Morgunblaðið - 29.05.1984, Blaðsíða 44
OPID ALLA DAGA FRA
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI, SÍM111630
OPID ÖLL FIMMTUDAGS-. FÖSTUDAGS-.
LAUGARDAGS-, OG SUNNUDAGSKVÖLD.
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI, SÍMI 11340
ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Craig Sherry, 1. stýrimadur, og Mike Byrne, 3. stýrimaður, (Lh.) með skip sitt, Rainbow Hope, í baksýn í
Njarðvíkurhöfn. Morgunblaðið/KEE
Rainbow Hope í fyrsta sinn tU íslands í gær:
Ekki með fullfermi
íslandssiglingar
Norröna:
50 % aukn-
ing á bók-
unum í ár
„BÓKANIR hjá okkur eru nú mun
fleiri en í fyrra og mest er aukningin
á íslandsleiðinni eða um 50% Nor-
röna fer með um 800 manns frá
Seyðisfirði í fyrstu feröinni þaðan á
fimmtudag, þaö er að allar kojur
verða skipaðar," sagði Óli Hammer,
framkvæmdastjóri Smyril-Line, í
samtali við Morgunblaðið.
Óli sagði, að ennfremur, að vel
hefði gengið í fyrra og útlitið því
enn betra nú nema á leiðinni milli
Bergen og Þórshafnar, en bókanir
á þeirri leið væru venjulega seint
á ferðinni. Nú væri að renna upp
tíunda ár þessara siglinga milli
Seyðisfjarðar og Þórshafnar og í
því tilefni yrði meðal annars veitt-
ur einhver afsláttur á fargjöldum
í fyrstu ferðunum. í þessari fyrstu
ferð nú yrðu stórir ferðamanna-
hópar af Austurlandi og Suður-
nesjum og yrði þeim meðal annars
skemmt um borð með tízkusýn-
ingu auk annarra venjubundinna
skemmtiatriða.
Á Seyðisfirði eru fyrirhuguð há-
tíðahöld í tilefni tíunda siglinga-
ársins, en aðstaða þar hefur öll
verið bætt til muna. Verður þá
meðal annars tekið í notkun nýtt
móttöku- og þjónustuhús fyrir
farþega Norröna, en það stendur á
hafnarbakkanum við hlið elzta
húss bæjarins.
RAINBOW HÖPE, skip bandaríska
skipafélagsins Rainbow Navigation,
| kom til landsins með farm til varn-
arliðsins á Keflavíkurflugvelli í
fyrsta sinn í gær. Lagðist skipið að
bryggju í Njarðvíkurhöfn um kl. 6 í
gærmorgun og ráðgert er aö það
haldi héðan síðdegis í dag. Skipið
var ekki með fullfermi í fyrstu ferð-
innL
Morgunblaðið heimsótti skip-
verja í gærdag og ræddi þá við
Craig Sherry, 1. stýrimann. í máli
hans kom m.a. fram, að hann taldi
líklegast, að einhvers konar mála-
miðlunarleið yrði farin í skiptingu
milli farms á milli Rainbow
Navigation og íslensku skipafélag-
anna. Réttur Bandaríkjamanna til
að annast flutningana væri þó
óskoraður í ljósi laganna frá 1904.
Geir Hallgrímsson, utanríkis-
ráðherra, á í dag fund með Caspar
Weinberger, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, vegna flutn-
inganna fyrir varnarliðið.
Sjá viðtal við Craig Sherry á
miðopnu.
Flugmenn
samþykktu
Fengu í gegn 1 % í
sjúkrasjóð og gengu
síðan inn í ASI-VSÍ-
samkomulagið
YFIRGNÆFANDI meirihluti flug-
manna á félagsfundi FÍA í gær-
kveldi samþykkti kjarasamning
þann sem tókst með flugmönnum
Fluglciða og Flugleiðum sl. laug-
ardag, en atkvæði féllu þannig í
gærkveldi að 61 var samningnum
samþykkur, fimm voru honum and-
vígir og fímm skiluðu auðu.
Fundurinn hófst kl. 20.30 í
gærkveldi og stóð fram undir kl.
23. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins voru flestir fundar-
manna nokkuð ánægðir með
samninginn og ekki kom fram
nokkur afgerandi andstaða við
hann. Samkvæmt sömu heimild-
um gerir samkomulagið ráð fyrir
því að flugmenn fái sömu pró-
sentuhækkun á laun og samið
var um í ASÍ-VSÍ-samningunum
í febrúar sl. en auk þess þá hafa
Flugleiðir nú fallist á að greiða
1% í sérstakan sjúkrasjóð, en fé-
lagið hefur alfarið hafnað þeirri
kröfu flugmanna fram að þessu.
Jafnframt hafa flugmenn nú
fengið það í gegn að Flugleiðir
greiði þeim nokkurn ökutækja-
styrk. Von mun á sameiginlegri
yfirlýsingu flugmanna og Flug-
leiða í dag vegna þessa sam-
komulags, þar sem aðilar munu
gera grein fyrir samningnum.
Spurt og svarað
MORGUNBLAÐIÐ minnir lesend-
ur sína á að eins og undanfarin ár
býður blaðið upp á lesendaþjón-
ustu um garðyrkju og nú einnig um
byggingarmál. Lesendur geta kom-
ið spurningum á framfæri í síma
10100 virka daga milli klukkan 13
og 15 og birtast svörin þá nokkrum
dögum síðar.
Blaðið hefur fengið Hákon
Ólafsson yfirverkfræðing og
Pétur H. Blöndal framkvæmda-
stjóra til að svara spurningum
varðandi byggingarmál. Hafliði
Jónsson garðyrkjustjóri Reykja-
víkurborgar svarar eins og und-
anfarin ár spurningum er lúta
að garðyrkju.
Kaupmannahöfn:
íslendingur fannst
hö fuðkúpubrotinn
eftir grófa árás
23 ÁRA gamall íslendingur var flutt-
ur I bráðri lífshættu í sjúkrahús í
Hvidövre í Kaupmannahöfn á laug-
ardagskvöldið eftir að ráðist var á
hann aðfaranótt laugardagsins og
honum veitt þungt höfuðhögg.
Maðurinn fannst meðvitundar-
laus á heimili sínu í Kristjaníu.
Fulltrúar veiða og vinnslu í Verðlagsráði sjávarútvegsins:
Vilja óbreyttar mats-
reglur næsta tímabil
FULLTRÚAR fiskvinnslunnar, sjó-
manna og útgerðar í Verðlagsráði
sjávarútvcgsins hafa allir óskað eft-
ir því, að á næsta verðtímabili verði
áfram í gildi sömu maLsreglur og
verið hafa að undanförnu. Þeir hafa
vegna þessa ritað sjávarútvegs-
ráðherra bréf og beðið um viðræður
um þessa ósk. Nýtt fiskverð á að
liggja fyrir um mánaðamótin, en
niðurstöðu er varla að vænta fyrr en
Ijóst verður hvaða matsreglur verði í
gildi.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er það álit fulltrúa þess-
ara greina, að hið nýja punkta-
kerfi, sem unnið hefur verið að og
notað til hliðsjónar gildandi regl-
um, krefjist bæði of mikillar
fjölgunar starfsmanna við matið
og skili ekki þeim árangri, sem
talið hefur verið, og því sé ekki
ástæða til að taka það upp.
Yfirnefnd Verðlagsráðs fjallaði
um almennt fiskverð í gær, en án
árangurs og hefur annar fundur
verið boðaður í dag. Þá var
ákvörðun um verð á rækju og
hörpudiski vísað til yfirnefndar í
gær og samkvæmt heimildum
Mbl. munu kaupendur fara fram á
talsverða verðlækkun. Fundur
þar að lútandi hafði ekki verið
boðaður í gær.
Hann var höfuðkúpubrotinn og
skýrðu dönsk blöð frá því I gær, að
hann hefði gengist undir mikla
höfuðaðgerð. Blóðköggull, sex
sentimetrar í þvermál, sem þrýsti
á heila mannsins, var fjarlægður.
Hann komst til meðvitundar í
gær, en hefur ekkert getað tjáð sig
um atvik.
Tildrög árásarinnar eru ókunn.
Unnusta mannsins fann hann á
heimili þeirra síðdegis á laugar-
dag. Engin ummerki um átök voru
sjáanleg. Helst er talið að maður-
inn hafi verið fluttur í íbúðina eft-
ir líkamsárásina, sem líklega var
gerð í Kristjaníu. Maðurinn hafði
dvalið tiltölulega stuttan tíma í
Danmörku og er engin skýring á
árásinni. Hann gekk um Strikið í
miðborg Kaupmannahafnar á
laugardagskvöldið. Talsverðar
róstur voru þar og rakst hann
utan í menn, sem slógu til hans
þannig að sprakk fyrir á vör. Ekk-
ert hefur komið fram sem bendir
til þess að mennirnir hafi veitt
honum eftirför og áverkana síðar
um nóttina.
Árásin á manninn er keimlík
árásum með stuttu millibili á tvo
unga íslendinga í Kaupmanna-
höfn í fyrra. Þeir hlutu báðir
mikla áverka á höfði eftir þung
höfuðhögg, en hafa komist til
fullrar heilsu.
Danska lögreglan rannsakar
árásina á manninn, en enginn hef-
ur verið handtekinn.
Seyðisfjörður:
27 stiga
hiti í gær
BLÍÐSKAPARVEÐUR var norðan-
og austanlands um síöustu helgi.
Hjá Veðurstofu íslands feng-
ust þær upplýsingar að á sunnu-
dag hafi verið logn og léttskýjað
um allt norðausturlandið og hita-
stig þar hafi verið á bilinu 15 til
20 gráður.
Mikil veðurblíða var enn á
Austfjörðum á mánudag og Jón-
as Hallgrímsson, bæjarstjóri á
Seyðisfirði, sagði i samtali viö
Morgunblaðið i gær, að hitinn
væri 27 gráður og blankalogn svo
ekki blakti hár á höfði þeirra,
sem það hefðu. Nú væri bara
spurningin hvenær menn færu að
leka niður eins og kerti.