Morgunblaðið - 29.05.1984, Page 1
80 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
121. tbl. 71. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 29. MAI 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Danska þingiö samþykkir refsiaðgerðir
gegn Siiður-Afríku:
„Skaðar aðeins
hagsmuni Danau
— segir Uffe Elleman-Jensen utanríkisráðherra
Kaupmannahöfn, 28. maí. AP.
DANSKA þingið samþvkkti í dag með naumum meirihluta, 85 atkvæðum gegn
75, að fela ríkisstjórninni að fylgja eftir ályktunum Sameinuðu þjóðanna um
efnahagslegar refsiaðgerðir gagnvart Suður-Afríku. í samþykklinni felst m.a. að
dönskum skipum er óheimilt að flytja olíu til Suður-Afríku og sala á danskri olíu
þangað með öðrum hætti er óleyfileg. I'á mega danskir ríkisborgarar ekki
fjárfesta í Suður-Afríku og fyrirtæki í Danmörku, sem flutt hafa inn kol þaðan,
verða að að gera yfirvöldum grein fyrir því árlega hvernig þeim miðar í því að
binda enda á viðskiptin.
Danska ríkisstjórnin, svo og sam-
tök skipaeigenda, skipasmiða og
nokkur verkalýðsfélög, lýsti sig and-
víga samþykktinni. Talsmaður rík-
isstjórnarinnar sagði að hún gæti
ieitt til þess að mörg þúsund Danir
misstu atvinnuna.
Uffe Ellemann-Jensen, utanrík-
isráðherra Danmerkur, sagði að rík-
Ólympíu-
nefndin á fund
Chernenkos
Ijusanne, Sviss, 28. maí. AP.
FORYSTUMENN Aiþjóða
ólympíunefndarinnar fara til
Moskvu á miðvikudag og hyggjast
leggja þar fram nýjar tillögur fyrir
Konstantin Chernenko, forseta
Sovétríkjanna, sem miða að þvf að
fá Sovétmenn til hætta viö ákvörð-
un sína um að mæta ekki á
Ólympíuleikana í Los Angeles.
Ekki hefur verið greint frá því
hvað felst í þessum tillögum.
Formaður sendinefndarinnar,
sem fer til Moskvu, er Spánverj-
inn Juan Antonio Samaranch, en
hann er forseti Alþjóða ólympíu-
nefndarinnar.
Sovétríkin og tólf fylgiríki
þeirra hafa tilkynnt að þau muni
ekki taka þátt í ólympíuleikun-
um í Bandaríkjunum þar sem
Bandaríkjamenn hafi brotið
reglur ólympíunefndarinnar og
geti ekki ábyrgst öryggi sovéskra
íþróttamanna. Þá hafa borist
fregnir um að Afríkuþjóðir kunni
að draga sig út úr leikunum til að
mótmæla því að íþróttamenn frá
Suður-Afríku keppi í ólympíuliði
Breta í Los Angeles.
isstjórnin væri andsnúin aðskilnað-
arstefnu stjórnvalda í Suður-
Afrfku, en samþykkt þingsins hefði
engin áhrif á hana og skaðaði aðeins
danska hagsmuni.
Samtök skipaeigenda sendu frá
sér viðvörun áður en tillagan var
samþykkt á þinginu og bentu á að
ógerlegt kynni að verða að leigja
dönsk skip ef lög í landinu bönnuðu
leigutökum tiltekna notkun þeirra.
Samtök málmiðnaðarmanna
segja að samþykkt þingsins sé ein-
feldnisleg og út í hött að Danir
hrindi efnahagslegum refsiaðgerð-
um gagnvart Suður-Afríku í fram-
kvæmd þegar ekki sé einu sinni víst
að önnur Norðuriönd fari að dæmi
þeirra.
/
%jj. „-----
‘* ; *. -sgK. * -
V • 4M1* ,A ■ ■ »■ *? • v-
> m' í*- '**’ ^****** . - >-.-»■
; ^ ***** -' *r. .' Mfc '
Herþota hrapaði í íbúðarhverfi
m
Sfmamynd AP.
HOLLENSK herþota af gerðinni F-16 hrapaði í
íbúðarhverfi í borginni Linz í Vestur-Þýska-
landi í gær. Tveir létu lífið og níu slösuðust.
Samkvæmt lýsingu sjónarvotta hafði þotan
flogið óeðlilega lágt yfir borginni um hríð þegar
annar vængur hennar rakst á þriggja hæða
íbúðarhús. Eldsneytisgeymur þotunnar kastað-
ist þá til jarðar og við það kviknaði eldur í
húsinu. Þotan skall síðan til jarðar á litlu torgi
skammt frá, sem er aðeins í 100 metra fjarlægð
frá sjúkrahúsi. Flugmaðurinn lést samstundis
svo og kona sem varð undir þotunni. Hinir slös-
uðu hlutu meiðsl sín af völdum eldsins og við
það að brak þeyttist í allar áttir. Margar bif-
reiðir urðu fyrir skemmdum og rúður brotnuðu
í nærliggjandi húsum, þ.á m. sjúkrahúsinu.
Engar skýringar hafa fengist á háttalagi flug-
mannsins, en rannsókn er nú hafin.
íranir vara araba við
íhlutun við Persaflóa
Kagdad, Nikósíu, Manama, 28. maí. AP.
Khamcnei, forseti írans, varaði
Arabaríkin við Persaflóa við því í
kvöld að hafa afskipti af styrjöld ír-
ana og fraka og sagði að ef þau
sinntu þeirri ábendingu ekki yrðu
þau „að taka afleiðingunum" eins
og hann orðaði það.
Samkvæmt frétt IRNA, hinnar
opinberu fréttastofu írana, sagði
forsetinn að íranir væntu ekki
hjálpar frá neinum nema guði og
þeir vildu að Arabaríkin væru
hlutlaus í styrjöldinni.
Forsetinn sagði að íranir ættu
ekki sök á aukinni spennu við
Persaflóa og þeir væru ekki upp-
hafsmenn árása á olíuflutninga-
skip þar.
Búist er við því að öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna komi saman
til fundar á morgun, þriðjudag, til
að ræða kæru sex Arabaríkja við
Persaflóa á hendur írönum fyrir
árásir á tvö olíuskip frá Kuwait og
eitt frá Saudi-Arabíu fyrr í þess-
um mánuði.
Sáttanefnd, sem Samtök mú-
hameðsríkja hafa komið á fót til
að miðla málum í deilu írana og
fraka, kemur saman til fundar í
Jidda í Saudi-Arabíu 9. júní.
Markmiðið er að reyna að leiða
deilu þjóðanna til lykta, og þótt
það takist ekki eru vonir bundnar
við að ríkin fallist á friðaráætlun
sem bindi enda á árásirnar á olíu-
skip í Persaflóa.
Siglingar olíuskipa um flóann
eru nú í lágmarki og liggja á
sjötta tug skipa við festar fyrir
utan austurströnd Sameinuðu
arabísku furstadæmanna og bíða
fyrirmæla útgerðarfyrirtækja
sinna.
Yfirburðasigur
flokks Mubaraks
Kairó, 28. maí. AP.
TALNINGU atkvæða í þingkosningunum, sem fram fóru í Egyptalandi á
sunnudag, er ekki lokið, en úrslit eru kunn í 18 af 48 kjördæmum landsins
og benda þau til þess að stjórnarflokkur Hosni Mubaraks forseta, Þjóðlegi
lýðræðisflokkurinn, vinni yfirburðasigur og fái drjúgan meirihluta þingsæta í
sinn hlut.
Stjórnarandstæðingar hafa lýst
yfir mikilli óánægju með fram-
kvæmd kosninganna og segja að
settum reglum hafi ekki alls stað-
ar verið fylgt og dæmi séu um bein
kosningasvik. Þeir staðhæfa jafn-
framt að stjórnarflokkurinn beri
ábyrgð á ofbeldisverkum sem unn-
in voru í kringum kosningarnar.
Einn frambjóðenda stjórnar-
andstæðinga, kona sem var í
framboði fyrir flokk sósialista, var
skotin til bana á kjörstað í suður-
hluta Egyptalands þar sem hún
hafði lent í orðasennu út af tilhög-
un kosninganna.
Samkvæmt þeim tölum sem
birtar hafa verið fær Þjóðlegi lýð-
ræðisflokkurinn 71 prósent at-
kvæða, Nýi WAFD-flokkurinn,
sem er mið- og hægriflokkur, 16
prósent og Verkamannaflokkur
sósíalista fær um 6 prósent. Til að
fá mann kjörinn á þing þarf flokk-
ur að fá að minnsta kosti 8 pró-
sent atkvæða.
Þingkosningarnar á sunnudag
eru hinar fyrstu í Egyptalandi frá
því Mubarak tók við forsetaemb-
ætti árið 1981 og litið er á þær sem
þýðingarmikla prófraun fyrir völd
hans. Stjórnarblaðið A1 Gomhuria
segir að kosningarnar marki upp-
haf Mubarak-tímabils í Egypta-
landi.
Símamynd AP.
HOSNI Mubarak, forseti Egypta-
lands, greiðir atkvæói í þingkosning-
um í landinu á sunnudag.
Tóbaksreykur
skaðar börn
Washington, 28. maí, Washington Post
Service.
Landlæknir Bandaríkjanna, C.
Everett Koop, segir í nýrri skýrslu
um „heilbrigði og tóbaksreyk-
ingar“, að æ fleiri rannsóknir
renni stoðum undir þá kenningu
að tóbaksreykur geti einnig vald-
ið þeim sem ekki reykja heilsu-
tjóni.
Á fundi með blaðamönnum,
þar sem skýrslan var kynnt,
sagði Koop að rannsóknir bentu
til þess að meiri líkur væru á
því að börn reykingamanna
fengju öndunarfærasjúkdóma,
s.s. hálsbólgu og lungnabólgu,en
börn þeirra sem ekki reykja.
Landlæknir hvatti foreldra
sem reykja að hafa þetta í huga
og reyna að venja sig af tób-
aksreykingum.