Morgunblaðið - 17.05.1984, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1984
45
hygli og höfðu mikil og varanleg
áhrif.
Laugarnesprestakall var stofn-
að með lögum frá 7. maí 1940.
Prestkosning fór fram um haustið.
Séra Garðar hafði þá í fjögur ár
messað í Laugarnesskóla og leyst
af hendi annað kirkjulegt starf
með miklum ágætum. Enginn
keppti við hann um prestsembætt-
ið. Allir vissu að séra Garðar var
hinn sjálfkjörni sóknarprestur.
Kosningin var nánast formsatriði.
Fljótlega eftir að séra Garðar
hóf starf sitt í Laugarnesi var far-
ið að huga að kirkjubyggingu.
Bygging Laugarneskirkju var
mikið átak á þeim tíma. Fyrir
frábæran dugnað sóknarprests,
fyrstu sóknarnefndarmanna og
samhug og fórnfýsi sóknarbarna
reis Laugarneskirkja á tiltölulega
skömmum tíma. Kjallari kirkj-
unnar var tekinn í notkun um ára-
mótin 1943—44. Kirkjan var vígð
18. des. 1949. Það var mikill sigur-
og hátíðisdagur í lífi séra Garðars
og Laugarnessafnaðar.
Barna- og ungmennafræðsla og
málefni æskunnar voru séra Garð-
ari mjög hjartfólgin. Börn hænd-
ust að honum og hann átti auðvelt
með að ná til þeirra. I gönguferð-
um um Laugarneshverfið tók
hann börn oft tali og ræddi við
þau af glaðværð og hlýju. Það var
fögur sjón sem mörgum Laugar-
nesbúum er eftirminnileg.
Á hverjum vetri kom séra Garð-
ar í heimsókn í Laugarnesskólann
og ávarpaði nemendur. Hann var
ekki með langar og strangar pre-
dikanir. Séra Garðar hafði þann
hátt á að tala við börnin stutta
stund í léttu samtalsformi. Hann
fékk líka alltaf gott hljóð. Börnin
hlustuðu og fylgdust af athygli
með því sem hann sagði.
Séra Garðar fylgdist með tím-
anum. Honum var ljóst að margs-
konar starfsemi, sérstaklega fyrir
unglinga og eldra fólk, verður
kristinn söfnuður að leysa af
hendi. Það var því lengi hjartans
áhugamál séra Garðars að Laug-
arnessöfnuður eignaðist safnað-
arheimili. Um árabil lagði hann
sig allan fram til að svo gæti orð-
ið.
Séra Garðar kastaði ekki hönd-
unum til þess sem hann gerði. All-
ar kirkjuiegar athafnir lagði hann
mikla rækt við og sparaði hvorki
tíma né erfiði. Trúverðugri og
skylduræknari embættismann er
varla hægt að hugsa sér.
Haustið 1976 lét séra Garðar af
embætti fyrir aldurs sakir. Þá var
hann búinn að vera þjónandi
prestur í Laugarnesi nákvæmlega
40 ár. Ég tel að það hafi verið
ómetanlegt fyrir okkar borgar-
hluta — Laugarneshverfið — að
hafa haft sama prestinn svona
lengi. Prest sem alltaf var ungur í
anda, áhugasamur og fórnfús.
Séra Garðar var sterkur per-
sónuleiki, sem setti svip á um-
hverfi sitt. Dagleg umgengni hans
einkenndist af glaðværð, virðuleik
og snyrtimennsku.
Ég var náinn samstarfsmaður
séra Garðars síðustu 6 árin sem
hann var starfandi prestur. Með
honum var gott að vinna. Hann
var svo einlægur, velviljaður og
áhugasamur. Frá þessum tíma á
ég margar ljúfar minningar. Það
var líka ánægjulegt að ræða við
séra Garðar um lífið og tilveruna.
Við ræddum m.a. oft um trúmál.
Ég fann að hann var víðsýnn og
laus við kreddur í þeim efnum.
Umburðarlyndur var hann og
frábitinn allri dómhörku.
Séra Garðar var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Hanna Brynj-
ólfsdóttir. Þau eignuðust þrjú
börn: Örn Svavar, Jónu og Gylfa.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
jaröarför
GESTS GUÐFINNSSONAR
fré Litla-Galtadal.
Vandamenn.
t
Þökkum hjartanlega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför bróður okkar,
GUOMUNDAR AÐALSTEINS GUDJÓNSSONAR
frá Syðrí-Kvíhólma.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Landakotsspítala fyrir
frábæra umönnun.
Systkini og aórir vandamenn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
RAGNHILDAR EYJÓLFSDÓTTUR,
Goöalandi 13.
Ármann Friöriksson,
Helga Ármannsdóttir, Siguröur Ólafsson,
Ragnar Ármannsson, Ólafía Sveinsdóttir,
Ármann Ármannsson, Lára Friöbertsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför eiginkonu
minnar og móöur okkar,
SALÓME JÓHANNSDÓTTUR,
Úthlíö 9, Reykjavfk.
Guöjón Kristinn Bernharðsson,
Guörún Jórunn Kristinsdóttir,
Bernharöur Jóhann Kristinsson.
Lokað
frá kl. 12—15 föstudaginn 18. maí vegna jaröarfarar
NÍELSAR CARLSSONAR.
Timburverslun Árna Jónssonar & Co. hf.
Hanna og séra Garðar slitu sam-
vistir.
Þann 19. júlí 1952 kvæntist séra
Garðar eftirlifandi konu sinni,
Vivan Svavarsson. Frú Vivan og
séra Garðar voru mjög samhent
hjón og hjónaband þeirra ein-
kenndist af ástúð og umhyggju.
Frú Vivan vann mikið að kirkju-
málum. Ég veit að hún var manni
sínum ómetanleg stoð og stytta í
hans kirkjulega starfi.
Séra Garðar Svavarsson andað-
ist 9. maí sl., og fer útför hans
fram í dag frá Laugarneskirkju.
Ég veit að margir munu hugsa til
hans með hlýhug og þakklæti.
Að leiðarlokum er mér bæði
ljúft og skylt að þakka séra Garð-
ari af alhug hans mikla og óeig-
ingjarna starf fyrir Laugarnes-
söfnuð. Ég þakka séra Garðari
vináttu og hlýhug í minn garð og
kveð hann með einlægu þakklæti
og virðingu.
Blessuð sé minning séra Garð-
ars Svavarssonar.
Ekkju hans, frú Vivan, börnum
og öðru venslafólki sendi ég sam-
úðarkveðjur.
Þorsteinn Olafsson
Séra Garðar Svavarsson var
einn þeirra manna, sem öllum
þótti vænt um. Hann var heiðurs-
maður í orðsins fyllstu merkingu.
Hann mætti veröldinni með ein-
stæðri hlýju og velvild sem óneit-
anlega hefur sett djúp spor í líf
þúsundir einstaklinga.
Ég var ungur að árum er ég sá
séra Garðar í fyrsta skipti, það
var í Laugarneskirkju við messu-
gjörð. Síðar á unglingsárum fékk
ég að æfa mig á orgel kirkjunnar
og hjálpaði þá stundum til við
tónlistarflutning á vegum kirkj-
unnar. Mér er minnisstætt hve vel
hann tók alltaf á móti okkur sem
þannig komum til að aðstoða.
Hann mætti okkur sem sannur
vinur. Þannig held ég að öll hans
sóknarbörn hafi notið kærleika
hans og alúðar.
Þegar ég svo tók við embætti
hans í Laugarnessókn haustið
1976 kynntist ég honum enn betur
og naut þá reynslu hans í 40 ára
prestsstarfi. 011 embættisgögnin
voru óaðfinnanleg og til mikillar
fyrirmyndar, enda var séra Garð-
ar rómaður af starfsbræðrum sín-
um sem nákvæmur og góður emb-
ættismaður. Einnig fann ég fljótt
hve hann og kona hans, frú Vivan
Svavarsson, voru elskuð af sókn-
arfólki og hve margir rómuðu
störf þeirra og þjónustu á löngu og
farsælu tímabili.
Nú er séra Garðar látinn. Eftir-
sjáin er mikil fyrir okkur öll sem á
einhven hátt nutum þjónustu hans
og vináttu. Ekki síst syrgja sókn-
arbörnin mörgu sinn ástsæla hirði
með mikilli virðingu og þökk. Við
þökkum Guði sem gaf okkur sr.
Garðar og biðjum Guð um blessun
yfir ævistarf hans svo það beri
enn ávöxt í hjörtum þeirra sem
heyrðu hann boða Guðs heilaga
orð og nutu heilagrar þjónustu
hans.
Ég og fjölskylda mín sendum
eftirlifandi eiginkonu sr. Garðars,
frú Vivan, og ástvinunum mörgu
okkar innilegustu samúðarkveðjur
og biðjum góðan guð að blessa
ykkur öll.
Vikersund,
Jón D. Hróbjartsson
Ámý Guðmunds-
dóttir - Minning
Fædd 29. október 1913
Dáin 9. maí 1984
Góð kona er gengin. Okkur fjöl-
skylduna stóru á efri hæðinni á
Brávallagötu 44 langar til að
minnast hennar með nokkrum
orðum. Árný, éða Adda, eins og
við kölluðum hana alltaf, var fædd
á Brekkum, Holtahreppi í Rangár-
vallasýslu, 29. október 1913. Hún
ólst síðan upp á Efra-Rauðalæk í
sömu sveit til fermingaraldurs að
hún flutti til Reykjavíkur með
móður sinni og ömmu, sem þá
voru báðar ekkjur. Foreldrar
henna voru Guðlaug Gísladóttir
og Guðmundur Sigurðsson.
Fyrir réttum 47 árum var lokið
byggingu verkamannabústaðanna
á Brávallagötu. Fluttust mæðg-
urnar þrjár þar inn á nr. 44 og
einnig fjölskylda okkar, sem þá
var ekki stór. Þá hófust þau kynni
og sambýli, sem aldrei hefur neinn
skugga borið á síðan.
Árný giftist litlu síðar eftirlif-
andi eiginmanni sínum, Ragnari
Kristjánssyni, og hófu þau búskap
á Brávallagötunni og hafa búið
þar síðan. Þau eignuðust þrjú
börn: Sigurður er kennari við
Menntaskólann við Sund; Jóhanna
Guðlaug sem gift er Ragnari
Finnssyni, lækni, en þau eiga tvö
börn; yngst er Unnur, kennari að
mennt.
Það er margs að minnast gegn-
um árin af Brávallagötunni.
Gömlu konurnar á neðri hæðinni
voru sem amma og langamma
allra barnanna í húsinu meðan
þær lifðu. Barnahópurinn á efri
hæðinni náði tugnum og er okkur
ekki grunlaust um núna, að stund-
um hafi verið hávaðasamt í kring-
um okkur og jafnvel verið ónæðis-
samt að búa á hæðinni beint fyrir
neðan okkur. Aldrei heyrðist samt
styggðaryrði eða kvörtun frá
Öddu og Ragnari. Viðmót þeirra
var alltaf jafn hlýlegt. Þegar
börnin voru vaxin úr grasi og farið
að hægjast um hjá hjónunum á
báðum hæðum, tóku þau stundum
sumarfrí sín saman. Ferðuðust
þau þá um og dvöldu m.a. í sumar-
húsunum í Ölfusborgum og á 111-
ugastöðum í Fnjóskadal. Þessi
ferðalög urðu þeim öllum til mik-
illar gleði og var oft rætt um þau
og þá mörgu staði sem skoðaðir
voru.
Adda var fróð og víðlesin, þótt
ekki hefði hiún hlotið mikla
menntun á skólabekk. Það er alveg
sama um hvaða málefni var rætt,
á öllu kunni hún jafngóð skil og
hafði myndað sér ákveðnar skoð-
anir um, sem hún rökræddi af
mikilli skynsemi.
Fyrir 10 árum missti Adda
heilsuna og dvaldist á Vífilsstaða-
spítala lengst af síðan, en reisn
sinni og æðruleysi hélt hún til
hinstu stundar, þrátt fyrir erfiða
sjúkdómslegu.
Að leiðarlokum þökkum við
Öddu samfylgdina og tryggðina
við okkur og sendum Ragnari,
börnum og barnabörnum okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Fjölskyldan á
efri hæðinni
á Brávailagötu 44
Halldór Þorbergs-
son vélstjóri
Mánudaginn 30. apríl var Hall-
dór Þorbergsson vélstjóri jarð-
settur, og viljum við skipverjar á
Ögra minnast hans með nokkrum
orðum.
Halldór var samskipa okkur
nokkur sumur, okkur og honum til
ánægju, enda var hressari og létt-
ari maður vandfundinn til sjós.
Hann ávann sér vinsældir meðal
dekkliðsins með því að vera alltaf
reiðubúinn að vinna þau verk sem
til féllu þar, þótt svo þau væru oft
á tíðum utan hans verksviðs, og
óþreytandi var hann að koma með
nýjar hugmyndir til að létta okkur
störfin um borð, hugmyndir sem
við búum að enn þann dag í dag.
Nú er orðið of seint að þakka
Halldóri samveruna en minningin
um hann lifir á meðal okkar og
það er það framhaldslíf sem skipt-
ir máli. Skipverjar b/v Ögra
Ert þú með andlit?
Meö tilliti til aukinnar framleiðslu auglýsingamynda vantar okkur fólk
til aö koma fram í auglýsingum. Allar tegundir andlita, feit, grönn, og
allt þar á milli koma til greina.
Hafir þú áhuga, komdu þá viö hjá ísmynd, Laugavegi 26, 2. hæö, föstudaginn
18. maí milli kl. 6 og 9. Akdurstakmark 20 ára og eldri.
mw7n
m