Morgunblaðið - 29.05.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.05.1984, Blaðsíða 45
iim t ifli.ii ínriií OO 1. DEILDIW I KNATTSPYRNU: Fyrsta tap Skagamanna — Sjá nánar /24 Frá blaöamanni Mbl., Þórarni Ragnars- •yni, í Stuttgart: „Ég er varla búinn að átta mig á því enn að lið mitt Stuttgart er búið aö vinna meistaratitilinn í v-þýsku knattspyrnunni, ég kem til meö á að átta mig betur á þessu þegar líða tekur á vikuna. Það er svo mikið um aö vera þessa stundina og enn meira framundan," sagöi Ásgeir Sigur- vinsson er hann kmom út úr bún- ingsklefanum á laugardaginn þegar Stuttgart var búið að tryggja sér meistaratitilinn. En Ásgeir sem var uppáklæddur eins og aðrir leikmenn í tilefni dagsins var brosandi og það lá vel á honum. Ég spuröi Ásgeir aö því hvort hann heföi átt von á því í upphafi keppnistímabilsins aö liöiö myndi veröa meistari, og hverju hann þakkaöi þennan góöa árangur. — Þaö er ekkert launungarmál aö viö stefndum allan tímann aö titlinum. Viö trúöum því sjálfir aö viö gætum unniö hann og þaö tókst okkur. Þetta er því stór stund fyrir okkur. Mjög erfiöu keppnis- tímabili er lokiö og mikil vinna ligg- ur að baki. Þaö var mikiö andlegt álag á okkur fyrir næstsíöasta leik- inn í deildinni er viö mættum Bremen. Viö höfðum gert jafntefli viö Frankfurt og tapaö dýrmætu stigi. Flestir stuöningsmanna okkar svo og blööin héldu aö viö myndum ekki þola pressuna og ekki takast aö vinna titilinn. En viö sýndum þaö og sönnuöum f leikn- um gegn Bremen aö viö þoldum hana, lókum vel á útivelli gegn einu erfiðasta heimaliöi í deildinni og sigruöum. Þar skoraði ég senni- • Ásgeir Sigurvinsson og félagar í Stuttgart tryggðu sér um helgina sigur í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu. Stuttgart tapaði síðasta leiknum fyrir Hamburger, 0:1, en tapið skipti ekki máli. Hér er Ásgeir með boltann á fullri ferö í leiknum. Nánar er greint frá leiknum á laugardag svo og fagnaðarlátum í borginni á bls. 49, 63, 64, 65 og 66. Morgunblaöiö/Friöþjófur „Ég er varla búinn að átta mig á því að við unnum meistaratitilinn" — sagði Ásgeir Sigurvinsson eftir síðasta leikinn í deildinni Góð byrjun FH-inga í 2. deildinni FH-INGAR sigruðu Einherja í 2. deildinni í knattspyrnu á Kapla- krikavelli í Hafnarfirði með tveim- ur mörkum gegn einu. Ingi Björn Albertsson og Guömundur Hilm- arsson skoruöu fyrir FH en Gísli Danivalsson gerði eina mark Ein- herja. Um helgina var leikin heil um- ferð í 2. deildinni. FH-ingar sóttu þá þrjú stig tii ísafjarðar, sigruðu heimamenn 2:0 meö mörkum Inga Bjarnar og Pálma Jónssonar. FH-ingar hafa því byrjaö íslands- mótiö vel, eru komnir meö níu stig eftir þrjá leiki. Klemenz Sæmundsson tryggöi Víði sigur á Völsungi í Garöinum meö eina marki leiksins er hann skallaði f netiö á 35. mín. Skallagrímur sigraöi Einherja 1:0 í Borgarnesi. Björn Jónsson skoraöi eina mark leiksins. Njarövíkingar sótiu þrjú stig til Sauðárkróks, þeir sigröu Tindastól 2:0. Haukur Jóhannsson skoraöi bæöi mörk UMFN. Fresta varö leik Vestmanneyinga og Siglfiröinga í 2. deild þar sem ekki var flogiö til Eyja. Staöan í 2. deildinni er þannig: FH 3 3 0 0 10:2 Víðir 2 1 1 0 3:2 Njarðvík 2 1 0 1 2:1 Skallagrímur 2 1 0 1 3:3 Völsungur 2 1 0 1 1:1 ísafjöröur 2 1 0 1 3:4 Vestm. 1 0 1 0 2:2 Siglufjöröur 0 0 0 0 0:0 Einherji 2 0 0 2 1:3 Tindastóll 2 0 0 2 1:8 Knaltspyrna l lega mikilvægasta mark mitt á ferl- inum er ég kom Stuttgart yfir 1—0. Ég álft aö viö eigum meistar- atitilinn skilið. Stuttgart er búiö aö vera í einu af fjórum efstu sætun- um frá upphafi tímabilsins. — Þessi góöi árangur okkar stafar af því aö viö erum sterk liðsheild, vinnum vel saman og liösandinn er mjög heilsteyptur og góöur. Þá höfum viö lagt hart aö okkur á æfingum og höfum ein- staklega góöan þjálfara. Þaö eru þessi atriöi ööru fremur sem geröu okkur aö þeim meisturum sem við erum f dag. Var sárt aö tapa fyrir Hamborg í síöasta leiknum? — Maöur hugsar ekkert út i þaö. Viö þurftum aö spila mjög kerfisbundinn leik, viö ætluöum ekki aö missa neitt út úr höndun- um á okkur. Þaö sem skiptir máli er aö viö erum meistarar. Leikur- inn gleymist fljótt þegar maöur hugsar um þaö sem mestu máli skipti. Nú hefur þú leikið mjög vel á keppnistímabilinu, hverju þakkar þú árangur þinn? — Fyrst og fremst því aö ég gat leikið af-fullum krafti. Ég er búinn aö ná mér eftir tvo uppskuröi. Ég átti lengi viö slæm meiösl aö stríöa og gat alls ekki leikiö eins og ég á aö mér fyrr en á keppnistímabilinu sem er aö Ijúka. Þá skiptir þaö mjög miklu máli aö mér og fjöl- skyldu minni líkar vel í Stuttgart. Hér á ég góöa félaga og ég er á samningi til 1987. Ég á ekki von á ööru en aö ég veröi hjá Stuttgart út samningstímabiliö, sagöi Asgeir sem haföi í nógu aö snúast. Allir vildu fá hann f viötöl, sjónvarps- menn, blaöamenn og útvarps- menn. Þess má geta aö Ásgeir er aö byggja sér hús í Stuttgart og flytur væntanlega inn í þaö í haust. Mörg fræg félög hafa spurst fyrir um hann en Stuttgart er ekki einu sinni til viöræöu um aö selja knattspyrnumann ársins í V-Þýskalandi. — ÞR. „ÞESSI LEIKUR var algjör eftir- mynd Skagaleiksins á dögun- um,“ sagði Þorsteinn Ólafsson, þjálfari Þórs, eftir leikinn gegn Þrótti í 1. deild á sunnudags- kvöldið. „Viö byrjum mjög vel — spilum glimrandi fótbolta og sköpum okkur góö færi en náum ekki aö skora. Andstæöingurinn skorar Staðan STAÐAN í 1. deildinni í knattspyrnu eftir leiki helgar- innar er þannig: IA 3 2 0 1 5:2 6 Þróttur 3 1 2 0 5:2 5 Víkingur 3 1 2 0 5:4 5 ÍBK 3 1 2 0 3:2 5 Fram 3 1 1 1 3:3 4 KR 3 0 3 0 2:2 3 Þór Ak. 3 1 0 2 2:7 3 KA 3 0 2 1 5:6 2 UBK 3 0 2 1 1:2 2 Valur 3 0 2 1 0:1 2 síöan gegn gangi leiksins og viö brotnum niöur. Menn veröa aö fórna sér meira inni í teignum, þaö er ekki nóg aö skapa færin, þaö veröur að skora úr þeim. Þaö þarf aö binda endahnútin'n á sóknirn- ar,“ sagöi Þorsteinn. Sjá nánar um leiki helgarinnar á bls. 24 og 25. —SH. Jón Hjaltalín, formaður HSI JÓN HJALTALÍN Magnússon var kjörinn formaður Handknattleiks- sambands fslands á ársþingi sambandsins um helgina. Hann sigraði Pétur Rafnsson 61:51 í formannskjörinu. I stjórn meö Jóni Hjartalfn voru kjörnir Friðrik Guömundsson, fyrr- um formaöur HSÍ, Helga Magn- úsdóttir, Davið Sigurösson, Rós- mundur Jónsson, Björg Guö- mundsdóttir, Ingvar Viktorsson og Jón H. Karlsson. í stjórninni voru fyrir Kjartan Steinback, Þórður Sigurösson og Karl Harry Sigurðs- son. Á þinginu var samykkt sú breyt- ing á fyrirkomulagi úrslitakeppn- innar aö liöin sem komast í efri úrslitakeppnina taka meö sér stig- in. Felld var tillaga um aö fækka úrslitakeppnum niöur í þrjár. Menn töldu ekki komna nógu mikla reynslu á núgildandi fyrirkomulag til aö breyta því. Á þinginu var einnig samþykkt sú tillaga aö landsliösþjálfari gæti ekki veriö þjálfari félagsliösl Gæti þessi ákvöröun þingsins aldeilis valdið vandræöum hjá HSÍ þar sem Bogdan Kowalczyk, landsliös- þjálfari, hefur veriö endurráöinn sem þjálfari Vfkings fyrir næsta keppnistfmabil. Ekki er þó taliö lík- legt aö Bogdan hætti sem lands- liðsþjálfari, hin nýkjörna stjórn mun hafa áhuga á aö reyna aö finna lausn á þesu máli, og mun til þess halda fund meö forráöa- mönnum 1. deildarliöanna áöur en langt um líöur. Iþróttir eru á eflefu síðum í dag: 23,24,25,26,44,45,49,63,64,65 og 66 Þorsteinn Ólafsson þjálfari Þórs: „Þaö er ekki nóg að skapa færin...“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.