Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1984
63
fimm manna kjarni sem vann
aðallega að undirbúningnum.
Auk hans hefur fjöldi annara
lagt hönd á plóginn."
Einhleypum fer
fjölgandi
Hópurinn telur að einhleypum
fjölgi stöðugt og ástæður fyrir
því telur hann meðal annars
vera aukið fjárhagslegt sjálf-
stæði einstaklingsins. „Hug-
myndin er að stofna skemmtileg
hagsmunasamtök, sem miða
fyrst og fremst að því að bæta
fjárhagslega og félagslega stöðu
einhleypra."
Á fundinum skráðu menn sig í
starfshópa. Einn hópurinn kem-
ur til með að vinna að efna-
hagsmálum, svo sem skatta- og
húsnæðis óg lánamálum. Annar
hópur vinnur að skipulagi sam-
takanna og kynningu auk þess
að vinna að drögum um lög sam-
takanna. Þá er í bígerð að félag-
ið gefi út fréttabréf. Þriðji hóp-
urinn, sem reyndist vinsælastur
meðal fundargesta, mun vinna
að félags- og skemmtanamálum,
sem væntanlega verða snar
þáttur í starfseminni. Alls
skráðu um 200 manns sig stofn-
félaga að samtökunum og tæp-
lega 60 manns skráðu sig í
starfshópana.
Samtökin stofnuÖ
í haust
Fundurinn hófst með inn-
gangsorðum Arnars S. Þorleifs-
sonar sem sagði frá undirbún-
ingi og aðdraganda fundarins.
Þá flutti Guðríður Adda fram-
söguerindi sitt um efnahags- og
skattamál einhleypra. Einnig
ræddi hún um framfærslukostn-
að þeirra og lánakjör. Gisli
Magnússon tók næstur til máls
og fjallaði um skipulagsmál og
starfið framundan. í ræðu sinni
lagði Gísli m.a. til að starfshóp-
arnir tækju til starfa mjög
fljótlega.
Að loknum framsöguræðum
tóku allmargir fundargestir til
máls. Lýstu þeir yfir ánægju
sinni með fundinn og lögðu til
að samtökin yrðu stofnuð hið
fyrsta. En þar sem ýmis mál eru
enn óunnin, ályktaði fundurinn
að stofnfundur skyldi ekki hald-
inn fyrr en í haust, í síðasta lagi
í nóvember næstkomandi.
Vantar húsnæði
Hvernig kemst fólk í samband
við fyrirhuguð samtök?
„Þeir, sem ekki komust á
fundinn, en hafa áhuga á að
vera með, verða að fylgjast með
tilkynningum og auglýsingum
frá okkur. Enn sem komið er
höfum við ekki yfir neinu hús-
næði að ráða. Við erum að leita
að stað þar sem við getum hald-
ið 10 til 15 manna fundi og haft
síma. Annars erum við öll í
símaskránni."
Nú verður ekki betur séð en
áhugi á stofnun samtaka ein-
hleypra sé töluverður. Hvernig
komið þið til með að fylgja undir-
búningnum eftir?
„Fólkið sem skráði sig í
starfshópa verður boðað til
fundar mjög fljótlega og svo
verður unnið markvisst að und-
irbúningi stofnfundarins. Starf-
ið kemur að sjálfsögðu til með
að byggjast algjörlega á virkni
félaganna sjálfra og ef áhugi er
fyrir hendi ætti ekkert að verða
því til fyrirstöðu að svæðisfélög
verði stofnuð úti á landi. Þessi
fundur hefur ótvírætt sýnt að
grundvöllurinn er fyrir hendi og
hin góða fundarsókn var mikil
uppörvun fyrir okkur sem stóð-
um að undirbúningnum."
Að þessum orðum mæltum
þótti fimmmenningunum tími
til kominn til að „fá sér snúning
því „makalausum dansleik"
hafði verið slegið upp til klukk-
an þrjú um nóttina.
hafi orðið fyrir vonbrigðum, en
eins og ég segi, þá bjóst ég við að
meiri áhersla yrði lögð á félags-
skapinn sjálfan. Að vísu var rætt
um ferðalög og ýmislegt þesshátt-
ar, sem ég tel mjög jákvætt, og
eins hlýtur það að vera jákvætt að
hópur einhleypra skuli berjast
fyrir réttindum sem þeir telja
sjálfsögð. Samt sem áður tel ég að
það sé ekki rétt að ýta undir frek-
ari fjölgun einhleypra í þjóðfélag-
inu, frá því sem nú er.“
Hvers vegna komstu á fundinn?
„Ég sá hann auglýstan og kom
til að forvitnast. Jú, ég skráði mig
stofnfélaga og reikna með þvf að
mæta á fundinn sem haldinn verð-
ur í haust. Annars á ég ekki von á
að þetta verði virkur félagsskapur
fyrr en í haust fyrir þá sem eru
einir."
Dagný Haralds-
dóttir 30 ára:
Einhleypir
eiga rétt á sín-
um félagsskap
Við hittum að máli Dagnýju Har-
aldsdóttur scm er þrítug.
„Mér leist ljómandi vel á fund-
inn og mér finnst að einhleypt fólk
eigi fullan rétt á sínum félagsskap
eins og til dæmis einstæðir for-
eldrar. Ýmislegt athyglisvert kom
fram á fundinum bæði í sambandi
við lánveitingar til einstaklinga og
skattamál þeirra og hve mismun-
unin er mikil og óréttlát."
Hvers vegna komstu á fundinn ?
Dagný Haraldsdóttir: „Heyrði fund-
inn auglýstan í útvarpi og það var
fyrst og fremst fyrir forvitni að ég
kom.“
„Ég heyrði hann auglýstan í út-
varpinu og það var fyrst og fremst
fyrir forvitni að ég kom. Ég bý ein
og er á leiðinni að kaupa mér íbúð
og mig langaði meðal annars til að
forvitnast um hvernig ég stæði til
dæmis gagnvart lánasjóðum."
Hefurðu búið lengi ein?
„Nei, en ég var í sanibúð og
hjónabandi frá því ég var 17 ára
gömul þar til fyrir nokkrum mán-
uðum. Nú langar mig til að búa
ein og ég held að ég geri það ör-
ugglega næstu árin að minnsta
kosti. Ég skráði mig stofnfélaga
og er ákveðin að vera með þegar
næsti fundur verður haldinn og
þegar starfsemin hefst. Fólkið hér
skemmtir sér stórkostlega, en það
er svo mikið um að fólk sem býr
eitt, eftir skilnað til dæmis, loki
sig af og einangrist, en félagsskap-
ur af þessu tagi getur hjálpað því
að komast í samband við annað
fólk sem er í svipaðri aðstöðu.
Tónlistarskóla Sauðárkróks slitið
Sauóárkróki 14. maí.
NÍTJÁNDA starfsári Tónlistarskólans á Sauðárkróki
lauk með tónleikum í Safnahúsinu sl. sunnudag að við-
stöddu fjölmenni. Þar kom fram fjöldi nemenda, sem
spiluðu á ýmis hljóðfæri við góðar undirtektir áheyr-
enda. Skólastjórinn, Eva Snæbjarnardóttir, gerði grein
fyrir starfseminni í vetur og kom þar fram að 140 nem-
endur hefðu innritað sig í skólann. Tónlistarskólinn
flutti í nýtt húsnæði sl. haust, en hann hefur haft aðsetur
í Safnahúsinu síðustu árin. Fastráðnir kennarar við
skólann eru þrír og stundakennarar tveir. Kári.
GDpioneer
Vinsælustu bíltæki í heimi
KP3230 Útvarpskassettutækí
LW/MW/FM steríó. Sjálfvirk endurspólun.
Hraöspólun i báöar áttir. Verö kr. 7.110.-
KP 4230 Útvarpskassettutæki
LW/MW/FM steríó. Spilar báöum megin. „PNS"
truflanaeyöir. „ATSC“-öryggiskerfi. „ARC III",
„Loudness". Verö kr. 8.470.-
C □ íl
ÖEEE
KE 6300 Útvarpskassettutæki
LW/MW/FM steríó. Quartz læstar stillingar.
„ARC" móttökustillir. Sjálfvirkur stöövaleitari.
Fastar stöövastillingar. „Loudness".
Verð kr. 14.840.-
KEX 73 Utvarpskassettutæki
LW/MW/FM steríó. Sjálfvirk endurspólun.
„Dolby" „Metal" „ATSC“-öryggiskerfi. 15 fastar
stillingar. Lagaleitari. „Loudness".
Verö kr. 19.860,-
BP 320 Kraftmagnari
2 x 20W. Verö kr. 2.300.-
GM 4 Kraftmagnari
2 x 20W. Verö kr. 2.780.-
TS 162Dx Hátalarar
16 cm. Niöurfelldir, tvöfaldir.
40-20.000Hz, 20W.
Verö kr. 990.- etk.
ÍNVW |
TS 2000 hátalarar „Cross-
Axial”, þrefaldir. Niðurfelldir.
30—21.000 Hz. 60 w.
Verðkr. 4.110.
TS-106 hátalarar, innfelldir, 20
w. Passa í flestar gerðir bif-
reiða.
Verö kr. 880.
TS 1644 Hátalarar
12,5 cm. Niöurfelldir, tvöfaldir.
40-20.000Hz, 25W.
Verð kr. 1.810.- stk.
HUOMBÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999