Morgunblaðið - 29.05.1984, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 29.05.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984 25 Ha-'FERÐABÍLAR , TEi\n JSWlSSONfl.F I SÍMflV: 4023? • 7SS8B Morgunblaöiö/Júlíus. (ssyni, fyrrum félaga hans hjá Fram, sem nú ver mark Breiöabliks. Loftur Fram Þrjú stig til — eftir sigur á Blikunum í Kópavogi Frammarar náðu sér í þrjú stig í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu þegar þeir sigruöu Breiöaviik 1—0 á Kópavogsvelli á sunnudaginn. Það var Bragi Björnsson sem skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik eftir góða sendingu frá Kristni Jónssyni. Blikarnir skoruðu að vísu eitt mark í leiknum en það var dæmt af vegna rangstæðu og voru leikmenn þeirra ekki ánægðir með þann dóm en tókst þó ekki að hnika ákvörðun Eysteíns dómara. Leikurinn fór fremur rólega af stað. Bæði liðin virtust óörugg og mikið var um ónákvæmar send- ingar. Fyrsta marktækifærið fengu heimamenn og var það Guömundur Baldursson sem skaut af markteigshorninu en nafni hans í marki Fram átti ekki í miklum erfiðleikum meö að verja laust skot hans. Skömmu síðar mistókst rangstöðuaðferð Blik- anna og þrír Frammarar komust einir inn fyrir vörn þeirra en fyrr- verandi félagi þeirra úr Fram, Friðrik Friðriksson markvörður, bjargaöi meö góöu úthlaupi. Á 24. mín. fengu Breiðabliks- menn gullið tækifæri til að ná for- ustunni. Sigurjón Kristjánsson og Jóhann Grétarsson komust þá báðir í gegn um vörn Fram, sem svaf illilega á verðinum, en í staö þess að skjóta átti Sigurjón mis- UBK — Fram 0:1 heppnaöa sendingu á Jóhann og besta færi leiksins þar með farið forgörðum. Ef menn skora ekki úr slíkum færum er ekki von á góðu. Þau gerast vart betri. Eftir markspyrnuna sem Fram fékk barst boltinn til Kristins Jónssonar á vinstri vængnum, hann gaf langa sendingu inn á vítateig Blikanna þar sem Bragi fékk nógan tíma til að athafna sig og skjóta. Boltinn fór í hliðarnetið án þess að Friðriki markmanni tækist að verja. Frammarar komnir með forustuna þrátt fyrir að Blikarnir hefðu átt betri færi í leiknum. Ingólfur Ingólfsson sem kom inná sem varamaður í upphafi síðari hálfleiks átti nokkur mark- tækifæri en það vantaöi ætíð herslumuninn, nema á 70. mín. þegar hann skoraði eftir fyrirgjöf frá Guðmundi Baldurssyni en það mark var dæmt réttilega af eins og áður segir. Breiðabliksmenn sóttu heldur meira en tókst þó ekki að skapa sér nein teljandi marktækifæri. Þegar um 10 mín. voru eftir af leiknum komst Guð- mundur Steinsson einn inn fyrir vörn UBK eftir mistök í vörninni en laust skot hans fór langt fram- hjá. Ingólfur fékk síðan besta marktækifærið í síðari hálfleikn- um þegar um fimm mínútur voru eftir. Hann fékk boltann allt í einu aleinn á markteig eftir horn- spyrnu en skot hans var mátt- laust og Guðmundur varöi það. Leikurinn í heild var fremur slakur. Frammarar voru heldur beittari en tókst illa að skapa sér marktækifæri. Blikarnir sakna greinilega markaskorara síns frá því í fyrra, Siguröar Grétarsson- ar, og svo er Jón Oddsson meiddur og það virðist ekki vera neinn í liðinu sem þorir að skjóta. Hjá Fram vantaöi Guðmund Torfason og setti það svip sinn á sóknina. Einkunnagjöfin. UBK: Friörik Friöriksson 6, Benedikt Guömundsson 6. Ómar Rafnsson 5, Loftur Ólafsson 6, Ólafur Björnsson 6, Vignir Baldursson 6, Þorsteinn Geirsson 5, Ingólfur Ingólfsson (vm. á 49. mín.) 6, Johann Grétarsson 6, Heiöar Heiöarsson 5, Jón Einarsson (vm. á 46. min.) 5. Guömundur Baldursson 6. Sigurjón Kristjánsson 6. FRAM: Guömundur Baldursson 6, Þorsteinn Þorsteinsson 6, Trausti Haraldsson 5, Ómar Jóhannsson 6, Sverrir Einarsson 6, Kristinn Jónsson 6, Bragi Björnsson 5, Guö- mundur Steinsson 7, Þorsteinn Vilhjálmsson 5, Einar Björnsson 5, Örn Valdimarsson (vm. á 57. min.) 5, Steinn Guöjónsson 6. I STUTTU MÁLI: Kópavogsvöllur 1. deild UBK — Fram 1 —0 (1 — 0) Mark Fram skoraöi Bragi Björnsson á 25. mín. Gult spjald: Steinn Guöjónsson í Fram. Dómari var Eysteinn Guömundsson og dæmdi hann ágætlega Hann mætti þó, eins og fleiri, láta leikinn ganga meira, ekki eltast viö smábrot þegar sá brotlegi hagnast á því. Áhorfendur: 1037 — sus Snilldarmarkvarsla Stefáns — bjargaði KR-ingum frá tapi gegn Valsmönnum VALSMENN vortl ftvo Rnnnnrlan a c Innn on á hrnint ótri'ilon • Stefán Jóhannsson VALSMENN voru svo sannarlega óheppnir aö sigra ekki í leik sínum við KR á laugardaginn, en liöin geröu markalaust jafntefli. Valur var mun betri aðilinn f leiknum og átti skiliö sigur en þaö er sjaldnast spurt aö því í knattspyrnunni. Markalaust jafntefli þrátt fyrir mýmörg marktækifæri. Bæöi liöin hófu leikinn af miklu kappi og skiptust á um aö sækja og fengu bæöi nokkur sæmileg færi strax í upphafi. Valsmenn náöu þó fljótlega tökum á leiknum og héldu þeim þaö sem eftir var. Sóknarþungi þeirra var mikill og geta KR-ingar Valur — KR 0:0 þakkaö markveröi sínum, Stefáni Jóhannssyni, fyrir stigið því hann varöi hreint frábærlega allan leikinn en aldrei þó betur en á 15. mínútu. Jón Grétar átti þá gott skot, sem Stefán varöi snilldarlega, en missti knöttinn út í teiginn þar sem Hilmar Sighvatsson var einn og óvaldaöur. Hann skaut föstu skoti alveg út viö stöng en á hreint ótrúlegan hátt bjargaði Stefán enn einu sinni. Stórkostleg markvarsla og gerist hún vart betri. Þrátt fyrir mörg tækifæri og þunga sókn tókst Valsmönnum ekki aö skora, mest vegna frábærrar markvörslu Stefáns en undir lok fyrri hálfleiks munaöi þó ekki nema hárs- breidd. Ingvar átti frábæra sendingu á Jón Grétar, sem skaut ágætu skoti, en á síöustu stundu tókst Jak- obi Péturssyni aö bjarga í horn. i síðari hálfleiknum var nokkurt jafnvægi með liöunum fyrstu mínút- urnar en síöan náöu Valsmenn und- ega ódýr mörk er IA tapaði ÍBK, sem geröi sig heimakominn og líklegan til aö pota í boltann innan markteigs. Náöi þó aldrei til knattar- ins. Síöara markiö var enn ódýrara. Eftir fyrirgjöf fyrir mark Akraness á 40. mínútu, þar sem varnarmenn heimamanna voru í miklum meiri- hluta, uröu Júlíusi Pétri Ingólfssynl á þau hrapallegu mistök aö renna knettinum í eigiö net. Ætlaöi aö gefa aftur til Bjarna, sem var einfaldlega ekki þar sem Júlíus hugöi. Knattspyrnulega séö var fyrri hálf- leikurinn ákaflega slakur. Er undirrit- uöum til efs aö Akurnesingar geti leikið öllu verr en þeir geröu þá. Keflvíkingar, sem hafa ágætu liöi á aö skipa, komu meisturunum í opna skjöldu strax í upphafi meö feikilegri baráttu og unnu flest návígi. Barátta af þessu tagi er nokkuð sem Skaga- menn mega reikna meö aö önnur liö sýni gegn þeim í mótinu. Þar hafa allir allt aö vinna. Þegar líöa tók á hálfleikinn fór mótlætiö aö fara í skapiö á Skagamönnum enda gengu þeir oft í rangstööugildru Keflvík- inga. Skagamenn höföu allsnarpan vind í fangiö í síöari hálfleik en þaö voru Keflvíkingar sem réöu feröinni framan af. Þáttaskil uröu hins vegar á 58. mínútu. Jón Leó Ríkharösson kom þá inn á í staö Heimis Guö- mundssonar hjá Skagamönnum. Það var eins og viö manninn mælt; kraftur og hraöi Jóns Leós reif Skagamenn upp og þeir náðu undir- tökunum í leiknum. Þrátt fyrir aö ráöa gangi leiksins þaö sem eftir lifði tókst heimamönn- um aðeins aö skora eitt mark á 84. mínútu. Var Smári Guöjónsson þar aö verki eftir hornspyrnu. Skoraöi meö föstu skoti í þaknetiö af stuttu færi. Smári haföi skömmu áöur komiö inn á fyrir Sigþór Ómarsson. Áöur en jöfnunarmarkið kom höföu Keflvíkingar sloppiö naum- lega. Á 64. mínútu tókst þeim aö hreinsa frá á marklínu og aftur á 76. mínútu. Var þar Guöjón Guöjónsson aö verki eftir skalla Jóns Leós eftir hornspyrnu. Endurtók Guöjón þar meö afrek sitt frá því á 28. mínútu leiksins. Var þaö reyndar í eina sinn- iö, sem mark ÍBK komst í hættu í fyrri hálfleik. Á mínútunni fyrir mark Skagamanna haföi mark Keflavíkur sloppiö ótrúlega eftir hornspyrnu. í Ijósi þessa mætti e.t.v. segja, að Akurnesingar gætu hafa jafnað met- in en þaö hefði ekki veriö sann- gjarnt. Óhætt er aö segja aö dagur Skagamanna hafi ekki veriö á laug- ardag. Svo aö segja allir léku undir getu. Þaö var helst Árni Sveinsson sem hélt haus svo og Jón Leó, sem vakti óskipta athygli. Ef miö er tekiö af þessum leik gæti hann gert stóra hluti fyrir þetta lið. Hraöi hans gæti gert hann aö skeinuhættasta kant- manni landsins ef hann er rétt spilaður upp. Hjá Keflavík var þaö liðsheildin sem réö ríkjum. Þorsteinn þó óör- uggur í markinu lengst af. Vörnin hins vegar mjög örugg. Tengiliöirnir böröust vel og frammi voru þeir Helgi Bentsson og Ragnar ,Mar- geirsson stórhættulegir. ! stuttu mali Akranetvöllur, 1. deild. Akranes — Keflavik 1:2 (0:2) Mark Akranesa: Smárj Guöjónsson á 84. min- útu. Mörk Keflavikur: Einar Á. Ólafsson á 8. minútu og Július Péfur Ingólfsson (sjálfsmark) á 40. min- útu. Dómari: Friögeir Hallgrimsson og stóó hann sig mjög vel Áhorfendur: 850 Einkunnagjöfin Akranet: Bjarni Sigurösson 5, Guöjón Þoröarson 5. Jón Asketsson 5, Siguröur Lárusson 5, Siguröur Halldórsson 5, Heimir Guömundsson 4, Svetnbjörn Hákonarson 6, Júli- us Pétur Ingólfsson 5, Sigþór Ómarsson 5. Guö- björn Tryggvason 5, Arnl Sveinsson 6, Jón Leó Rikharósson (vm) 6, Smári Guðjónsson (vm) 5. Keflavik: Þorsteinn Bjarnason 5, Guójón Guö- jónsson 7. Óskar Færseth 6. Valþór Sigþórsson 6. Gisli Eyjólfsson 5. Siguröur Björgvinsson 6, Einar Á. Olafsson 6, Magnús Garöarsson 5, Sig- urjón Sveinsson 5, Ragnar Margeirsson 7, Helgi Benfsson 7, Kristinn Jóhannsson (vm) 5. — SSv. irtökunum en þeim tókst ekki að skora frekar en fyrri daginn. Berg- þór átti skalla í slá og ótal fleiri marktækifæri mætti telja. Undir lok leiksins varöi Stefán þrívegis mjög vel og kom þannig i veg fyrir aö Valsmenn skoruöu sitt fyrsta mark í mótinu og fengju þannig þrjú stig. Besti maður vallarins var Stefán í marki KR og var hann eini KR-ingur- inn sem átti góöan leik. Allir aðrir léku undir getu og er langt síöan undirritaöur hefur séö KR-liöiö eins slakt og á laugardaginn. Engin bar- átta og virtust leikmenn frekar áhugalitlir um aö krækja sér í þrjú stig. Öðru máli gegndi um Valsliðiö. Þetta er án efa besti leikur þeirra i langan tíma og ef þeim tækist aö skora mörk yröu þeir án efa í topp- baráttunni. Bestur í liöi Vals var Ingvar Guömundsson. Hann átti margar gullfallegar sendingar og baröist mjög vel á miöjunni. Grímur Sæmundsen og Bergþór Magnús- son áttu einnig mjög góöan leik. Allt liöiö baröist mjög vel og er þetta besti leikur hjá liði í íslandsmótinu, sem sést hefur í Laugardalnum í sumar. Einkunnagjöfin. Valur: Stefán Arnarson 7, Guömundur Kjartansson 7, Þorgrimur Þrá- insson 7, Guöni Ðergsson 7, Grimur Sœ- mundsen 8, Ingvar Guömundsson 8, Bergþor Magnússon 8, Guömundur Þorbjörnsson 7, Valur Valsson 7, Jón Grétar Jónsson 5, Hilmar Sighvatsson 7. KR: Stefán Jóhannsson 9, Jakob Pétursson 4, Stefán Pótursson 6, Ottó Guömundsson 5, Gunnar Gislason 5, Agúst Már Jónsson 4, Sæ- björn Guömundsson 6, Hannes Jóhannsson 5. Björn Rafnsson 5, óskar Ingimundarson 4. Sverrir Herbertsson 4, Willum Þór Þórsson (vm. á 65. mín.) 4, Erling Aöalsteinsson (vm. á 80. min.) lék of stutt. I stuttu máli: Laugardalsvöllur 1. deild. Valur — KR 0—0. Dómari var Helgi Kristjánsson og haföi hann góö tök á leiknum. Engin spjóld sáust þrátt fyrir nokkuö fastan leík. Áhorfendur: 462. — sus.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.