Morgunblaðið - 29.05.1984, Page 24
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984
Fræðsla um stóma
Nýtt tímarit,
„Mannlíf“
HINN 29. maí er va-ntanleg til
landsins Mariann Bruce sem er sér-
fróð um meðferð stóma (colo-, ileo-
og urostomiu) og leiðbeinir hjúkrun-
arfræðingum og stómaþegum í Nor-
egi á vegum norska krabbameinsfé-
lagsins.
Tilgangur heimsóknarinnar er
að bæta úr brýnni þörf fyrir
fræðslu um stómameðferð og hér
mun Mariann hitta bæði hjúkrun-
arfræðinga og stómaþega í þessu
skyni.
Fyrst fer hún til Akureyrar og
verður á Fjórðungssjúkrahúsinu
miðvikudaginn 30. maí. Fundur
með hjúkrunarfræðingum verður
þar eftir hádegið.
Á uppstigningardag mun Mari-
ann hitta norölenska stómaþega í
Hótel Varðborg á Akuryri en
koma eftir það til Reykjavíkur.
Fer hún þar á sjúkrahúsin bæði
fyrir og eftir helgina en laugar-
daginn 2. júní verður hún á fundi
með stómaþegum á Hótel Loftleið-
um í framhaldi af aðalfundi
Stómasamtakanna.
Síðasta dag heimsóknarinnar,
miðvikudaginn 6. júní, heldur
Mariann fyrirlestur fyrir hjúkr-
unarnema í Hjúkrunarskóla ís-
lands við Eiríksgötu en eftir há-
degið verður fundur með hjúkrun-
arfræðingum á sama stað.
Það eru Krabbameinsfélag
Reykjavíkur og Stómasamtökin
sem standa fyrir heimsókn Mari-
ann Bruce í samvinnu við norska
Krabbameinsfélagið og með að-
stoð þess.
Frétt frá Krabbameinsfélagi
Reykjavíkur og Stómasam-
tökunum.
NÝTT TÍMARIT, Mannlíf, mun
hefja göngu sína í júnímánuði
næstkomandi. Það er útgáfufé-
lagið Fjölnir hf. sem gefur ritið
út.
Tímaritið Mannlíf mun eins og
nafnið bendir til verða fjölbreytt
alhliða rit um mannlífið á líðandi
stund, eins konar spegill samtíð-
arinnar, þar sem fjallað verður
um mannleg samskipti, félagsleg
fyrirbæri, menningu og listir,
lífsstíl, tísku og tækni, efna-
hagsmál, stjórnmál og strauma a
alþjoðavettvangi. Kunnáttumenn
á ýmsum sviðum munu fjalla um
viðkomandi málaflokka og birt
verða viðtöl og fréttir af því sem
efst er á baugi hverju sinni. Frétt-
ir verða af þekktu fólki, bæði inn-
lendu og erlendu, og skyggnst
verður bak við tjöldin á fjölmörg-
um sviðum þjóðlífsins. Kappkost-
að verður að vanda mjög til allrar
útgáfu, jafnt í efnistökum sem út-
liti.
Herdís Þorgeirsdóttir hefur ver-
ið ráðin ritstjóri Mannlífs. Herdís
er stjórnmálafræðingur að mennt.
Hún lauk BA-prófi frá Háskóla ís-
lands, MA-prófi í alþjóðastjórn-
málum frá Fletcher School of Law
and Diplomacy í Boston 1982 og
MALD-prófi frá sama skóla 1983.
Auk þess hefur hún stundað nám í
Frakklandi og Bretlandi.
Herdís er fyrir löngu kunnur
blaðamaður. Hún starfaði á Morg-
unblaðinu og nú síðast á Dagblað-
inu Vísi, þar sem hún skrifaði m.a.
greinar um alþjóðastjórnmál.
Áformað er að Mannlíf komi út
annan hvern mánuð og kemur
fyrsta tölublað út í lok júnímánað-
ar. Ritið mun verða tæplega 100
blaðsíður í venjulegu tímarits-
broti. Upplag fyrsta tölublaðs
verður 10 þúsund eintök, og hefur
útgáfufélagið Fjölnir hf. þegar
farið þess á leit við Verslunarráð
Myndin er tekin í hinu nýja húsnæði bókaverslunar Snæbjarnar Jónssonar í Hafnarstræti 4. Vinstra megin er
Benedikt Kristjánsson, framkvæmdastjóri verslunarinnar, og hægra megin Sigurður Guðmundsson, stjórnarformað-
ur. Ljósm. Mbl. Júlíus.
Sakharov:
Undirskriftarsöfnun um land allt
FRETTIR berast nú hvaðanæva úr hinum vestræna heimi um mótmæli
gegn meðferð Sovétstjórnarinnar á hjónunum Andrei Sakharov og Yel-
enu Bonner. Um þessar mundir er að hefjast hér á landi söfnun undir-
skrifta, þar sem skorað er á sovésk stjórnvöld að veita þeim frelsi úr
einangrun og fararleyfi til Vesturlanda. Að vonum hafa viðtökur manna
hér á landi verið mjög góðar og fjölmargir viljað leggja þessum málstað
liðsinni sitt.
Hinn 7. maí var Sakharov
fluttur frá heimili sínu eftir að
hafa verið í hungurverkfalli i
fimm daga til að undirstrika ósk
þeirra hjóna um fararleyfi til
Vesturlanda fyrir Yelenu Bonn-
er, sem þjáist af hjartasjúkdómi.
Svo er raunar einnig um Sakh-
arov, en ekki er vitað með vissu
um afdrif hans, þó ætla megi, að
hann hafi verið fluttur á sjúkra-
hús. Víst er hins vegar, að heilsu
þeirra beggja hefur hrakað mjög
að undanförnu, og er nú svo
komið, að óttást er um líf þeirra.
Andrei Sakharov er kunnastur
andófsmanna í Sovétríkjunum.
Hann hefur af óbilandi kjarki og
þrautseigju barist fyrir að
mannréttindi væru virt í heima-
landi sínu og jafnframt verið
talsmaður friðsamlegra sam-
skipta þjóða í milli. Hlaut hann
friðarverðlaun Nóbels árið 1975,
en var meinað að veita þeim við-
töku. Hann hefur sætt sívaxandi
ofsóknum af hálfu sovéskra
stjórnvalda, sem loks sendu
hann í einangrun í hinni lokuðu
borg Gorkij snemma árs 1980.
Þar mun líf hans hafa verið
martröð líkast enda sendimenn
leynilögreglunnar KGB jafnan á
næstu grösum.
Sumir menn búa yfir slíku
þreki, að jafnvel miskunnarlaus-
asta ofbeldi megnar ekki að buga
þá. Slíkur maður er Andrei
Sakharvo. En nú þegar óttast er
um líf hans og eiginkonu hans
krefjast borgarar lýðræðisríkj-
anna lífs og frelsis þeim til
handa í nafni mannúðar og mis-
kunnar.
(Frétt úr undirbúningsnefnd.)
Bókaverslun Snæbjarnar
í endurbættu húsnæði
Herdís Þorgeirsdóttir, ritstjóri
Mannlífs.
tslands að ritið verði með í upp-
lagseftirliti ráðsins og Sambands
ísl. auglýsingastofa.
(Frótlatilkynning.)
Nú klæöast starfsmenn Landsbankans á Akranesi nýjum vinnubúningi — dökkbláum að lit.
Akranes:
Starfsfólk Landsbankans
kaupir sér einkennisföt
STARFSFOLK Landsbankans á
Akranesi hefur tekiö sig til að keypt
einkennisfatnað, dökkbláan að lit.
„Þetta hefur mælst mjög vel fyrir,
bæði meðal starfsfólks og viðskipta-
vina,“ sagði Eva Þorkelsdóttir, einn
forvígismanna þess að starfsfólk
keypti sér einkennisfatnað. „Við
vonumst til að Landsbankinn taki að
minnsta kosti þátt í kostnaði, því
fyrir utan aö fólk er smekklega
klætt, þá er þetta öryggisatriði fyrir
bankann," sagði Eva.
„Við leituðum tilboða og geng-
um til samninga við Últíma í
Kjörgarði, sem saumaði karl-
mannsfötin, og Módelmagasín,
sem saumaði fatnaðinn á konurn-
ar. Prjónastofan Peysan prjónaði
peysur og skyrtur fengum við hjá
G.A. Pálsson," sagði Eva. Verð á
hverjum klæðnaði er um 9 þúsund
krónur. í klæðnaði karla eru
jakkaföt, tvennar buxur, þrennar
skyrtur, peysa og 2 hálsbindi, hjá
konunum buxur og pils, jakki,
skyrtur og bindi. Þannig geta kon-
ur valið milli buxnadragtar eða
venjulegrar dragtar.
BÓKAVERSLUN Snæbjarnar Jóns-
sonar hefur opnað í nýju húsnæði að
Hafnarstræti 4.
Verslunin var stofnsett 3. des-
ember 1927 af Snæbirni Jónssyni
skjalaþýðanda og er því á 57. ald-
ursári. Allt frá árinu 1970 hafa
bókaverslanir Snæbjarnar verið
tvær, í Hafnarstræti 4 og 9, en nú
hafa þær verið sameinaðar í einu
húsnæði að Hafnarstræti 4. Af
þeim sökum hefur húsnæði versl-
unarinnar nú verið stækkað um
helming.
í tilefni af opnun nýju verslun-
arinnar verður kynning á völdum
listaverkabókum frá Phaidon
Press, og verða þessar bækur á
sérstöku kynningarverði. í versl-
uninni verða einungis í boði ensk-
ar og íslenskar bækur, auk
kennslubóka á öllum tungumálum.
Hið nýja húsnæði bókaverslun-
ar Snæbjarnar Jónssonar var sýnt
blaðamönnum fimmtudaginn 24.
Landsþing JC
á íslandi
DAGANA 30. maí til 3. júní verður
haldið 23. landsþing JC-hreyfingar-
innar á íslandi. Þingið er aö þessu
sinni haldið á Bifröst í Borgarfirði.
Þangað sækja fulltrúar og gestir
alls staðar að af landinu, auk er-
lendra gesta. Reiknað er með að
um 350 manns heimsæki Borgar-
fjörð þessa dagana.
Á þinginu eru málefni hreyf-
ingarinnar rædd, ákveðin eru
verkefni fyrir næsta starfsár,
haldin námskeið o.fl., auk lands-
stjórnarskipta.
f tengslum við þingið verður
haldið sérstakt „mini-þing“ fyrir
börn og gestum þingsins gefinn
kostur á að taka börn sín með
sér. Það er JC Vík, Reykjavík,
sem sér um þingið að þessu sinni.