Morgunblaðið - 29.05.1984, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984
33
Skagaströnd:
Rausnarleg-
ir styrkir
Skagaströnd, 23. maí.
NÚ nýverið afhentu Skagstrend-
ingar hf. og Hólanes hf. Umf. Fram
styrki til starfsemi félagsins.
Umf. Fram var stofnað 1926 og
félagar nú í dag eru um 140 tals-
ins. Á vegum félagsins fer fram
fjölbreytt og þróttmikið starf, en
þar ber hæst alhliða íþróttastarf.
Á hverju vori gengst Fram fyrir
þreföldu víðavangshlaupi þar sem
keppt er í átta flokkum. Þátttak-
endur í hlaupunum á þessu vori
hafa verið um 80 í hverju fyrir sig.
Einnig er á hverju vori hjólreiða-
keppni og áætlað er að standa
fyrir einhvers konar keppni á
vélhjólum í sumar sem er ný-
breytni í starfsemi félagsins. í
sumar verður eins og undanfarin
tvö ár haldið leikja- og starfs-
námskeið fyrir krakka. Á slíku
námskeiði eru á dagskrá leikir,
hjólreiðaferðir, gönguferðir, kofa-
smíðar, gróðursetning o.fl. og hef-
ur þegar verið ráðinn maður til að
sjá um námskeiðið í sumar.
í vetur var stofnuð skiðadeild
innan félagsins. Skíðadeildin
áformar að reisa skíðaskála i
sumar í grennd við skíðalyftuna
sem er hér rétt ofan við bæinn.
Teikningar af skálanum liggja
fyrir og er áætlað að framkvæmd-
ir hefjist við bygginguna nú á
næstu vikum. Er það von skíða-
deildarinnar að hér rísi skíða-
miðstöð héraðsins en engin að-
staða hefur verið fram að þessu
við lyftuna til að taka á móti fólki.
Til að halda uppi jafn þrótt-
miklu starfi og Umf. Fram gerir
þarf mikið fjármagn. Margar leið-
ir eru farnar til að afla þeirra pen-
inga sem til þarf en stærsti hlut-
inn kemur 1 formi styrkja tveggja
fyrirtækja.
Útgerðarfyrirtækið Skagstrend-
ingur hf., sem rekur togarana
Ama og Örvar, og hraðfrystihúsið
Hólanes hf. afhentu nú nýlega 75
þúsund krónur hvort til starfsemi
ungmennafélagsins. Þetta er
fjórða árið í röð sem Skagstrend-
ingur og Hólanes styrkja Umf.
Fram svo myndarlega sem nú og
má segja að seint verði fullþakk-
aður sá skilningur og velvilji sem
stjórnendur þessara fyrirtækja
sýna ungmennafélaginu.
Undanfarin fjögur ár hefur Lár-
us Æ. Guðmundsson verið for-
maður Umf. Fram á Skagaströnd.
ÓB.
Orkusparnaðar-
sýning á Ólafsvík
Olafsvík, 21. maí.
VERKEFNASTJÓRN um orkusparnað gengst þessa dagana fyrir sýningu í
Grunnskólanum í Ólafsvík á ýmsu því er að orkusparnaði lýtur.
Alls eru það 25 aðilar sem sýna
vörur sínar eða veita almennar
upplýsingar. M.a. má nefna að
Rannsóknastofnun byggingariðn-
aðarins sýnir æskilegan frágang á
húsum að utan, bæði steinhúsum
og timburhúsum, hvort sem um er
að ræða nýsmíði eða endurnýjun.
Orkustofnun er með ýmsar gagn-
legar upplýsingar um orkunotkun
á heimilum, m.a. í formi orku-
spilsins. Húsnæðismálastofnunin
veitir þarna m.a. upplýsingar um
lán til orkusparandi aðgerða. Síð-
ast en ekki síst sýna framleiðend-
ur og seljendur ýmissa byggingar-
efna og tækja vörur sínar, svo sem
ýmsar gerðir ofna og ofnastill-
inga, varmadælur, einangrunar-
efni og klæðningar, gluggabúnað
o.fl.
Sturla Böðvarsson, sveitarstjóri
í Stykkishólmi, form. húsahitun-
arnefndar SSVK, opnaði sýning-
una i fjarveru ráðherra. Hann gat
þess m.a. að sýning þessi væri
einn liðurinn í þeim aðgerðum og
áróðri sem í gangi væru til að
spara dýra orku í landinu. Væri
þar haft að leiðarljósi að í þessum
efnum færu alveg saman þjóð-
hagsleg hagkvæmni og bætt af-
koma þeirra sem orkuna nota.
Sýning þessi er vel sótt og voru
m.a. fjölmargir sveitarstjórnar-
menn af Snæfellsnesi viðstaddir
opnunina.
Helgi.
Götudrengir
íBíóhöllinni
BÍOHÖLLIN hefur tekið til sýninga
Götudrengi, sem gerð er af Francis
Ford Coppola. Myndina gerði hann í
framhaldi af Dtangarðsdrengjum, en
báðar eru myndirnar byggðar á sög-
um eftir S.E. Hinton.
Myndin segir frá Rusty-James
(Matt Dillon) sem lifir í skugga
eldri bróður síns. Sem táningur
var hann mikill klíkuleiðtogi og
götusérfræðingur, og hnífabar-
dagar voru daglegir viðburðir.
Eins og Utangarðsdrengir fjall-
ar þessi mynd um syni götunnar.
Þeir eru meðlimir í klíku sem hef-
ur illt orð á sér, fátækir drengir
sem í augum efnaðri borgara
tákna aðeins vandræði.
Leikstjóri er Francis Förd
Coppola, en aðalhlutverk eru í
höndum þeirra Matt Dillon, Mick-
ey Rourke og Diana Scarwind.
Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings
hf. afhendir Lárusi Æ. Guðmundssyni 75 þús. kr. styrk
til Umf. Fram.
Ingibjörg Kristinsdóttir gjaldkeri Umf. Fram tekur við
framlagi Hóaness hf. úr höndum stjórnarformannsins
Sigurjóns Guðbjartssonar
MEGUM
VE) BENDA ÞÉR Á
T.FTn
thskktia-
IÆKKUNAR
Pann 29. mars sl. samþykkti Alþingi tvenns
konar breytingar á skattalögum.
1 m Fyrirtæki og einstaklingar sem hafa tekjur
af atvinnurekstri geta nú dregið 40% frá
skattgjaldstekjum til að leggja í fjárfestingar-
sjóð. Sé það gert fyrir 1. júlí nk. lækka
skattar af tekjum á árinu 1983.
2m Einstaklingar sem hyggjast stofna
til atvinnurekstrar síðar geta nú lagt fé inn á
stofnfjárreikning og þannig notið
skattfríðinda.
I báðum tilfellum er það skylda að leggja fé
inn á sérstaka bankareikninga.
✓
Gtvegsbankinn er reiðubúinn að taka við
greiðslum inn á þessar tvær tegundir
reikninga nú þegar. Innistæðumar eru
verðtryggðar og bera hæstu vexti sem í boði
eru af slíkum reikningum.
Ráðgjafinn í Utvegsbankanum veitir nánari
upplýsingar. Spyrjið eftir honum á næsta
afgreiðslustað bankans.
ÚTVECSBANKINN
EINN BANKI • ÖLL ÞJÓNUSTA