við sundrað NATO,“ sagði háttsettur
embættismaður í NATO og þykja
þau orð lýsa vel afstöðu ráðherranna
á fundinum. Hollenska stjórnin hef-
ur ekki endanlega hafnað að stsnda
við samþykktina frá 1979 en hún
óttast, að til stjórnarslita komi ef
hún tekur við eldflaugunum.
Cor de Jager, hershöfðingi og for-
seti hermálanefndar NATO, sagði í
dag, að yfirlýsingar Sovétmanna um
nýjar SS-22-eldflaugar í Austur-
Þýskalandi væru til þess fyrst og
fremst að hræða fólk a Vesturlönd-
um. Sovétmenn tóku það sérstaklega
fram, að nýju eldflaugunum væri
beint að Bretlandi, Ítalíu og Vestur-
Þýskalandi.
Telja að Skinner
hafi verið myrtur
Lundúnum, 16. maí. AP.
Rannsóknarnefnd á vegum
breskra stjórnvalda hefur sent frá
sér álít um hvernig dauða Dennis
Skinner í Moskvu á síðasta ári bar
að höndum. Hefur verið látið í
veðri vaka að Skinner hafl svipt sig
lífl, en nefndin telur manninn hafa
verið myrtan og hér sé um njósna-
mál að ræða.
Skinner, bankafulltrúi fyrir
British Midland Bank, hafði
starfað í Sovétríkjunum síðan
árið 1968. Hann fannst látinn á
gangstéttinni fyrir utan fjölbýl-
ishús það sem hann bjó í ásamt
konu sinni. Þau bjuggu á 11. hæð
og virtist hann hafa fallið,
stokkið eða verið hrint út um
glugga á íbúðinni.
Ekkja Skinners hefur látið
hafa eftir sér að eiginmaður sinn
hafi verið gagnnjósnari, með
sambönd bæði hjá KGB og
bresku leyniþjónustunni. Sovésk
stjórnvöld hafa sagt það útilok-
að að Skinner hafi vérið myrtur,
lögreglan í Moskvu hafi rann-
sakað vettvanginn og ekkert
benti til annars en sjálfsmorðs.
Rannsóknarnefndin fyrrgreinda
er á annarri skoðun, sem fyrr
segir, hún telur ekkert benda til
þess að Skinner hafi ætlað að
stytta sér aldur. Er niðurstaða
nefndarinnar sú, að hann hafi
verið myrtur.
FLAGGSTANGIR
ÚR TREFJAGLERI, FELLAN-
LEGAR MEÐ FESTINGU,
FLEIRI STÆRÐIR
ISLENSK FLOGG
ALLAR STÆROIR
FLAGGSTANGAR-
HÚNAR
FLAGGLÍNUR
FLAGGLÍNUFESTINGAR
•
ÁLSTIGAR
2FALDIR
MARGAR LENGDIR
•
GARÐYRKJUÁHÖLD
SKÓFLUR ALLSKONAR
RISTUSPAOAR
KANTSKERAR
GAROHRÍFUR
GIRÐINGAVÍR, GALV.
GARÐKÖNNUR
VATNSÚOARAR
SLÖNGUKRANAR
SLÖNGUTENGI
SLÖNGUGRINDUR
JÁRNKARLAR
JAROHAKAR
SLEGGJUR
HJÓLBÖRUR, GALV.
•
GARDSLÖNGUR
20 OG 30 MTR.BT.
GÚMMÍSLÖNGUR
ALLAR STÆRÐIR
PLASTSLÖNGUR
GLÆRAR MED OG
ÁN INNLEGGS
•
ÚTIGRILL
GRILLTENGUR — GAFFLAR
VIÐARKOL — KVEIKILÖGUR
GASFERÐATÆKI
OLÍUPRÍMUSAR
STEINOLÍA, 2 TEG.
PLASTBRUSAR
SLÖKKVITÆKI
•
MINKAGILDRUR
MUSA- gg rottugildrur
•
TIL SJÓSl ANGAVEIOI
HANDFÆRAVINDUR
MEÐ STÖNG
SJÓSPÚNAR OG
PILKAR
MJÖG FJÖLBR. ÚRVAL
HANDFÆRAVINDUR
FÆREYSKAR
NÆLONLÍNUR
HANDFÆRAÖNGLAR
MEÐ GERVIBEITU
HANDFÆRASÖKKUR
SIGURNAGLAR
HÁKARLAÖNGLAR
SKÖTULÓÐARÖNGLAR
•
SILUNGANET
UPPSETT
SILUNGANETASLÖNGUR
FLOTTEINAR
BLÝTEINAR
NETAFLOT
•
BJÖRGUNARVESTI
FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA
ÁRAR — ÁRAKEFAR
BÁTADREKAR — KEDJUR
BÁTADÆLUR
VÆNGJADÆLUR
VIOLEGUBAUJUR
ANANAUSTUM
SÍMI 28855
OPIÐ LAUGARDAGA
KL. 9—12