Morgunblaðið - 17.05.1984, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1984
41
var jafnan tekið opnum örmum á
heimili þeirra að Sunnuvegi 4,
Hafnarfirði. Var einkar ánægju-
legt að ræða við Sigurgeir í góðu
tómi, fjölfróðan mann og sann-
menntaðan á mörgum sviðum.
Sigurgeir var mikill hæfileika-
maður og kom víða við á starfs-
ferli sínum og hvarvetna með
miklum ágætum. Kunnastur hygg
ég þó að hann sé fyrir störf sín hjá
Teiknistofu landbúnaðarins, við
Iðnskóla Hafnarfjarðar og nú síð-
ari árin við Spítala Jósepssystra í
Hafnarfirði. Starfsþrek hans og
starfsgleði var með ólíkindum og
átti hann þó við heilsubrest að
stríða. Fyrir tveimur árum gekkst
hann undir hjartaaðgerð í Banda-
ríkjunum hjá hinum færustu sér-
fræðingum. Var Bárður læknir,
sonur hans, með honum í för
þangað. Bjuggust fæstir við að
Sigurgeir kæmi til starfa að nýju,
en hann var ekki þeirrar gerðar að
hlífa sér er verkefnin biðu.
Var vinum hans það áhyggju-
efni hve ósérhlífinn hann var og
kallið kom þegar hann var að aka
í bíl sínum ásamt ungum dóttur-
syni.
Sigurgeir er eftirminnilegur
þeim er honum kynntust. Röddin
skýr og karlmannleg og framsetn-
ing öll og framganga. Ritfær var
hann í besta lagi. Heimabæ sín-
um, Hafnarfirði, unni hann og var
ákaflega fróður um sögu bæjarins,
menn og málefni.
Við í Syðra-Langholti sendum
Kristínu, börnum og barnabörn-
um og öðrum aðstandendum hins
látna heiðursmanns einlægar
samúðarkveðjur.
Jóhannes Sigmundsson
í dag er kvaddur Sigurgeir Guð-
mundsson, forstjóri St. Jóseps-
spítala í Hafnarfirði.
Undirritaður vill fyrir hönd
starfsmannaráðs og alls sam-
starfsfólks á spítalanum rita
nokkur kveðju- og þakkarorð fyrir
samfylgdina og samstarfið, sem
hjá sumum skiptir áratugum.
Um æviatriði utan spitala-
starfsins mun ég ekki fjölyrða,
aðrir munu verða til þess.
Sigurgeir var fæddur 26. des-
ember, 1918. Hann var meðalmað-
ur að hæð og vexti, svipmikill,
skapmaður, kvikur í hreyfingum,
þrátt fyrir fötlun á fæti frá unga
aldri, röddin sterk og hljómmikil
og orðsins list kunni hann til
fullnustu, bæði í ræðu og riti,
ennfremur kunni hann vel, þótt
ekki væri flíkað, að setja saman
hnyttnar stökur og kvæði. Mun
enginn af samstarfsfólkinu, sem á
hlýddi, gleyma þeim tímum er
Sigurgeir fór á kostum í bundnu
og óbundnu máli í samkvæmum
okkar tengdum áramótum.
Sigurgeir var löngum mikill
trúnaðarmaður þeirra kaþólsku
systra er í Hafnarfirði störfuðu og
nær sú saga til miklu lengri tíma
en undirritaður hefur yfirlit yfir
úr eigin starfi, sem orðin eru 20
ár.
Árið 1976 lét hann af starfi
skólastjóra Iðnskólans í Hafnar-
firði og réðst eingöngu til starfa
fyrir St. Jósefssysturnar í Hafnar-
firði. Ríkti þar á milli ætíð einlæg
vinátta og gagnkvæm virðing og
trúnaður, sem náði og löngum til
æðsta fólks þeirrar reglu í Dan-
mörku.
Aldrei dró Sigurgeir af sér við
störf sfn á vegum systranna og í
baráttunni fyrir hagsmunum spít-
alans og unni sér of sjaldan hvíld-
ar, þótt á síðustu árum hafi á
stundum sjúkdómur háð honum
við að njóta sín, sem hann hefði
viljað. í byrjun síðastliðins árs
sáust óvæntar blikur á lofti í sögu
spítalans, er St. Jósefssystur til-
kynntu ákvörðun um að hætta
spítalarekstri og selja spitalann.
Gnginn skildi betur en Sigurgeir
hvað spítalareksturinn og störf
systranna höfðu verið Hafnar-
firði, og hjartans mál hans og
fleiri innan spítalans var að spít-
alinn væri rekinn áfram undir
kaþólskum merkjum, en ef það
mætti ekki verða, sem virtist ljóst,
þá að það markmið St. Jósefs-
systra frá öndverðu glatist ekki,
að spitalinn starfi áfram fyrir
Hafnarfjörð og nágrenni á sem
breiðustum grundvelli.
Veit ég að Sigurgeir hefði viljað
sjá betur fyrir endann á þessu
máli á meðal okkar, en enginn má
sköpum renna, og við sem eftir lif-
um munum halda merki spítalans
á lofti og minningunni um farsæl
störf St. Jósefssystra í Hafnar-
firði, allt frá 1926 og þætti Sigur-
geirs í þeirri sögu.
Sigurgeir var og trúnaðarmaður
og hjálparhella Karmelsystranna,
sem héðan fluttu á sl. ári, og mun
ekki verða góð för manns yfir
móðuna miklu, sem fylgja fyrir-
bænir systra af reglum St. Jósefs,
Karmel og Mercy frá írlandi, er
nú starfa hér, auk okkar hinna,
sem minna erum orðuð við al-
mættið?
Við þökkum Sigurgeiri fyrir
samfylgdina.
Eiginkonu, syni, dóttur og dótt-
ursonum, vottum við einlæga sam-
úð. Jósef Ólafsson, formaður
starfsmannaráds St. Jósefs-
spítala í Hafnarfirði.
Nærri aldarfjórðungur er liðinn
síðan Sigurgeir Guðmundsson
kom fyrst til starfa í þágu Jósefs-
systra.
Það var þegar hann var fenginn
til þess að teikna fyrstu viðbygg-
ingu við St. Jósefsspítala í Hafn-
arfirði. Vandasamt var að gera
þetta svo vel að haganlega færi en
þó svo að kostnaður færi ekki úr
böndum.
Sigurgeir leysti þetta verkefni
frábærlega vel.
Síðan hefur hann teiknað allt
það sem byggt hefur verið við spít-
alann til þessa dags og reyndar
meira en það, því að til eru frá
hans hendi teikningar af framtíð-
arbyggingum spítalans.
Hinn 1. júlí 1976 gerðist Sigur-
geir framkvæmdastjóri St. Jós-
efsspítala í Hafnarfirði.
Þeirri stöðu gegndi hann til
dauðadags af sömu hagsýni og
trúmennsku og öllu öðru sem hann
tók sér fyrir hendur.
Hefur spítalinn vaxið og þróast
undir hans stjórn og rekstur hans
verið til fyrirmyndar.
Sigurgeir sýndi okkur Jósefs-
systrum og trú okkar mikla virð-
ingu, sem við mátum við hann.
Hann reyndi að viðhalda þeim
anda og yfirbragði spítalans sem
var, á meðan systurnar ráku hann
og tókst það. Það hefur aldrei far-
ið á milli mála að St. Jósefsspítali
er kaþólskur spítali.
Sigurgeir Guðmundsson var
Jósefssystrum meira en arkitekt
eða framkvæmdastjóri. Hann var
okkur stoð og stytta langt umfram
það sem þessi störf hans gáfu til-
efni til. Boðinn og búinn til að-
stoðar hvenær sem hennar var
þörf.
Eftir að Mercy-systur komu til
starfa á spítalann gátu þær á
sama hátt reitt sig á ráð hans og
aðstoð.
Jósefssystur og Mercy-systur
þakka Sigurgeiri Guðmundssyni
samfylgdina. Megi hið eilífa ljós
lýsa honum. Hann hvíli í friði.
Eiginkonu hans og fjölskyldu
vottum við okkar dýpstu samúð.
Jósefssystur,
Mercy-systur.
Kveðjuorð frá Selfossi
Atvikin höguðu því þannig að
mér var falin forusta í minni
heimabyggð í félagsskap, sem
okkur Sigurgeiri Guðmundssyni
var báðum mjög kær. Við það
starf, sem því fylgdi, var ég svo
lánsamur að mega njóta leiðsagn-
ar og leiðbeininga hans. Með
óþrjótandi áhuga og krafti, sem
ávallt fylgdi honum lagði hann
okkur lið. Daginn áður en hann
veiktist sat hann fund hjá okkur,
hress og kátur og lék á als oddi.
Við það tækifæri var hann heiðr-
aður. Nú að leiðarlokum flyt ég
þakkir okkar fyrir alla velvild
hans og vináttu, sem við urðum
aðnjótandi. — Kristínu frænku
minni og börnum þeirra færi ég
innilegar samúðarkveðjur.
Páll Jónsson
SJÁ NÆSTU SÍÐU
I I BYGGlNGAtfÖRUBl
HAFA VERIÐ
BRAUTRYÐJENDURí
D
Á VÖRUM OG ÞJÓNUSTU VIÐ HÚS-
BYGGJENDUR, SAMANBER HIN
ÝMSU AFSLÁTTAR-TILBOÐ OKKAR I
OG ÞAU VINSÆLU GREIÐSLUKJÖR
SEM VIÐ HÖFUM BOÐIÐ. I FRAM-
HALDI AF ÞESSARI STEFNU ER
NÝJASTA TILBOÐ OKKAR NÚ
MARGS KONAR . . .
S1ADGREWSUJ
IMnMS
ÞESSI STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR ER MISMUNANDI MIKILL EFTIR
ÞVÍ í HVAÐA DEILD OKKAR ER VERSLAÐ OG FYRIR HVERSU HÁA
UPPHÆÐ, EINS OG EFTIRFARANDI DÆMI SÝNA:
DEILD 1
GRÓFAR BYGGINGAVÖRUR:
TIMBUR, JARN, EINANGRUN,
PÍPULAGNINGAREFNI, OFNAR
O.FL.
Sé keypt fyrir:
Kr. 5.000 er 2% afslattur
Kr 10.000 er 3% afsláttur
Kr. 30.000 er 4% afsláttur
Kr. 50.000 er 5% afsláttur
Kr. 75.000 er 6% afsláttur
Kr. 100.000 er 7% afsláttur
DEILD 3
MÁLNINGARVÖRUR
OG VERKFÆRI
Sé keypt fyrir:
Kr. 5.000 er 5% afsláttur
Kr. 25.000 er 7,5% afsláttur
Kr. 50.000 er 10% afsláttur
DEILD 2
GÓLFDÚKUR, LÍM, HREIN
LÆTIS- OG BLÖNDUNAR-
TÆKI, FLÍSAR.KORKUR O.
Sé keypt fyrir:
Kr. 5.000 er 5% afsláttur
Kr 10.000 er 7,5% afsláttur
Kr. 30.000 er 10% afsláttur
DEILD 4
GÓLFTEPPI, MOTTUR
Sé keypt fyrir:
Kr. 5.000 er 5% afsláttur
Kr. 25.000 er 7,5% afsláttur(
Kr. 50.000 er 10% afsláttur
ÆFTIRFARANDI
AFHEILDARUPPHÆÐ ER LIKA VEITTUR
ÞEGAR UPPGJÖR A SKULDABRÉFI FER FRAM
UM LEIÐ OG VIÐSKIPTI EIGA SÉR STAD OG
UTBORGUN ER HÆRRI EN 20%. SEM ER
LÁGMARKSUTBORGUN. EN ___
HAMARKSLANSTIMI ER HALFT AR
30 til 40% útborgun er afsláttur 1%
40 til 50% útborgun er afsláttur 2%
50 til 60% útborgun er afsláttur 3%
60 til 70% útborgun er afsláttur 4%
70% útborgun og meira er afsláttur 5%
RÁЮ
VERÐINU
SJÁLF'.
HIN
VINSÆLU
BYGGINGALÁN
VIÐSKIPTAREIKNINGAR FYRIR HUSBYGGJENDUR
UTTEKT FER FRAM I VIÐSKIPTAREIKNING. GEGN MÁN-
AÐARLEGU UPPGJÖRI FYRIR 10. NÆSTÁ MANAÐAR
EFTIR UTTEKTARMANUÐINN . UPPGJÖR GETUR VER-
IÐ MEÐ SKULDABRÉFI OG ER ÞA LÁGMARKSUTBORG-
UN 20%. EN EFTIRSTÖÐVAR GREIÐAST MEÐ ALLT AÐ
SEX MANAÐARLEGUM GREIÐSLUM.
KOMIÐ EÐA HAFIÐ SAMBAND VIÐ OKKUR í SÍMA - SAMEIGINLEGA GETUM
VIÐ ÁBYGGILEGA KOMIST AÐ HEPPILEGU SAMKOMULAGI.
BYGGINCAVÖRUR
r HRINGBRAUT 120: Byggingavoruf Flisar og 28-600
Golfteppadeild 28-603 hreinlætistæki 28-430
Timburdeild 28-604 Solustjori 28-693
Malmngarvörur Skrifstofa 28-620
^ og verkfæri 28-605 Harðviðarsala 28-604 A