Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAl 1984
Hver er reynsla ann-
arra þjóða af bjórneyslu?
- eftir Sigurgeir
Þorgrímsson
Alþingi íslands samþykkti þann
7. maí 1981 þingsályktunartillögu
um mörkun opinberrar stefnu í
áfengismálum. Þar samþykkti Al-
þingi að láta nú þegar fara fram
athugun á heildarstefnumótun í
áfengismálum í samráði við þá að-
ila sem afskipti hafa af dreifingu
og sölu áfengra drykkja og með-
ferð áfengismála og vandamál
áfengissjúklinga. Tillögur þessar
og greinargerð skyldi senda Al-
þingi í sérstakri skýrslu ásamt til-
lögum ríkisstjórnarinnar á sviði
löggjafar og stjórnsýslu. Þar sem
ekki hefur verið lokið við að fram-
kvæma þessa þingsályktunartil-
lögu, þó að fyrstu tillögur þessarar
nefndar liggi nú fyrir hjá ríkis-
stjórninni, vil ég benda á nokkrar
staðreyndir af reynslu annarra
þjóða af þeim þætti áfengisvanda-
málsins sem tengt er neyslu
áfengs öls.
1. Sala milliöls var leyfð í Svíþjóð
1965. Þeir sem fengu því til leiðar
komið héldu því fram að ölneysla
drægi úr neyslu sterkra drykkja.
Reynslan varð þveröfug. Ungl-
inga- og barnadrykkja jókst gíf-
urlega og sænska þingið bannaði
framleiðslu og sölu milliöls frá 1.
júlí 1977.
2. Á fyrsta árinu eftir milliöls-
bannið minnkaði áfengisneysla
Svía um 10% miðað við hreinan
vínanda. Neysla öls (allra teg-
unda) minnkaði um 24% miðað við
áfengismagn.
3. Á milliölsáratugnum í Svíþjóð
jókst áfengisneysla Svía um 35%.
Á sama árabili á íslandi jókst
neysla um 26,1%.
4. Félagsmálaráðherra Svía segir
m.a. um það mál: „Ég er eindregið
þeirrar skoðunar að á nýliðnu 10
ára tímabili milliöls í Svíþjóð hafi
grunnur verið lagður að drykkju-
sýki sem brátt mun valda miklum
vanda."
5. I Finnlandi var sala áfengs öls
Ieyfð 1968. Þá var áfengisneysla
Finna minni en annarra norrænna
þjóða, að íslendingum undanskild-
um. Eftir að sala áfengs öls hófst
hefur keyrt um þverbak hvað
drykkju snertir þar í landi. Nú
drekka Danir einir Norðurlanda-
þjóða meira áfengi en Finnar.
Margir telja að drykkjuvenjum
Finna svipi að ýmsu leyti til
drykkjusiða íslendinga.
6. Á tímabilinu frá 1969—1974
jókst áfengisneysla Finna um
52,4%. Á sama tímabili jókst
neysla hérlendis um 35% og þótti
mörgum nóg.
7. Þegar sala áfengs öls hafði verið
leyfð í rúm tvö ár í Finnlandi
hafði ofbeldisglæpum og árásum
fjölgað um 51% og hinum alvar-
legustu þeirra glæpa, morðum, um
61,1%.
8. Danir eru mestu bjórdrykkju-
menn meðal norrænna þjóða. Þar
eykst og neysla sterkra drykkja
jafnt og þétt. Þeir drekka allt að
þrisvar sinnum meira en íslend-
ingar enda drykkjusjúklingar þar
hlutfallslega miklu fleiri. Þar er
öldrykkja ekki einungis vandamál
á fjölmörgum vinnustöðum heldur
einnig í skólum. Ofneysla bjórs er
algeng meðal barna þar í landi og
ofdrykkja skólabarna stórfellt
vandamál. Meðalaldur við upphaf
áfengisneyslu mun u.þ.b. 4 árum
lægri en hérlendis.
9. Vestur-Þjóðverjar ásamt Tékk-
um neyta meiri bjórs en aðrar
þjóðir Evrópu. Þar jókst heildar-
neysla áfengis á árunum
1950—1967 um 196%. Á sama tíma
jókst neysla hérlendis um 70% og
þótti flestum meir en nóg.
10. Þýska blaðið Der Spiegel, sem
vart verður vænt um bindindis-
áróður, helgar nýlega drykkjusýki
unglinga (Jungend Alkoholismus)
forsíðu og verulegan hluta eins
tölublaðs.
11. Háskólarnir í Hamborg,
Frankfurt og Mainz rannsökuðu
fyrir nokkrum árum áfengis-
neyslu ökumanna og ölvun við
akstur í Þýskalandi. Rannsóknir
leiddu í Ijós að aðalskaðvaldurinn
er bjórinn en um helming allra
óhappa á vegunum mátti rekja til
hans. Ef við bætast þau tilfelli,
þar sem bjór er drukkinn með víni
eða sterkari drykkjum, hækka
hlutföllin í 75%.
12. f Belgíu er yfir 70% alls áfeng-
is, sem neytt er, sterkt öl. Þar eru
u.þ.b. 95% allra drykkjusjúklinga
öldrykkjumenn, þ.e. menn sem
drekka ekki aðra áfenga drykki en
öl.
13. Formaður samtaka æskulýðs-
heimilaforstjóra í Stokkhólmi seg-
ir: „Öldrykkja er mesta og alvar-
legasta vandamál æskulýðsheimil-
anna. Auðveldara hefur verið að
fást við vandamál af völdum ólög-
legra fíkniefna."
14. Vitað er að unglingar og börn
hefja áfengisneyslu oft og tíðum
með öldrykkju. Hún veldur m.a.
því hversu margir unglingar og
jafnvel börn þjást af drykkjusýki í
ölneyslulöndum.
15. Félagsmálaráðherra Breta
gerði í ræðu á árinu 1977 harða
hríð að ofdrykkjusiðum þar í landi
og bjórkrám. Hvað hann krárnar
oft sveipaðar rómantískum ljóma
fyrir sjónum þeirra sem lítt
þekktu til. Hann benti á að á síð-
astliðnum 20 árum hefði öineysla
aukist um 50%. Neysla sterkra
drykkja hefði hins vegar þrefald-
ast á sama tíma og neysla léttra
vína fjórfaldast. Á sama tíma og
neysla sterkra drykkja eykst um
54% á íslandi eykst hún um 300%,
eða tæplega 6 sinnum meira en
hér, i Englandi og búa þeir þó síð-
ur en svo við skort á bjórkrám eða
áfengu öli.
16. Nýjar rannsóknir sýna að því
fleiri áfengistegundir sem eru á
boðstólum og því víðar þeim mun
meira er drukkið. Drykkjusjúkl-
ingum fer fjölgandi er drykkja
eykst.
17. Jafnslæmt er fyrir drykkju-
sjúkling að drekka eina ölkrús og
viskístaup. Á þennan sannleika
ber að leggja megináherslu. En
það er líka jafnhættulegt fyrir
barnið eða unglinginn. Og börn
eiga áreiðanlega greiðari aðgang
að öli en viskíi eða sú er a.m.k.
raunin meðal nágrannaþjóða
okkar.
18. Eina raunhæfa leiðin til að
koma í veg fyrir fjölgun drykkju-
sjúkra er að draga úr neyslunni.
Til þess eru ýmis ráð. Og þótt
góðra gjalda sé vert að lækna
drykkjusjúka og gefa þeim að nýju
þrek og sjálfstraust, er hitt þó
mikilvægara að leitast við að
koma í veg fyrir að menn verði
áfengi að bráð.
19. Addiction Research Founda-
tion of Ontario er þekktasta rann-
sóknarstofnun í heimi á sviði
áfengis- og fíkniefnamála. Stofn-
un sú var 1979 samstarfsaðili Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar (WHO) um þessi efni. Álits
ARF hefur verið leitað varðandi
ölmálið íslenska og var mat þeirra
að ástand þessara mála versnaði
stórum ef leyfð yrði hér sala og
bruggun áfengs öls.
20. Óheft frelsi áfengisauðmagns-
ins til framleiðslu, dreifingar og
sölu þessa fíkniefnis mun óþekkt
nú á dögum, þó að ýmsir gerist til
að halda slíkri stefnu fram. Meira
að segja Frakkar hafa komið á
ýmsum hömlum og hefur tekist
með þeim (en ekki með fræðslunni
einni) að minnka drykkju veru-
lega. Og nú boðar Frakklandsfor-
seti 10 ára herferð gegn drykkju-
skap.
21. Ölgerðir eyða hundruðum
milljóna króna í áróður, beinan og
óbeinan. Óafvitandi gerast ýmsir
sakleysingjar áróðursmenn þeirra
afla sem hafa hag af því að sem
flestir verði háðir því fíkniefni
sem lögleyft er á Vesturlöndum,
áfengi. Því má bæta við að samtök
bruggara greiða hinum lakari
blöðum stórfé fyrir að birta stað-
leysur um áfengismál, oft undir
yfirskini vísindamennsku. Slæðast
slíkar ritsmíðar stundum I blöð
hérlendis.
22. Ef enginn hefði fjárhagslegan
ábata af drykkju annarra og þar
með þeim hörmungum, sem af
henni hljótast, væri áfengismála-
stefna þjóðarinnar raunsærri og
heiðarlegri, sbr. baráttu gegn öðr-
um vágestum svo sem holdsveiki
og berklum.
23. Samkvæmt nýrri könnun, sem
samband amtsráða í Danmörku
hefur gengist fyrir, kemur í ljós að
meðalaldur neytenda kannabis-
efna hefur farið hækkandi undan-
farin ár eða úr 18—19 árum 1970 í
25—26 ár nú. Við hefur tekið með-
al unglinga misnotkun á áfengu öli
og pillum og virðist slík ofneysla
nú nálgast faraldur og að ýmsu
leyti jafnvel erfiðari viðfangs en
kannabisneyslan.
24. Þegar gefin var út reglugerð
um heimildir ferðamanna til að
flytja áfengt öl inn í landið rann-
sakaði Sigurður Líndal lögmæti
slíkra heimilda. Niðurstaða hans
var sú að innflutningur öls væri
brot á íslenskum lögum. Að sömu
niðurstöðu komst Ólafur W. Stef-
ánsson sem málið kannaði fyrir
dóms- og kirkjumálaráðherra.
25. Þjóðaratkvæðagreiðsla um
mál, þar sem jafnmiklir hagsmun-
Sigtirgeir Þorgrímsson
„í Finnlandi var sala
áfengs öls leyfð 1968.
I»á var áfengisneysla
Finna minni en annarra
norrænna þjóða, að ís-
lendingum undanskild-
um. Eftir að sala áfengs
öls hófst hefur keyrt um
þverbak hvað drykkju
snertir þar í landi.“
ir eru í húfi og varðandi sölu
áfengs öls, er enn vafasamari en
var fyrr á öldinni. Samkvæmt
rannsókn sérfræðings Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO) vörðu framleiðendur öls
og áfengra drykkja árið 1981 jafn-
virði 60 milljarða íslenskra króna
til auglýsinga og áróðurs. Mikinn
barnaskap þarf til að ætla að ekk-
ert af því fé sé notað hérlendis og
verði óspart notað í hagsmunabar-
áttu þessara afla ef til þjóðarat-
kvæðagreiðslu kemur.
26. Árið sem leið voru 860
drykkjumenn og aðrir vímuefna-
neytendur lagðir inn á Borge-
stads-sjúkrahúsið í Porsgrunn í
Noregi. Athugað var sérstaklega
hvers konar vímuefna þeir neyttu
að jafnaði og vildu helst. Niður-
Stýrimannaskólanum í Vest-
mannaeyjum var slitið sl. laugardag
en á þessu ári verða liðin 20 ár frá
því skólinn tók til starfa, þann 1.
október 1%4. í ár luku 12 nemendur
prófum I. stigs og 11 nemendur luku
prófi frá II. stigi.
Hæstur í I. stigi varð Roland
Buchholz frá Grindavík með með-
aleinkunnina 9,13, annar varð
ólafur Þ. ólafsson Vestmannaeyj-
um með 8,63 og þriðji Olgeir Sig-
urðsson frá Húsavík með 8,53.
Meðaleinkunn í I. stigi var 7.75.
Hæstur í II. stigi varð Sigurgeir
Pétursson frá Vopnafirði með
meðaleinkunnina 9,40, annar varð
Sigurgeir Jónsson Vestmannaeyj-
um með 9,10 og þriðji Einar Sigur-
þórsson Vestmannaeyjum með
8,88. Meðaleinkunn í II. stigi var
7,85.
Á skólaslitunum voru veittar
ýmsar viðurkenningar og verð-
laun. Sigurður Einarsson útgerð-
armaður gaf barómet sem viður-
kenningu fyrir hæstu einkunn í II.
stigi og hlaut Sigurgeir Pétursson
það. Ur verðlaunasjóði hjónanna
stöður urðu sem hér segir: 54%
vilja helst áfengt öl. 35% vilja helst
sterka drykki. 11 % vilja helst önnur
vímuefni en áfengi. Upplýsingar
frá Heilbrigðisráði Oslóborgar
benda og til þess að áfengt öl sé
yfirleitt ekki notað sem svala-
drykkur heldur miklu fremur sem
vímuefni. Þá sýnir ný bresk rann-
sókn, sem fram fór á vegum
læknasamtaka, sem vinna gegn
áfengisböli og kallast Action on
Alcohol Abuse (AAA), að meira en
tveir þriðju drykkjumanna í Bret-
landi drekka einkum bjór, tæpur
þriðjungur sterka drykki.
27. Gunnar Ágren í Stokkhólmi,
doktor í féiagslækningum, segir
nýlega í blaðaviðtali að hörmu-
legar afleiðingar barna- og ungl-
ingadrykkjunnar á milliölsára-
tugnum séu nú að koma í ljós.
Eins og margir muna leyfðu Svíar
framleiðslu og sölu svonefnds
milliöls á árunum 1965—1977. Á
þeim tíma jókst drykkja barna og
unglinga gífurlega og meðalaldur
þeirra sem byrjuðu fór sílækk-
andi. Sænska þingið, sem leyft
hafði framleiðslu og sölu þessa
varnings 1965 bannaði hvort
tveggja 1977 að fenginni dapur-
legri reynslu og þurfti ekki þjóð-
aratkvæði til. Síðan hefur drykkja
unglinga minnkað með ári hverju
og meðalaldur þeirra sem hefja að
neyta áfengis hækkað verulega.
Afleiðingar öldrykkjunnar sem dr.
Gunnar Ágren minnist á, eru
einkum heilaskemmdir. Þær ger-
ast nú miklu tíðari meðal fólks á
þrítugsaldri en verið hefur, eink-
um þó á meðal þeirra sem komnir
eru undir þrítugt. Einkennin eru
minnisleysi og ýmsar tauga-
truflanir. Lifrarmein (skorpulif-
ur) og flogaveiki koma nú oftar
fyrir í þessum aldursflokkum en
fyrr. Svíar sjá þó fram á betri tíð
að áliti dr. Gunnars. Eins og fyrr
segir drekka unglingar nú æ
minna og byrja seinna en áður var
og munu þessar hörmungar vænt-
anlega ganga yfir á álíka mörgum
árum og milliölsdrykkjan stóð. Dr.
Gunnar Ágren telur að til að
draga að mun úr tjóni af völdum
drykkju þurfi að koma til auknar
hömlur á dreifingu þessa vímuefn-
is og jafnvel skráning áfengis-
kaupa á nafn.
28. 1966—1982 jókst áfengisneysla
íslendinga um 34,7%, Dana um
98% og Finna (öl leyft 1969) um
146,2%.
Að framantöldu tel ég að vart sé
brýnt að bæta fleiri tegundum
áfengis á sölulista ÁTVR og vín-
söluhúsa í landinu, annars myndi
illa fara eins og ofantaldar upp-
lýsingar skýra frá.
Sigurgeir Þorgrímsson er sagn-
íræðinemi við Háskóla íslands.
Ástu og Friðfinns Finnssonar
voru gefnar skipabækur Fjölva
fyrir ástundun og framfarir í
námi og hlutu þær þeir Sigurgeir
Pétursson og Sigurbjörn Árnason.
Rotary-klúbbur Vestmannaeyja
veitti verðlaun fyrir hæstu eink-
unn í íslensku og hlaut þau Sigur-
geir Pétursson. Þá verður honum
einnig afhent Verðandaúrið á sjó-
mannadaginn.
Jón Björnsson frá Bólstaðarhlíð
gaf skólanum veglegt safn báta-
mynda til minningar um foreldra
sína, þau Björn Bjarnason og Ingi-
björgu Ólafsdóttur. Hugrún Dav-
íðsdóttir gaf til minningar um
unnusta sinn, Hjört Jónsson, sem
fórst með Hellisey VE., kafara-
búning og Tryggingamiðstöðin hf.
gaf skólanum annan slíkan bún-
ing.
Heiðursgestur skólans á skóla-
slitum var Sigurgeir Ólafsson, for-
seti bæjarstjórnar, og flutti hann
nemendum árnaðaróskir. Skóla-
stjóri Stýrimannaskólans í Vest-
mannaeyjum er Friðrik Ás-
mundsson. hkj.
Tilboð sem verður ekki endurtekið
Gildir til 19. maí ’84.
30% staðgreiðsluafsláttur
af öllum vörum verzlunarinnar
ATH:
Tilboðið veröur
ekki endurtekið.
Síðasti dagur
19. maí.
OPIÐ:
alla daga frá kl. 9—6 laugard. 19.5 frá kl. 10—3 e.h.
K.M. Húsgögn
Langholtsvegur 111 — Símar 37010 — 37144 — Reykjavík.
Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum:
12 nemendur luku
nú I. stigs prófi
Vetttmannaeyjuin. 14. maí.