Morgunblaðið - 17.05.1984, Síða 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MA! 1984
„ Xorvx, hlooptu upp á LoH. cg atKugrfbú
h'Sorl qasqrilliS hans er ^ePnkerbergimi
okkar."
að bera henni
brauð í rúm.
TM Ru U.S. Pat Otf.-all rlghts reserved
• 1981 Lot Angeles Tlmes Syndicate
Þessi er á fótinn nær glugganum!
Hann veróur ad fá sér gleraugu.
Hann er búinn að tala langa lengi
við þennan þaksaum!
HÖGNI HREKKVÍSI
\nv LLKKUOÚtZl& ÞlTT."
í»essir hringdu . .
Islenska
dómskerfið
og nauðganir
Helga Ágústsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
Hátt er nú risið á dómskrefi
okkar.
Fyrir skömmu urðu erlend
hjón uppvís að eggjastuldi sem
vissulega er vítaverðt og gæti
hugsanlega haft alvarlegar af-
leiðingar fyrir fuglalíf landsins.
Þeim var hið snarasta komið
fyrir í gæsluvarðhaldi svo unnt
yrði að vinna að rannsókn máls-
ins í friði og spekt og eigi yrði
sakargögnum spillt.
Skömmu síðar gerist það að
einhver vesalingur nauðgar konu
og gerir aukinheldur tilraun til
að nauðga annarri sem komst
undan við illan leik . Vesalingur
þessi játaði og fer nú frjáls ferða
sinna á höfuðborgarsvæðinu
enda ljóst að hann getur ekkert
það aðhafst sem spillir fyrir
rannsókn málsins, hvorki eytt
sakargögnum né annað. Hann er
hins vegar búinn að valda skaða
sem trúlegast verður aldrei
bættur, skaða á mannslífum sem
ég hafði hingað til haldið að væri
mikilvægari en sjaldgæf fálka-
egg-
Hvaða tryggingu höfum við nú
fyrir því að hann endurtaki ekki
brot sitt, slíkt er ekki möguleiki
að segja til um með nokkurri
vissu.
Það er eins og mig minni að
röksemdir fyrir gæsluvarðhalds-
úrskurði séu meðal annarra að
viðkomandi sé sannanlega
hættulegur sjálfum sér eða um-
hverfi sinu. Eru konur og líkam-
ar þeirra ekki lengur hluti af
daglegu lífi okkar og þá á um-
hverfinu, eða á ef til vill að fara
einn ganginn að kanna það hvort
fórnarlömb nefnds vesalings
hafi verið með einhverja kyn-
ferðislega tilburði við manninn.
Við hljótum, ef enn er nokkur
réttlætistilfinning í brjóstum
okkar, að rísa upp og krefjast
þess að hið islenska dómskerfi
líti jafn alvarlegum augum á það
brot sem framið var gagnvart
þessum konum eins og eggja-
stuldi.
Endurflytjið
„Við“
Jóna Guðmundsdóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
Ég vildi gjarnan koma því á
framfæri við Ríkisútvarpið að
endurflytja þáttinn „Við“ sem er
í umsjá Helgu Ágústsdóttur og
fluttur var síðustu vikuna í apr-
íl. Ég man reyndar ekki hvenær
þessi þáttur var en hún ræðir við
Egil Égilsson í honum.
Þessi þáttur var svo jákvæður
og mannlegur að hann á sann-
arlega erindi til allra.
Meira af
Brúðubílnum
53529925 hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
Ég vil þakka sjónvarpinu fyrir
frábæran þátt úr Bruðubílnum
sem var í Stundinni okkar
sunnudaginn 24. apríl. Mér
finnst þær Helga og Sigríður
hafa mjög gott lag á að ná til
barnana og er þetta eitt besta
efni sem völ er á fyrir yngstu
börnin. Það má sjá á leikþáttun-
um sem Brúðubíllinn er með að
mjög er vandað til þeirra og eru
brúðurnar sérstaklega litríkar
og fallegar. Það er auðheyrt og
séð að margar brúðurnar eru
orðnar góðir vinir barnanna og
vonandi fáum við seinna að sjá
meira af Brúðubílnum.
Verkfallsréttur
á aðeins að
vera í höndum
láglaunafólks
HJ. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
Mikið er ég hissa á kröfugerð
og verkfallshótunum hálauna-
manna eins og flugstjóra sem sí-
fellt heimta sérréttindi og hærra
kaup en aðrar stéttir. Talsmaður
þeirra útskýrði verkfallshótun
þeirra með því að þeir hefðu
dregist aftur úr öðrum stéttum
og það vildu þeir ekki una við.
Þessi útskýring talsmanns flug-
stjóra þýðir þetta: Ef þeir sem
hafa lægra kaup en við færast
nær okkur höfum við sennilega
dregist aftur úr og munum fara í
verkfall. Launajöfnunarstefnan
á erfitt uppdráttar eins og fyrri
daginn. I fámenni okkar þar sem
segja má að allir þekkist vitum
við að flugstjórar búa við ágæt
kjör og mikil fríðindi miðað við
aðra samborgara sína. Það er því
fjarstæða að þeir beiti þjóðfélag-
ið slíku harðræði sem verkfall
er.
Samanburður við útlendinga á
engan rétt á sér á meðan þeir
starfa hér á landi.
Ég er undrandi á að forystu-
menn verkafólks skuli ekki mót-
mæla því að stéttir sem hafa
margfaldar tekjur á við þeirra
umbjóðendur skuli geta hótað að
beita þessu vopni á tímum þegar
láglaunafólk hefur sýnt mikla
hófsemi í kröfugerð.
Verkfallsréttur er neyðarrétt-
ur sem aðeins á að vera í hönd-
um láglaunafólks. Sé hann færð-
ur í hendur allra stétta þýðir það
einfaldlega aö iaunajöfnuður og
bætt kjör láglaunafólks eru úti-
lokuð og renna út í sandinn.
Mín skoðun er sú að enginn
sem hefur tvöföld verkamanns-
laun, hvað þá meira, ætti að hafa
verkfallsrétt.
En svo ég vendi mínu kvæði í
kross þá get ég ekki orða bundist
um örlög okkar frábæru lista-
konu Guðrúnar Á. Símonar. Það
er sannarlega einkennilegt ef við
Reykvíkingar líðum það að hún
sé látin koðna niður í fátækt.
Fyrst og fremst ætti Alþingi
að taka hana á heiðurslista-
mannalaun í stað borgarskálds-
ins okkar. Síðan ætti borgin að
útvega henni einbýlishús þar
sem hún gæti haft dýrin sín sér
til ánægju.
Bæði Davíð og Albert eru
dýravinir og skilja því vel hve
mikla ánægju og ást maður get-
ur haft á dýrunum sínum.
10 gíra hjól
horfið
Emil Pálsson, Fögrubrekku
Kópavogi, hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
Ég hringi vegna þess að það
hvarf hjól sonar míns. Þetta hjól
er 10 gíra og sonur minn notar
það m.a. við það að bera út
Morgunblaðið og því bagalegt
fyrir hann að missa það. Það
stóð hér fyrir utan heimili okkaT
á föstudagskvöldið en á laugar-
dagsmorgun var það horfið.
Ég vil því gjarnan beina til-
mælum mínum til foreldra
barna sem verða e.t.v. vör við að
krakkarnir þeirra eru á ókunn-
ugu hjóli að grennslast fyrir um
hvaðan það er fengið. Hjólið er
af SCO-gerð og ég fór auðvitað
með málið til lögreglunnar en
það er ekki margt sem hægt er
að aðhafast í máli sem þessu.
Ánægju hefur orðið vart með starfsemi Brúðubflsins og er hér að sjá eina
fígúru úr Tröllaleikjum.
f