Morgunblaðið - 29.05.1984, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984
21
Venezuela:
Stórsigur
forsetans
Caracas, Venezuela. 28. mai. AP.
Stjórnarflokkur Jaime Lus-
inchi, forseta Venezuela, vann
um helgina mikinn sigur í sveit-
arstjórnakosningum sem haldnar
voru. Talningu atkvæða var ekki
endanlega lokið, en flest benti til
að Framkvæmdaflokkur forset-
ans hefði hlotið allt að tvo þriðju
hluta atkvæðanna.
Fyrstu óopinberu tölurnar
sýndu fram á að Fram-
kvæmdaflokkurinn hefði hlotið
46,3 prósent atkvæða, en helsti
stjórnarandstöðuflokkurinn,
Kristilegi demókrata-
flokkurinn, hefði hlotið 20,61
prósent. Aðrir mun minna.
Skoðanakönnun á vegum
stjórnarflokksins benti hins
vegar til þess að yfirburðir
hans væru enn meiri, eða eins
og greint var frá í byrjun frétt-
ar. Átta milljónir eru á kjör-
skrá, en talið var að allt að 40
prósent þeirra hefðu ekki neytt
kosningaréttar síns.
V estur-Þýzkaland:
Einn af bílræningjunum fjóram sést hér skotinn til bana, eftir að
víkingasveit ísraelshers hafði ráðizt til uppgöngu í langferðabflinn.
Atburður þessi gerðist í aprfl sl.
Israelsk rannsóknarnefnd:
Tveir bfiræningjar
barðir til dauða
NEFND ísraelshers hefur kveðið
upp þann úrskurð, að tveir af fjór-
um Aröbum, sem rændu langferða-
bfl, hafl verið barðir til dauða, eftir
að ísraelskir hermenn brutu sér
leið inn í bflinn til þess að frelsa
gísla þá, sem Arabarnir höfðu tek-
ið.
í tilkynningu ísraelskra
stjórnvalda segir, að hermenn-
irnir kunni að „hafa brotið lög-
in“ og að sérstök málsrannsókn
verði látin fara fram til könnun-
ar á því, hvort þeir skuli saksótt-
Vinnuveitendur bjóða
3,3 % launahækkun
Bonn, 28. maí. AP.
TUGÞÚSUNDIR verkamanna í
Vestur-Þýzkalandi komu saman til
útifundar í Bonn í dag til þess að
krefjast 35 klukkustunda vinnuviku
og bóta handa þeim, sem misst hafa
vinnu sína vegna verkbanns
atvinnurekenda. Komu fundarmenn
til Bonn alls staðar að úr landinu.
Atvinnurekendur hafa gert
verkalýðsfélögunum tilboð um
nýjan samning, sem felur í sér
3,3% launahækkun, starfsaldur
verði ekki lengri en 58 ár og vinnu-
tími verði sveigjanlegri en áður
varðandi sumar starfsgreinar.
Þeir halda því hins vegar fram, að
5 klukkustunda stytting vinnuvik-
unnar með óskertum launum verði
til til þess að hækka framleiðslu-
kostnað á vesturþýzkum vörum
um allt að 20 % með þeim afleið-
ingum, að þær verði ekki framar
samkeppnishæfar við vörur ann-
arra ríkja.
Á útifundinum í dag gagnrýndi
aðalræðumaðurinn, Ernst Breit,
forseti sambands verkalýðsfélag-
anna í landinu, samtök atvinnu-
rekenda harðlega fyrir verkbönn-
in, sem hann sagði, að jafngiltu
„stríðsyfirlýsingu" á hendur
verkalýðsfélögunum. Jafnframt
ásakaði hann vinnumálastofnun
sambandslýðveldisins um lögbrot
fyrir að neita að greiða þeim bæt-
ur, sem hefðu misst vinnuna af
völdum verkabannanna.
Kerfisbund-
in umbreyt-
ing til
sovézks
þjóðfélags
Afganskur sendi-
starfsmaður lýsir
ástandinu í heima-
landi sínu
Peshawar, 28. maí. AP.
Afganskur sendistarfsmaður,
sem fyrir skömmu flúði til Pakist-
ans, sagði á laugardag, að allt yfir-
bragð mannlífsins í Afganistan
væri nú sem óðast að breytast í
samræmi við sovézkar fyrirmyndir
„Ilmfangsmikil áætlun til langs
tíma hefur verið gerð í Moskvu til
þess að treysta tök stjórnvalda þar
á heimalandi mínu,“ sagði Abdul
Majid Mangal á fyrsta fundi sínum
með fréttamönnum, síðan hann
kom til Peshawar í síðustu viku.
„Kerfisbundin umbreyting á
öllum sviðum mannlífsins í átt
til svoézks þjóðfélags á sér nú
stað f Afganistan," sagði Mangal
ennfremur. „Sérhverri stofnun
þar er nú stjórnað af sams konar
stofnun í Sovétríkjunum."
íX. / M
Abdul Majid Mangel
Klofningur á meðal
finnskra kommúnista
Moskvukommúnistar biðu mikinn
ósigur á nýafstöðnu flokksþingi
llelsingfors, 28. maí. Frá fréttaritara Morgun blaðsins, llarry Cranberg.
Kommúnistaflokkurinn í Finn-
landi tók um helgina skref til móts
við svonefndan evrópukommún-
isma. Meirihlutamenn í flokknum
undir forystu Arvo Aaltos unnu þar
mikinn sigur, er kosið var í mið-
stjórn og forystu flokksins. Minni-
hlutamenn studdu hins vegar fyrri
leiðtoga flokksins, Jouko Kajanoja,
sem nú varð að fara frá völdum í
flokknum eftir tveggja ára forystu.
Varð hann að lúta í lægra haldi fyrir
Aarno Aitamurto, sem kjörinn var
aðalritari flokksins.
Nicaragua:
Saumað að tján-
ingarfrelsinu
Managua, 28. maí. AP.
GERT er ráð fyrir, að ný og ströng lög um fjölmiðla verði sett í Nicaragua
í þessari viku. Samkvæmt þeim verða fjölmiðlar í landinu alfarið settir
undir stjórn hins opinbera og fréttamönnum gert að skyldu að birta allar
heimildir fyrir fréttum sínum. Lög þessi ciga einnig að ná til erlendra
fréttastofnanna, sem starfa að staðaldri í Nicaragua.
Stjórnarandstaðan hefur for- andstöðublaðið í landinu: „Ef að-
dæmt þetta frumvarp og segir
það fela í sér „miklar tálmanir"
á prentfrelsi í landinu. Augljóst
sé, að það sé sniðið eftir prent-
löggjöf kommúnískra þjoða. f
dag sagði Pedro Joaquin Cham-
orro, annar aðalútgefandi La
Prensa, sem er eina stjórnar-
eins 10 % af þessu lagafrum-
varpi verða samþykkt, þá eru
þar með upprættar síðustu leifar
prentfrelsisins í Nicaragua."
„Þeir eru að herða skrúfurnar
á La Prensa," sagði Pedro Joa-
quin ennfremur. „Aðgerðunum
er beint gegn okkur. Ef La
Prensa væri ekki til, þá þyrftu
þeir ekkl á þessum lögum að
halda." Benti hann á, að aðrir
fjölmiðlar í landinu styðja
stjórnvöldin almennt.
Það er svonefnd alþýðufylk-
ing, sem ber þetta frumvarp
fram. Hún er samsteypa þriggja
vinstri flokka, sem nær m.a. til
svonefndrar þjóðfrelsisfylkingar
sandinista, en þeir ráða öllu inn-
an stjórnarinnar og hafa jafn-
framt yfirgnæfandi meirihluta í
ríkisráðinu.
Kosningin í miðstjórnina vakti
þó mesta athygli á þessu 20.
flokksþingi finnska kommúnista-
flokksins. Þar sigraði listi meiri-
hlutans með 183 atkvæðum gegn
163. Minnihlutinn, sem átt hefur
fulltrúa til þessa í forsætisnefnd
og miðstjórn flokksins, stendur nú
algerlega fyrir utan og hótar nú
að láta þau 8 kjördæmi, þar sem
minni hlutinn hefur enn tök á
flokknum, kalla saman sérstakt
aukaflokksþing í haust.
Sérstök sendinefnd frá komm-
únistaflokki Sovetríkjanna fyldist
með flokksþinginu I Finnlandi.
Hafði hún gefið það skýrt til
kynna, að í Sovétríkjunum kysu
menn helzt, að Kajanoja yrði
endurkjörinn flokksleiðtogi og
komizt yrði hjá því, að flokkurinn
klofnaði.
Valdabaráttan innan finnska
kommúnistaflokksins kann að
eiga eftir að hafa mikil áhrif á
stjórnmálaþróunina í Finnlandi.
Stuðningsmenn Aaltos hyggjast
fylgja finnskri tegund af komm-
únisma í framtíðinni og eru þeir
reiðubúnir til þess að taka upp
samvinnu við jafnaðarmenn.
Minnihlutinn vill hins vegar ekki
fyrir nokkra muni eiga aðild að
slíkri stjórnarsamvinnu, heldur
bíða þess tækifæris, er flokkurinn
geti tekið öll völd í landinu í sínar
hendur.
Miklar líkur eru því taldar á því
nú, að kommúnistaflokkarnir I
Finnlandi verði orðnir tveir innan
skamms. Er búizt við, að þetta
muni skýrast strax f haust, ef
krafa minnihlutans um sérstakt
flokksþing nær fram að ganga.
Hvernig
finnst
þér
sýning
,0MAR
í aldarfjóröung"?
Spurt á
IBIP'OAID
WVaVT
Siguröur Einarsson
„Sýning sem á engann sinn líka
herlendis"
Anna Dóra Steingrímsdóttir
„Eg skemmti mér konunglega i
kvöld;'
Birna Loftsdóttir
„Eg hef ekki skemmt mér
svona vel i áraraöir"
Ingi Björn Albertsson og
Magdalenda Kristinsdóttir
„Ömar er meiriháttar"
Linda Bjarnadóttir
„Eg gat ekki hætt aö hlæja all-
ann timann"
Guójón Gíslason
„Frábær skemmtun sem hölöar
til allra aldurshópa"
María Jakopsdóttir
„Eg hef dáö hann lengi: Hann
Ömar er dýrlegur í einu orði
sagt"1